Vísir - 14.04.1966, Side 8

Vísir - 14.04.1966, Side 8
8 V í SIR . Fimmtudagur 14. apríl 1966. VÍSIR Dtgefandi: Blaðaútgáfan VISIR 1 Framkvœmdastjóri: Agnar ÓlafssOM ( Ritstjóri: Gunnar G. Schrana / Aðstoðarrltstjóri: Axel Thorsteinson \ Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson / Þorsteinn Ó. Thorarensen \ Auglýsingastj.: Halldór Jónsson ( Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 linur) ) Auglýsingar og afgreiðsla Túngötu 7 l1 Áskriftargjald: kr. 90,00 á mánuði Innanlands / I iausasölu kr. 7,00 eintakið \ _________Prentsmiðja Visis — Edda h.f_____________________ ( Framboð Sjálfstæðisflokksins JTyrir páskana birti Sjálfstæðisflokkurinn framboðs- / lista sinn við borgarstjómarkosningarnar hér í Reykja ) vík. Hann skipa að vanda kunnir borgarar sem vegna \ hæfileika sinna, dugnaðar og sérþekkingar em manna \ bezt til þess fallnir að fjalla um málefni borgarinnar 11 á komandi kjörtímabili. Efstu sæti listans eru skipuð / ýmsum þeim Sjálfstæðismönnum og konum, sem ) eiga nú sæti í borgarstjóm og hafa langa reynslu ) að baki í málefnum Reykjavíkur. Áratugum saman \ hefur meirihluti Sjálfstæðisflokksins þar verið í ( stjórnarforystu og ferill hans verið giftudrjúgur og (i happasæll. Framfarir í borginni hafa verið hraðstíg- // ar, hún hefur vaxið úr litlum bæ í stóra borg á okkar )) mælikvarða. Aldrei hafa þó framfarirnar og fram- ) kvæmdimar verið jafn stórstígar og síðustu árin. \ Þátt í þeirri sókn hafa tekið margir þeir sem lista ( Sjálfstæðisflokksins skipa að þessu sinni. Borgar- ( búar þekkja störf þeirra af eigin reynslu og munu enn / sem fyrr treysta þeim til stórræðanna á komandi ) kjörtímabili, treysta þeim til þess að vinna að al- )) hliða framfömm í þágu borgarbúa, hvort sem er á \\ sviði verklegra framkvæmda, eða félags og skóla- y mála, svo tveir stærstu vettvangar séu nefndir. Önn- ( ur sæti skipa nýir menn, ýmist ungir menn og konur, / sem mikils er vænzt af í framtíðinni eða borgarar, ) sem þegar eru kunnir af störfum sínum á fjölbreyti- ) legum sviðum. Efsta sætið skipar Geir Hallgrímsson ( borgarstjóri. Hann hefur með störfum sínum í sæti ( borgarstjóra sýnt að þar er réttur maður á réttum / stað, maður sem veitt hefur örugga forystu í fram- / farasókn síðustu ára og unnið sér óskiptar vinsældir, ) sem ná langt út fyrir raðir Sjálfstæðisflokksins. Borg- \ arstjórnarsveit Sjálfstæðisflokksins hefur þegar sýnt l í verki að henni er treystandi til stórræðanna í mál- ( um höfuðborgarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur / efnt loforð liðinna ára. Þess vegna vita borgarbúar, / að bezta ráðið til þess að tryggja áframhaldandi fram- ) farir og vöxt höfuðborgarinnar er að fela þeim \ flokki forystuna enn á ný. \ Leið sátta i Viet Nam ) jyfeð hverjum deginum verður ljósara að sigur í styr- ) jöldinni í Suður Viet-Nam verður ekki með vopnum ; unninn. Aðkallandi er að öll öfl og flokkar landsins lí sameinist um það að mynduð verði borgaraleg stjóm í •; landinu, sem tekið geti upp viðræður við foringja / uppreisnarmanna um frið í landinu. Bandaríska her- \ liðið hefur barizt drengilegri baráttu, sem miðað hef- V ur að því að hindra innrás og yfirráð uppreisnar- ( manna