Vísir


Vísir - 22.02.1966, Qupperneq 15

Vísir - 22.02.1966, Qupperneq 15
V1 S IR . ÞriSjudagur 22. febrúar 1966. 15 HARVEI FERGUSSON: Xr Don Pedro — Saga úr Rio - Grande - dalnum — var ðljúft frá a3 hvika í lífi sínu. Hann vildi engan láta fá tæki- færi til þess að telja sig í flokki landeigenda eða þeirra, sem hagnast á leigu lands eða fast- eigna, — og ekki vildi hann láta það spyrjast út, að hann ynni venjulega vinnu. — Svo að þú vilt opna búð héma, sagði hann allt f einu til þess að segja eitthvað í vanda sfnum, en Leo gat ekki áttað sig á svarinu, nema að ljóst var, að neitun hafði hann þó ekki feng- ið. Hann yppti öxlum og fórnaði höndum uppgjafarlega eins og sá, sem viðurkennir fyrir sjálf- um sér og öðrum að það væri enn í fullu gildi sem títt var sagt: Enginn má sköpum renna. — Það á víst ekki fyrir mér að liggja að opna verzlun hér í bænum, sagði hann. Ætli Vierra hreki mig ekki burt. — Heyrðu, sagði Beltrán ofsa lega, og var auðheyrt, að honum hafði heldur en ekki hitnað í hamsi. Fari í helvíti, það skal honum ekki lukkast, geti ég kom ið f veg fyrir það. Hann þagnaði skyndilega, eins og hann hefði sagt meira en hann hafði ætlað sér. Beztu þakkir, sagði Leo, ég mun kunna vel að meta vinsemd þfna hvort sem okkur semur um viðskipti eða ekki. Hann fór að vefja hjartarfeld- inum um riffilinn. — Það er víst kominn tími til þess fyrir mig að fara mína leið, en ég mun koma aftur og hafa tal af þér. Beltrán var þögull stutta stund og eftir svipnum að dæma var hann ekkert hrifinn af því að sjá riffilinn hverfa aftur nið- ur f körfuna. — Hvar ætlarðu að vera í nótt? spurði hann, þegar Leo var f þann veginn að stinga rifflinum niður f körfuna. - Ætli ég fái ekki einhvers staðar inni — raunar get ég sofið hvar sem er, undir beru lofti, ef í það fer. — Þú getur fengið að vera, sagði Beltrán, það er nægilegt húsrými hér og ég er birgur af veiðidýrakjöti. — Þakka þér fyrir, sagði Leo og þótti nú vænlegar horfa, þetta er vel boðið. Þegar Beltrán hafði gefið hestum sínum og höggvið í eld- inn bjuggu þeir sér ágæta mál- tíð úr veiðidýrakjöti og baun- um, kryddað geitapipar. Leo lagði til það, sem hann átti eftir af víni og lfka kaffi. Áður en þeir lögðust til svefns hafði þeim komið saman um, að Leo skyldi fá herbergi á leigu í húsinu, og greiða fyrir það tvo dollara á mánuði, og að Beltrán skyldi aka vagni sínum til Mesilla, þar sem hermennirnir höfðu skilið eftir eitthvað af timbri, og sækja þangað efni í hillur og búðar- disk. Þeir höfðu ekki gert um það neina samninga, en í raun- inni litu þeir hvor um sig á áformin, sem sameiginlegt fyrir- tæki. V. Þegar Aurelio Beltrán var lagður af stað til Messila næsta morgun skoðaði Leo betur hús- næðið, sem hann hafði tekið á leigu. Herbergið, sem var næst þeim tveimur, sem Aurelio bjó í, hafði greinilega verið forsalur, sem komið var inn í, er gengið var inn í húsið um aðaldyr, og augljóst var, að fyrr á tímum hafði allt verið þarna með ósmá um virðingarbrag, því að for- | salurinn var fjörutíu fet á lengd og arnar i tveimur hornum, en ! tilhöggnir bjálkar héldu uppi þak inu. Hús af þessari gerð hrörna jfljótt sé þeim ekki vel við hald- j ið, veggir og þak, og þarna hafði illgresi fest rætur milli þak- bjálka og þreifst vel í rökum Ieirnum, en í rigningatíð hafði vatn greinilega síazt inn í bjálk- ana, því að fúablettir voru í þeim. Veggir höfðu verið kalkað- ir utan, en allt kalk þvegizt burt, og innan húss voru rákir í veggjum, þar sem rigningar- vatnið hafði lekið niður eftir veggjunum. Gluggar voru sem gapandi gin og hurð vantaði. í einar dyrnar. Skuggsýnt var þarna og saggi í lofti og ódaunn af skordýrasaur. Tvær leðurblök ur, sem hangið höfðu í bjálka, tóku allt í einu til vængjanna og flugu út um einn gluggann, og stærðar rotta starði á hann andartak áður en hún tók til fót- anna og hentist út um dymar. Álitlegt var þetta ekki, en Leo virti allt fyrir sér án þess að láta nokkurn bilbug á sér finna. Þetta var í fyrsta skipti sem hann réð yfir húsnæði, og hafði þau áhrif, að blóðið rann örara um æðarnar og hugmynda- flugið örvaðist. Hann komst að þeirri niðurstöðu, að það þyrfti nokkra vinnu og efni en lítið fé til þess