Vísir - 22.02.1966, Page 4
I
V1 S IR . Þriðjudagur 22. febrúar 1966.
fjölbreytt verkefni Raaða kross fskmds
Kaflar úr skýrslu félagsins fyrir tímabilið 28. júní 1963 til 9. september 1965
bágstaddra aðila innanlands.
Þá annaðist Rauði kross ís-
lands, í samstarfi við gríska
Rauða krossinn, fatasendingu til
Grikklands. Fatnaðinum var
safnað af ungliðum góðtempl-
arareglunnar á Islandi, og var
dreift meðal grískra munaðar-
leysingja. Góðtemplarar hafa far
ið fram á við RKÍ, að þeir önn
uðust fyrirgreiðslu á annarri
fatasendingu fyrir jól. Einnig sá
RKf, um sendingu á fatagjöfum
Kaþólsku kirkjunnar til bág-
staddra bama á Grænlandi. Fór
fyrri sendingin um síðast liðin
jól, en sú seinni biður ferðar
hjá Flugfélagi íslands.
Hjálp í viðlögum
Félagið hefur eins og að und-
anförnu stuðlað að kennslu i
hjálp í viðlögum fyrir almenn-
ing og hafa margar RK-deildir
notið fyrirgreiðslu í sambandi
við námskeið sín.
Unnið er að endurnýjun kvik
myndasafnsins og hefur félagið
nú þrjár nýjar kennslukvikmynd
ir til afnota fyrir deildimar,
einnig hefur félagið brúður til
kennslu á blástursaðferðinni.
Það er eitt af áhugamálum
RKÍ, að hjálp í viðlögum verði
skyldunámsgrein i barna- og
unglingaskólum landsins.
geir Ásgeirsson, hafi fyrir
skömmu undirritað samþykktir
Alþjóða Rauða krossins, Genf-
arsamþykktimar, af hálfu ís-
lands, og væri búið að senda
þær til Genfar. Verður þetta
formlega tilkynnt í Stjómartíð
indum innan skamms.
Ber að fagna því sem áfanga
í starfi RK hérlendis, að stjórn
arvöldin hafa viðurkennt Genf-
arsamþykktirnar.
Nýjar deildir
Á siðast liðnu starfstímabili
voru eftirfarandi deildir sam-
þykktar:
1. deild Garðahrepps, 2. deild
Grindavíkur, 3. deild Njarðvíkur
hrepps, 4. deild Miðneshrepps,
5. deild Hveragerðis, 6. deild Sel
tjamameshrepps, 7. deild Mos-
fellshrepps, 8. deild Borgamess,
9. deild Egilsstöðum, 10. deild
Grundarfjarðar, 11. deild Stykk-
ishólms og 12. deild Ólafsvik-
ur.
Þvi miður hefur meirihluti
þessara deilda verið lítt starf-
andi, eða alls ekki, síðan stofn
fundur þeirra var haldinn. Er
það von stjórnarinnar, að hægt
verði að blása lífi í starfsemi
þeirra í vetur.
f RKÍ eru nú alls 30 deildir.
Lögð hafa verið drög að stofn
un nýrra deilda að Hellu, Hvols-
Framh. á bls. 5
Ctarfsemi Rauða kross íslands
á síðast liðnu starfstímabili
var með svipuðu sniði og undan
farin ár. Stjórn félagsins, sem
kosin var á aðalfundi þ. 27. júní
1963, skipti þannig með sér verk
um:
Formaður: Dr. Jón Sigurðs-
son, borgariæV”' Varaformað-
ur: Sr. Jón / dómpróf-
astur. Ritari: Óli j. Ólason, stór
kaupmaður. Gjaldkeri: Árni
Bjömsson, lögfræðingur. Með-
stjómendur: Guðmundur Karl
Pétursson, yfirlæknir, Akureyri,
Fundinn sóttu siimu fulltrúar
hinna Norðurlandanna og árið
áður, að undanteknum dr. Phil-
ipson, varaforseta SRK. Fulltrú
ar RKf voru dr. Jón Sigurðsson,
formaður RKf, og Ólafur Step-
hensen, framkvæmdastjóri RKÍ.
