Vísir - 10.05.1966, Page 3
VlSIR . Þriðjudagur 10. maí 1966,
3
*
,.StX‘lu\ika4i
F óstbr æðr a
Ágúst Bjamason afhendir „en munter musikant“, Gunnari Federley, merki Fóstbræöra úr gulli. Aörir,
sem hlutu gullmerki að þessu sinni, voru Fóstbræðurnir Jóhann Guðmundsson, Ásgeir Hallsson og
Gísli Pálsson (talið frá v. )
Frú Guðrún Ágústsdóttir fiutti
ávarp fyrir hönd eiginkvenna
Fóstbræðra, er færðu kómum
félagsfána að gjöf.
Það var mikið sungið síðasta
vetrardag í Hótel Sögu. Þar
voru staddir um 100 gamlir og
ungir Fóstbræður ásamt gestum
að halda upp á 50 ára afmæli
kórsins. Hóf þetta var haldið
seinasta kvöldið f „viku“, sem
Fóstbræður kölluðu „Sæluviku
Fóstbræðra. „Vikan“ hófst laug
ardaglnn 16. april meö þvi að
haldnir voru ijóðatónleikar, þar
sem fram ko -' i Sieglinde Kah-
mann, Sigurður Bjömsson,
Kristinn Hallsson, Sigurveig
Hjaltested og Erlingur Vigfús-
son. Kvöldin á eftir, sunnudag,
mánudag og þriðiudag, voru svo
haldnir samsöngvar kórslns, en
Sæluvikan náði hápunkti á
Hótel Sögu.
Þegar „sælan“ stóð sem
hæst siðasta vetrardag, stóð
upp gestur kórsins frá Noregi,
fulltrúi kórasambands Noregs,
og bauð kómum á mikið söng-
mót, sem halda á i Noregi um
hvítasunnu næsta ár, en einnig
kom til tals að kórinn færi á
tónlistarhátíð i Bergen, sem
halda á samtímis. Þetta vakti
mikla „lukku“, og er nú í at-
hugun hvort hægt er að þiggja
þetta boð. Fulltrúi finnska kórs-
ins „Muntra Musikanter“ færði
kómum málverk að gjöf fyrir
hönd kórs sins. Aðrir gestir
kórsins voru formaöur Karla-
kórs Reykjavíkur, Ragnar Ing-
ólfsson, Hermann Stefánsson,
fulltrúi Geysls á Akureyri og
Stefán Jónsson, formaður Sam-
bands fsl. karlakóra.
Ræður í hófinu fluttu m. a.
„amma kórslns“, frú Guðrún
Ágústsdóttir (hún er móðir Ás-
gelrs og Kristin's Hallssonar),
fyrir hönd eiginkvenna Fóst-
bræðra og Heigi Sæmundsson
formaður menntamálaráðs,
flutti minnl kórsins.
Gunnar Federley ávarpar Fóst-
bræður og færöi þeim veglegt
málverk frá finnska vinakómum
„Muntra Mus!kanter“.
Frá háborðinu. Talið frá vinstri: Agúst Bjarnason veizlustjóri, frú Guðrún Vilmundardóttir, dr. Gylfi
Þ. Gíslason menntamálaráöherra, frú Annie Helgason, Þorsteinn Helgason formaður Fóstbræöra, frú
Ema Finnsdóttir, Geir Haligrimsson borgarstjóri. Fremst á myndlnni er Stefán Jónsson, formaöur
Sambands íslenzkra karlakóra.
Meðan setið var undir borðum skemmtu óperusöngvaramir, Sieg-
lind Kahmann og Sigurður Bjömsson með söng, m. a. með nokkr-
um ástardúettum, sem var mjög vel við eigandi, því daglnn
eftir vom þau gefin saman í heiiagt hjónaband í Hafnarfjarðar-
kirkju.