Vísir - 24.05.1965, Síða 6
V í S I R . Mánudagur 24, maí 1965.
íslandsmótið —
Jramhald ols 11
vörður Akraness hafði komið auga
á hættuna og fór upp að mark-
stönginni. En það var samt smá-
eyða, sem hann hafði ekki lokað
og þar small boltinn af heljarafli,
milli hans og stangarinnar, 1:1.
Glæsilegt skot!
1 seinni hálfleik var talsverð
harka í leiknum og brot á báða
bóga. Magnús Pétursson, dómari
leiksins hafði talsvert mikið að
"tera að hemja menn, ekk’i sízt að
áminna menn um að gæta tungu
;innar, og í tvö skipti greip
Magnús til bókarinnar og skrifaði
niður leikmenn fyrir mótmæli,
:inn mann úr hvoru liði.
Keflavík hafði yfirhöndina í
seinni hálfleik og átt’i mun betri
tækifæri en Akranes. Hvað eftir
annað var framlínan með boltann
I vítateig Akraness, en þar var
raunar saman komið allt líð Akra
ness til varnar. Akurnesingar
höfðu greinlega gert sig ánægða
með jafntefli í útileiknum v’ið Is-
landsmeistarana.
Loksins eftir margar mis-
heppnaðar tilraunir, fjölmargar
aukaspyrnur og hornspymur,
kom homspyrna frá vinstri og
upp úr henni hrekkur boltinn
til Einars Magnússonar, sem
var við vítapunktinnn og hann
skaut þegar að marki, enda í
ágætu færi og boltinn fann leið
þótt ótrúlegt veeri, þræddi milli
fóta tveggja vamarmanna Akra
ness með jörðinni í vinstra
markhornið, en markvörðurinn
átti ekki möguleika á að verja.
Þetta gerðist 5 mínútum fyrir
leikslok og mátti því ekki miklu
muna að liðin skiptu stigunum
jafnt á milli sin.
Keflavíkurliðið virtist lík-
legt til alls. Eflaust ætlar það
að verja titil sinn og kannski
tekst það. Það verður erfiður
róður, enn erfiðari en að eign-
ast titilinn í fyrra. Liðið er
greinilega vel þjálfað lið, út-
hald nóg. hraðinn og fjörið í
framlínunni mikið og þrír ein-
staklingar hennar, Jón Jóhanns
son, Rúnar Júlíusson og Karl
Hermannsson eru beinlínis stór
hættulegir hvaða vörn sem er.
Hins vegar virtist vörnin nokk
uð sundurlaus í leiknum í gær.
Akurnesingar voru hins vegar
heldur slakir í gær, mun lak-
ari en gegn Reykjavík fyrir
rúmri viku. Ein stór breyt-
ing hafði þó orðið á liðinu til
batnaðar. Ríkharður Jónsson
var kominn sem hægri fram-
vörður. Ríkharður var elzti mað
urinn á vellinum, „nestor“ ís-
lenzkrar knattspymu, 37 ára
gamall og bar samt af hinum
yngri í yfirsýn og útsjónarsemi
í leik sínum. Framlína Akra-
ness var vitamáttlaus og furðu-
legt hvað lítið kom út úr mönn
um eins og Eyleifi og Bimi
Lárussynii Þeir hafa verið í
Bretlandi f vetur og kynnzt
þeirri knattspyrnu. sem þar er
á boðstólum, en hafa greinilega
ekki tileinkað sér þá hörku,
sem þar er gildandi. Mjög
mikla athygli mína vakti mark
varðarleikur Jóns Inga í marki
Akraness. Þar er miklð og gott
efni á ferðinni.
Dómari var Magnús V. Pét-
ursson. Hann dæmdi leikinn
ágætlega.
ÍR-mótið —
Framh. af bls. 11.
2. Jón Magnúson, ÍR 49.73
3. Jón Þ. Ólafsson, ÍR 35.40
Langstökk:
1. Úlfar Teitsson, KR 6.73
2. Ragnar Guðmundsson Á, 6.58
3. Gissur Tryggvason, UMFD 6.08
4. Einar Þorgrímsson, ÍR 6.03
Hástökk:
1. Jón Þ. Ólafsson, ÍR 1.93
2. Erlendur Valdimarsson, ÍR 1.84
(Drengjamet)
100 m hlaup kvenna:
1. Halldóra Helgadóttir, KR 13.0
2. Linda Ríkharðsdóttir, IR 13.7
3. Sólveig Hannam, IR 14.0
4. Petrína Ágústsdóttir, UBK 14.9
100 m hlaup sveina
1. Einar Þorgrímsson, ÍR
11,9
Það er orðið til stórskammar, að
greinar sem kringlukast skuli fara
fram innan um aðrar greinar á
sama tíma,« enda vísasti vegurinn
til banaslysa. Þá má gjaman benda
forráðamönnum íþróttamóta á
hversu óskemmtilegur dauðdagi
það er íþróttamanni, að fá spjót
í gegnum sig, sem hefur þó gerzt
erlendis. Ennfremur er leiðigjamt
að heyra þul mótsins gjamma orð-
skrípið „mígrafónn", þegar við eig
um orðið „hljóðnemi". Það þarf
meira en gott veður til að laða
fólk að frjálsíþróttamótum, — það
þarf góða mótsstjórn.
