Vísir - 12.03.1966, Blaðsíða 16

Vísir - 12.03.1966, Blaðsíða 16
 Laugardagur 12. marz 1966 Kjarval og fleiri sæmdir fdlkaorðu í tilefni af áttræðisafmæli Jóhann esar S. Kjarval, listmálara hefir for- seti íslands sæmt hann stórkrossi hinnar íslenzku fálkaorðu í viður- kenningarskyni fvrir listaverk hans. Samkvæmt ósk listamannsins hefur heiðursmerkið verið falið Listasafni Islands til varðveizlu. Forseti Islands hefir 11. marz sæmt eftirgreinda menn riddara- krossi hinnar íslenzku fálkaorðu: Séra Emil Bjömsson, formann Blaðamannafélags Islands, fyrir störf að blaðamennsku. Kristján Jónsson, bakarameist- ara, Akureyri, fyrir iðnaðarstörf. Tómas Á. Tómasson, sendiráðu- naut, París, fyrir störf á vegum utanríkisþjónustunnar. ALLT TÓBAK OS ÁFENGIFERÐA- MANNA TOLLSTIMPLAÐ Þ'órf á meiri mannafla til tollgæzlu, segir Unnsteinn Beck Það er töluvert vlðbótarálag fyrir tollgæzlumennina aö af- greiöa eftir nýju reglugerðinnl sagði Unnsteinn Beck tollgæzlu stjóri í viðtali við Vísi, er blað ið átti tal við hann út af af- greiösluháttum starfsmanna tollgæzlunnar eftir að nýja reglugerðin tók gildi. — Er vandlegar skoðað? — Það eru a.m.k. ákveðnari fyrirmæli en áður um mat á far angri ferðamanna. En það sem veldur m.a. aukinni vinnu og þar af leiðandi nokkrum töfum við afgreiðslu er það, að nú orðið stimplum við allt tóbak og áfengi sem feröamenn hafa meðferðis. Þetta var ekki gert áður, en tekið upp núna fyrst og fremst til að auðvelda störf löggæzlunnar í landinu. — Hafið þiö þurft að bæta við ykkur mannafla til af- greiðslu skipa og flugvéla? — Ekki hefur það verið gert enn sem komið er, en hjá því verður ekki komizt og það meira að segja alveg á næstunni Við höfum fundið bráða-i birgðalausn á þessu vandamáli| nú um stundarsakir með því að taka starfsmenn af öðrum vöktum og sem ætlaðir eru til annarra starfa innan toll gæzlunnar til að afgreiða ferða menn sem til landsins koma. Annars skal það játað, að þeg ar margt fólk er með flugvélum hingað til lands erum við full hertir með að afgreiða þær með þeim mannafla, sem við höfum á að skipa. — Þið bættuð nýlega við ykkur starfsliði? — Það var auglýst í fyrra eftir fólki til tollgæzlustarfa, en fengum allt of fátt. Við þurf um á fleira fólki að 'halda. Það eru sízt fleiri starfsmenn hjá tollgæzlunni nú heldur en vora fyrir nokkrum árum. Samt hef ur starfssviðið færzt mjög í auk ana og meira að segja ný við- horf skapazt, sem ekki voru tH áður. Við höldum rétt í horf- inu með starfslið. Annars eru tollgæzlumennirnir færri en áður. — Er von á viöbót? — Það veröur að auka starfs liðið. Það er óhjákvæmilegt og ég tel víst að það verði auglýst eftir fólki til tollgæzlustarfa á næstunni. Dagheimili og Seltjarnarnesi húsi ákveðin Seltjarnarneshreppur hefur á- kveðlð að festa kaup á hús- inu Fögrubrekku í Lambastaöa hverfl og koma þar upp dag- heimili og lelkskóla i vor. Hlng að til hefur ekki verið neitt dag heimili á Seltjarnarnesi, aðeins gæzluvellir og hafa tveir verið opnir á sumrln en einn á vet- uma. Vísir spuröist fyrir um vænt anlegt bamaheimili hjá sveitar stjóranum Sigurgeiri Sigurðs- syni. — Það hefur verið tekin á- kvörðun um að festa kaup á Fögrubrekku í Lambastaða- hverfi, sagði Sigurgeir, en það er einlyft steinhús 130 ferm. Var það álit sérfróðra manna frá Sumargjöf að þetta hús hentaði sérlega vel sem dag- heimili og leikskóli. Lóðin, sem er um 1300 fermetrar, er sér- lega hentug og þarf svo til eng ar breytingar á henni að gera. — Gert er ráð fyrir að þarna ' verði rúm fyrir 30 börn en enn I hefur ekki verið