Vísir


Vísir - 10.05.1966, Qupperneq 7

Vísir - 10.05.1966, Qupperneq 7
VÍSIR . Þriðjudagur 10. maí 1066. 7 VOR Lfirðinum • HREINSAÐ TIL FYRIR BÖRNIN í kvosinni við Kirkjuveg er rólu- völlur sem hefur verið við lýði ár- um saman. Konan, sem hefur gætt vallarins, er hætt störfum fyrir nokkru. Hún býr í húsinu hans Bjami riddari, sem er frá 1805 húsið, sem bæjaryfirvöldin hafa á- kveðið að hressa upp á. Þegar um morguninn komu börn- in — á ýmsum aldri — til leiks. Rennibrautin er horfin, hafði orðið skemmdarstarfseminni að bráð, „saltið“ er þarna enn að nafninu til, rólurnar eru orðnar laslegar af langri notkun. Og þarna er bát- skriflið, sem komið er til ára sinna, fúið og myglað. „Báturinn er úr skipi frá Reykja- vík“, segir maðurinn í bæjarvinn- unni, sem ásamt fleirum var kom- inn til að hreinsa völlinn og gerá umbætur. Svo segir hann: „Við fengum skipun um að mæta hér strax í morgun“. - Þarna var koinin skurðgrafa, sem rótaði upp mold og sandi fyrir grunn að væntanlegu leikvallar- skýli eða gæzluhúsi — og ennfrem- ur var þama trukkur tii taks að flytja burt jaróveginn. I leysingum og í rigningartíð _ . .. , .. ... , .... * flæða lækir niður í kvosina svo að „Er þetta rétt reiknað bjá mér systir?“, spurði sex ára hnokki syst- alIt verður á noti M er smáfólk. ur Moniku. inu hætta búin. .Börnin léku sér eins og ekkert hefði í skorizt — eins og aöra daga. Daginn áður hafði þama verið öðru vfsi umhorfs. Brotnir sýrugeymar — rafgeymar — úr bifreiðum lágu þama eins og hráviði, naglaspýtur, stór flöskubrot, og báturinn var ekkert sérlega heppileg leikstöð með því, sem honum fylgdi. „Hafið þið brennt ykkur á sýr- unni úr rafgeymunum?" „Ekki við stelpurnar held ég“, segir freknótt stelpa. „En þið strákar?" „Þaö getur verið“, segir lítill naggur, „er það voða hættulegt, manni?“ „Maðurinn í bæjarvinnunni“ gekk að einum sýmgeymanna. Hann var með reku og með henni mokaöi hann þessu válega leikfangi upp í hjólbörur, þar sem f var meira rafgeymarusl og flöskubrot. Nú vom telpumar famar að syngja söngva um vorið, sem þær læra f skólanum. „Hafið þið skorið ykkur á gler- inu?“ „Það hefur komið fyrir, ef við dettum", segir ein þeirra. Og nú hættu þær aHar að syngja og urðu alvarlegar. „Eruð þið ánægðar með vöHinn?" „Ekki ems og hann hefur verið. Við viljum h r e i n a n róluvöll, og hann erum við að fá“. Uppi í brekkunni á hraunhóln- um sindraði á Ijósa og ranða og dökka kolla, sem vom að bauka við hitt og þetta í sólarblíöunni. • STRANDGATAN Á Strandgötunni skömmu fjsrir nón fór umferðin að færast f auk- ana. Bílamergðin er mikil á þess- ari þröngu götu, í lífæð bæjarins. Erfitt er að leggja farartækjum við aðstæöur, sem þar eru. Hvimleiður vani hjá ökumönnum er að leggja langt fram á gqngstétt, öndvert við Bæjarbíó, svo að gangandi fólki getur verið hætta búin, einkum litiam bömum, þegar bítemir bakka út úr þessu svokallaða „bíla- stæði“. Enn hefur þetta vandamál ekki veriö leyst. Og svo eru það þessar furðulegu „parkeringar11 langt út á götu, þegar innar dregur, þar sem gatan mjókkar. Þetta-bæði Framh. a bls. 4 bömln, þegar „maðurinn í bæjarvinnunni" skóflaði rafgeymi í hjöl- börur. TJeykvíkingar ættu að kynna sér vel Þjóðviljann á sunnu- daginn. Þar er forkunnarfalleg myndasíða, sem- ber fyrirsögn- ina „Kosningastarfið í Alþýðu- bandalaginu“. Þar gefur á að líta margar myndir og stórar frá kosningaskrifstofu bandalagsins, og starfsfólki þess. En ýmsum mun bregða í brún þegar þeir sjá af hverjum mynd- imar em og hvar þær eru tekn- ar, — ekki sízt ýmsum heiðar- lcgum Alþýðubandalagsmönn- um, sem hafa trúað því að flokk ur þeirra og kommúnistafiokk- urinn væri ekki eitt og sama tóbakið. Sá, sem veitir kosn- ingaskrifstofu Alþýðubandalags- ins forstöðu er Kjartan Ólafs- son. Það er enginn annar en framkvæmdastjóri Sósíallsta- félagsins og flokkslns um margra ára skeið, elnn liprasti hirðsveinn Brynjólfs Bjarna- sonar. Og kosningastjórn Alþýðu- bandalagsins. Hvernig skyldi hún vera skipuð? Jú, á fallegri mynd brosa þeir erkikommam- • ir, Guðmundur Vigfússon og Guðmundur Hjartarson, rúblu- sendiboði og fjármálasjení hins íslenzka kommúnistaflokks. — Karl Guðjónsson Vestmannaey- ingur og fyrrverandi þingmaður kommúnista fær þar og að vera með. Og hvar skyldi kosninga- skrifstofan og apparatið vera til húsa? Vitanlega á skrifstofu hins nýstofnaða Alþýðubanda- lags hér f Reykjavík. Ónei, ekki aldeilis. Kosningaskrifstofan er heimilisföst að Tjamargötu 20, í hreiðri hins íslenzka kommún- istaflokks. TTafi einhverjir hreinlyndir Al- JL þýðubandalagsmenn trúað því að þeir væru komnir undan áhrifum Sósíalistafélags Reykja- víkur, þ.'_ mun myndasíða Þjóð- viljans ieiða þá í allan sannleika. Það er ágætt að sprikla og bera sig borginmannlega á sameining- arfundum í Lídó. En sjálfstæði hinna hugumstóru vinstrimanna nær ekki út fyrir vegg þess góða samkomuhúss. Sameining vinstri manna er fólgin í þvi að halla höfðinu í skaut félága Brynjólfs og Páls Bergþórsson- at, þegar til alvörunnar kemur. Þarf svo nokkur að efast um það hverjir hinir raunverulegu húsbændur Alþýðubandalagsins eru? TTeykvíkingum eru nú boðnir margir góðir menn til leið- sagnar f borgarmálum á næstu árura. Einn þeirra, Kristján Benediktsson, framkvæmda- stjóri Tfmans, hefur lagt eitt eft irminnilega tii málanna í þess- ari kosningabaráttu. Hann líkti Reykjavík við Síberíu. Þannig fannst honum ástandið vera í borginni — og þá væntanlega borgarbúar eitthvað í ætt við refsifangakólóníuna, sem var eitt sinn mynduð. Borgarbúar munu tvímæla- Iaust kunna vel að meta hug- myndaauðgi og orðsnilld þessa Framsóknarmanns. En hitt er svo annað mál hvort þeir telja menn með slíkt hugarfar og slíkt álit á borginni æskilega til forystu í málum sinum. Það mun tíminn leiða í ljós. Vestri. myndir og lesmál: stgr.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.