Vísir - 22.02.1966, Page 5
VISIR . Þriðjudagur 22. febrúar 1966.
5
g g— ^
ut Ic-ri-i' í r:or:Tjn útlöiiá í p.orúojn .utlönd í morgun^ íitlönd í morgun
NATO starfí áfram meí eða án Frakklaads
Framtra Norður-Atlantshafs-
bandalagsins er í enn meiri hættu
en áður, eftir að de Gaulle Frakk-
landsforseti boðaði á fundi með
fréttamðnnum í gær, að eftir 4.
aprfl 1969 verði engar herstöðvar
leyfðar í Frakklandi né erlent her-
lið nema undir franskri stjóm og
samtfmis kvaddir undir franska
stjóm þeir hermenn, sem nú væru
háðir yfírherstjórn NATO. Ekki
k\'að de Gaulle Frakka þó ætla
að ganga úr bandalaginu.
Ummæfin hafa vakið mikla at-
hygli.1 Hið áhrifamikla blað
WASHINGTON POST segir, að
de Gaulle vilji njóta áfram hlunn-
indanna við að vera í bandalaginu,
án þátttöku í því yfirherstjómar-
kerfi, sem sé hjartað í starfsemi
Nato. Hið rétta svar sé að hinar
14 þjóðimar haldi áfram með á-
form sín um flutning höfuðstöðva
NATO frá Frakklandi áður en
fresturinn er útrunninn.
Annað áhrifamikið bandariskt
blað THE NEW YORK HERALD
TRIBUNE segir £ moirgun, að af-
staða de Gaulle sé að leiða til
svipaðs ástands og ríkti f álfunni
á undan 30 ára stríðinu, — enginn
geti í fullri alvöru neitað, að for-
setinn Hafi raunverulega sagt
bandalaginu að hypja sig. Enn em
3 ár til stefnu segir blaðið, en
greinilegt sé að taka verði á-
kvarðanir um hinar ýmsu stofnan-
ir NATO i Frakklandi, þeirra með-
al höfuðstöðina í Paris.
Rnuði krossinn —
Glæsileg 5 herb. íbúð
Höfum til sölu vandaða íbúð á II. hæð í há-
hísi 3 svefnherbergi og 2 stofur. Aðgangur að
fullkomnu vélaþvottahúsi og einnig hlutdeild
í samkomusal og húsvarðaríbúð. Mjög fagurt
ústýni í 3 áttir. Allar nánari uppl. veittar í
skrifstofunni.
FASTEIGNASKRIFSTOFAN
Austurstræti 17. 4. hæð. (Hús Silla & Valda).
Sími: 17466. Kvöldsími: 17733.
ÚTBOÐ
I
Hlboð óskast í sölu á 230 rúmdýnum úr lysta-
dún, gúmfrauði eða hliðstæðum efnum, fyrir
borgarsjúkrahúsið í Fossvogi. Útboðsskilmál- ,
ar eru afhentir í skrifstofu vorri Vonarstræti 8.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Skrifstofustúlkur óskast
Flugfélag íslands h.f. óskar að ráða stúlkur
til starfa á skrifstofum félagsins í Lækjargötu
2 í Reykjavík, strax eða á vori komanda.
Hér er um sumarstörf að ræða, en fastráðn-
ing kemur til greina að hausti. Nokkur kunn-
átta í ensku og dönsku nauðsynleg, einnig
vélritunarkunnátta.
Umsóknareyðublöðum, er fást á skrifstofum
vorum, sé skilað til starfsmannahalds félags-
ins fyrir 1. marz n.k.
2}a herbergja íbúð
i Kópavogi
Höfum til sölu 2 herb. íbúð í Kópavogi á II.
hæð í blokk við Álfhólsveg. íbúðin lítur mjög
vel út. Verð kr. 500—550 þús. Útborgun 370
þús. sem greiðast má á þessu ári. íbúðin er
3 ára gömul. Sérstakt tækifæri. Laus eftir
samkomulagi.
TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR
Austurstræt) 10A. 5. hæö. Sími 24850. Kvöldslmi 37272.
Framh. af bls. 4
velli og í Vík í Mýrdal, eirmig
á Blönduósi, Hofsósi og Dalvik.
Aðstoð við þróunarlönd
Rauði kross Islands hefur í
samvinnu við Rauða kross fé-
lögin í Finnlandi, Noregi og Sví
þjóð rekið fræðslu og hjálpar-
starf á sviði heilbrigðismála í
Nígeríu, með árlegu framlagi,
sem svarar 4000 norskum krón
um árlega.
Á síðasta Alþingi kom fram
tillaga um, að Island léti eitt-
hvað af hendi rakna til stuðn-
igs þróunarlöndunum. Stjóm
RKÍ skýrði hlutaðeigandi þing-
nefnd frá hjálparstarfi því, sem
RKl tekur þátt í Nígeríu, og
bauð fram aðstoð sína og Al-
þjóða Rauða krossins við að
miðla framlagi rikisins, ef til
kæmi.
