Vísir - 11.03.1966, Blaðsíða 2
HANN SLÓ BÍTLANA ÚT
T Bretlandi seljast nú fleirl
plötur meö Bob Dyian en
meö Bítlunum. Og þaö þurfti
mikið til að slá þá út. Þessi 34
ára gamli bandaríski þjóðlaga
söngvari er á góðum vegi með
aö leggja undir sig heimlnn. Og
hvemig fer hann aö því?
Umboðsmaður hans segir að
hann sé byltingarsinnaður og
hann fylgist með timanum.
Aðdáendumir segja að hann
geri þeim ljósa ábyrgðina, sem
þeir bera á sjálfum sér og heim
inum.
Bob Dylan hét einu sinni
Zimmermann. Hann breytti um
Hann fær hugmyndimar aö söngvunum úr dagblöðunum...
... og semur söngvana meöan hann leikur billiard.
nafn brezka skáldinu Dylan
Thomas til heiðurs.
Hreingern-
ingnr
Hreingerum með ný-
tízku vélum.
Fljót og vönduð
vinna.
Hreingemingar s.f.
Simi 15166 og 32630 eftir
klukkan 7 á kvöldln.
(
mmÁ
NýkomjB úrval
af fiskum og gróðri.
Það era fjögur ár síðan hann
byrjaði að syngja. í söngnum
„My Stolen Minute,“ segir hann
frá því hvernig hann hætti
skólanámi, einungis vegna þess
að í lifeðlisfræðitíma gat hann
ekki horft upp á að lítill héri
væri drepinn í tilraunaskyni fyr
ir nemendurna. Hann hljópst á
brott — og fyrir fjórum árum
var hann ráðinn til aö syngja
kúrekasöngva á kabarett í New
York. Hann fékk tæpar 1000
krónur á viku.
„Þann dág varð ég ríkur,“
segir hann. „Þetta var gífurleg
upphæð. Síðan þá hefur ekkert
breytzt hjá mér.“
Bob Dylan býr í Greenwich
Village í New York og síöan
hann byrjaöi aö syngja hefur
hann varla haldiö sig annars
staðar — nema þegar hann hef
ur verið á ferðalögum. T.d.
fyllti hann Royal Albert Hall i
London tvö kvöld í röð í fyrra
vor — og Royal Albert Hall
tekur 8000 manns.
Annars ku Bob Dylan vera
illa við flugvélar svo að ekki sé
talað um 1. farrými, enda hef-
ur hann hingað til ekki ferð
azt nema á ferðamannafar-
rými, þótt milljónamæringur
sé. I vor fer hann í hljómleika
ferð til Evrópu og er sagt að
hann hafi samþykkt að feröast
á 1. farrými, eftir að hafa
þrjózkazt lengi við.
Bob Dylan les blöðin og þar
fær hann hugmyndir af söngv
um sínum, ádeilusöngvum.
Meðan hann leikur billiard sem
ur hann vísurnar.
í síðasta ári munu tekjur
Bob Dylan hafa verið um 12
milljön krónur — en hann hugs
ar ekki um þær og heldur á-
fram að syngja sem fyrr:
— Mig langar til að eiga „a
million dollar“, en ef ég ætti
peninga myndi ég kaupa nokk
ur mótorhjól, lofthreinsara og
fjóra eða fimm sófa . . .
Kári skrifar:
Bob Dylan vill lifa „eins og skáld“. Hann er á móti því aö láta
taka af sér myndir, en f þau fáu skipti, sem hann fellst á þaö,
er þaö gert frammi fyrir kofaræksni.
FISKA - OG FUGLABÚÐIN
KLAPPARSTÍG 37 -SÍMI: 12937
„Tilraunamorðingjar“
í umferðinni.
/Áprúttnir ökumenn eru í
„sér umslagi“ hjá íslenzku
réttarfari og að auki „jafnvel
verölaunaðir af sumum trygg-
ingarfélögum" eins og einn góð
ur og réttsýnn maður sagði ný-
lega. Svo viröist sem þeir séu
oft hafnir yfir lög og rétt. Þeir
sleppa við refsingu, þótt þeir
vegna ábyrgðarleysis síns séu
valdir að dauða, örkumlum og
meiri háttar skaða. Og þeim er
hleypt aftur út í umferðina eins
og ekkert hafi í skorizt svipað
og ef byssubófa væri veitt
skotleyfi, leyfi til að drepa
meira. Hvað veldur þessu hér
á landi? Erlendis er yfirleitt
litið á ökuníðinga sem saka-
menn, en hér eru þeir bara
sagðir „kaldir karlar."