í þetta sinn var aðallega rætt
um samstarf Norðurlandafélag-
anna í alþjóðlegu hjálparstarfi,
aðstoð félaganna við RK-félög í
þróunarlöndunum, og samstöðu
norrænu félaganna á þingi Al-
þjóða Rauða krossins í Vínar-
borg í október næst komandi.
Myndin er tekin f sumarbúðum Reykjavíkurdeildar R.K.f. í
Laugarási í Biskupstungum.
Jón Mathiesen, kaupmaður,
Hafnarfirði, Dr. Gunnl. Þórðar-
son, stjómarráðsfulltrúi, Torfi
Bjarnason, læknir, Akranesi,
Emil Jónasson, símstöðvarstjóri
Seyðisfirði.
Stjórnin hélt 26 bókaða fundi
á starfstímabilinu. Sem vara-
menn, mættu á flesta fundina
Davíð Sch. Thorsteinsson fram
kvæmdastjóri og Kjartan Jó-
hannesson héraðslæknir.
í stjórn sambands Rauða kross
félaga sátu þeir Þorsteinn Sch.’
Thorsteinsson, lyfsali, aðalfuil-
trúi, og til vara dr. Jón Sigurðs
son.
Skrifstofa Rauða kross fslands
Það er merkur áfangi í sögu
félagsins, að starfsemi þess er
nú komin í eigið húsnæði. Að-
staða Rauða kross fslands er nú
stórbætt með tilkomu hins nýja
skrifstofuhúsnæðis að öidugötu
4 og er það von stjórnarinnar
að þessi bættu skilyrði megi
auka og styðja samstarf hinna
ýmsu deilda RKf víðsvegar um
landið.
Á skrifstofunni starfa nú frú
Margrét Gunnarsdóttir, sem tók
við starfi frú Ranveigar Guðm.-
dóttur snemma sumars 1964, og
Ólafur Stephensen. Þorleifur
Guðmundsson sagði starfi sínu
lausu sem framkvæmdastjóri fé-
lagsins frá og með 1. júlí 1964,
en Ólafur Stephensen tók við
starfi framkvæmdastjóra i nóv-
ember 1964.
Norðurlandafundur 1965
Fundur forráðamanna nor-
rænu Rauða kross félaganna
1965 var haldinn í Kaupmanna-
höfn dagana 16.—21. ágúst s.l.
Hjálparsjóður Rauða kross
íslands
Sjóðurinn úthlutaði um það
bil 316 þúsundum til hjálpar-
starfsemi. bæði hérlendis og er
lendis, á síðastliðnu starfstíma-
bili. Helztu safnariir á vegum
sjóðsins til hjálpar erlendis
voru: í júlí 1963 fyrir bágstadda
á jarðskjálftasvæðinu í Skolpjé
í Júgóslavíu kr. 90.000,00; í októ
ber 1963 til meðalakaupa vegna
sjúkra og bágstaddra í sam-
bandi við fellibylinn Flóru á
Kúbu, Haiti og Tobago, kr.
16.000,00, og svo í júní 1965 til
hjálparstarfsemi á flóðasvæðum
Austur-Pakistan kr. 120.000,00.
Ennfremur kr. 90.000,00 til 5
„Heilbrigt líf“
Jímarifið „Heilbrigt llf“ kom
út tvisvar á starfstímabilinu.
Ritstjórn önnuðust eins og áð-
ur Bjami Konráðsson, læknir og
Arinbjörn Kolbeinsson, læknir.
Nokkur vandkvæði hafa verið
á dreifingu og afgreiðslu tíma-
ritsins, en nú hefur dreifingu
þess verið komið í svokallað
„addressograph" kerfi, sem auð-
veldar mjög alla afgreiðslu og
dreifingu.
