Vísir - 09.09.1965, Síða 11

Vísir - 09.09.1965, Síða 11
II. SíÐAN | Lemmy ruglar andlitinu á skúrkinum EDDIE er meinilla við LEMMY í Vissuð þið að Eddie Constant ine hatar Lemmy? Nei, það er ekki von. Flestir halda að þetta sé einn og sami maðurinn, Eddie og Lemmy, enda er hann oftast nefndur Eddie „Lemmy“ Constantine í auglýsingum kvikmyndahús- anna. V Nú segir Eddie að hann hafi leikið Lemmy í frönsku myndun • • fimm aura • • • • kúlur Þegar CASSIUS CLAY birt ist skyndilega f Skotlandi fyrir nokkrum dögum, spurðu blaða- menn hann hvort hann væri í einhverjum sérstökum erinda- gjörðum. „Já, ég ætla að heim sækja kofa Roberts Burns í Ayrshire“, sagði hann. Blaða- menn kunnu vel að meta þetta. Þeir höfðu ekki búizt við að „rotarinn‘“ mikli kynni svo vel að meta þjóðskáld þeirra að hann kæmi gagngert til að heim sækja kofa hans. „Þér hafið e. t. v. fengið áhuga á bók- menntum e’ins og Gene Tunney fyrirrennari yðar“, spurðu þeir. „Nei alls ekki. Ég hef alltaf haft hann. Ég ætla bara að athuga hvort Burns hafi verið meira skáld en ég.“ Ailir íbúar þorpsins Crumlin í Suður-Wales fengu fyrir nokkru 300 krónur hver fyrir að rýma þorpið algjörlega i nokkra klukkutíma. Fóru þeir allir burtu, 400 talsins en komu aftur þegar búið var að taka þarna atrið'i í kvikmyndina „Arabeque." Loren og Gregory Peck. Þau sögðu eftir myndatökuna að þau hefðu fengið hroll þegar þau komu inn í þetta dauða þorp. Þjóðverjar ætla nú að fara að kvikmynda „Pétur Gaut“ Ib- sens. Framleiðandinn Arthur Brauner sagði b'laðárhönnum fyrir skömmu að búið væri að ráða aðalleikarann — hann er LEX BARKER sem raunar er betur þekktur sem TARZAN, en enginn leikari hefur náð jafn miklum vinsældum í því hlut- verki og Barker. Það verður fróðlegt að sjá hverning honum gengur að leika Pétur Gaut. 3 herbergja íbúð í Goðheimum Höfum verið beðnir að selja 3 herb., vandaða íbúð við Goðheima. íbúðin er á jarðhæð (ekk ert niðurgrafin). Sér inngangur, sér hitaveita harðviðarinnréttingar. Teppi fylgja. HÚS OG SKIP FASTEIGNASTQFA Laugavegi 11, simi 2-1515 Kvöldsimi 23608 - 13637. 3 herbergja jarðhæð við Sólvallagötu Höfum til sölu 3 herb. jarðhæð í steinhúsi við Sólvallagötu. Verð kr. 650 þús. Útborgun kr. 400 þús. Mjög þægileg íbúð. HÚS OG SKIP FASTEIGNASTOFA Laugavegi 11 . Sími 21515 — Kvöldsimar 23608 — 13637. um í 15 ár — og það sé 15 ár- um of mikið. En þetta þarf ekki að boða það að þessi mikla slagsmálahetja sem held ur utan um stúlkuna sína með annarri hendi og- rotar skúrkana með hinni, sé að kveðja þetta vinsæla hlutverk. Hann hefur sagt eitthvað svipað þessu öll þessi ár. Það sem styður þessa trú vora er það, að Lemmy- myndirnar gefa góðan skilding bæði leikurum og framleiðend- um og þá ekki síður þeim kvik- myndahúsum, sem fá myndim- ar til sýningar. Eddie Constantine býr skammt fyrir utan París í ein- býlishúsi. í rauninni er Eddie nokkuð líkur Lemmy, nema hvað höndin er honum ekki eins laus í einkalífinu, — sem betur fer. Hann heldur stórar og mikl- ar veizlur og á eigin hesta á veðhlaupabrautinni. „Og alltaf eru það einhverjir reikningar til að borga,“ segir hann og andvarpar. „Og þá er nýtt Lemmy-handrit komið upp í hendurnar á manni ásamt samn ingi og þá verð ég að grípa til pennans og setja nafnið mitt untíH itil nfi geta borgað reikn- ingaflóðið". En Eddi.e er þreytt- ur á Lemmy leinilögreglumanni. Hann lék í Alphaville, mynd Je- an-Luc Godards en fannst bara að hann væri eins konar Lemmy framtíðarinnar. „Ég vildi gjam- an leika eins konar Gary Grant kómídeu, það er dálítið óvenju- legt fyrir mig.