B. S.
Gæfan fylgdi —
Framhald af bls. 1.
Nú vantaði aðeins 5 undir-
skriftir og beindist nú öll at-
hyglin að fimm þingmönnum úr
Vinstriflokknum, sem svo hafði
verið ástatt um, að þeir höfðu
árið 1961 undirritað áskorunina
um að fresta handritamálinu
eitt kjörtímabil.
Þessir fimm menn voru:
Anders Chr. Andersen,
Sören Andersen,
Per Federspiel,
Gustav Holmberg,
Sören Jensen.
Svo fór, að á föstudagsjcvöld-
ið fengust þeir Sören Andersen
og Sören Jensen til að undir-
rita plaggið og var talan þá kom
in upp í 57. Hinir þrlr urðu fyr-
ir mikilli ánauð á laugardaginn,
en þeir stóðust allar atlögur, og
þannig eru það þessir þrlr menn
Anders Andersen, Federspiel og
Holmberg, sem segja má, að
hafi bjargað þessu máli fyrir Is-
Iand á síðustu stundu. Er vert
að minnast þessara manna og
verður það gert hér I blaðinu
á næstunni.
Ástæður fyrir því að þeir stóð
ust prófið eru taldar margs kon-
ar, m. a. hvatning Hartlings,
varaformanns flokksins, en einn
ig er talið að það hafi haft sín
áhrif I þessu máli, að forustu-
kreppa kom upp I Vinstriflokkn
um Erik Eriksen hefur sagt af
sér og er það viðkvæmt og erf-
itt mál I flokknum.
Þyrian —
Framh. af bls 16.
nal Helikopters. Á félagið um 60
helikopterflugvélar margar af þess
ari tegund. Er vélin hið mesta
bákn og eru skrúfublöðin til dæm
is um 11 metrar á lengd hvert um
sig.
„Við höfum verið mjög heppnir
með veður“ sögðu þeir flugmenn-
imir á„ Morgunstjömunni". Þeir
reiknuðu með að flugið frá Strat-
ford til London tæki 35 klukku-
tíma, en þeir lentu á 6 stöðum
innan Bandaríkjanna og Kanada
til að taka benzín og lentu tvíveg-
is I Grænlandi og fara héðan til
Hornafjarðar og Færeyja, þá
Prestvíkur og London.
„Með þessu spörum við helming
flutningskostnaðar“, sögðu þeir,
„Danski flugherinn ætlar að gera
slíkt hið sama við 10 vélar, sem
hann er að kaupa, ef allt fer vel“.
OAS-menn hnndteknir í
mörgnm borgum Frakklnnds
í NTB-frétt frá Saint Malo í
Frakklandi segir, að handteknir
hafi verið 11 menn, þar af 2 hátt
settir menn í upplýsingaþjónustu
ríkisins, vegna aðildar að leyni-
félagsskapnum OAS, sem er bann-
aður í Iandinu. Það var þessi
félagsskapur sem hélt uppi bar-
áttunni gegn de Gaulle og stefnu
hans í Alsir.
Nýtt gos —
Framhald af bls. 1.
fyrr segir vera komin meiri
ólga I sjóinn.
Sigurður Þórarinsson jarðfræð-
ingur sagði við Vísi I morgun
að á þessu stigi væri ekki hægt
að spá neinu, hvað gerðist
þama. Hann benti hins vegar á
það, að nú væri Surtseyjargos
á tímamótum. Nú myndi hraun
ið vera stíflað eins og tappi I
sjálfum Surtseyjargíg. Það gæti
þá vel átt sér stað að hraun
gosið brytist út á nýjum stað.
Þess vegna er rétt að fylgjast
mjög vel með því sem þarna
er að gerast.
SÍÐUSTU FRÉTTIR
Rétt áður en Vísir fór I prent
un var dr. Sigurður Þórarinsson
á leið til Reykjavíkur aftur úr
könnunarflugi með flugvél flúg-
málastjómarinnar. Hafði blaðið
samband við hann um borð í Vél
inni og kvað hann þá hafa séð
þarna mikla ólgu í sjónum og
var sjórinn kolmórauður. Er því
greinilegt að þarna eru einhver
umbrot á hafsbotni.