kommúnista. Hlutverk þess er að tryggja að ( þjóð Suður Viet-Nam haldi frelsi sínu. En til þess / er einnig leið samninga nauðsynleg, þegar leið vopn- ) anna reynist ekki einhlít. Þess vegna er slík tilraun ) sjálfsögð og eðlileg, svo sem m. a. forystumenn Norð- ( urlanda hafa bent á. ( Mlnning: Þórhallur A. Gunnlaugsson póst- og símstjóri J dag er til moldar borinn Þór- hallur Andreas Gunnlaugs- son fv. póst- og símstjóri I Vest mannaeyjum, hann andaðist á Landakotsspítala 5. þ. m. eftir 3ja mánaða þunga legu tæplega áttræður að aldri. Þórhallur var fæddur að Breiðabólsstað í Vesturhópi 29. nóvember 1886. Foreldrar hans voru séra Gunnlaugur Halldórs- son prestur þar, Jónssonar pró- fasts og alþingismanns aö Hofi f Vopnafirði. Móðir Þórhalls var Halldóra Vigfúsdóttir, Guttorms sonar alþingismanns frá Geita- gerði í Fljótsdal. Þórhallur var einbirni af síð- ara hjónabandi séra Gunniaugs, en hálfbróðir hans, af fyrra hjónabandi séra Gunnlaugs, var Halldór héraðslæknir í Vest- mannaeyjum, sem drukknaði við Vestmannaeyjar 16. des. 1924. Þórhallur varð gagnfræðingur frá Akureyri árið 1904. Nam sfmritun í Kaupmannahöfn árin 1910 og 1911. Hann var skipað- ur símritari á Akureyri 1. júlí 1911, starfaði þar til 1. ágúst 1913, að hann varð símritari f Reykjavik. 1. janúar 1918 var Þórhallur skipaður umdæmis- stjóri landssímans á ísafirði og starfaöi þar til 1. janúar 1921 að hánn var skipaöur sírpstjóri í. Vestrnannaeyjúpý og .par Ygr hann jafnframt póstafgreiðslu- maður seinustu árin. Þórhallur starfaði sem póst- og símstjóri í Vestmannaeyjum þar til að hann lét af embætti vegna ald- urs í árslok 1956. Þá hafði hann verið starfandi ritsímastjóri lengur en nokkur annar, eöa í 38 ár. Þórhallur var einn af stofn- endum Félags íslenzkra síma- manna og tók mikinn þátt í störfum félagsins fyrstu árin. Ennfremur var hann einn af stofnendum Félags forstjóra pósts og síma árið 1943. Þórhallur kvæntist Ingibjörgu Ólafsdóttur, Davíðssonar verzlunarstjóra á ísafirði, 25. marz 1922. Þau eignuðust þrjú börn, þau eru: Ása Maria, gift Bimi Gunnlaugssyni skipstjóra, búsett í Florida, Halldór sýn- ingarstjóri, kvæntur Þóru Dag- bjartsdóttur og Ólafur verkfræö ingur í Amerfku, kvæntur þar Mildred Cathrine. Þegar Þórhallur lét af emb- ætti í Vestmannaeyjum fluttust þau Ingibjörg búferlum til Reykjavíkur og hafa verið bú- sett hér síðan. Þórhallur var skarpgáfaður eins og hann átti kyn til. Hann var hlédrægur og hleypidóma- laus, en einbeittur í skoðunum og fastur fyrir, ef því var að skipta. Þórhallur var mjög list- rænn og víðlesinn, enda vel heima í bókmenntum, einkum leikbókmenntum. Hann aöstoð- aði Leikfélag Vestmannaeyja oft fyrr á árum, sem leiðbein- andi. Þórhallur var afar vel liöinn af viðskiptavinum sfmans, þá lét hann sér einkar annt um starfsfólk sitt, enda sótcust margir eftir að starfa undir hans stjóm og handleiðslu. Ég átti því láni að fagna að eignast hann sem fyrsta hús bónda og tel ég það eitt af mfnum gæfusporum. Eitt var það, sem sérstakiega einkenndi Þórhall, hann eignað- ist marga vini á lífsleiðinni, sem mátu hæfileika hans og mannkosti mikils. Ég votta frú Ingibjörgu, böm- um þeirra, tengdabömum og bamabömum innilegustu sam- úð mína við