Málsvarar
umferðarbófanna
Þegar slys ber að höndum
hér, er það segin saga, aö þess
ir umferðarbófar eignast fyrir-
hafnarlaust líknandi málsvara,
sér að kostnaðarlausu. „Hverjir
eru það nú?“ mun margur
spyrja. Hverjir aörir en fulltrú
ar einhvers tryggingarfélag-
anna. Þetta er þeim mun harö-
slegnara fyrir þá sök, aö þess-
um félögum ber að vernda
samborgarana fyrir tjóni af
völdum annarra. Meinvættur-
in í umferðinni virðist líka
svo ótrúlega oft hafa lögin með
sér. Samkvæmt islenzkum um-
ferðarlögum virðist erfitt að
dæma sérhvern ökumann við
hvaða aðstæður sem er, í fulll
um rétti — hundrað prósent
rétti. Svo loðin og teygjanleg
eru ákvæði umferöarlöggjafar-
innar. Tryggingaragentinn get-
ur jafnaöarlegast séö sér leik á
borði og hengt hatt sinn á ó-
trúlega smáskitleg atriði.
Að taka á sjálfan sig
yfirsjónir annarra.
Það er eins og gerð sé til þín,
sem ekur eftir öllum settum
reglum, skýlaus krafa um, að
þú verðir að vera við því búinn
að taka á sjálfan þig glæfra-
legt athæfi og yfirsjónir þess
eða þeirra, sem þú mætir í um
ferðinni, hvort sem þú ekur á
grænu ljósi eða eftir aðalbraut
og gerir allar hugsanlegar var-
úðarráðstafanir (jafnvel dembir
þér svo til út af vegi) til að forð
ast árekstur. Þaö er ekkert ver
ið að spyrja aö því, hvort þú
sért meö fjölskyldu þína, litlu
bömin þín, vanfæra eiginkonu.
Ein saga af mörgum.
Ef þú ert heiðarlegur í fram-
burði þínum t.d. segir að þú
hafir séð bílinn nálgast nokkru
áður en komið er að blindri hæð
máttu búast við því, aö trygg-
ingaragentinn grípi þetta á
lofti. Hann segir: „Ég sé ekki
betur en þú sért að sakfella
sjálfan þig, góði minn og viöur
kenna þar með þína sök aö slys
inu.“ Hann hlustar ekki á þig
þótt þú maldir í móinn og segir:
„Ég vék út í blákant — lengra
gat ég ekki komizt.“ Og þú
mátt jafnvel búast viö því, að
þú verðir hankaður á því, er þú
segir, að hraði bifreiðar þinnar
hafi aðeins verið 10-20 km. á
klukkustund. Þaö getur hæg-
lega rýrt þinn rétt í augum
tryggingarfélags. Þeir hjá fé-
laginu hugsa: „Þú hafðir alla
möguleika til að afstýra slysinu
góðurinn, af því að þú varst bú
inn að sjá bílinn og svo viður
kennirðu að hafa ekki verið á
neinum teljandi hraða.“ „Þeir“
virðast ekki líta við gögnunum
sem liggja fyrir í skýrslu lög-
reglunnar: að hinn bíllinn hafi
verið á kolólöglegum hraða við
þessar aðstæöur (niður brekku
við blinda hæð í fljúgandi
hálku) eins og ökufanturinn
neyddist þó til aö viöurkenna
og ennfremur að bíll hans hafi
verið ólöglegur — með eina
keðju að aftan — og hann hafi
bremsaö svo að hann komst
ekki út úr hjólförunum út í
hinn kantinn.
Óvilhallir lögreglumenn
með kunnáttu?
Svo er það eitt, sem getur
verið hvað alvarlegast fyrir þig
sem ekur bíl og lendir I slysi
og ert þó í fullum rétti. Þegar
slys ber að höndum úti á lands
byggðinni er oftast aðeins einn
lögreglumaður sendur á staðinn
og honum treyst algerlega fyrir
nákvæmri útmælingu og athug
un á því, sem hefur gerzt. Um
ferðarslys eru þaö vandasöm
viðureignar, að slíkt ætti ekk>
að leyfast. Segjum svo, aö viö-
komandi lögreglumaöur sé per
sónulega kunnugur ökuníðingn
um, jafnvel vinur hans. Hvað
kemur þá fram í skýrslunni?
Við hverju má búast?
I