Vísir - 22.02.1966, Side 8

Vísir - 22.02.1966, Side 8
8 V f S IR . Þriðjudagur 22. febrúar 1966. VISIR Utgefandi: Blaðaútgáfan VISER / Framkvæmdastjóri: Agnar Ólafsson \ Ritstjóri: Gunnar G. Schram // Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson ) Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson ( Þorsteinn ó. Thorarensen ) Auglýsingastj.: Halldór Jónsson \ Ritstjórn: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 linur) / Auglýsingar og afgreiðsla Túngðtu 7 \ Askriftargjald: kr. 90,00 á mánuði tnnanlands ( 1 lausasölu kr. 7,00 eintakið ) Prentsmiðja VIsls — Edda h.f. \ 1500 m. kr. útlánaaukning Kerfi lánahaftanna hefur aldrei verið verra, mátti /, lesa í forystugrein Tímans á sunnudaginn. Síðan fræð- ) ir blaðið lesendur á því, að meginkjarni efnahags- \ stefnu stjórnarinnar sé að búa til og viðhalda harðri ( lánakreppu, halda atvinnuvegunum í lána- ( svelti. Eðlilegt er, að menn spyrji: Er þetta rétt? / Er þetta rökstutt? Sannleikurinn lítur harla öðruvísi ) út. Samkvæmt upplýsingum Seðlabankans var aukn- ) ing útlána til atvinnuveganna árið 1964 samtals 600 \ milljónir króna. Og hvernig var það í fyrra, árið 1965, ( það ár, sem Tíminn og aðrir talsmenn stjórnarand- ( stöðunnar segja að bönkunum hafi verið lokað fyrir / atvinnuvegunum. Það ár var aukning útlánanna til ) atvinnuveganna hvorki meira né minna en 1500 millj- ) ónir króna. Á sama tíma og þessi staðreynd liggur \ fyrir dirfast ritstjórar Tímans að halda því fram, að ( atvinnuvegunum sé haldið í lánasvelti. Það er illur / málstaður, sem verja þarf með svo óheiðarlegum / brögðum. Þrátt fyrir hina sjálfsögðu frystingu hluta ) sparifjár í bönkum, sem er ein ráðstöfun gegn ) verðbólgunni, hafa atvinnuvegirnir aldrei haft meira y lánsfé handa á milli en nú. Það sýnir líka hin mikla ( uppbygging og tækjaöflun síðustu misserin. Fram- / sóknarmönnum mun ekki takast að leyna þeirri stað- ) reynd, hve fegnir sem þeir vilja. ) Islenzk fríðarsveit Á morgun er dagur Rauða krossins. Þann dag minna \ þessi alþjóðlegu hjálparsamtök á starfsemi sína. ís- ( lenzku Rauða kross-félögin greina frá starfi sínu á / árinu og leita til þjóðarinnar um framlög til nýrra / athafna og átaka. Norrænu Rauða kross-félögin hafa ) nú í í undirbúningi sameiginlega áætlun um að senda \ sveitir ungra manna og kvenna til starfa í einu þró- ( unarlandanna, Nígeríu. Eiga sveitir Norðurlandanna ( að vinna þar að fræðslu og skipulagningu í heilsu- / gæzlumálum og alhliða heilbrigðisþjónustu, en á slíkri / framkvæmd er hin mesta nauðsyn þar í landi. Verður ( starfið skipulagt í samráði við Rauða krossinn þar, og / er þess vænzt að fyrstu sveitirnar geti lagt af stað / í lok þessa árs. Allt til þessa höfum við íslendingar ) ekki tekið beinan þátt í starfinu í þróunarlöndunum. ) Hér gefst gott tækifæri fyrir unga íslendinga að leggja \ persónulega sitt lóð á vogarskálina og taka þátt