. Umrædd tillaga náði fram að
ganga á Alþingi, og jafnframt
var tekið fram, að hugsanlegt
væri að leíta til RKl í framan-
greindu skyni.
RKÍ hefur enn sem komið er
ekki fengið tilmæli um að ann-
ast umrædda fyrirgreiðslu enda
engin ákvörðun tekin af stjóm-
arvöldunum i þessu máli, en
væntanlega sjá þau sér fært að
styðja þetta verðuga málefni.
Gjafir
Á s.I. starfstímabili bárust
Rauða krossi íslands ýmsar gjaf
ir frá almenningi, eins og und
anfarin ár, og er félagið þakk
látt fyrir traust það sem þvf er
sýnt á þennan hátt. Skulu hér
sérstaklega þakkaðar höfðingleg
ar peningagjafir frá h.f. Ofna-
smiðjunni £ Reykjavik, Odd-
fellowstúkunni Hallveigu, og hr.
kaupm. Sigmundi Jónssyni, Þing
eyri. Þá tilkynnti hr. Ketill Þórð
árson, Reykjavfk, að hann arf-
leiddi RKl að öllum eignum sfn
um eftir sinn dag.
Ný sending af
enskum mjög fallegum
HÖTTUM
Hattabúðin
HULD
Kirkjuhvoli, sími 13660.
íþróttir —
Framh af bls. 11
leik, en var haldið niðri með zone-
vörn í þeim síðari.
Enginn leikmanna fslenzka liðs-
ins átti i góðan leik, og liðið náði
aldrei verulega vel saman. Flest
stig skoruðu Ölafur Thorlacius:
Höfum til sölu
2 herb. íbúð við Laugateig, risíbúð ca 70 ferm.
Verð kr. 525 þús. Útb. kr. 300 þús.
Höfum til sölu 3 herb. íbúð við Kaplaskjóls-
veg, í blokk á 3. hæð. Allar innréttingar úr
harðviði, teppi.
Höfum til sölu 3 herb kjallaraíbúð, lítið niður-
grafna við Laugateig. Sér inngangur, 90 ferm.
Útborgun kr. 400 þús.
Höfum tii sölu raðhús við Álfhólsveg á 2
hæðum 5 herb. og eldhús, 2 salerni geymsla
og þvottahús, allt á sömu hæð. Eldhúsinnrétt-
ing úr harðviði og plasti og allir skápar úr harð
viði. íbúðin öll teppalögð. Verð kr. 1250 þús.
Útb. 800 þús. sem greiðast má á árinu.
TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR
Austurstræti 10 a, 5. hæð. Sími 24850. Kvöldsimi 37272
Höfum til sölu
4 herb. íbúð í Árbæjarhverfi 120 ferm. með
þvottahúsi og geymslu á hæð. íbúðina mætti
gera að 5 herb. íbúðin er nú fokheld með tvö-
földu gleri og miðstöðvarlögn. Öll sameign
grófpússuð. Höfum einnig hæð í tvíbýlishúsi
í Kópavogi sem seld verður fokheld með upp-
steyptum bílskúr 135 ferm. Verður tilbúin í
surpar. Verð kr. 650 þús. 100 þús. lánað til
5 ára. Teikningar liggja fyrir á skrifstofu vorri.
TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR
Austurstræti 10 a, 5. hæð. Sími 24850. Kvöidsími 37272
TIL SÖLU
Dodge ’55 6 cyl. beinskiptur, — skipti koma
til greina. — Benz 190 ’63 model, má greiðast
með fasteignatryggðum skuldabréfum. Will-
ys jeppi ’47 model, góður. Austin ’47 model,
ódýr. Volkswágen ’65 model, hvítur ekinn 17
þús. km. — Willys station ’54 model, — Benz
220 S ’62 model, ekinn 28 þús. km. 125 þús.
útb. og hitt í fasteignatryggðum skuldabréf-
um.
BÍLASALINN v/ VITATORG. Sími 12500
Bifreiðarstjóri óskast
Vanur, reglusamur bifreiðarstjóri getur feng-
ið fasta atvinnu við akstur hjá oss.
Upplýsingar á skrifstofunni.
H/F HAMAR
14, Einar Bollason 10, Agnar og
Kolbeinn 8 hvor. í íslenzka liðið
vantaði bæði Birgi Birgis og
Birgi Jakobsson, og ennfremur
Hólmstein og veikti þetta liðið að
mun, eins og gefur að skilja.
Birgir Birgis er tognaður í öxl og
Birgir Jakobsson á við meiðsli £
hné að strfða og báðir verða frá
um nokkum tíma og er þetta mjög
bagalegt fvrir liðið.
Annar leikur keppninnar fer
fram á morgur. og þriðji leikur n.
k. sunnudag báðir suður á Kefla-
vfkurflugvelli og verður gaman að
fylgjast með hvort fslenzka liðini’
tekst að vinna bikarinn til eignar.
— G. G.
»