Vísir - 12.03.1966, Side 6
VÍSIR . Laugardagur 12. marz 1966.
wwmnm
Sjóbirtingsveiðin hefst
um n.k. mánaðamót
Frá og með I. apríl n. k. hefst
sjóbirtingsveiði í ám og fjölmargir
áhugamenn um stangveiði eru
teknir að hugsa til hreyfings, enda
stuttur tími orðinn til stefnu.
Samkvæmt upplýsingum sem
Vísir fékk í gær hjá Þór Guð-
jónssyni veiðimálastjóra, hefst sjó-
birtingsveiði um næstu mánaðamót
og hann sagði reynsluna vera þá
að þegar tíðarfar væri gott fengju
menn oft ágætar glefsur um það
leyti sem veiðin hæfist.
Það eru einkum ár hér sunnan-
lands og á SV-landi, sem sjóbirt-
ingsveiðin hefst fyrst í, en síðar í
ám í öðrum landshlutum, eftir þvi
sem þær leysir og veðrátta levfir.
Meðal þeirra áa hér á Suðurlandi
sem hvað kunnastar eru fyrir sjó-
birtingsveiði eru m. a. Varmá eða
Þorleifslækur í Ölfusi, báðar
Rangárnar, svo og Skaftá, Tungu-
fljót í Skaftártungu og fleiri ár
austur þar. Ennfremur eru ýmsar
ár á Snæfellsnesi og í Borgarfirði,
sem sjóbirtingur veiðist í.
Veiðileyfi fyrir sjóbirtingsveiði
eru venjulega ekki seld nema fyrir
brot af þvf verði sem laxveiðileyfi
kosta. Apnars hefur verðið verið
býsna breytilegt frá einni ánni til
annarrar, allt frá 50 krónum og
upp í 200—300 krónur á stöng.
Að lokum gat veiðimálastjóri
þess að margir hygðu gott til
glóðarinnar, einmitt nú þegar sjó-
birtingsveiðin fer að hefjast, og
koma margir oft fengsælir heim.
Voru dæmdir til öryggisgæzlu og
hælisvistur í stuð refsingur
Tveir dómar hafa nýlega verið
kveðnir upp í Sakadómi Reykjavík
ur, annar fyrir manndráp, hinn fyr
ir íkvelkju í íbúðarhúsi að nóttu til
þar sem sofandl fólk var inni.
1 báðum þessum tilfellum kom-
ust dómarar að þeirri niðurstöðu
að refsing væri tilgangslaus, eftir
að geðlæknar og læknaráð höfðu
fjallað um málið og talið að geð
heilbrigði viðkomandi aðila væri
svo ábótavant að refsing í venju-
legri mynd kæmi ekki að tilætluð
um notum.
Annað tilfellið sem hér um ræðir,
er vegna atburðar sem átti sér stað
í Selbúðum á s. 1. hausti, þá greiddi
maður konu sinni höfuðhögg með
þeim afleiðingum að hún lézt af
því. Maðurinn var talinn fáviti og
var dæmdur til að sæta vist á við-
eigandi hæli um óákveðinn tíma.
Hitt atvikið átti sér stað að Vest
urgötu 46 á s. 1. sumri. Þar gerði
ungur maður tilraun til að kveikja
í íbúðarhúsi að nóttu til, en margt
manna var þá í fasta svefni í hús-
inu. Pilturinn var að áliti lækna
ekki talinn sakhæfur og var dæmd
ur til að sæta öryggisgæzlu um
ótiltekinn tíma.
Netabótar voru að draga
gær, — urðu að hætta í
fyrradag vegna brælu
Enn er lítill þorskafli, bræla í
fyrradag en gott veður á miðunum
i gær. Loðnuveiðl hefir verið mjög
lítil en óstaðfest frétt í gærkvöldi
hermdu, að bátar væru komnlr i
loðnu sunnan Reykjaness.
Vfsir haföi samband við nokkrar
verstöðvar í gær og fékk eftirfar
andi fréttir:
Keflavík: Bátar á heimamiöum
með aðeins 4—7 tonn. Bátar á
Breiðafjarðarmiðum gátu lítiö dreg
ið vegna brælu á fimmtudag.
Vestmannaeyjar: Engir bátar á
sjó f gær. Þaö af er vertíð yfir
Ieitt hefur þorskafli verið lítill þótt
stöku bátar hafi fengið dágóðan
afla endrum og eins, seinast tveir
bátar f fyrradag 34—35 tonn hvor
en aflinn mest ufsi.
Akranes: Bátar á Breiðafjarðar
miðum gátu lítið dregið á fimmtu
dag, því að bræla tók um miðjan
dag, en bátar voru að draga í gær
(föstudag). Sumir á Breiðafirði, aðr
ir út af Jökultungu og enn sumir
nær eöa í „kantinum". Fréttarit-
ari blaðsins sagði, að þetta virtist
dálítið líflegra.
Skip er á Akranesi að taka 5000
tn. af saltsíld eða seinustu salt-
síldarleifarnar frá haustinu.
