Vísir - 03.08.1966, Side 9

Vísir - 03.08.1966, Side 9
VISIR . Mlðvíkudagur 3. ágúst 1966. 9 55 í einu orði sagt, stórkostlegt“ V'isir ræðir við Islendinga, sem voru áhorf- endur að leikjum á HM i knattspyrnu Það hefur varla farið fram hjá nokkrum læsum manni á íslandi að undanfarið hefur faríð fram í Englandi heimsmeistarakeppnin í knattspymu svo mikið hefur um hana verið ritað hér á landi. Lauk keppninni á laugardaginn með hápunkti hennar, úrslitaleiknum. Margt íslendinga sótti leiki keppninnar og er gizkað á, að alls hafi um 300 landar verið á úrslitaleiknum á Wembley á Iaugardaginn. Mjög mikill áhugi hefur verið á keppninni bæði hér heima og erlendis, en þó er svo, að það að fylgjast með keppninni eftir blaða og útvarpsfréttum kemst ekki í námunda við að fylgjast með henni sjálfri með því að vera í Englandi og sjá leikina með eigin augum. Vísir hefur snúið sér til nokkurra íslendinga, sem urðu vitni að atburðunum í Englandi og hefur beðið þá að segja eitthvað frá því minnisverðasta í sam bandi við keppnina. Réttlát úrslit. Helgi Þorvaldsson, skósmiður á Barónsstígnum er kunnur knattspymuáhugamaður og fór til Englands, en ekki I fyrsta Helgi Þorvaldsson. skipti, því að hann hefur farið þangaö áður til að horfa á knattspyrnu. — Hvaða leik fannst þér skemmtilegast að horfa á, Helgi? — Það var náttúrlega skemmtilegast að sjá úrslita- leikinn, en bezti leikurinn, sem ég sá var samt leikurinn milli Englands og Portúgals, sem réði úrslitum um, hvaða lið komst í úrslitaleikinn móti Þjóðverj- uin. — Hvað um úrslit keppninn- ar? — Mér fundust þau vera rétt- lát. Samt fannst mér Portúgal sýna beztu knattspyrnuna, en ekkert lið í keppninni hafði snefil af þeim sigurvilja, sem Englendingarnir höfðu og það réttlætir á vissan hátt sigur þeirra. — Hvaða leikmenn fund- ust þér vera eftirtektarverö- astir á keppninni? — Allan Ball f enska Iiðinu var mjög góður. Það er eins og maðurinn sé alveg þindarlaus, og hann þaut um völlinn þveran og endilangan. Þá var Bobby Moore mjög góður, og einnig var ég hrifinn af Eusibio, en sá ekki mikið til hans fyrst í keppninni, er hann var upp á sitt bezta. Eftir að hann hafði átt góða leiki fyrst i keppninni lögðu andstæðingamir svo mik- iö upp úr því að dekka hann vel, að hann naut sín ekki mik- ið í sjiðari hluta keppninnar. —rr Hvernig var stemmningin? — Hún var alveg gífurleg, en hana vantar, því miður, al- gjörlega hér á landi, er stórleik- ir fara fram. í stuttu máli var ferðin í einu orði sagt alveg stórkostleg, við höfðum góð sæti á vellinum og allt var í stakasta lagi. íslenzkir dómarar standa þeim erlendu fyllilega jafnfætis. Magnús Pétursson, kunnur knattspyrnudómari i borginni, var í Englandi með höp ferða- langa frá ísl. ferðaskrifstofu. — Ferðin var í einu orði sagt slxkt hefur maður aldrei upp- lifað, og á varla eftir að gera. Annars hélt maður að knatt- spyman væri að komast á villi- götur á tímabili,- en með leik Portúgals og Englands, sem var stórkostlega vel leikinn, bæði knattspymulega og iþrótta- mannslega séð, bötnuðu horf- umar svo að um munaði. — Hvað fannst þér um úr- slitaleikinn? — Sigur Englendinga var réttlátur, annars voru Þjóðverj- amir betri en maður átti von á, eftir að hafa séð þá f sjón- varpinu. — Hverjir fundust þér vera beztu menn keppninnar? — Á því leikur enginn vafi, persónulega séð, að bezti maður keppninnar og það langbezti, var fyrirliði Portúgalanna, Coluna, en Bobby Moore, fyrir- Hði Englendinga var prúðasti leikmaður hennar. Þá var Allan Ball mjög góður, og einnig bak- vörður Englendinganna, Cohen mjög góður. — Þar sem þú ert nú dómari væri ekki úr vegi að spyrja þig um dómarana á keppninni, yfir- leitt. — Mér finnst að íslenzku dómararnir standi þeim erlendu fyllilega á sporði. T. d. fannst mér Svisslendingurinn, sem dæmdi úrslitaleikinn mjög slak- ur, og gerði hann mörg mistök. Magnús Pétursson. stórkostleg. Það eitt að vera viðstaddur úrslitaleikinn er at- burður, sem menn búa að allt sitt lif. Stemmningin í sam- bandi við leikina og keppnina í heild er alveg stórkostleg og Sveinn Bjömsson. 