Vísir - 09.09.1965, Blaðsíða 16
Slökkviliðið var í gærdag kvatt
að vélsmiðjunni Héðni vegna elds,
sem kvlknað hafði á verkstæði
smiðjunnar.
Þegar slökkviliðið kom á stað-
inn logaði glatt í benzínknúinni
rafsuðuvél og urðu á henni all-
miklar skemmdir. Tókst fljótlega
að slökkva f henni og um annað
brunatjón var ekki að ræða.
Hyggst heimsækja 5 Miðjarðarhafslönd
Sennilegt er að Karlakór
Reykjavíkur fari f mikla ferð
um páskaleytið næsta ár. Hefur
Vísir frétt eftir áreiðanlegum
heimildum að samningaviðræð-
ur karlakórsins við ýmsa aðila
séu langt komnar og verði eitt
af skipum danska gufuskipafé-
lagsins, Kronprins Frederik,
leigt til fjögurra vikna í þessa
ferð. Er það skip nýrra og tals-
vert rúmbetra en Kronprins
Olaf, sem er í áætlunarferðum
til fslands.
Skip þetta tekur 300 manns
og mun ráðgert að fá farþega í
öll pláss til að gera kostnað
eins lítinn og unnt er. Kórfé-
lagar í Karlakór Reykjavíkur
munu vera 45 talsins og margir
munu fara með konur sínar
með sér. Hins vegar munu fjöl-
margir farþegar geta fengið
þama ódýra en skemmtilega
ferð, en svipað ferðalag karla-
kórsins til Miðjarðarhafsland-
anna 1953 með Gullfossi var
sérstaklega vel heppnað.
Löndin sem nú á að heim-
sækja munu vera Israel, Egypta
land, Grikkland, Ítalía og
Spánn. í Gullfossferðinni fyrir
12 árum var farið til Alsír,
ftalíu, Frakklands, Mónakó,
Spánar og Portúgal.
Dælupramminn á Mývatni. Tilraunadælingin hefur gengið mjög vel.
Lítili afli en gott
verð í Þýzkalandi
Lítið hefur verið um togarasölur
eriendis í þessum mánuði þótt kom
inn sé sá tími, sem þær taka
venjulega að aukast. Það sem af
er mánuðinum hafa verið þrjár
togarsölur allar í Þýzkalandi. Gott
verð hefur fengizt en fiskimagnið
verið lítið. Erfitt er að hagnýta
sér þýzka markaðinn vegna þess,
að Þjóðverjar vilja ekki fá karfa,
þar sem þeirra eigin togarar fiska
BRA BA BIR6DA SAMKOMU
IAS UM KlSllSIÍRIBJU
Fulitrúar ríkisstjómarinnar
hafa átt mjög jákvæðar viðræð-
ur við fulltrúa bandariska fyrir-
tækisins Johns-Manville um kís-
ilgúriðju vi'ð Mývatn og hefur
Setudómari skipað-
ur í Lungjökuls-
mólinu
Setudómari hefur nú verið skip-
aður í Fríhafnarmálinu svonefnda,
en það fjaliar sem kunnugt er um
að við birgðatalningu kom í ljós j
lítilsháttar rýmun á birgð-
um Fríhafnarinnar á Keflavíkur-!
flugvelii. Setudómari í málinu hef-1
ur verið skipaður Logi Guðbrands-
son, sem verið hefur fulltrúi yfir-
sakadómara í Reykjavík.
verið gert bráðabirgðasamkomu
lag um framgang málsins. Blað-
inu hefur borízt fréttatilkynning
frá iðnaðarmálaráðuneytinu um
þessa samninga og fer hún hér á
eftir:
Dagana 30. til 31. ágúst s.l.
fóru fram hér í Reykjavík fram-
haldsviðræður á milli fulltrúa
ríkisstjómarinnar og bandaríska
fyrirtækisins Johns-Manville,
New York, varðandi möguleika
á samvinnu við framleiðslu og
sölu kísilgúrs úr botnleðju Mý-
vatns.
Fulltrúar ríkisstjórnarinnar í
viðræðum þessum voru þeir
Magnús Jónsson, fjármálaráð-
herra, dr. Jóhannes Nordal,
bankástjóri, Karl Kristjánsson,
alþingismaður, Pétur Pétursson,
forstjóri, og Halldór Jónatans-
son, deildarstjóri. Af hálfu
Johns-Manville tóku þátt í við-
ræðunum þeir Mr. Roger
Hackney, forstjóri, og Mr. Wolf
Lehmann, sölustjóri.
