Vísir - 21.05.1966, Side 6
6
VÍSIR . Laugardagur 21. maí 1966.
Viðtalið við
Geir Hallgrímsson
borgarstjóra
Framhald af bls. 1.
HÖFUM GERT OKKAR BEZTA.
— Hver telur þú aö dómur Reykvíkinga muni verða
{ kosningunum á morgun?
— Við, sem höfum farið með stjóm borgarinnar
síðastliðin 4 ár, höfum reynt að gera okkar bezta.
Við teljum okkur því hafa fulla ástæðu til þess að
ætla, að dómur Reykvíkinga verði okkur I vil. En satt
bezt að segja hef ég til þessa lagt fremur áherzlu á
það, að skýra fyrir íbúum borgarinnar hvemig borg-
armálunum er varið, en gefið mér minni tíma til spá-
dóma um úrslit kosninganna. Ég hefi saknaö málefna-
legra umræðna um borgarmálin af hálfu minnihluta
flokkanna, þar sem frambjóðendur segja ekki aðeins
hvað þeir vilji framkvæma, heldur einnig hvemig
það skuli gert og hvaðan féð til framkvæmdanna eigi
að koma.
Það er enginn vandi að berja sér á brjóst og fárast
yfir þvi að eitt og annað hafi ekki verið gert eða
að allt skuli ekki vera framkvæmt samstundis. En slikt
er heldur gagnsær áróður, þvi borgarbúar gera sér
tvímælalaust allir ljóst að úr vösum þeirra er féð til
framkvæmdanna tekið.
VINSTRI FLOKKARNIR: UM BAKDYRNAR í BORG-
ARSTJÓRN.
— Hvað segir þú um þá áróðursaðferð minni-
hluta flokkanna að biðja menn í öðm orðinu um að
kjósa sig, en segja í hinu, að ekkert sé að óttast,
því Sjálfstæðisflokkurinn muni áfram halda meirihluta
eftir kosningar?
— 1 slikum ummælum felst vissulega traust, sem
okkur bæri sennilega að þakka. Annars orðaði ég
þetta svo i útvarpsumræðunum, að minnihlutaflokk-
arnir væru með þessu að reyna að læðast inn í borg-
arstjóra um bakdymar. Reynt væri að fullvissa borg-
arbúa um að minnihlutaflokkamir næðu ekki meiri-
hiuta hvort sem væri, og þess vegna væri óhætt að
ljá þeira atkvæði sitt. Þetta er lævís áróður, sem borg-
arbúar munu án efa átta sig á og svara á veröugan
hátt.
— Andstöðuflokkamir sumir tala um, að Sjálfstæð-
ismenn hafi verið of lengi við völd í Reykjavík?
— Spumingin er ekki sú, hvort flokkurinn hafi verið
lengur eða skemur við völd, heldur hvemig stjómað
hafi verið. Sjálfstæðismenn hafa sífellt endumýjað sig
f borgarstjóm. Andstöðuflokkunum hefur hins vegar
aldrei tekizt að sannfæra Reykvfkinga um, að þeir
gætu boðið upp á betri stjóm borgarinnar vegna sund-
urþykkju sinnar og innbyrðis fjandskapar. Við Reyk-
vikingum blasir því upplausn og stjómleysi, ef Sjálf-
stæðisflokkurinn fær ekki enn meirihluta.
ENGINN MÁ LIGGJA Á LIÐI SÍNU
— I kosningum er sigurinn aldrei fyrirfram vís,
fremur en f strfði. Hvað segir þú frekar um þann
möguleika að Sjáifstæðismenn nái ekki meirihluta að
þessu sinni?