fyllilega ákveð | ið hvernig rekstrinum verður < háttað, hvort þarna verður dag heimili eða leikskóli, en mestar I líkur eru til að hvort tveggja 1 verði, því að húsið gefur mögu , leika á að skipta niður í tvær deildir. Engar teljandi breyting ' ar þarf að gera á húsinu, lík-1 lega aðeins taka niður einn eða , tvo milliveggi og lagfæra gólf ' dúka. — Auglýst hefur verið eftir forstöðukonu og er gert ráð fyrir að hún verði ráðin ekki seinna en 1. maí og verði til ráðlegginga um rekstrarfyrir komulag, og von okkar er að bamaheimilið geti tekið til starfa einhvem tíma í maímán uði. Verzlanir lokq kl. 12 á hádegi Verzlunum verður lokaö kl. 12 á hádegi í dag og verður svo fram vegis á laugardögum, allt árið um kring. Er það samkvæmt hinum nýju samningum verzlunarmanna um styttan vinnutíma, en á föstu dögum veröur áfram opið til kl. 19. Eiginhandarhandrit Einars Benedlktssonar. Handrit eftir þjóð- skáld á uppboði Eins og frá hefur verið skýrt í Vísi verður eiginhandar hand- rit Einars Benediktssonar skálds boðið upp á bókauppboði hjá Gjaldeyrisskammtur ferðamama aukinn úr 12 þús. kr. í 15 þús. 1 þessari viku gekk í gildi ný reglugerð um gjaldeyrisleyfi til ferðamanna. Er hér um að reeöa rýmkun á gjaldeyrisskammti þeim, sem ferðamenn fá að hafa með sér tii útlanda. Hækkun þessi nemur þrem þúsund krónum. það er frá 12 þús. eða 100 pundum upp f 15 þúsund kr. eða 125 pund. Reglur þær, sem gilt hafa um gjaldeyrisleyfi til ferðamanna eru frá 1957, þótti ástæða til breytinga nú og eru ákvæði þessi því rýmkuð eins og fyrr segir. Auk þessa koma til yfirfærslur vegna svokallaðra IT-ferða, en þær eru á vegum ferðaskrifstofa, sem eru í samvinnu við IATA (þ. e. alþjóðaflutningasambandið). Fá far þegar, sem fara slíka ferð leyfi fyrir þrem pundum á hvem dag ferðarinn ar, og ráðstafar ferðaskrifstofan þeim, borgar með þeim hótelkostn- að og annað slíkt. Ferðamenn, sem fara þessar IT-ferðir fá 108 pund auk áðurnefndra dagskammta. Forstjórar ferðaskrifstofanna héldu með sér fund á mánudaginn, til þess að ræða þessi mál. Hyggj- ast þeir gefa út bækling til þess að kynna IT-ferðir. Má búast við að þess konar ferðir færist í aukana við þetta, en þær hafa lítið þekkzt hér á landi. IT-ferðir eru orðnar til fyrir sam vinnu IATA-flugfélaganna og al- þjóðlegra ferðaskrifstofa. Þær eru skemmtiferðir skipulagðar fyrir- fram og greiðist kostnaður allur fyr ir brottför. Eru þar innifaldar ferð ir, gisting, svo og önnur þjónusta. I ferðum þessum er eingöngu ferð- azt með áætlunarferðum flugfélag- anna. Þær eru ódýrari öðrum ferð um fyrir það, að farþegaskrifstofum ar fá samkvæmt sérstökum samn- ingi ódýrari fargjöld fyrir þessar ferðir hjá flugfélögunum, eins kon ar heildsöluverð á farseðlum. Sigurði Benediktssyni í næstu viku. Þetta handrit er drápa, eða brúðkaupskvæði, sem Einar flutti í brúðkaupsveizlu mág- konu sinnar, Sigríðar Zoega, er hún giftist Agli Jacobsen kaup- manni. Drápa þessi mun einnig hafa verið prentuð og dreift til brúðkaupsgesta og nánustu vina og venzlamanna, en aldrei ver- ið prentuð nema í fáum eintök- um, og viðbúið að flest þau eintök séu nú glötuð. Ekki er blaðinu kunnugt um hvort hið prentaða brúðkaupskvæði er prentað eftir þvj handriti, sem nú verður boðið upp, eða hvort texti þess sé í einhverju af- brigðilegur. Sennilega er þetta fyrsta eig- tnhandarhandrit Einars, sem komið hefur fram á uppboði, a. m. k. síðustu árin, en Einar á sér marga aðdáendur og mun marga fýsa að komast yfir jafn- eigulegan og dýrmætan hlut.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.