Vísir - 01.12.1965, Síða 8
8
V í S I R . Miðvikudagur 1. desember 1965.
VISIR.
Otgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR
Framkvæmdastjóri: Agnar Clafsson
Ritstjóri: Gunnar G. Schram
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson
Þorsteinn Ó. Thorarensen
Auglýsingastj.: Halldór Jónsson
Sölustjóri: Herbert Guðmundsson
Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald: kr. 90,00 á mánuði .innanlands
í lausasölu kr. 7,00 eintakið
Prentsmiðja Visis — Edda h.f.
Tvær stefnur
þegar viðreisnarstjórnin kom til valda, í nóvember
1959, hafði þjóðarbúskapur íslendinga um langt skeið
verið rekinn með halla gagnvart útlöndum. Þessi
hallarekstur hófst í lok styrjaldarinnar og hélzt að
heitamátti óslitið, ef frá er talið árið 1954. Fyrst var
hallinn jafnaður með notkun erlendra innstæðna,
sem safnazt höfðu á stríðsárunum, síðan með efna-
hagsaðstoð frá Bandaríkjunum, á tímum Marshall-
áætlunarinnar, og loks með erlendum lántökum.
Þannig hafði stöðugt sigið á ógæfuhliðina. Á
árunum 1955— 1958 nam hallinn 776 millj. kr. eða
tæplega 200 millj. kr. á ári að meðaltali. Þar af voru
568 millj. kr. jafnaðar með erlendum lántökum, en
208 millj. kr. með því að eyða gjaldeyriseignum og
mynda gjaldeyrisskuldir.
Þessi mikla lánsfjárnotkun leiddi auðvitað til
þess, að greiðslubyrði landsins vegna vaxta og af-
borgana af erléndum lánum fór ört vaxandi. Og þeg-
ar vinstri stjórnin gafst upp í byrjun desember 1958
var svo komið, að gjaldeyrisstaða íslands var verri
en nokkurs annars lands, sem upplýsingar lágu fyrir
um, að einu eða tveimur e. t. v. undanskildum. All-
ir yfirdráttarmöguleikar íslenzkra banka erlendis
voru nýttir til hins ýtrasta og mjög tilfinnanlegar
hömlur á gjaldeyrisyfirfærslum, jafnvel til brýnustu
nauðsynja. Allir sáu að við svo búið mátti ekki
standa. Við borð lá að landið gæti ekki staðið við
umsamdar skuldbindingar sínar erlendis, m. ö. o.
væri að komast í greiðsluþrot, en slíkt ástand hafði
þá óvíða þekkzt síðan á árum heimskreppunnar
miklu, og þetta skeði hér á íslandi í góðu árferði
innan lands og hagstæðu verzlunarárferði á erlend-
um mörkuðum, nema að nokkur verðlækkun varð á
bræðslusíldarafurðum.
Orsök greiðsluhallans var ekki sú, að útflutn-
ingsframleiðsla og gjaldeyristekjur væru litlar. Þær
höfðu aldrei verið meiri í sögu þjóðarinnar. Orsökin
var röng gjaldeyrisskráning og útlán banka umfram
sparifjáraukningu. Þær orsakir varð að nema burt,
að öðrum kosti var engin lækning hugsanleg. Vinstri
stjórnina brast getu til þess að ráða fram úr þessu
vandræðamáli og því varð hún að segja af sér.
Þrátt fyrir þetta áfall þykist Framsóknarflokk-
urinn enn sem fyrr geta kennt öðrum fjármálastjórn.
En getur það verið að þeir, sem vitá og muna hvernig
honum tókst síðast — og raunar áður líka — treyst
honum til forustu? Hlutlaus samanburður á gjaldeyr-
isstöðu landsins í árslok 1958, þegar Framsóknar-
flokkurinn skilaði af sér, og nú, hlýtur að verða
viðreisnarstjórninni mjög hagstæður. Hér þarf einskis
áróðurs við. Staðreyndirnar tala sínu máli. Annars
vegar er skipbrot Framsóknarstefnunnar, en hins
vegar glæsilegur árangur viðreisnarstefnunnar.
li
Þúsund safnaðarsyst-
vera æskilegt að hafa þessa
— en 50% þeirrn á ellilnunum
ur í
SVÍÞJÓÐ
Orðið diacon merkir, að þjóna,
frá því orði er runnið djákni,
Erlendls gegnir kvenfólk svip
uðum störfum og djáknamir og
nefnast þær diaconissur. Á ís-
lenzku nefnast þær safnaðar-
systur og nýverið var fyrsti
kvendjákninn eða safnaðarsyst-
irin Unnur Halldórsdóttir vigð
til þjónustu við söfnuð sinn
Hallgrímssöfnuð.
Eann morguninn heimsótti Vísir
Unni £ Þingholtin þar sem hún
er fædd og uppalin á heimili
hennar að Laufásvegi 19.
Hún kemur til dyra, ung
stúlka 23 ára gömul, fremur há
og grannvaxin, dökkhærð, stilli
leg. I stofunni er sannkallað
blómahaf
Skömmu síðar kemur inn syst
ir Kerstin Ákerström, rektor
diaconissuskólans í Svíþjóð,
sem Unnur nam við. Hún er
klædd gráum síðum búningi
með hvítan kappa.
Skólinn hennar Samariterhemm
et í Uppsölum er einn af fjórum
skólum fyrir safnaðarsystur í
Svíþjóð, stofnaður 1882, en
fyrsta diaconissan í Svíþjóð tók
til starfa í Stokkhólmi árið
1851.