Málsóknin —
Framh. af bls. 1
ekki tek’izt að fá málinu frest-
að.
Málsókn felur það I sér, að
krefjast þess að dómstólar
dæmi lögin um handritaafhend
ingu ólögleg, þar sem þau fari
I bág við e’ignarréttarákvæði.
stjómarskrárinnar. Er sú rök-
semdaleiðsla byggð á því, að
þing og ríkisstjórn geti ekki
breytt þe’im ákvörðunum, sem
eiga að hafa staðið I erfðaskrá
Árna Magnússonar og síðan 1
stofnskrá Áma Magnússonar-
sjóðs. Halda andstæð’ingar Is-
lendinga því fram, að ef ákvörð
un þjóðþingsins verði látin
gilda sé stofnað I hættu tilveru
rétt’i allra sjóða og legata I
Danmörku.
► Forsprakkar uppreisnar-
manna í Kongó komu saman I
fyrri viku I Yei I Suður Súdan.
Stjórnin i Súdan hindraði einn
þeirra, Olenga hershöfðingja í
að fara þangað, en hún mun vin
veitt Gbenye sem er forsætis-
ráðherra uppreisnarstjómarinn-
ar. Borizt hafa fréttir um, að
Gebenye hefði særzt, en ýmis-
legt er á huldu um þetta, nema
að hann særðist í árás, sem var
gerð á hann.
► Couve de Murville utanríkis
ráðh. Frakklands sagði á þing-
fundi í fyrri viku, að endursk.
bæri sáttmála Norður Atlants
hafsbandalagsins og hafa lokið
því 1969 á tuttugu ára afmæli
hans, en margir ætla að franska
stjórnin muni ekki sætta sig við
svo langa bið á endurskoðun
inni. Ráðherrann sagði Frakka
all lengi hafa ver ð óánægða
með sáttmálann.
Handtökurnar áttu sér stað eftir
að lögreglan komst að því, að deild
úr OAS I Saint Malo var með
grunsamleg áform á prjónunum og
var birt frétt um þetta frá lögregl-
unni I Saint Malo I gær. Handtök-
urnar áttu sér stað I eftirtöldum
borgum og bæjum: Nantes, St.
Malo, Rennes, Brest og Cherbourg.
Handtökurnar áttu sér stað I vik-
unni sem leið.
Vegna ferðalags de Gaulle for-
seta um V-Frakkland vöktu hand-
tökurnar sérlega athygli, þótt til-
kynnt væri, að þær væru ekki á
yfir mönnum, sem kunnir eru sem
neinn hátt tengdar öryggi hans á
ferðalaginu.
Lögreglan í Saint Malo komst á
sporið, þegar OAS-skjöl fundust
hjá manni nokkrum búsettum þar,
en yfirheyrslur fóru þar næst fram
andsteeðingar de Gaulle. Auk
skjala hefir verið lagt hald á
vopnabirgðir, einkum skammbyss-
ur.
Innanríkisráðherra Frakklands,
Roger Frey, hefur tilkynnt, að gefn
ar hafi verið gætur að deildinni í
5 misseri, en henni hafi verið lof
að að starfa, til þess að unnt væri
að ná sér betur niðri á hreyfing-
unni eftir að hún hefði starfað nokk
ur misseri í trausti þess, að ekki
væri um starfsemina kunnugt.
Flestir hinna handteknu hafa ver
ið fluttir með leynd til Parísar.
Meðal hinna handteknu er ein kona.
Einn hinna handteknu mun hafa
verið tengiliður milli deildarinnar
og landflótta OAS-manna í Belgíu.
HEIMILIS.
KLUKKUR
m
UG \
000 r
Atlanta-klukkurnar eru teiknaðar
í nútímaformum.
Nútímaform fyrir nýju heimilin
ÚRSMIÐIR - GULLSMIÐIR
Jon Slpunilssan
SkQrtyripaverzlun
„Fagur gripur er æ til yndis“
Atvinna óskast
17 ára reglusamur piltur óskar eftir góðri at-
vinnu. Uppl. í síma 22131 næstu daga.
Til leigu
Til leigu nýuppgerð, sólrík 2 herbergja íbúð
á hæð á Skólavörðuholti. Tilboð merkt „Fyr-
irframgreiðsla — 503“ sendist Vísi íyrir mið-
vikudagskvöld.
JAZZ-klúbburinn
Kvartett Guðmundar Steingrímssonar leikur
frá kl. 9—11.30 á jazzkvöldinu í kvöld.
JAZZKLÚBBURINN, Tjamarbúð