Vísir - 04.04.1966, Síða 11

Vísir - 04.04.1966, Síða 11
VISIR . Mánudagur 4. apríl 1966. 77 HARVEI FERGUSSON. X- Don Pedro Saga úr Rio-Grande-dalnum — þessa manns. Hann fylgdist því með honum yfir húsagarðinn og settist að snæðingi með honum, en Avandera var snör í snúningum að leggja á borð fyrir tvo. Leo sótti flösku af innfluttu víni og fyllti glösin. Og svo fór hann að taia ósköp blátt áfram um allt milli himins og jarðar, nema viðskipti. Hann spurði Don Augustin um stór gripi hans, hættuna af árásum Apache-Rauðskinna, sem alltaf gat verið yfirvofandi, fór svo að tala um „þá gömlu góðu daga“, þegar Augustin var ungur maður, og gat þá komiö honum af stað — það var eitthvað ifkt þvi, er menn ganga að vatnsdælu á brunni og verða aö dæla góða stund, áður en nokkurt vatn kemur. Þegar þeir höfðu neytt réttanna bauð hann upp á brenni- vín og gat fengiö Don Augustin til þess að þiggja léttan vindil. Og þegar hann sá, að Don Augustin var farið að líða notalega, og naut 1 þess að reykja vindilinn fannst hon um sú rétta stund komin til þess að ræða viðskiptin. — Þér minntust á viöskipti, 1 sagði hann. Þér vitið, að ég er reiðu búinn að greiða fyrir yöur. Don Augustin horfði á hvíta ösk- j una á vindilendanum langa stund ; og veittist erfitt aö svara. 151ÍV7A1 — Ég þarf á dálítilli fjárhæð aö halda, sagði hann, ef til vill eitt þúsund dölum. — Peninga, já, sagði Leo kæru- leysislega, þúsund dali, þér þurfið á þeim að halda, en ekki á einu bretti. Það er ávallt meiri skortur á þeim en öðru. Hundrað dali núna og meira seinna, en þér getið fengið allt sem þér hafið þörf fyrir úr verzluninni. Ég tel mér það mikinn heiður, að geta veitt yður þessa þjónustu. n'innTHTOTiTii ■■■ irm ■BnrFiinTmimiini 40. Don Augustin kinkaði kolli og hélt áfram að stara á vindilinn. Hann gat ekki annað en þegið þessa hjálp — átti ekki annars úr- kosta — og honum hafði verið tek ið vinsamlega og veitt vel sem væri hann prins. — Ég borga, þegar ég hef tarfa til sölu, næsta haust. — Hafið engar áhyggjur, sagði Leo, þegar þér hafið gripi til sölu þá sendið þá til mín, og ég mun Lindargötu 25 sími 13743 fa fyrir þá bezta fáanlega verð, taka af verðinu það, sem þér skuld ið og afhenda yður afganginn. Með þessu móti er létt af yður mikhi vafstri. Enn starði Don Augustin lengi á vindilinn. Hann var ekki ánægður með þessi skilyrði, en gat ekki lát- iö sér detta neitt i hug til þess að bera fram gagntillögur. Hann var ekki kaupsýslumannslega vaxinn. — Beztu þakkir, sagði hann loks og reis á fætur. Það var honum erf- itt aö mæla f kurteislegum tón. Ég tek við peningunum og við mun- um taka út það, sem við þurfum f verzluninni. Og svo tölum við nán- ar um gripina í haust. Leo kinkaði kolli. — Gott og vel, alveg eins og yður þóknast. Þetta gat allt virzt nokkuð laust í reipunum og það var ekki neitt sett á blað um þetta, en Leo vissi, öruggiega, að þessi munnlegi samn ingur yrði haidinn. Hann vissi, að raunvenjlega hafði hann allar Vi- erra-eignirnar sem tryggingu og föður Orlando sem ábyrgðarmann að auki. Hann ól engar áhyggj- ur varðandi greiðsluna, en var ekki áhyggjulaus um afstöðu Don Aug- ustms til hans — vegna þess að hann var orðinn skuldunautur hans, — honum háður — og ef nokkuð var eitur f beinum Don Augustins var þaö einmitt þetta: Að vera öðrum háður. Leo hellti brennivíni f gias hans. — Þetta er allt milli vina, sagði hann, og alveg eins og þér óskið, Hann lyfti glasi sfnu: — Yðar skál. V. ... Baka til í búöinni á hillum uppi við vegg voru valin vopn, sem fáir höfðu efni á að kaupa, og hafði því alltaf bætzt við safnið, þar sem Leo varð stundum að taka slíka gripi upp f viðskipti. En þetta vopnasamsafn setti sinn glæsibrag á búðina, nokkrir rifflar af nýjustu gerð, keyptir í Santa Fe, en flest hinna vopnanna feng- in í