— Ég vil fyrst vekja athygli á því að andstæðingar
okkar bjóða nú fram þrjá lista í stað fimm við sfð-
ustu kosningar. Þeir tveir listar, sem nú koma ekki
fram fengu þá nokkuð á þriðja þúsund atkvæða, án
þess að fá fulltrúa kjörinn. Var skiptingin milli flokk-
anna þá þvf Sjálfstæðisflokknum hagkvæm. Nú veit
hins vegar enginn hvemig skiptingin mun reynast að
þessu sinni. Áframhaldandi styrk meirihlutastjóm má
ekki byggjast á tilviljanakenndri skiptingu atkvæða
milli andstæðinganna, heldur á beinu fylgi kjósend-
anna. Þvf má enginn Reykvfkingur liggja á liði sínu
á morgun, hverjar sem stjómmálaskoðanir hans ella
kunna að vera.
Sameinumst öll um það að tryggja borginni okkar
þróttmikla og samstæöa meirihlutastjóm næstu 4 árin.
Ljáum D-listanum því atkvæði okkar. Það er hvatn-
ing min og áskomn til allra íbúa Reykjavíkur.
Samvinna —
Framh. af bls. 7
meistaraskólinn nái til fleiri iðn
greina.
ByggiHgakostnaöur
og framfarir
— Stundum heyrist talað um,
að byggingakostnaður sé hærri
hér en í öðrum löndum og iðn-
aðarmönnum álasað fyrir það?
— Við teljum að það sé ekki
réttmæt ásökun, hitt sé líklegra
að hér séu meiri kröfur gerðar
til vandvirkni og því að aðflutn-
ingsgjöld séu hærri hér af ýms-
um byggingavörum.
Enn fremur er líklegt að þetta
stafi af meiri íburði í húsum. En
f þessu er við engar öruggar
rannsóknir eða skýrslur að
styðjast. Því hefur Meistarasam
band byggingamanna óskað eftir
þvf að raunhæf rannsókn færi
fram á þessu, þar sem slíkur
samanburður yrði gerður. Hefur
iðnaðarmálaráðherra fallizt á
þetta og skipað nefnd til að at-
huga málið.
— En hvað um nýjungar og
famfarir f byggingaiðnaði?
— Á hverju ári eru innleiddar
margs konar nýjungar í bygging
um. Þar er aldrei nein kyrr-
staða enda er það alkunnugt, að
stórfelldar framfarir hafa orðið
á þvf sviði á síðustu árum. —
Nefna mætti f þessu sambandi,
að líklega væri heppilegt að gera
meira af því en gert hefur verið
að bjóða út húsabyggingar, að
iðnaðarmenn tækju þær að sér
sem verktakar. Þetta hefur farið
f vöxt við ýmsar opinberar bygg
ingar svo sem skóla o. fl. og
gefið ágæta raun.
Iðnsýning hvatning
fyrir iðnaðinn.
— Nú er um það rætt, að efna
til mikillar iðnsýningar f ár.
Slíkar sýningar hafa mikla þýð
ingu fyrir iðnaðinn?
— Reykjavíkurborg byggði
hina veglegu fþrótta og sýningar
höll í Laugardal f samvinnu við
sýningarsamtök atvinnuveganna
og fþróttabandalag Reykjavíkur.
Að sýningarsamtökunum eiga
aðild Félag fslenzkra iðnrekenda
og Landssamband iðnaðarmanna
Þessi samtök munu gangast fyr
ir mikilli iðnsýningu f sýningar
höllinni í haust og hefur verið
mikil eftirspum eftir sýningar-
svæðum, svo að búast má við,
að hún verði mikil og góð. Hug
myndin er, að sýning þessi verði
jafnframt sölusýning. Reynlsan
hefur sýnt að slíkar sýningar
eru mikil hvatning fyrir iðnaðinn
og landsmenn öðlast við þær yf
irsýn og skilning á þvf, hve yfir
gripsmikill íslenzkur iðnaður er,
en þeir eru ekki nógu margir,
sem gera sér fulla grein fyrir
þvf, hve mikilvægur iðnaðurinn
er f fslenzku atvinnulífi.
