Vísir - 03.08.1966, Side 11
Fyrir skömmu kom Anna Mar
ía Grikkjadrottning til Kaup-
mannahafnar með einkaflugvél.
Drottningin hafði með sér dótt
urina Alexiu eins árs og fylgd
armaður hennar var mágur
hennar Don Juan Carlos, prins
erfingi spönsku krúnunnar.
Á flugvellinum tóku á móti
þeim Friðrik konungur, Ingrid
drottning og Benedikta prins-
essa og uröu miklir fagnaðar-
fundir með'Vjölskyldunni.
Daginn eftir var von á Kon-
stantin kóngi til Kaupmanna-
hafnar, en hann ætlaði að taka
þátt í nokkrum kappsiglingum
ásamt Don Juan, en kóngurinn
er sem kunnugt er mikill kapp
siglingamaður og hefur unnið
verðlaun á Olympíuleikunum
fyrir afrek sín á því sviði.
Til kappsiglinganna í Dan-
mörku er efnt í tilefni 100 ára
afmælis hins konunglega sigl-
ingaklúbbs.
Á fhigvellinum. Ingrld drottning með dótturdóttur ina Alexíu, Anna María drottning til hægrí.
Ódýrar gólfteppamottur
Seljum næstu daga
mikið úrval af teppabútum og mottum.
ÁLAFOSS, Þingholtsstræti.
— þegar Anna
María kom
með dótturina
tii BCaupmanna-
hafnar
Er Konstantin kom daginn eftir faðmaði Anna Maria hann innilega.
Fagnaðarsamkoma
Samkoma verður í húsi K.F.U.M. og K. við Amt-
mannsstfg f kvöld kl. 8,30 til að fagna kristniboðunum
frú Katrínu Guðlaugsdóttur og Gísla Arnkelssyni, sem
komin eru heim í hvíldarleyfi frá kristniboðsstarfinu
í Konsó. Allir eru velkomnir á samkomuna. Gjöfum til
kristniboðs veitt viðtaka í samkomulok.
Samband ísl. kristniboðsfélagá.
Unglingspiltur óskast
til ýmissa starfa í verzlun.
Uppl. í síma 13982.
Einbýlishús i Hveragerði
til sölu, 4 herb. stór góð lóð, á bezta stað,
laus nú þegar. Uppl. Blómaskála Michelsen
Hveragerði.
Kári skrifar
Þér voruð að ræða umferðar
mál í dálkum yðar nýlega. Mjög
er orðið hvimleitt, á hve mörg
um stöðum hefur verið komiö
fyrir skiltum, sem kveða eiga
á um (eöa að gefa í skyn), aö
þetta (eða hitt) bílastæðið sé að
eins fyrir ákveðna (tiltekna) bif
reið. Með hverra leyfi er þetta
gert, — já, og með hvers heim
ild, t.d. þegar um opinberar lóö
ir er aö ræða? Um slíkt „skipu
lag“ á einkalóðum er sjálfsagt
ekkert hægt að segja, en svo
rammt kveöur að þessu, að víða
við opinberar byggingar og á
fleiri stöðum er ekki hægt að
komast að fyrir þeim, er þama
eiga „frátekin pláss", sem þó
(oft á tíðum) standa ónotuð
(auð).
Svo er annað, t.d. við Lands-
símahúsið og víðar, að þar rað
ar starfsfólk upp bifreiöum sín
um að morgni, t.d. kl. 9, — og
einnig fyrir kl. 13 en þeir, sem
viðskiptaerindi eiga við þessar
stofnanir, komast hvérgi að.
Það er hollt að ganga, vissu-
lega, en ýmsar þjónustustofn-
anir ríkisins, t.d. embætti toll
stjóra, gjaldheimtan, Landssími
Islands o.fl., þurfa oft að hafa
tal af móðum borgurum, sem
bruna á vettvang til að ganga
frá svo áriöandi málum (t.d. aö
borga gjöld í ríkiskassann o.s.
frv.). Væri það nú ekki sjálf-
sögð kurteisi, að stofnanir
rýmdu einhver bilastæði fyrir
„viðskiptavinunum.“ Það mundi
sparast mjög stundin við þaö aö
vera ekki alltaf að stjana viö
að ná sér í bílastæöi.
I mörgum öðmm tilvikum
mælir bréfritari svo meö göngu
túrum.
SAMBORGARI
Þama er komiö inn á eitt
mesta vandamál í skipulagi mið
borgarinnar, bliastæði. Það hef
ur oröiö útundan einhverra
hluta vegna að reikna með
nægum bílastæðum við stóm
byggingamar í miðborginni og
jafnvel viðar, t.d. sum nýju há-
hýsin svo sem í Ljósheimum,
þar sem bílastæði hafa annað
hvort gleymzt eða mjög illa fyr-
ir þeim séð.
Þetta kemur sér að sjálfsöðu
einna verst við opinberar bygg
ingar eins og bréfritari bendir
á, og eins allar þjónustubygg-
ingar aðrar í miðbænum, þar
sem fjöldi manns gengur út og
inn dag hvern.
Fastir starfsmenn í þessum
byggingum sumum hafa bók-
staflega helgað sér hvern blett
í kringum þau fyrir bíla sína
eins og til dæmis við Fiskifé-
lagshúsið, þar sem útvarpið er
til húsa. Þetta leiðir til þess
að aðvifandi gestir hola bifreiö
um sínum einhvers staðar niöur
og þá oft ólöglega og til mesta
trafala í umferðinni.
Að sjálfsögðu þarf leyfi lög
reglustjóra til þess að merkja
bíl sínum stæði og því sjálfsagt
aö kæra, ef slíkt er gert án leyf
is. En leyfi þessi væri nauðsyn
legt aö takmarka þannig aö
eitthvert pláss sé eftir fyrir viö
skiptavini eða gesti viðkomandi
stofnana.
Að vísu hefur bilastæðum
fjölgað mjög í miðborginni og
einhvers staöar, en menn eru
alltaf hægt að leggja bil þar
nú einu sinni alltaf að flýta sér.