„Það eru ekki margir nemend
ur við skólann", segir systir
Akerström, sem er guðfræðing
ur að mennt, „ekki eins margir
og við kysum að væru, nemend
urnir eru núna 25 talsins og
skólanámið er fjögur ár, nema
fyrir þá sem hafa undirstöðu-
menntun, þá er námstíminn eitt
ár. Diaconissustarfið er svipað
öðrum störfum sem fólk gegnir
og náminu hagað á svipaðan
hátt. Það er hægt að velja um'
fjórar sérgreinar í skólanum
hjúkrun, þjóðfélagsfærði, upp-
eldisfræði og guðfræði".
„Hvað eru margar safnaðar-
systur í Svíþjóð núna?“
„Það eru eitt þúsund safnaðar
systur í Svíþjóð, segir systir
Akerström og hlær glaðlega áð
ur en hún bætir við, „en það
eru 50% þeirra á ellilaunum,
það er svo margt annað að velja
um fyrir ungar stúlkur“.
„Reynið þið ekki að kynna
starfið fyrir þeim?“
„Jú síðustu tíu árin í gegn
um æskulýðsstarf, við höfum
líka farið í skólana, og gefið
þeim kost á að dvelja í viku,
hálfan mánuð á Samariterhemm
et, til þess að kynnast starfsem
inni“.
„Hver eru starfsvið stúlkn-
anna, þegar þær hafa lokið
námi?“
„Þær vinna með prestinum,
starfa að hjúkrun í heimilinum,
hafa tíma með börnunum á dag
inn, unglingunum á kvöldin og
eldra fólki síðdegis. Þær starfa
einnig með kvenfélögum safnað
anna. Þær sem hafa tekið þjóð-
félagsfræðina geta í starfi sínu
setið á sinni skrifstofu og gef
ið leiðbeiningar þaðan, en einnig
farið inn á heimilin og hjálpað
fólki í öðrum erfiðleikum en
þeim, sem þær i hjúkrunarstörf
unum vinna við. Það eru ekki
margar sem valið hafa guðfræð
ina en starf þeirra er fólgið í
því að vera æskulýðsfulltrúar,
venjulega fyrir stór svæði. Þær
halda fundi með öðrum æsku-
lýðsleiðtogum og skipuleggja
starfið við að útbreiða kristin
dóminn meðal unga fólksins,
þær annast líka fermingarundir
búning með prestunum og fleira
viðkomandi safnaðarstarfinu".
„Eru ekki skólar, samsvar-
andi diaconissuskólunum, fyrir
djákna i Sviþjóð?"
„Það er einn djáknaskóli fyrir
utan Stokkhólm, sem stofnaðpr
var árið 1898. Þeir sem útskrif
ast þaðan eru nærri allir þjóð
félagsfræðingar. Við skólann
eru tengd ýmis heimili svo sem
fyrir flogaveika, drykkjumenn
o. fl. sem þarfnast hælisvistar
og vinna flestir djáknanna við
hælin en ekki við söfnuðina.
„Nú ert þú útlærð sem fóstra
Unnur, svo að starf þitt verður
við uppeldismálin, kemur krist
infræðsla ekki þár inn í?“
„Jú, ég vinn við barna og
æskulýðsstörf og önnur safnað
arstörf. í skólanum verðum við
fyrir vissum áhrifum og það
kemur fram í starfinu".
„Ertu farin að skipuleggja
starfsemina?"
„Já, ég hef áhuga á að koma
á bamatímum kirkjunnar. að
þau börn, sem koma i sunnu-
dagsskóla komi i föndurtíma
tvisvar í viku og nota þá tæki
færið til þess að kenna þeim
kristin fræði. Það mvndi ekki
hópa stóra, 10—15 bðm í öma
myndi véra mátulegt. Æskulýðs
starfið myndi byrja með ferm
ingarbömunum, með því að
hafa kvöldsamkomur og ftmdi“.
„En svo vikið sé aftur að
skólanum systir Ákerström
hvemig er skólalífinu hagað?“
„Það er dýrmætt að hafa
kristilegan skóla, sem jafnframt
er heimili. Nemendumir borða
saman og taka þátt í reglu-
bundnu bænalífi. í byrjtm er
þetta nýtt og framandi fyrir
nemendur en þeir venjast því“.
„Og hvemig er með skemmt
analíf nemenda verða þær ekki
að hlýða ströngum reglum?"
„Það er lokað klukkan hálf
níu á kvöldin", segir systir Áker
ström „en þær eiga allar lyk
il“.
„Hver var aðdragandi þess að
þú hófst námið Unnur?“
„Ég rakst á bækur og blöð,
sem fjölluðu um þetta, en áður
hafði ég starfáð með K.F.U.K.
og í Kristilegu skólasamtökun
um. Þetta var ekki alveg Ijóst
fyrir mér svo að ég fór í skól-
ann upp á von og óvon en svo
líkaði mér mjög vel og það
varð úr að ég var þar um kvrrt.
Áður en ég fór hlaut ég mjög
góðar undirtektir biskups".
„Hvernig stendur kristindóm
urinn í Svíþjóð nú á dögum
systir Ákerström?"
„Það eru flestir kristnir að
nafninu til. 98—99% eru skírð
ir en 80—85% fermdir, það
vantar fólk sem starfar. en bað
er að breytast“
„Er kannski hægt að tala um
vakningu?“
„Það er * snemmt að tala um
vakningu, en hún kemur“
„Er um endurnvium kirkiunn
ar að ræða?“
„Að vissu leyti, kirkjusiðirn
ir eru að breytast, það er áber
andi að fólk vill vita hvað. kirtj
an segir, en trúin á að vera
,,aktiv“, hún er ekki aðeins
fólgin i því að hlusta".
o
Rabbað v/ð systur Aker-
ström og Unni Halldórsd
Unnur Halldórsdóttir og systir Akeström.
/
/