að lappa upp á þetta og gera forsalinn gamla vistlegan, og hann sá þarna fyrir hugskots- augum sínum, langan, traust- byggðan búðardisk, hillur á veggjum, fullar af alls konar vamingi, og fallegar, litprentað- ar biblíumyndir á veggjum ofan- vert við hillurnar, eins og hann hafði séð í búðunum í Santa Fe. og Albuquerque. Til hliðar yrði hann að hafa stand til þess að koma fyrir á hnökkum og ak- tygjum, og næsta herbergi yrði hann að nota sem birgðaskemmu því að hann ætlaði sér að hafa nægar birgðir af komi og baun- um, handa hernum, og þar yrði hann að geyma nautshúðir, sem biðu flutnings norður. Þriðja herbergið myndi hann taka. til íbúðar fyrir sjálfan sig og fleiri mætti taka í notkun, ef hann hefði þörf fyrir þau ... Hann nam allt í einu staðar á þessari hugsanabraut og fór að hlæja. Það var víst eins gott að vera minnugur þess, hugsaði hann nú, að enn var þarna gamalt hús rústum líkt, rottubæli, sem kann ski var óráð að gera að manna- bústað og sölubúð. En kyrr vildi hann vera. Hann var fyrir löngu búinn að sætta sig við að vera á sífelldu flakki, en nú þráði hann samastað undir fótum sér, að geta verið innan veggja, að hafa þak yfir höfuðið, að vera ráðandi á stað, þar sem hægt var að gera því meiri umbætur sem lengur leið, og samtímis yrði hann á umbótaleið sem mað ur. Honum datt allt í einu v hug að hefjast handa nú þegar. Úti í garðinum fann hann tvær gaml ar vatnstunnur, bar þær inn og setti niður með nokkru millibili, og lagði borð milli þeirra. Þar næst sótti hann körfur sfnar og fór að taka upp varning sinn og fór að athuga og telja birgðir sínar, nálar og tvinna, skæri, kjöthnífa og baðmullardúka - og biblíumyndirnar, sem jafnan höfðu verið hans útgengilegasti varningur. Það var ekki mik- ið, sem hann hafði meðferðis, en það var hægt að byrja verzl- un með þessu. Honum barst allt í einu að eyrumhvísl, leit upp og sá þrjá litla drengi standa f gættinni og litu þeir allir í áttina til hans alvarlegir á svip. Hann hefði svo sem mátt vita, að þeir myndu hafa upp á honum áður langt liði. Það var gamla sagan. Ef ókunnugur maður kom í mexi kanskan bæ — eða ef eitthvað óvanalegt gerðist, var það seg- in saga, að litlir drengir, tveir eða þrír eða fleiri, kæmu á vett- vang. Og alltaf fremur litlir drengir, og framkoma þeirra á- vallt hin sama: Gætnir, kurteis- ir, ákaflega áhugasamir. og at- hugulir - ekkert fór fram hjá þeim. Og þeir myndu horfa og hugsa og reyna að skilja, átta sig, aldrei flækjast fyrir, aldr- ei hávaðasamir. Það var eins og þeim væri eiginlegt, að sitja þög- ulir og horfa. Hann hafði haft talsvert saman að sælda við svona drengi árum saman. — Góðan daginn, sagði hann, og þeir svöruðu f kór: Buenos días og það kom eins og hreyf- ing á þá, þar sem þeir sátu á hækjum sér úti við dyrnar. Þeim T A R Z A N Það sézt enginn núna. Farðu með börn in innst í hellinn mennirnir á hestunum eru farnir. Munið þið fjögur að eitt hljóð og við gerum út af við ykkur. ..IFTHEY FOKI'T- THEM WE STAKT WOVINS SOttE OF THIS LOOT OUT IN 7AYLISHT... RISHT UW7ER THE KANSEKS' WOSES! AFTEK ALL.WE ARE A CÁMERÁ SAFAKl! Hvað á nú til bragðs að taka Bart. Við skulum hafa hægt um okkur í nokkra klukkutíma. Gamla Bess hefur verið hlað- in aftur. Ef þessir náungar snúa við, þá hugsum við vel um þá. Ef þeir gera það ekki, þá flytjum við sumt af þessu út, beint fyrir framan nefið á eftirlitsmönnunum þeirra, þegar allt kemur til alls erum við ljós- myndaleiðangur. fannst, að þeir hefðu verið boðnir velkomnir. Það mátti raunar segja, að Leo hefði stundað það sem sér- grein árum saman, að eiga skipti við svona drenui - að nokkru vegna þess, að honam féll vlð þá, í öðru lagi vegna þess að það var hyggilegt, gat komið sér vel, þótt síðar yrði Telpur voru hins vegar erfiðari —, þegar þær náðu vissum aldri, — ekki hægt að tjónka við þær, en drengir voru eins konar ambassa dorar smábæjanna, og það var mikilvægt að fara vel að þeim — vita, hvernig átti að fara að þeim. ÍSIR Auglýsinga- móttuku * i TÚNGÖTU7 og Luuguvegi 178 Sími 1-16-63 VÍSIR VISIR er einu síðdegisbluðið kemur út alla virka daga allan ársins hring Áskriftursími 1-16-61

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.