Að lokum sagði Bragi Hannes
son:
— Reykjavík er og verður höf
uðstöð íslenzks iðnaðar. Full-
kominn og afkastamikill bygg-
ingaiðnaður er forsenda fyrir
stækkun borgarinnar, þá krefst
borgarfélagið sívaxandi viðgerða
og þjónustuiðnaðar og loks er
framlelðsluiðnaður ýmiskonar
framtiðarundirstaða að aukinni
atvinnu borgarbúa. Ég legg
mikla áherzlu á það, að borgar
yfirvöldin vinna að hagsmuna-
og framfaramálum iðnaðarins f
samvinnu við félagssamtök
hans. Þannig verður bezt og
farsælast unnið að þessum mál-
um.
Fulltrúaráð Sjálf■
stæðisfélaganna
i Reykjavík
SÍÐASTI fundur Fulltrúaráðs fyrir kosningar verður haldten f
Sjálfstæöishúsinu í dag kl. 4.
Fundarefni: Kosningaundirbúningurinn og starflð á kjördegj.
Áríðandi að allir mæti.
Stjórn Fulltrúaráðsins.
Breytt kjör-
hverfaskipting
Manntalsskrifstofan vili vekja at-
hygli kjósenda á því, að kjörhverfa
skipting f Reykjavík er nokkuð
breytt frá því sem var í síðustu
kosningum.
AÖalbreytingin er í því fólgin
að tekinn er upp nýr kjörstaður,
Álftamýrarskóli og er kjörsvæði
hans sem hér segir:
Álftamýri, Ármúli, Fellsmúli,
Háaleitisbraut, Háaleitisvegur,
Hvassaleiti, Kringlumýrarveg-
ur, Safamýri, Seljalandsveg-
ur, Síðumúli, Starmýri, Suður-
landsbraut (vestan Elliöaárbrúar).
Ennfremur hefur lítillega verið
breytt frá síðustu kosningum mörk
um kjörsvæöa að ööru leyti, þann-
ig að kjósendur, sem bjuggu 1. des.
sl. viö eftirtaldar götur, eiga nú
kjörstað sem hér segir.
Gata Núverandi kjörstaður
Bjarnarstígur Miðbæjarsk.
BreiÖholtsvegur
Dalbraut
Engjavegur
Hringbraut
Marargata
Múlavegur
Reykjanesbraut
Selvogsgrunn
Smiðjustígur
Sporöagrunn
Sölvhólsgata
Traðarkotssund
Vegamótastígur
Laugamesssk
Langholtssk.
Laugaraesssk.
Melask.
Melask.
Laugamessk.
Austurbæjarsk.
Langholtssk.
Austurbæjarsk.
Langholtssk.
Austurbæjarsk.
Austurbæjarsk.
Austurbæjarsk.
Að öðru leyti er kjósendum bent
á að kynna sér auglýsingu frá
skrifstofu borgarstjóra um kjör-
hverfaskiptingu f heild og skipt-
ingu kjörhverfa í kjördeildir.
(Fréttatilkynning frá Manntals-
skrifstofunni).
Ný strætisvagnaleið
Akstur hefst í dag á nýrri strætisvagnaleið,
nr. 26, og ber hún heitið Flugturn — Umferð-
armiðstöð.
Ekið verður frá Lækjartorgi á 30 mín. fresti
frá kl. 7.10—23.40 um Hverfisgötu, Laugaveg,
Nóatún, Lönguhlíð, Miklubraut, Flugvallar-
veg að Hótel Loftleiðir. Þaðan á heila og hálfa
tímanum um Flugvallarveg fram hjá Umferð-
armiðstöðinni um Sóleyjargötu á Lækjartorg.
Frá og með sama tíma ekur vagn á leið 11, —
Fossvogur —, eins og áður, um Hringbraut
og Eskihlíð.
STRÆTISVAGNAR REYKJAVÍKUR
Vegna útfarar
Haralds Ó. Leonhardssonar skrifstofustjóra
verður skrifstofum vorum lokað iaugardag-
inn 21. maí.
Pappírsvörur h.f.
Vegna útfarar
Haralds Ó. Leonhardssonar skrifstofustjóra
verður skrifstofum vorum lokað laugardag-
inn 21. maí.
Bílaskoðun og Ryðvörn,
Trésmiðir og verkamenn
óskast. Uppl. í síma 41659.