“ ☆ Nú er ekki svo að skilja að Eddie sé neitt leiður á lífinu. Síður en svo. Hann er mjög stolt ur að eigin sögn af persónuleg- um viðskiptum sinum við menn eins og Frank Sinatra og Gre- gory Peck. Árið 1936 var hinn ungi Eddie Constantine i reynslu I einu kvikmyndavera Holly- wood ásamt Mickey Rooney, Oli via De Havilland og John Dav is Lodge, sem síðar varð am- bassador. Þau vom að reyna að fá hlutverk í „Jónsmessunætur- draumi. Constantine hinn ungi var ekki ráðinn í hlutverk. Hann var ráðinn sem einkabílstjóri Joan Crawford! í mörg ár var Eddie heldur ekki sérlega áberandi í París. Það var ekki fyrr en einn fram- leiðandinn uppgötvaði hann, sá eitthvað óvenjulegt við andlitið, sagði að það væri eins og mark- skifa og úr þessum manni gerði hann Lemmy Caution, banda- ríska leynilögreglumanninn, sem síðustu 15 ár hefur verið vin- sælastur allra á hvíta tjaldinu og heldur enn velli þrátt fyrir Jam- es Bond, aðsóknin að myndun- um er samt sú sama og öllu meiri þó að sögn erlendra kvik- myndahúsaeigenda. um ekki þá hneisu henda okk- ur, að í málinu festist sú „am- baga“, að svo og svo mörg „sjón vörp“ séu nú í notkun á ís- landi, enda mun eng’inn Islend- ingur tala, né rita um mörg Útvörp, þegar átt er við við- tækjafjölda. Ég vona og treysti þvi, að for ráðamenn Sjónvarpsins séu mér sammála um þetta atriði, en tel aðra mér færari um að skapa framtíðarnafnið. Að lokum langar mig að minna hér á, að við stofnum út varps á íslandi komu þegar fram 2 he'iti á fyrirbærinu: „Víð varp“ og „Útvarp“. Munu nú flestir telja, að vel hafi ráðizt nafnagiftin þá. Hver vildi nú t. d. skipta á hinu stutta og laggóða „Síma“- nafni og „Telephon", sem nærri lá, að fengi festu í málinu, af því að farið var að stytta það og tala um að „fóna“? Sem bet ur fer sigraði síminn, þótt ekki kæmi nýyrðið fram í upphafi símanotkunar á íslandi. Einn sérvitur. Kári skrifar: í Hugtak og -tæki. Útvarp og -viðtæki. I Sjónvarp og -hvað? i Margt vildi ég um sjónvarp- ið segja, fyrst setztur er ég við borð. Um flest það ég þó ætla að þegja, oft þögnin er betri en I orð. i Þessar fáu línur eiga aðe'ins ' að fjalla um eitt atriði við- víkjandi tækjunum sjálfum. Ég vil Ieyfa sjálfum mér, að bera fram fyrirspum til þeirra fram- sýnu manna, sem nú keppast við að koma á sjónvarpi á okkar fáinenna, en stóra og fjöllótta landi, — fyrirspurn um hvaða nafng'ift sé fyrirhuguð þvf undratæki, sem á að veita sjónvarpinu viðtöku og fram- kalla viðstöðulaust úr þvi lif- andi myndir, (eins og kvikmynd irnar voru fyrst nefndar á Is- landi). Vonandi hafa okkar málhög- ustu menn nafnið þegar tilbú'ið, — en „hvað dvelur Orminn langa?“ Þegar svo langt er kom Islandi, að þegar eru ráðnir fastir starfsmenn, þá er orðið meira en mál, að opinbera al- menningi nafn'ið á þessu töfra tæki, og það jafnvel þótt eng- in tæki væru enn tekin í notk- un hér á íslandi, hvað þá, þegar þúsundir sjónvarpstækja eru þegar í notkun. Þótt segja mætti, að orðið „Viðtæki" gæti eins vel átt við sjónvarp og annað útvarp (hljóð varp), þá er tungan okkar svo „orða frjósöm móð'ir", að ekki ætti okkar málfróðu mönnum að verða skotaskuld úr því, að gefa framtíðinni 2 nöfn á þessum mismunandi fjölmiðl- unartækjum, þótt skyld séu. Framtíðamafn. Við íslendingar getum verið hreyknir af hinu ágæta sjón- varpsnafni á athöfninni sjálfri og og væntanlega stofnuninn’i einnig, einkum ef hugleidd er uppgjöf frænda vorra á Norður löndum við að gefa þessu fram- tíðar fyrirbæri þjóðlegt nafn (eins og útvarpinu), — en lát- Dæmigert atvik úr Lemmymynd. Lemmi er í faðmlögum en rotar um leið einn af fjandmönnum sinum með hamri.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.