Vísir - 10.05.1966, Side 2
SÍÐAN
Sex mánuðum eftir að þau
hittust Graœ Kelly og Rainer
fursti af Monaco hélt furstinn
til Fíladelfíu til þess að biðja
um hendi Grace. ÖIl heimsblöð
in höfðu fulltrúa sína í Monaco
þegar giftingin átti sér stað fyr
ir tíu árum síðan eöa 19. apríl
1956.
Grace prinsessa er önnur
Bandaríkjakonan 1 ætt Grimald-
anna, furstaættarinnar sem get
ur rakið sögu sína allt til árs-
ins 1133.
Miklar breytingar hafa orðið
á eftir að Grace og Rainer hófu
búskapinn. Um höllina, sem bar
meiri svip vígisins og safnhúss
leikur nú blær æskunnar. Þjóð-
höfðingjarnir, sem áöur sátu að
völdum voru langtímum saman
fjarverandi frá höllinni og er
Rainer III sá fyrsti i marga ætt-
liði að gera höllina að föstum
dvalarstað. Salarkynnin hafa
verið skreytt að nýju og endur
nýjuð á annan hátt. Og mesta
og skemmtilegasta breytingin,
sem þjóðhöfðinginn ungi og
kona hans hafa komið til leiðar
er bamaherbergið. Það eru ald
ir síðan ungir prinsar hafa leik
ið sér í hallargarðinum. Á löngu
göngunum fyrir framan ibúðar
herbergi Caroline og Alberts
elztu bama furstahjónanna
leika þau sér með rafmagnsbíl-
ana sína. Fiskasafn, geysistórir
garðar, kvikmyndahús, leiksalir
safn af gömlum bílum, en vél-
tæknin er mesta áhugamál Rain
ers fursta. Höllin er ekki lengur
eins og gagnslaust tákn hinnar
'fornu og liðnu frægðar Grimaldi
ættarinnar hún er orðin tákn lif
andi, hamingjusamrar fjöl-
skyldu.
samra furstahjóna með börnin sín þrjú
Það var tekin mynd af allri fjölskyldunni, þegar tíu ára brúðkaupsafmælið var haldíð hatiðlegt. Stephanie pnnsessa á hnjám
föður síns en hún er fædd 1. febrúar 1965. Þar næst Caroline prinsessa fædd 23. jan. 1957 og Grace með erfðaprinsinn Albert
fæddan 14. marz 1958. Öll bömin em fædd i Monaco eins og faðirinn.
)
Hverfaskrifstofur
fulltrúaráðsins
STARFANDI em á vegum Fulltrúaráðs Sjálfstæðlsfelaganna
i Reykjavík efUrtaldar hverfaskrifstofur i borginnl. Skrifstof-
umar em opnar milli kl. 2—10 e.h. alla virka daga nema laugar-
daga mllli kl. 1—5 e. h.
VESTUR- OG MIÐBÆJARHVERFI
Hafnarstræt) 19 — Simi: 22719
NES- OG MELAHVERFl
Tómasarhaga 31 — Siml: 24376
AUSTUR- OG NORÐURMÝRARHVERFI
Bergþómgötu 23 — Siml: 22673
HLlÐA- OG HOLTAHVERFI
Mjölnlsholt) 12 — Sími: 22674
LAUGARNESHVERFl
Laugamcsvegj 114 — Sími: 38517
LANGHOLTS-. VOGA- OG HEIMAHVERFI
Sunnuvegi 27 — Sími: 38519
SMÁlBÚÐA- BOSTAÐA- OG HAALEITISHVERFI
Starmýrl 2 — Simi: 38518.
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
4
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
Kári skrifar:
Slysavamafélagið og lög-
reglan hafa nú skorið upp her
ör gegn götuvist bama í borg
inni. Þar er ráð í tíma tekið,
því aö nú fer í hönd einhver
mesti umferðartími ársins í bæj
um og ekki síður til sveita. Nú
má segja að lognmóða íslenzkr
ar umferðar veröi að fallandi
fljóti. Fólk hugsar til hreyfings
svona með vorinu. Straumurinn
að og frá borginni verður æ
stöðugri og meiri.
Jafnframt því sem umferðin
færist i aukana leysist lífsfjör
yngstu kynslóðarinnar úr læð-
ingi. Senn losnar um böndin
sem skólinn bindur henni og
tíminn til leiks og útivistar verð
ur stöðugt miklu meiri. Sjálf-
sagt heyrast þessar spurningar
á hverju heimili, þar sem böm
eru — „Mamma, má ég fara út
eftir kvöldmat“ eöa „Akkuru
má ég ekki fara, allir hinir
krakkarnir fáða“. — Og hvað á
mam—a að gera, það er erfitt
að standast rök barnsins.
Enn þá er of snemmt aö
senda böm í sveitina og sumar
dvalarheimilin eru fæst tekin til
starfa. Og þá leitar þetta unga
fólk ævintýra innan um iðandi
líf borgarinnar án meðvitundar
um þær miklu hættur sem
fylgja vélmenningunni og at-
hafnalífinu, en þar er einmitt
þeim smæstu hættast.
Nú hefur leikvöllum fjölgað
allvemlega í borginni, en ein
hvem veginn hefur sú menning
eða e. t. v. ómenning haldizt hér
að götur eru furðu opnar krökk
um og er það á annan veg í
borgum nágrannalandanna.
Þetta er kannski í samræmi við
það óskráða mottó sem gildir
um alla ísl. menningu. — ís-
lendingurinn öðlast snemma á
æviferli sínum hin ýmsu rétt
indi fullgilds þegns. — Æskan
hefur í flestum tilfellum sölsað
þau réttindi sjálf undir sig, og
má um það deila hversu hent-
ug sú aðferð er.
í þessum efnum sem hér um
ræðir getur sú aðferð engan
veginn gilt og er þar um líf og
limi æskunnar að tefla. — Það
verður að koma upp leikvöllum,
sem krakkar tolla á, einnig fyrir
þau sem kallast stálpuð, eöa
þetta tíu til tólf ára aldurs, á
þeim ber mest á götunni, og svo
allt niður í þriggja fjögurra ára.
Þó er líklega betur að þeim
yngri búið í þessum efnum og
leikvellir flestir sniðnir við
þeirra hæfi. — Hinum sem
kannski eru komin á skólaald-
ur, eða þetta 6 árs er minni
gaumur gefinn og þau valsa
frjáls um götur.
Lögreglan hefur nú undanfar
ið tekið viö sér og unnið gott
starf meö fræðslu í skólum og
aukins eftirlits í þessum efnum.
Einnig hefur Slysavarnafélag-
iö lagt þessum málum gott lið.
Borgaryfirvöldin lofa fleiri leik
völlum og betra skipulagi í þess
um efnum, svo að nokkur skrið
ur er á málum í rétta átt.
En bylting i þessum efnum
gerist ekki á einum degi, ekki
einu sinni á einu vori, jafnvel
þótt kosningar fari í hönd. Á-
byrgðin hvílir því þyngst á
herðum foreldranna og krökk-
unum sjálfum. — Og hver borg
ari sem lætur sig mannlífið ein
hverju skipta hlýtur að ljá
þessu máli lið. Og það gerir fólk
bezt með fyrirmyndarframferöi
í umferðinni, hvort heldur það
er akandi eða gangandi.