Vísir - 18.07.1966, Side 11

Vísir - 18.07.1966, Side 11
v ÍSIK . manuaagur is. juu iuoo. 11 SÍÐAN Tengdamamman til- vonandi sagði trúlofuninni frá 29 ára aldursmunur milli parsins Frank Sinatra og Mia Farrow Tjað er 29 ára aldursmunur mllli Frank Sinatra og kær- ustunnar hans Mia Farrow. Trú lofun þeirra hefur vakið mikla athygli ekki síður en gifting Brigitte Bardot en það var til- vonandi tengdamóðir Sinatra leikkonan Maureen O’Sullivan, sem skýrði frá trúlofuninni. Hún er aðeins fjórum árum eldri en Frank, sem er fimm- tugur og hafði nokkrum klukku- tímum áður en trúlofunin var gerð opinber harðneitað að nokkuð væri til í lausafréttum viðvíkjandi heimi. Fyrir ári síðan byrjuðu sögu- sagnirnar um að trúlofunin væri í aðsigi. 1 fyrsta sinn, þeg- ar Frank bauð Mia Farrow í lystireisu með skemmtisnekkju sinni. í hvert skipti hafa Frank Sinatra og Mia að einhverju leyti neitað söguburðinum. S.I. sumar vísaði Maureen O. Sullivan öllum sögusögnum á bug. „Dóttir mín er of ung,“ sagði hún og hefði getað bætt því við að Sinatra hefði nokkuð mörg hjónabandsævintýri að baki sér. Hann hefur verið tví- giftur. Var fyrri kona hans Nancy Barbato, en meö henni átti hann þrjú börn. Elzta þeirra er Nancy, sem fræg er orðin fyrir dægurlagasöng og er 25 ára gömul — fjórum árum eldri en Mia. Önnur eiginkona Sin- atra var Ava Gardner og síðar trúlofaðist hann suður-afrík- önsku söngkonunni og dansar- anum Juliet Prowse. Sagt er 'aö ungfrú Prowse hafi fengið trú- lofunarhring nærri alveg eins og þann sem ungfrú Farrow sýndi vinum sínum í New York en hringurinn niu karata demantshringur er metinn á fimm þúsund pund. Frank er núna í Englandi þar sem hann leikur í kvikmynd- inni „The Naked Runner" og dvelst Mia á meðan í New York þar til brúðkaupið fer fram í nóvember-desember. Dregur fyrsta sig i barnið hlé eftir að fætt er — Cary Grant 62 ára gamall hættir kvikmyndaleik CSextíu og tveggja ára gamall getur Cary Grant — eöa Archibald Alexander Leach réttu nafni stært sig af því að vera elzti maðurinn í heiminum í elskhugahlutverkum — og sá þekktasti. Og nýlega hélt hann upp á fæðingu fyrsta bamsins síns, dótturinnar Jennifer. En núna þegar hann er orðinn faðir hef- ur þessi vinsæli leikari ákveð- ið að draga sig £ hlé. „Ég hef ákveðið þetta, ég er kominn yf- ir rómantízkasta aldursskeið- ið“. Hann útskýrir þetta á þann hátt að þeir sem sæki helzt kvikmyndahúsin séu táningar og að þá langi ekki til þess að sjá hetjuna, fædda árið 1904 £ ástaratriðum með fremstu leik- konum timabilsins heimsstyrjöldina. eftir siðari Frank Sinatra og Mi'á' Farrow stödd saman £ London. Að breyta landinu ... Einkennileg tilhneiging sem margir hafa til að breyta land- inu. Sumir vilja flokka alla breytingastarfsemi, telja sumar til bóta, aðrar skemmdarverkn- að. Samkvæmt þessu em það landbætur að græða skóg og rækta gras, þar sem hvomgt var áður, skemmdarverknaður að rifa upp hrislur og reita gras, þar sem sá gróður er fyr- ir. Sumsé — það miöast við hugsanleg not eða nytjar, hvort er heldur, þó að reynt sé eins og alltaf, að breiða yfir eigin- hagsmunasjónarmiðin með alls konar rómantik — klæðum landið, og svo framvegis. Land- inu sjálfu stendur þó vitanlega nákvæmlega á sama hvort það er klætt eða nakið, hið eina sjónarmið, sem þama á í raun- mni rétt á sér, er það að móð- ir náttúra fái að ráða gangi hlutanna, hvemig svo sem menn grípa fram í fyrir henni, fremja þeir í rauninni skemmd- arverk... Það er skemmdar- verk að rífa upp skóg, þar sem náttúran hefur grætt hann, og eins er það skemmdarverk í sjálfu sér að rækta skóg, þar sem henni þóknast að hafa skóglaust land og telji menn sér hagnað að þvf að planta þar skógi, eiga þeir að viðurkenna hreinskilnislega að þeir fremji það skemmdarverk gagnvart móður náttúru I eiginhagsmuna- skyni — ekkert annað — öld- ungis eins og þegar menn sig til og virkja vatnsföll brjóta land til ræktunar, það líka tftt að menn afsaka þessa byltingahneigð | sína með slagorðum um fegurð og annað þess háttar, sem er viðlíka vitlaust og rómantíkin. Hver segir að gras skuli vera fegurra en grjót? Og eigi tízku- bundið fegurðarmat að ráða í afskiptum jnannsins af móður náttúru — nvers vegna þá ekki að kjósa eða skipa nefnd lands- lagstízkusérfræðinga, sem gerðu nýja útlitsteikningu af t. d. Esj- § unni, í samræmi við þann stíl, sem nú er hæstráðandi — og síðan væru útlitsbreytingamar boðnar út og framkvæmdar með stórvirkustu vinnuvélum, stórsprengingum og öðrum djöfulskap tækninnar? Svo kæmist að sjálfsögðu annar stíll í tízku, og þá yrði skipuð önnur nefnd, sem enn gerði breytingartillögur við breyting- araar... Þama mætti svo líka koma rómantíkinni að í leiðinni, þessari sem stöðugt vill „klæða“ landið — því ekki að taka sig|| til og klæða Esjuna plasti í viðeigandi tízkulitum og sam- ræmi við breytingamar... ? 1 síðustu kvikmyndinni, „Gakktu, hlaupu sem á að gerast í Tokyo. ■P ekki“, er þetta atrlðl, ~.raa

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.