Þorlákshöfn: Afli netabáta á
heimamiöum hefur verið misjafn
en sumra dágóður. Einn bátur land
aði 25 lestum í fyrradag (tveggja
nátta fiskur). Aflinn var ufsabland
inn. Annar bátur var með 12 tonn.
Loðnu hefir ekki verið landað hér
undanfarna daga.
Birgiir afsmygluium bjór
fundust vii tollleit
Fyrir dyrum stendur rannsókn
út af smygluðum bjór sem fannst
í m.s. Mánafossi, við komu hans
til Reykjavíkur í sl. mánuði.
Alls fundust við leit 88 kassar
af bjór, en áður hafði Mánafoss
veriö tollafgreiddur úti á landi,
en þá höfðu þessar bjórbirgðir ver
ið faldar og ekki gefnar upp. Toll-
gæzlan haföi hins vegar grun um
að eitthvað kynni að leynast af
ótollafgreiddum bjór í skipinu og
hóf leit í því þegar það kom til
Reykjavíkur. Árangurinn varð eins
og að framan segir.
Tafir urðu á rannsókn málsins
vegna þess að skipsskjöl bárust
ekki úr pósti fyrr en sama dag og
Mánafoss lagði héðan úr höfn. Það
hefur því ekki verið rannsakað
ennþá hverjir eigendur bjórsins
eru og málið ekki lagt fyrir saka-
dómaraembættið ennþá.
Pressuballið annan laugardag
Dónsku forsætisrábherrahjónin gestir Woíamanno
Pressuballið svonefnda, hin ár- ríkisráðherra, og frú hans, svo og
lega skemmtun Blaðamannafélags
íslands, verður að þessu sinni hald-
ið í Lídó laugardaginn 19. þessa
mánaðar. Hefst skemmtunin kl. 19
með borðhaldi.
Heiðursgestir á skemmtun Blaða-
mannafélagsins verða að þessu
sinni dönsku forsætisráðherrahjón-
in, Jens Otto Krag og frú Helle
Virkner Krag. Koma þau væntan-
lega til landsins meö flugvél frá
Flugfélagi íslands síðdegis á laug-
ardag, sama dag og skemmtunin
verður. Auk þeirra veröa Bjarni
Benediktsson og frú, Gylfi Þ. Gísla
son, sem þá gegnir stöirfum utan-
lcelandsc-
Canadian
Vetrarhefti The Icelandic-Canad-
ian er nýlega komið, fjölbreytt að
efni, og eru þar m. a.< greinar um
Leif Eiríksson og Vínland, ein eftir
Harald Bessason, önnur þýdd úr
Washington Post. Dr. Richard Beck
skrifar um Gunnar Gunnarsson.
Birtar eru nokkrar kunnar þýð-
ingar á ensku af íslenzkum Ijóðum,
m. a. á nýárskveðju Matthíasar, í
þýðingu Kemps Malone, og þýö-
ingar Vilhjálms Stefánssonar á
fjórum lausavísum eftir Steingrím
Thorsteinsson, en ekki var fariö rétt
með nafnið og skáldið kallaö Þor-
steinsson — og eins hefir ritstjór-
anum þótt fara betur á að svipta
Pétur Thorsteinsson sendiherra ætt
arnafni og segir hann Þorsteinsson.
Það á aö vera lágmarkskrafa, að
fariö sé rétt með nöfn manna, og
heföi mátt ætla, að ritstjórinn heföi
átt að geta farið rétt með nöfn
þessara manna, sem hér um ræðir
svo kunn sem ættarnöfn þeirra
eru. — A. Th.
Rúmlega 100 ölvaiir öku-
menn teknir frú úramótum
sendiherra Dana hér á landi og
frú.
Allir miðar eru fyrir löngu upp-
pantaðir, en þeir verða afhentir í
dag kl. 5.30 til 7 e. h. og borö-
pantanir verða þá um leið og ekki
á öörum tíma.
Samkoman hefst klukkan 19 með
boröhaldi eins og áður segir og
verður mjög til þess vandað, sem
þar verður á borðum. Dagskráin
verður í aöalatriðum á þessa leið:
Séra Emil Björnsson setur sam-
komuna, Jens Otto Krag forsætis-
ráðherra Dana, flytur ræðu, Jón
Sigurbjömsson óperusöngvari syng
ur, Ómar Ragnarsson flytur
skemmtiþátt, sem sérstaklega er
saminn fyrir þessa skemmtun. —
Veizlustjóri veröur Sigurður Bjama
son. Salurinn f Lídó veröur skreytt-
ur sérstaklega fyrir þetta kvöld
og ,,mun Gunnar Bjamason leik-
tjáidamálari háfa umsjón með
skreytingunum.' Nýir eigendur hafa
tekið við rekstri Lídó, þeir Hilmar
Helgason og Róbert Kristinsson.
Hafa þeir látiö endurnýja húsgögn
og fleira og eru orðnar miklar end-
urbætur á staðnum.
Dönsku forsætisráðherrahjónin
munu dvelja hérna á sunnudaginn.
