Vísir - 05.01.1966, Page 6

Vísir - 05.01.1966, Page 6
6 VlSIR . Miðvikudagur 5. janúar 1966. fþróttir Frti. bls 11. Stjóm Judokwai vill minna á, að 1 Judobókinni eftir R. Bowen og Hodkinson er mikinn fróðleik að finna um judo, og mælir með að judomenn kynni sér hana vel til þess að efla sem bezt þekkingu slna, og árangur sinn í judo. Judokwai óskar öllum félög- um sínum gleðilegs árs með þökk fyrir það liðna, og minnir á að æfingar eru hafnar og nú er um að gera að æfa vel. í athugun er að fá hingað fræga judomeistara í vetur og þv£ betra að vera £ „formi“. — Stjóm Judokwal. írar — Framh. af bls. 1 eru upprunalega sekkjapipulög £ báðum löndum en £rska sekkjapipan er þó talsvert frá- brugðin þeirri skozku og það kemur fram í lögunum. Við erum ekki með nein slfk hljóð- færi £ þessari ferð enda em þau nú ekki lengur notuð f sambandi við Irska þjóðdansa, þó að þau séu enn £ fullu gildi f Skotlandi. írsku þjóðlögin em talsvert frábmgðin þeim skozku, þau em viðkvæmari og lýsa ef til vill öðm lundarfari. Skozk j þjóðlögin em aftur á móti þróttmeiri en þó er þessi skil- greining harla yfirborðskennd. En hvað um það. ... Við hlökk um til að syngja og dansa hér i kvöld og væntum þess að þið verðið ekki fyrir neinum von- brigðum þó að við yrðum sjálf fyrir nokkmm vonbrigðum þegar við komum hingað og sáum hvergi snjó“. Geislun matvæla talin varhuga■ verð eftir nýja uppgötvun Útlit er nú fyrir það að nokkur afturkippur komi í þá aðferð, sem fundin var upp fyrir nokkrum árum til geymslu matvæla, að geisla þau. En eins og kunnugt er af frásögnum íslenzku blað- anna hefur m.a. einn íslend- ingur, dr. Ari Brynjólfsson starfað mikið erlendis við rannsóknir á þessari nýju geymsluaðferð, sem virtist gefa svo góða raun. En nú hafa tveir bandarísk ir líffræðingar komizt að því með rannsóknum, að slík fæða sem hefur verið geisluð geti verið varhugaverð. Er skýrt frá þessu m. a. í síð- asta eintaki af bandaríska vikuritinu Time. Fyrir löngu er búið að ganga úr skugga um það, að engin sú efnabreyting verði í fæðunni, sem geri hana hættulega, heldur er ekki um það að ræða, að fæðan ve'rði geislavirk, því að geislun hennar stendur svo stutt, að þeirra áhrifa gætir alls ekki. En líffræðingar þeir, sem hér ræðir um komust að því fyrir tilviljun, að geislun get- ur valdið tjóni með öðrum' hætti. Hún veldur skemmd- um á frumum í matvælum, hvort sem er í kjöti, fiski eða annarri lífr. fæðu, er geta svo haft áhrif líkt og geislaverk- un á lifandi frumur þess sem neytir fæðunnar. Hafa hinir bandarísku vísindamenn gert tilraunir með þetta á jurtum og skordýrum og komizt að raun um að skemmdir verða á frumunum með þeim hætti að litningarnir í frumunum skemmast og veldur þetta sfð an vefjaskemmdum. Pessi skaðvænlegu áhrif verða í sambandi við sykurefni frum anna. Matvælaeftirlit Bandaríkj- anna gaf fyrir nokkrum ár- um’leyfi til að selja geisluð matvæli, en vísindamennirn- ir tveir vilja að málið sé rannsakað betur áður en geisl un matvæla hefjist í stórum stíl. Stórrigning — Framh. af bls. 1 