3. mark Englendinga, sem Hurst skoraði, var að mínum dómi ekki mark, a.m.k. var dómar- inn alls ekki í aðstöðu til að sjá það, og ekki heldur línu- vörðurinn, sem dæmdi markið. Þá var einnig oft, að línuverðir veifuðu á brot innan vitateigs, sem dómari ekki sá, og dæmdi dómarinn svo brot, og auka- spymu. Þetta er atriði, sem ekki á að koma íyrir í leik, sem dæmdur er af mönnum með mikla reynslu. — Hvað fannst þér um skipu-1 lag keppninnar. — Það var mjög gott og Bret um til lofs. — Eg skoða ekki hug minn um að fara til Mexíkö til að sjá heimsmeistara keppnina, sem þar verður 1970, að óbreyttum aðstæðum. Dómarinn eyðilagði suma leikina. Svein Bjömsson þarf varla að kynna íþróttaáhugamönnum. Hann er fyrir löngu orðinn kunnur af starfi sinu að íþrótta- málum höfuðstaðarins. — Mér fannst nú úrslitaleik- urinn skemmtilegasti leikurinn, er á heildina er litið. Leikurinn var sérstaklega spennandi eftir að Þjóðverjarnir höfðu kvitt- að, 2—2. Englendingamir virt- ust sterkari og léku af meira öryggi. En bezti leikurinn, knattspyrnulega séð, var leik- urinn milli Englands og Portú- gals. — Hverjir fundust þér vera skemmtilegustu leikmennirnir? — Vafalaust var það Bobby Moore, sem var bæði duglegur og öruggur leikmaður. Tækni- lega séð fannst mér Eusibio vera beztur. — Hvaða aðrir leikir fundust þér eftirtektarverðir? — Ég sá leikinn milli Þjóð- verja og Rússa, og fannst mér hann skemmtilegur þrátt fyrir, að gert hefði verið út um leik- inn eftir 20 mín., er einum leik- manni Rússa var vísað af leik- velli. Mér fundust Rússamir leika skemmtilega knattspymu. — Hvað um lokaröðina á keppninni? — Ég held nú, að hún hafi verið réttlát, þegar á allt er litið. Englendingar útfæra vörnina mjög skemmti lega. Ellert Schram, hinn kunni knattspymumaður og margfald- ur fyrirliði landsliðsins fylgdist með keppninni af miklum á- huga. — Það var náttúrlega lang- skemmtilegast að vera viðstadd ur úrslitaleikinn, ekki aðeins að sjá*leikinn sjálfan, heldur einn- ig alla umgjörð leiksins, svo sem áhorfendur. Annars fannst mér leikurinn milli Englendinga og Portúgala vera betur leikinn, knattspymulega séð. — Hvað fannst þér um úr- slit keppninnar? — Ég held nú, að þau hafi verið réttlát. Englendingar verð skulduðu að mínu áliti sigurinn fyllilega. Varnarleikur ein- kenndi keppnina að miklu Ieyti, en Englendingar útfærðu hann mjög skemmtilega. — Hverjir vom eftirminnileg- ustu leikmennimir að þínum dómi? — Allan Ball, á hægri kantin- um var mjög góður og sama er að segja um Bobby Moore, ef til vill er hann beztur í liðinu og lífakkeri þess. Eusibio var mjög vel gætt, án þess þó að þeir, sem það hlutverk höfðu, væm nokkuð ólöglegir í vam- araðgerðum sínum. — Hvaö fannst þér um dóm- ara keppninnar? — Þeir voru eins og gengur og gerist mjög misjafnir. 3. mark Englendinga er mjög um- deilt, en ég var ekki í aðstöðu til að sjá það, en einhvern veg- inn hafði ég það á tilfinning- unni, að boltinn væri inni.- Það virtist einnig eins og leikmönn- um enska liðsins fyndist vera svo, a.m.k. þeim, sem næst þýzka markinu stóðu. Einn leik maður þess hefði getað skorað mark, ef þetta hefði ekki verið dæmt, en hann var svo viss, um að mark yrði dæmt, að hann hirti ekki um þaö. Jöfn- unarmark Þjóðverjanna, sem kom á 11. stundu var einnig eitthvað einkennilegt. Auka- spyma, sem dæmd var á Eng- land, var ekki réttlál að mín- um dómi, og sama er að segja um, að einn Þjóðverjinn hafði greinilega snert knöttinn með hendinni, án þess að dómarinn dæmdi á það. Ellert Schram. Jón Ásgeirsson. — Hvað fannst þér um knatt spymuna, sem var leikin þama? — Það er mikill munur á leik aðferðum Englendinga og t.d. S.-Amerikuliðanna. S.-Ame- ríkuliðin leika svokallaðan göngufótbolta, Ieggja mest upp úr vamarleiknum og skyndi- upphlaupum, og kemur það mér mjög einkennilega fyrir sjónir, þar sem leikmenn liðsins em mjög leiknir með knöttinn og geta gert flest með hann. Manni finnst að liðin frá S.-Amerfku gætu sigrað öll lið, ef þau legðu sig eitthvað fram viö sókn arleikinn, en það gera þau ekki. Góð lið komast ekki áfram. Jón Ásgeirsson, íþróttafrétta- ritari útvarpsins var í London og fylgdist með leikjum keppn- innar. — Þetta er allt að sjálfsögðu mjög minnisstætt þeim, sem á horfðu. Úrslitaleikurinn var að sjálfsögðu mest spennandi og Englendingarnir áttu sannarlega skilið að sigra, eins og rauni llka varð. A-nnars voru mörg góð Framh á bls 6

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.