Þau munu fara í stutta ferö til
Þingvalla ef veður leyfir á sunnu-
dagsmorguninn, þá munu þau
snæða hádegisverð 1 boði forsætis-
ráöherra Islands. Síðdegis munu
ráðherra fyrir gestina, blaðamenn
og fleiri.
Kvöldverð snæða hjónin hjá
danska sendiherranum. Um kvöldið
munu þau veröa viðstödd sýningu
á Gullna hliðinu í Þjóðleikhúsinu,
en frú Helle Virkner er sem kunn-
ugt er þekkt leikkona. Kraghjónin
halda heimleiðis á mánudagsmorg-
uninn þann 21.
FH og
unnu
FH vann í gærkvöldi f hörku-
spennandi leik gegn Fram á Hand
knattleiksmóti íslands með 21
marki gegn 20 og hefur nú hlotið
10 stig eftir 6 leiki, en Fram hefur
12 stig eftir 7 leiki. KR vann
Hauka í mjög spennandi leik 25:21.
Leikur FH og Fram var spenn-
andi frá upphafi og í hálfleik var
staðan 11:11 en undir lokin tókst
FH að ná 3 marka forskoti með
19:16 og reið það baggamuninn.
KR gekk vel í fyrri hálfleik gegn
Haukum og var staðan f hálfleik
13:5. í síðari hálfleik tóku Haukar
að síga á og á tíma var aðeins
tveggja marka munur á liðunum.
KR tryggði sigurinn með góðum
endaspretti og vann 25:21. Þessi
sigur gerir það að verkum að KR
og Ármann heyja greinilega fall-
baráttuna í 1. deild og eru bæði
með 4 stig en Haukar eru ekki
heldur úr haéttu með sín 4 stig.
jbp.
Á dögunum var lögreglan í Rvík
búin að taka 102 ökumenn frá sl.
áramótum, sem hún haföl grunaða
um ölvun við akstur, og færða þá
alla til bióðrannsóknar.
Þetta er ívlð óhagstæðari tala
heldur en á sama tíma og í fyrra
þvi þá nam tala drukkinna öku-
manna 94, Hins vegar hafði lög
reglan tekið 157 drukkna ökumenn
á þessu tímabili 1964.
Nýlega handsamaði lögregl-
an fjóra drukkna ökumenn, þar af
einn kvenmann. Hafði stúlkan ek
ið bifreiðinni út i forarvilpu, en
náði' henni ekki upp úr. Félagi
hennar f bifreiðinni sem jafnframt
var eigandi bílsins ætlaði þá að
koma henni til hjálpar, en á með
an hann var að paufa við stýrið
bar lögregluna að og hirti þau bæði
Þriðji drukkni ökuþórinn var tek
inn um leið og hann
renndi upp að húsinu heima hjá
sér. Lögreglan hafði þá fylgzt
með ferðum hans og akstri nokkru
áður og fannst akstur hans
skrykkjóttur og ekki nægilega ör-
uggur. Grunaði hana að ökumað-
ur myndi ekki allsgáður, enda
kom það á daginn.
Sá fjórði, sem varð fyrir
barðinu á lögreglunni var bifreiða-
viðgerðarmaður, sem hafði tekið
einn bíla þeirra, sem hann hafði
til viðgeröar, traustataki og ekið
honum allmjög drukkinn. Á leið-
inni um nóttina varð fyrir honum
bíll inni í Gnoðarvogi og í stað
þess að sveigja fyrir hann ók mað-
urinn á hann og kastaði honam
á annan bíl sem stóð fyrir framan
hann. Bílamir skemmdust allir
eitthvað, en þó komst bílvirkinn
leiðar sinnar og heim til sín. Þar
hafði lögreglan upp á honum
nokkru síðar.
Peningar hurfu úr
bíl í gærkvöldi
Á áttunda tímanum í gær-
kvöldi hvarf skjalataska með
12.690 krónum úr bíl f Reykja-
vík. Voru þessir peningar gjald
ið, sem inn kóm f gjaldskýlinu
við Straum siðdegis í gær.
Þegar vaktaskipti urðu í gjald
skýlinu kl. 19 tók vörður sá sem
verið hafði á vakt frá hádegi
peningana, sem inn höfðu komið
setti þá f brúnt umslag er hann
setti síðan í svarta skjalatösku.
Hélt hann síðan í bíl til Reykja-
víkur og lét töskuna liggja í aft-
ursætinu. Hann staðnæmdist og
gekk frá bílnum um stund úti
fyrir húsunum Álfheimar 56—60
en hélt síðan til Hafnarfjarðar.
Er þangað kom tók hann eftir
að skjalataskan var horfin og til
kynnti lögregunni strax hvarfið.
Er vaktmaðurinn gaf skýrslu um
hvarfið kvaðst hann hafa læst
bílnum er hann gekk frá honum,
en mundi ekki hvort hann hafði
gengið frá gluggum bifreiðarinn
ar sem skyldi.
Útför móður okkar
SIGRÍÐAR ÁRNADÓTTUR
Þórsgötu 7
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 14. marz kl. 1.30. Blóm
vinsamlegast afþökkuð.
Ámý Guðmundsdóttir
Elín Guðmundsdóttlr
Helgi Guðmundsson.