fráfall mfns kæra vinar Þórhalls Aridreas Gunn- laugssonar. Blessuð sé minning hans. Hafsteinn Þorsteinsson. Ferðamálaráðstefna á 'P'erðamálaráðstefnan á Þing- vöilum 1965 samþykkti aö næsta ferðamálaráðstefna skyldi haldin á Akureyri, samkvæmt boði bæjarstjórans. Ferðamálaráð hefir þess vegna ákveðið að boða til ferðamála- ráðstefnu á Akureyri föstudag- inn og laugardaginn 6. og 7. maí n.k. Ráðstefnan verður sett að Hótel KEA kl. 2 e. h. heimilt að nota afsláttarmiða í öðrum áætlunarferöum Flugfé- lags íslands til eða frá Akur- eyri. Þátttakendur eru vinsam- lega beðnir að panta gistingu hjá hr. hótelstjóra Ragnari Ragn arssyni, Hótel KEA, en hótelin á Akureyri ákveða að veita 20% afslátt til þátttakenda á ráð- stefnuna, enda em til hennar boðaðir þeir aöilar, sem hafa á- Akureyri huga á aukningu erlendra ferða- manna og skilning á bættum að- stæðum og þjónustu við ís- lenzka og erlenda ferðamenn. Vegna undirbúnings er nauð- synlegt að tilkynna þátttöku fyr ir 20. apríl n.k. Þess er vinsam- legast óskað, að þátttaka sé til- kynnt til Feröamálaráðs, Skóla- vörðustíg 12, sfmi: 15677, kl. 2—5 e.h. Fyrirkomulag ráðstefnunnar veröur með svipuöum hætti og s.I. ár. Dagskrármál verða: Þátt- ur ferðamanna í viðskiptalffi Ak ureyrar, ísland ferðamannaland fyrr og nú, áhrif hækkaðs verð- lags á möguleika íslands sem ferðamannalands, hvert ber að stefna í landkynningarmálum, þrifnaður og hollustuhættir í veitinga- og gistihúsum og hrá- efnaöflun til gisti- og veitinga- húsa o. fl. Auk hinna fyrirfram ákveðnu málaflokka er ákveðið að undir dagskrárliðnum ýmis mál verði opinn vettvangur til að ræða ýmis atriði ferðamál- anna. Vegna ferðamálaráðstefnunn- ar hefur Flugfélag íslands h.f. ákveðið að veita þátttakendum 50% afslátt af verði farmiða. Flugferð verður frá Reykjavik fóstudaginn 6. maf kl. 9 f. h. og frá Akureyri sunnudaginn 8. maf kl. 15.15. Þátttakendum er Öflugt félagsstarf framreiðslumanna Aðalfundur Félags framreiðslu manna var haldinn 2. marz s.l. Á fundinum var flutt skýrsla um störf félagsins á liðnu starfsári. Stjóm félagsins var öll endurkjörin og er það í fyrsta skipti í sögu félagsins. Stjóm félagsins skipa: For- maður Jón Maríasson, varafor- maður Sævar Júníusson, ritari Haraldur Tómasson, gjaldkeri Valur Jónsson, varagjaldkeri Viðar Ottesen. Varastjórn: Leif- ur Jónsson, Guðmundur H. Jónsson og Janus Halldórsson. Félag framreiðslumanna hefur nú eignazt félagsheimili ásamt 7 öðrum félögum við Óðinsgötu 7. Með tilkomu þessa félags- heimilis hefur félagið eignazt húsnæði fyrir alia starfsemi sína. Var þetta mjög aðkallandi og bætir hag félagsins á allan hátt. Einnig hefur félagið opn- að skrifstofu ásamt 4 öðrum verkalýðsfélögum og er skrif- stofan opin frá kl. 2—6 alla virka daga nema laugardaga, og mun hún annast alla fyrir- greiðslu fyrir félagsmenn. Á s.l. ári hóf félagið bygg- ingu orlofshúsa i landi sínu í Grímsnesi og voru fyrstu hús- in fokheld sama ár og er fyrir- hugað að taka þau í notkun í sumar. Áformað er að leyfa ekkjum félagsmanna og bömum þeirra að dveljast þar vissan tíma á sumri fritt. Einnig munu húsin verða leigð félagsmönn- um við vægu verði. M 1«

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.