vöruskiptum. Veiöimenn, málm leitarmenn, ferðamenn, lögðu inn eitthvert vopn, og fengu vörur í staðinn. Leo hafði raunar ekki vit á vopnum sjálfur, en hjálpin var oftast nálæg, því þegar slík við- skipti sem þessi voru gerð, kvaddi hann til Aurelio Beltrán, sem hafði gott vit á að verðleggja vopn, og var upp með sér af að vera til kvaddur sem sérfræðingur. Aurelio var löngu orðin hans hægri hönd, enda reyndur vinur. Hann hafði lengi iagt sig í líma með að vekja áhuga Leo fyrir vopnum, vildi enda kenna honum að handleika byssu, en gafst upp að lokum, þar sem Leo vildi ekki vopn snerta, ekki einu sinni til vemdar sínu eigin lífi. Var Aurelio því næstum farinn að líta á safnið sem sitt eigið einka safn og var mjög stoltur af þvf, þurrkaði ryk af vopnunum og fægði og bar á olíu, þar sem þörf var við og við, og hann sýndi þau öll- um, sem spurðu um þau. Þama voru byssur af ýmsum gerðum, þeirra meðal 14 punda buffalóa- byssur, Winchester-rifflar, af elztu gerð, riddaraliösbyssur, hnffar og rýtingar, sumir frá Mexikó, skeftiö perlusett og greypt á það eink- unnarorð, riddarasverð og loks var sverðstafur, vopn sem algengt var í Evrópu, ekki óþekkt í Mexikó, en mjög sjaldgæft í Rio Grande-daln- um. í huga Leo var rótgróin andúö á öllum þessum vopnum, eins mögn uð og ótti hans við snáka og köngu lær, og það fór ekki fram hjá hon- um, að þessi afstaöa hans var öll önnur en annara. Líklega bar ann- ar hver maður, sem kom inn f búö- ina, vopn. Ef fil vill rak þarna inn nefið einhver Texasbúi með sex- hleypu í belti, veiðimaöur með riff- il eða mexikanskur fjárhirðir með rýting falinn innan klæða, en þann- ig, að hægt var að grfpa til hans f skyndi, og öllum varð starsýnt á vopnasafnið, en menn voru löngu famir að líta á það sem safn eða vísi af safni. Margir, sem lítiö áttu imdir sér, létu sér nægja að horfa á það yfir diskinn, en aðrir, sem vom eða þóttust vera, miklir karl- ar, vildu óðfúsir skoða þaö, tóku kannski byssu sér í hönd og próf- uðu gikki og lása, og hvaö eftir annað varaði hann Aurellio við, að hafa nokkra byssu hlaðna, en þrátt j fyrir það tók hann kipp, ef ein-' hver þrýsti á gikk óhlaðinnar i byssu. Svo megn sem andúð hans var j á hnífum, var hún þó langtum i magnaðri á rýtingum, og heldur' vildi hann bfða bana af skoti en ! vera stunginn rýtingi eða svenöi. i Margir höfðu sérstakan áhuga á! að skoða sverðin og sverðstafinn 1 og handleika. Sveröið sjálft var! þrfstrent og oddmjótt og meö rauf- um á ðlium hliðum, svo aö blóöið T A R Z A n Halló, Brand dómari, Ben Ali er hérna. Húsbóndinn er i klúbbnum. Get ég tekiö skilaboö, herra? Þakka þér fyrir, Ben Ali. Þaö liggur of mikiö á þessu til þess að hægt sé aö bíða með þetta. Ég fer þangað undir eins. Veiztu hvað, Tarzan ég var svo viss um að við gætum fengið vísbendingu frá Eric. Ég myndi segja að eyrin væri góöur staöur til þess að fá upplýsingar á. Setjum upp Mælum upp RENNIBRAUTIN- FYRIR AMERÍSKA UPPSETNINOU. Loftfesting Veggfesting drypi örara af því í bardaga. Og með þetta vopn í höndunum var sem þeir kæmust í vfgahug, settu sig f stellingar og bmgöu því gegn einhverjum hugsanlegum andstæð- ingi. Fór þetta loks svo í taugam- ar á Leo, að hann tók sverðin og sveröstafina og lagði á hillu inni í skrifstofu sinni og hugleiddi að fara með þessa gripi til Santa Fe og selja þá þar. Fermingurgjöfin í úr Gefið menntandi og þrosk- andi fermingargjöf: NYSTROM Upphleyptu landakortin og hnettimir ieysa vandann við landa- fræðinámið. Kortln inn- römmuð með festingum. Fæst : næstu bókabúð. Heildsölubirgðir: Árni Ólafsson & Co, Suðurlandsbraut 12. Sími 37960. i ! ! betur meö 8 vbuM BÍanz- lirlesllí glans hárlagningar- vökva NIILDSÖLUllkseiK ISLENZK ERLENDAVERZLUNARFÉLAGIÐ HF KAMLIIDSLUMTTINDI AMANTI Nf

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.