Vísir - 10.05.1966, Side 16

Vísir - 10.05.1966, Side 16
i Hvatarfundur í kvöld í kvöld kl. 8,30 heldur Sjálfstæö- iskvennafélagiö Hvöt kynningar- kvöldvöku í Sjáífstæðishúsinu. Að- alræðumaöur kvöldsins verður Geir Hallgrímsson, en ávörp flytja Sigurlaug Bjarnadóttir, Geirþrúður H. Bemhöft, Gróa Pétursdóttir, Sig urbjörg Sigurjónsdóttir og Auður Auðuns. Að loknum ávörpum verða svo skemmtiatriði. Frú Þóra Borg. Ein- Framhald á bls. 6. Hvítingur fremur en Surtur Alla síðastliðna viku var all- myndarlegt gos í eyjunni suður af Surti svo að nú um helgina var hún orðin stærri en nokkru sinni fyrr. Á laugardag var hæð hennar orðin u. þ. b. 50 m og þvermál um 500 m, en eyjan hafði breitt nokkuð úr sér og var orðin nokkum veginn hring- laga. Gígurinn virtist á laugar- daginn var alveg lokaður, en hingað til hefur „Litli Surtur“ ekki náð svo langt í baráttu sinni. '' Sjómenn, sem sigldu hjá eyj- vmni fyrir helgina færðu þær fréttir að þar ryki af steinum og gígbarmarnir væru glóandi. Er það merki þess að þar hafi þá örlað fyrir hraunmyndun. — Þætti þá. flestum hækka hag- ur Strympu. Hingað til hafa ein ungis laus gosefni, vikur og aska hlaðizt utan á eyjuna og er það vegna þess að gígurinn hefur ætíð verið opinn og sjór flætt þar inn. í gær var kostulegt að sjá út til eyjarinnar. Var hún þá alhvít af snjó ein allra eyja. Mun hafa staðið svona glöggt með él, eða kannski er það árás að ofan, srm úthellist úr gáttum himins • ir þessa útrásartilraun úr iðr- n jarðar? Ekki er með öllu að treysta því, sem þaðan kemur, því að illt er að glettast við þá sem stjórna hið neðra. Er það að sönnu trú feðranna að þar ráði sjálfur myrkrahöfðinginn. Er því eins gott að láta þau góðu öfl hið efra eigast við sendingar allar að neðan. I morgun var hvasst i kring um Surt, nýju eyjunni hafði sjá- anlega hrakað og gosið virtist máttlaust í baráttu sinni við veðurguöina. GAMLI OG NÝI TÍMINN Fyrir nokkru eignaðist minja- safn Reykjavíkur málverk eftir Vigdísi Kristjánsdóttur lista- konu. Vigdís er m.a. þekkt fyrir það að hún óf myndateppi sem hangir uppi í fundarsal borgar stjórnarinnar og sýnir hin fyrstu landnámshjón Reykjavikur Ing- ólf og Hallveigu við öndvegis- súlurnar. En málverk það sem hér um ræðir gerði Vigdís hins vegar ár ið 1926 og það er all skemmti- legt fyrir reykviska bvggð.asögu þar sem það sýnir hús er stóð Fram. á bls. 6. Stækkun sveitar- félaga til umræfa Stúdentafélag Suðurlands efnir til almenns umræðufundar annað kvöld kl. 9.30 í félagsheimilinu Borg í Grímsnesi. Þar verður tekið til umræðu stækkun sveitarfélaga, sýslufélaga, skólaumdæma. Einn- ig verður breyting á skipulagningu prestakalla tekin til umræðu, og hvort ekki sé ráðlegt að félagsheim ili nái til stærri svæða. Búast má við að stærð annarra félagsheilda komi til umræðu svo sem sjúkra- samlög og fleira. Félagsmálaráðherra hefur í undir búningi að skipa nefnd til að kanna grundvöll fyrir stækkun sveitarfé- laga, en fulltrúaráð Sambands ísl. sveitarfélaga skilað áliti á fundi í vetur þess efnis, að æskilegt væri að stækka félagsheildir í dreifbýl- inu. Nefnd, sem skipuð var til að gera tillögur um skipulagsbreytingu prestakalla, hefur skilað áliti, en það hefur ekki enn verið gert op- inbert. Frummælendur annað kvöld verða fjórir: Séra Sigurður S. Hauk dal, oddviti Vestur-Landeyjar- hrepps, Steinþór Gestsson, oddviti Gnúpverjahrepps, Unnar Stefáns- son, viðskiptafræðingur og Oliver Karlsson, oddviti Ásahrepps. Gestur fundarins verður Árni G. Eylands, en hann hefur kynnzt og skrifað um stækkun sveitarfélaga í Noregi, sem hefur nýlega verið framkvæmd þar. Grein um hús- byggingamálin Á morgun birtist hér i blað- inu samtal við Gísla Halldórs- son borgarfulltrúa, þar sem hann skýrir m. a. ítarl. frá þeim miklu framkvæmdum I íbúðar- byggingum, sem gerðar hafa ver ið á síðustu árum á vegum borg arinnar og fjölskyldum siðan gefinn kostur á að kaupa eöa leigja þessar hentugu og ný- tízkulegu Ibúðir með mjög hag- stæðum kjörum. Hann skýrir þar frá aö énn eigi þessi starf- semi eftir að ná hámarki, því að stefnan er að útrýma lélegu húsnæði. , Að undanfömu hafa hinir ó- ábyrgu flokkar kommúnistar og framsókn haldið uppi gagnrýni f húsbyggingamálum. Sú gagn- rýni er ástæðulaus þegar litið er til þess mikla árangurs sem náðst hefur. Málflutningur þeirra byggist og því miður á ýmiss konar rangfærslum. LANDSPROF ÍR HAFIÐ UM 850 ÞREYTA ÞAÐ í gær settust landsprófsnem- endur að prófborðunum, en þau hafa jafnan verið ógnvaldur unglinganna og af mörgum tal- in eitt erfiðasta þrepið á leið- inni upp námsstigann. Blaðið hafði samband við Njörð P. Njarðvík, formann landsprófsnefndar, en sú nefnd semur prófin og eru í henni 10 menn. — Hve margir nemendur þreyta landsprófið að þessu sinni? — Þeir eru eitthvaö um 850, þar af rúmlega 300 í Reykjavík. Lengi hafa verið uppi radd- ir um það að breytinga væri þörf á prófunum, þau hafa jafn an sætt mikilli gagnrýni og þær spumingar hafa jafnvel oft vaknað hvort landspróf í þess- ari mynd eigi nokkurn rétt á sér. Nefndinni, sem prófin sem- ur er allt fyrir það mikill vandi á höndum. — Það er því ekki úr vegi að spyrja formann nefnd arinnar, hverjar breytingar hafi átt sér stað í ár. — Það hafa verið gerðar nokkrar breytingar, helztar eru þær aö ekkert er lengur prófað í lesinni stærðfræði, í ensku er í fyrsta skipti tekin upp ólesin þýðing og svo mega nemendur koma með hjálpargögn í ísl. rit- gerð. Framburðarpróf í málum fór fram á undan hinum próf- unum. Prófunum hefur einnig verið þjappað nokkuð saman, þau byrja fyrr en venjulega og þeim lýkur 27. maí, föstudag- inn fyrir hvítasunnu. Það þótti ekki fært aö halda nemendum fram yfir hvítasunnu fyrir eitt próf. Nú þyngist róðurinn. — Landspróf miðskóla hófst í gær. Myndin er tekln f Hagaskólanum.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.