Viðræður þessar voru mjög já
kvæðar og var gert bráðabirgða-
samkomulag um framgang máls-
ins. Samkvæmt því skyldi stefnt
að stofnun tveggja hlutafélaga,
framleiðslufélags, er annast
skuli byggingu og rekstur kísil-
gúrverksmiðju við Mývatn og
sölufélags, er annaðist sölu fram
leiðslunnar, en bæði félögin
skyldu staðsett hér á landi.
Johns-Manville hefur enn
eigi lokið yfirstandandi athugun
sinni á gæðum hráefnisins úr
Mývatni, en sú athugun hófst í
júlí s.l. Að svo miklu leyti, sem
niðurstöður l'iggja fyrir nú þeg-
ar, eru þær allar jákvæðar.
Johns-Manville gerir ráð fyrir,
að athugunum þessum sé lokið
fyrir 31. janúar n. k. og mun
fyrirtækið þá reiðubúið að
ganga frá endanlegum samning-
um um þátttöku af sinni hálfu,
svo framariega sem öll tækni-
leg vandamái séu þá leyst.
Framh á bls. 6
Smyglmálið í Langjökli er
enn í rannsókn og sitja 10 menn
úr áhöfn skipsins enn í gæzlu-
varðhaldi. Hafa þeir nú setið í
varðhaldi nærri einn mánuð, en
það var um 10. ágúst sem upp
komst hið mikla áfengissmygl
. nægilegan karfa fyrir markaðinn.
Stunda Þjóðverjar karfaveiðar sín
ar nú aðallega í kringum ísland.
Þessar þrjár sölur sem hafa ver
ið í mánuðinum eru: Marz seldi 2.
sept. 107 lestir í Cuxhaven fyrir
um 104 þús. mörk. S. 1. mánu-
dag ,6 sept. seldi Hallveig Fróða-
dóttir í Bremerhaven 120 lestir
fyrir 116V2 þús. mörk og daginn
eftir Röðuil 147 >4 tonn fyrir 160
þús. mörk.
Verð það sem Röðull fékk fyrir
fiskinn mun vera með hæsta með
alverði sem fengizt hefur fyrir fisk
í Þýzkalandi, en magnið var lítið,
svo að salan hefur ekki orðið jafn
hagkvæm og ef magn’ið hefði verið
meira.
í dag mun togarinn Surprise
selja í Englandi. Þar hefur markað
ur síðustu vikur ekki verið góður.
Flestir togamir hafa vegna þessa
örðuga markaðsástand fiskað til
heimalöndunar. Þrír togarar Júpi-
ter Geir og Fylkir hafa t. d. kom
ið til Hafnarfjarðar í þessari viku.
Surprise seldi í dag í Grimsby
112,3 tonn fyrir 11.372 sterlings-
pund. Það er mjög gott meðalverð,
en sama gildir og um Þýzkalandssöl
urnar, að magnið er of lítið.
i skipinu. Er ekki enn hægt að
sjá fyrir endann á rannsókninni
og því ómögulegt að segja hve-
nær skipsmennirnir verða látnir
lausir. Málið er nú í höndum
vfirsakadómara Þórðar Bjöms-
sonar.
10 Langjökulsmenn
enn í varðhaidi
Bílþjófnaður
í fyrrinótt var tilraun gerð til
þess að stela þrem bíium á Akur-
eyri.
Síðasta tilraunin bar þann ár-
angur að þjófnum tókst að koma
bílnum 1 gang og komst á honum
norður að vegamótunum á Mold-
haugnahálsi. Þar ók hann út af og
fannst bifreiðin mannlaus úti í
skurði við veginn í gærmorgun
þegar að var komið.
d Akureyri
Þessum bíl hafði verið stolið í I
Munkaþverárstræti, en þar hafði !
tilraunir verið gerðar til að tela öðr-1
um bíl, og þeim þriðja í Brekku-
götu, án árangurs þó. Samt hafði
annar þeirra verið látinn renna,,
unz hann hafnaði á mannlausum I
bii og þar stóð hann í gærmorgun
þegar eigandinn tók að svipast um
eftir honum.
t'ýr formaður og skrifstofu•
stjórí Húsnæðismálastjómai
Á fundi Húsnæðismálastjórn-
ar í gær var Óskar Hallgrímsson
kjörinn formaður stjómarinnar.
Þá var Sigurður Guðmundsson
framkvæmdastjóri Aiþýðuflokks
ins ráðinn skrifstofustjóri Hús-
I
næðismálastjórnar.
Báðum þessum störfum hefur
Eggert G. Þorsteinsson alþm.
gegnt til þessa. Er hann varð
ráðherra lét hann af þessum
störfum og tók varamaður hans
Óskar Hallgrímsson sæti hans í
Húsnæðismálastjóm. Var hann
af stjórninni einnig kjörínn til
þess að taka sæti Eggerts sem
formaður stjómarinnar, sem
fyrr seglr.