hún allt upp i 60 millimetra. Er þetta mesta rigning, sem mælzt hefur £ vetur á þessum stöðum. Var þetta á svæðinu frá Álfta veri til Austfjarða, t.d. var stór rigning á Mýri i Álftaveri, en þar mældist 60 millimetra úr- koma. 46-60 millimetra úrkoma mældist á Kirkjubæjarklaustri, Fagurhólsmýri, Höfn £ Horna- firði, Papey og Kambsnesi. Gera má nú ráð fyrir að hægt verði að ryðja vegi á Suðurlandi en undanfarnar þrjár vikur hefur ekki verið fært t.d. til Vikui f Klýrdal. I morgun var enrí stórrigning með köflum f Reykjavfk. 1966 stóð skrifað í fjallshlíðinni Nýja ári'ð heilsaði með norðan kalda og 3-4 stlga frosti á Patreks firðl. Á gamlársdag var hins vegar hið bezta veður, logn, heiðskirt og 2-3 stlga frost. Tvær stórar áramótabrennur voru f kauptúninu auk fjölda smærri brenna og mikið var um flugelda og sólir. 1 hlfðum fjallsins Múla fyrir ofan kauptúnið var ár- talið 1965 skrifað með logandi blysum og á miðnætti breyttist sið asti tölustafurinn í 6, þannig að ártalið 1966 myndaðist. Það voru málarar sem stóðu að þessu og hafa þeir gert þetta undanfarin áramót. Heilsufar er gott á Patreksfirði og um áramótin urðu ekki slys á mönnum nema hvað einn drengur brenndist við áramótabrennu er olía skvettist á hann og kviknaði i henni. Liggur drengurinn á sjúkra húsinu. Á gamlársdag kom þýzkur togari með slasaðan mann sem nú liggur I sjúkrahúsinu. Hafði hann hlotið heilahristing og rifbeins brotnað. Róðrar eru nú að hefjast aftur frá Patreksfirði og fóru bátamir að tygja sig strax eftir áramót. Hjartans þakkir til vandafólks míns, og vina og stjórnamefnda, fjær og nær, fyrir alla þá vinsemd, sem mér hefur borizt í orði og verki í sambandi við nfræðisafmæli mitt. Drottinn blessi yður öll. Sigurbjöm Á. Gíslason HAPPDRÆTTI LANDSMALAFELAGSINS VARÐAR DREGIÐ 11. FEBRÚAR 1966 VERÐMÆTI VINNINGA KR.315.000.00 VarSarfélagar. Munið afmælishappdrættið Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll. Skrifstofan er i 14 sækja — Framh. af bls. 16 nokkrir þeirra umsækjenda hafa og sótt til vara um stöð- ur aðstoðaryfirlögregluþjón- anna. Auk þess sóttu svo fimm menn um aðstoðaryfirlögreglu- þjónastöðurnar sérstaklega. Þeir sem sóttu um yfirlög- regluþjónastöðurnar eru Axel Kvaran lögregluvarðstjóri Rvík, Benedikt Þórarinsson yfirlög- regluþjónn Keflavíkurflugvelli, Bjarki Elíasson aðalvarðstjóri Rvík, Guðmundur Hermannsson aðalvarðstjóri Rvík, Hallgrímur Jónsson fyrrverandi yfirlögreglu þjónn Véstmanriaeyjum, . Krist- ján Sigurðsson rannsóknarlög- regluþjónn Rvík, Leifur Jónsson rannsóknarlögregluþjónn Rvík, Óskar Ólason aðalvarðstjóri Rvík, og Sigurður M. Þorsteins- son aðalvarðstjóri Rvík. Um aðstoðaryfirlögregluþjóna stöðurnar sóttu Björn E. Krist- jánsson aðstoðaraðalvarðstjóri Rvík, Gísli Guðmundsson rann- sóknarlögregluþj. Rvík, Magnús Sörensen lögregluþjónn Rvík, Ragnar Bergsveinsson lögreglu- flokksstjóri Rvík og Sverrir Guð mundsson aðalvarðstjóri Rvík. Erlingur Pálsson gegnir áfram stöðu sinni þar til hinar nýju stöður hafa verið veittar. Yfirneffnd — Framh. af