Gcnfarsamþykktir
Það hefur lengi verið áhuga-
mál RKl, að ríkisstjórn íslands
gerðist aðili að Genfarsamþykkt
um Alþjóða Rauða krossins.
Átti stjóm RKÍ nokkrar viðræð
ur við fulltrúa rfkisstjómarinn
ar um þetta mál á starfstíma-
bilinu.
Hefur fulltrúi utanríkisráðu-
neytisins nýlega skýrt RKÍ svo
frá, að forseti íslands, hr. Ás-
Tvær af hinum fjölmörgu áhugasömu sjálfboðaliðum, sem
aðstoða við merkjasölu Rauða krossins á öskudaginn.
Rauði krossinn safnar fé á öskudaginn
morgun er hinn árlegi fjár-
söfnunardagur Rauða kross
íslands um land allt, og munu
allar deildir hans annast merkja
sölu, hver á sínu svæði, auk
margra einstaklinga, þar sem
deildir eru ekki starfandi. Allir
peningar, sem safnast fyrir
merkjasölu skiptast milli deild-
anna og Rauða kross íslands,
renna til hjálparstarfs félags-
inri.
Rauði kross íslands hefur
starfað í rösk 40 ár sem deild
í Alþjóða Rauða krossinum, og
hefur félágið safnað fé til styrkt
ar bágstöddum hérlendis og er-
lendis eins og kunnugt er. Félag
ið hefur tekið þátt í alþjóða líkn
arstarfi eftir því sem geta hefur
,leyft hverju sinni. Hjálparsjóður
R. K. í„ leitar nú aðstoðar al-
mennings, svo að hann verði
þess umkominn að hjálpa fljótt
og vel, áður en tími hefur unn-
izt til sérstakrar fjársöfnunar.
Hlutverk sjóðsins er að hjálpa
skjótt og vel. Skjót hjálp í neyð
artilfellum kemur yfirleitt að
meiri notum en sú. er seinna
berst. Ástæða er til að benda
þeim á, sem styðja vilja líknar
mál almennt að efla þennan
sjóð, svo að hann verði sem
fyrst hlutverki sínu vaxinn.
Merkjasalan á morgun er til
eflingar hjálparsjóðsins, en einn
ig má benda á, að Minningar-
kort Rauða kross Islands og
Rauða krossfrímerkin eru einn
ig vel til þess fallin að efla sjóð
Rauði kross íslands hefur á
undanföirnum árum staðið fyr-
ir f jársöfnunum til styrktar bág-
stöddum t.d. i Alsír, Júgóslavíu
og í Pakistan, auk þess sem
hann hefur safnað fé og stutt
fjölskyldur sem orðið hafa fyr
ir sérstökum óhöppum innan-
lands. Þá er Rauði krossinn einn
ig að safna fé til reksturs blóð
söfnunarbifreiðar, sem nú er ver
ið að innrétta eins og kunnugt
er af fréttum blaða og útvarps.
Ætlazt er til að bifreiðin fari
um land allt og safni blóði fyrir
blóðbankann og spítala, með að
stoð deildanna um land allt.
Eins og áður er getið er merkja
söludagur Rauða krossins á
morgun, sem er öskudagurinn,
og erður merkjasalan með
sama sniði og áður. Hundruð
námsmeyja úr Kvennaskólanum
í Reykjavík, Húsmæðraskóla
Reykjavíkur og fleiri skólum,
hafa á liðnum árum annazt
stjórn á sölu merkjanna á út-
sölustöðum vlðs vegar um borg
ina, og munu þær einnig gera
á morgun. Þúsundir barna selja
merkin, og sýna mikinn og góð
an vilja og veita ómetanlega
hjálp við starfið.
Foreldrar eru vinsamlega
beðnir að hvetja börn sín til
merkjasölu, og koma á útsölu
staðina, sem taldir eru hér á
eftir á öskudagsmorguninn kl.
9.30. Bömin fá 10% sölulaun. Á
10. síðu Vísis í dag eru útsölu
staðimir taldir upp.