í ( þessu norræna hjálparstarfi. Færi vel ef send yrði / íslenzk sveit út af örkinni á vegum íslenzka Rauða / krossins, jafnvel þótt ekki væri hún fjölmenn. Þá ) myndum við sýna vilja okkar í verki í þessum efnum. ) Árshátíð hjá ungmennum Langhoitssóknar Æskulýðsfélag Langholtssókn ar hélt árshátíð sína s.l. laug- ardagskvöld i Safnaðarheimili Langholtssóknar. Voru þar sam an komnir um 300 unglingar, fé- lagar úr æskulýðsfélaginu, gest ir þeirra og svo nokkrir fulltrú ar frá æskulýðsfélagi Bústaða- sóknar og æskulýðsfélagi Akur eyrarkirkju. Æskulýðsfélögin í Langholts sókn og Bústaðasókn hafa haft nokkra samvinnu og skipzt á fulltrúum, en þetta er í fyrsta skipti sem norðanmenn koma hingað og í marzbyrjun er fyr- irhuguð ferð fulltrúa úr Lang- holtssókn til Akureyrar, þar sem þeir munu verða á árshátíð æskulýðsfélags Akureyrarkirkju Á árshátíðinni á laugardag var margt til skemmtunar. Flutt ir voru leikþættir: þáttur úr Skugga-Sveini, þáttur úr Gullna hliðinu og þátturinn Litla Gunna og Litli Jón, Jónas og Heimir sungu þjóðlög og fimm piltar sungu og léku negrasálma. Þá var lýst í ljóðum íþróttakeppni, sem æskulýðsfélagar háðu við kennara sína í Vogaskóla fyrir skömmu, en ágóðinn af þeirri keppni rann til æskulýðsstarfs ins. Að lokum var dansað. Akureyrarfólkið afhenti heima- rriönnum æskuiýðsfána þjóð- kirkjunnar sem gjöf frá æsku- lýðsfélagi Akureyrarkirkju, en þessi fáni er dreginn að hún við æskulýðsmessur og á hvers kon ar mótum sem haldin eru á veg um þjóðkirkjunnar. Akureyrarfólkið kom til Reykja víkur á föstudag o^ fór nheim í gær. Her vár jJéirii ÆS{?al"P5p^ ars boðið í Þjóðleikí(ús{87'bi T; ferðalag austur fyrir fjall, en Þjóðleikhússferðin var fyrsta ferð norðanmanna þangað. Æskulýðsfélag Langholtssókn ar starfar af miklum krafti og eru haldnir fundir hálfsmánaðar ‘lega. 1 félaginu eru um 200 virkir félagar og er þeim skipt í yngri og eldri deild. Fá ungling amir inngöngu , yngri deild þeg ar þeir eru fermdir. Til aðstoðar sóknarprestunum við æskulýðs- starfið eru fjórir foringjar, tveir þeirra eru guðfræðinemar og tveir hafa verið f Bandaríkjun- um á vegum þjóðkirkjunnar. Leikþáttur úr Skugga-Sveini vakti mikinn fögnuð, ekki sízt fyrir það, að það var ung dama, Hulda Halldórsdóttir, sem lék sjálfan kappann, Skugga-Svein, en Ingvar Sigurgeirsson lék Ketil. Sóknarprestur og foringjar æskulýðsstarfsins: Vigfús Þór Árnason, Áslaug Finsen, Kristján Guðmundsson stud. theol., séra Sigurður Haukur Guðjónsson og Gylfi Jónsson stud. theol. Félagar úr Æskulýðsfélagi Akureyrarkirkju afhenda formanni Æskulýðsfélags Langholtssókn- ar æskulýðsfána þjóðkirkjunnar. Frá v.: Guðrrún Pétursdóttir, Ólöf Harðardóttir, formaður Æskulýðsfélags Langholtssóknar, Pálmi Matthíasson, Ingimundur Friðriksson, Þorvaldur Krist insson og Margrét Aðalsteinsdóttir, fyrirliði norðanmanna. CfiXs.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.