bls. 1 Venja er að fiskverðið sé tilbúið fyrir áramót, en sjávarútvegsmála ráðuneytið heimilaði nú viku frest. Hafa fundir í nefndinni staðið mjög lengi, oft langt fram á nótt. Þurfa nefndarmenn að fara í gegnum margs konar skýrslur um rekstursafkomu, m. a. rekstrarreikninga frystihúsanna og rekstrarskýrslur bátanna. Engar upplýsingar er enn hægt að 'fá um hvaða verðhugmyndir fulltrúarnir gera sér, en líklegt er talið, að nokkur hækkun verði á fiskverðinu til að mæta síauknum tilkostnaði bátaútvegsins. í'f.. ' > •<!"/ ' ' ' " í Nókkrir af ræðumönnunum á mótinu, talið frá vinstri: Sig- valdi Kaldalóns, Friðrik Gíslason og Pétur Valsson. Mót votta Jehóva Mót votta Jehóva „Orð sann- leikans", hefur verið haldið í Fé- lagsheimili Rafveitunnar við Ell- iðaár. Um 100 vottar Jehóva voru með á mótinu, en þegar Laurits Rendboe flutti hinn opinbera fyr- irlestur „Stjóm heimsins á herð ur# Friðarhöfðingjans" voru 146 viðstaddir. Á laugardaginn var flutt ræða, sem var nefnd „Látið skírast vegna þekkingar ykkar á orði sannleikans“. Eftir það var skímarathöfn í sundlaug Austur- MannSaus bíll störskemmdur í nótt var ekið á manniausa bif- relð í Nóatúni og hún stórskemmd. Það mun hafa verið á 4. tíman- um eftir miðnætti uð hringt var í lögreglustöðina frá Nóatúni og skýrt frá því að fyrir utan hús nr. 30 við götuna hafi verið ekið með miklum hraða. að þvl er virðist, á bflinn R 4775, sem stóð þar mannlaus, honum slengt áfram sem svaraði heilli bíllengd og stórskemmdur. Ekki sást til ferða þess sem valdur var að slysinu, en strax og atburðurinn hafði verið tilkynntur lögreglunni hóf hún leit, sem ekki bar þó árangur. Munu henni vera kærkomnar upplýsingar um ferðir þessa ökumanns, ef rinhver kann að geta veitt þær. bæjarskólans og létu þrir skfrast. Á mótinu, sem stóð yfir fjóra daga voru um 30 ræður fluttar, og margar sýnikennslur voru á dag- skrá til þess að sýna vottunum hvernig þeir geta farið milli húsa og sagt öðrum frá trú sinni. Um fimmtán ræðumenn fluttu erindi. I lokaræðu mótsins, sem hr. Rendboe flutti, hvatti hann vott- ana að halda áfram að starfa til þess að útbreiða trú sina meðal fólksins. Hr. Rendboe benti á það að á síðastliðnum árum hefur ver- ið mikil aukning í söfnuði votta Jehóva hér á íslandi og að söfnuð /urinn ennþá fer vaxandi. — Til samanburðar nefndi hr. Rend boe að í hinum Norðurlöndunum eru tiltölulega fleiri vottar Jehóva en hér á íslandi. Til dæmis eru núna í Danmörku rúmlega 11.000 starfandi vottar Jehóva og verður það einn á móti 400 fbúum Iands- ins. Vottarnir eru þar næst stærsti trúarflokkurinn eftir þjóðkirkjunni. sagði hr. Rendboe. Hér á íslandi eru núna upp und- ir 100 vottár, sem taka þátt í préd- ikunarstarfinu, eða einn vottur á móti 1900 íbúum landsins. + I Faðir okkar ÁGÚST MARKÚSSON veggfóðrarameistari Grænuhlíð 12 verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 6. janúar kl. 1,30 e. h. Krisun Ágústsdóttir Houhoules Erla Agústsdóttlr Hörður Ágústsson Jóhann Ágústsson

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.