Vísir - 25.08.1966, Blaðsíða 16
Fimmtudagur 25. ágúst' 1966.
Kona gabbar
slökkvilidid
Slökkviliðið var kvatt að Báru-
götu 2 1 nótt, pn þegar það kom
á staðinn kom í ljós, að um gabb
var að ræða. — Töluvert ber enn
á því að fóik gabbi slökkviliðið. í
nótt höfðu slökkviliðsmenn grun
um gabb og héldu símanum og
náðist þannig í þann, sem hafði
gabbað. Þag var kona, tæplega
þritug og undir áhrifum áfengis.
2-3 staðir koma til greina fyrir
rannsóknarstöð viðMývatn
Talað við Birgi Kjaran formann Nóttúruverndarráðs
Fyrir skömmu fór hópur
manna úr Náttúruverndarráði
norður að Mývatni til þess að
kanna þar hvar hentugast muni
vera að byggja rannsóknarstöð
ina fyrir náttúrulíf Mývatns,
sem skýrt hefur verið frá í Vísi
áður.
Var álit þeirra aö tveir eða
þrír staðir kæmu einkum til
greina, austanmegin vatnsins á
svæðinu milli Káifastrandar og
Geiteyjarstrandar. Eftir er þó að
semja við landeigendur á þess-
um slóðum.
Talaði blaðið í gær við
Birgi Kjaran formann Náttúru-
verndarráðs, sem sagði að
þrennt kæmi einkum til greina
við val staöarins. f fyrsta lagi
að aðdjúpt væri við land þann
ig að bátar kæmust að, landrými
væri fyrir byggingu stöðvarinn-
ar, en þyrfti þó ekki að vera
mjög mikið og í þriðja lagi að
staöurinn væri við fuglabyggð-
ir. Hlutverk stöðvarinnar byggð
ist þó alls ekki eingöngu á
rannsóknum á fuglalífi heldur
yrði um að ræða alhliða rann
sóknir á náttúrulífi Mývatns,
undirstöðu silungsv. í vatninu
o.fl. Mikill áhugi ríkti á því að
koma rannsóknarstöðinni upp
við Mývatn, sem náttúrufræð-
ingar álitu vera einstakt fyrir-
brigði í heiminum. Væri en.n
ekki vitað hvernig stæði á htnu
gróskumikla lífi við vatnið og í
því og yrði hlutverk rannsókn-
arstöðvarinnar að leysa úr
þeirri spurningu.
Þetta væri einnig mikið hags
munamál bænda þar um slóðir
og vonaðist Náttúruverndarráð
að þeir sýndu fullan skilning á
málinu og stuöning.
Þeir sem fóru til Mývatns
voru Finnur Guðmundsson,
fuglafræðingur, Siguröur Thor-
oddsen, verkfræðingur, Sigurð-
ur Þórarinsson, jarðfræðingur,
gr’asafræðingamir Eyþór Einars
son og Helgi Hallgrímsson og
Birgir Kjaran.
Landbúnaðarráðherra
V - Þýzkalands í opin-
bera heimsókn hingað
Formannafundur
tvo daga.
Kvenfélagasambands íslands var settur í morgun. 24—25 formenn sitja fundinn næstu
sambands Isl. hófst í morgun
Formannafundur Kvenfélaga-
sambands íslands var settur kl.
10 í morgun í fundarsal Mjólkur-
samsölunnar, Laugavegi 162.
Stendur fundurinn yfir í tvo
daga og hefst með því að flutt
Gekk fyrir bíl
Skömmu fyrir miðnætti í nótt
var ekið á mann við Álfheima 46.
Hann var þar á gangi við þriðja
mann og gekk skyndilega fyrir
bifreið til að stöðva hana, en hann
var undir áhrifum áfengis. Hinn
slasaði var fluttur á slysavarðstof-
una.
' /
verður skýrsla stjórnar Kvenfé-
lagasambandsins, Leiðbeiningar- ]
stöðvar húsmæðra og tímaritsins
Húsfreyjan. Vigdís Jónsdóttir j
skólastjóri flytur erindi um hús-!
mæðrafræðslu Kvenfélagasam-
bandsins og héraðssambandanna.
Rætt verður um ýmsar lagabreyt-
ingar og Hallveigarstaði. Helga
Magnúsdóttir formaður Kvenfélaga
sambandsins flytur erindi um hús-
mæðrasamtökin á Norðurlöndum.
I kvöld sitja formennimir boð
landbúnaðarráðherra.
Á morgun fara fram áframhaId'L
andi umræður um málin og mið-
degiskaffi verður drukkið í Átt-
hagasal Hótel Sögu og um leið
sýndar myndir úr fræðslumynda-
safni Kvenfélagasambandsins.
Landbúnaðarráðherra Vestur-
Þýzkalands, Hermann Höcherl,
er væntanlegur í opinbera heim
sókn til íslands 30. ágúst og
mun hann dveljast hér til 3.
september. Kemur ráðherrann
til Keflavíkurflugvallar kl. 23.15
á þriðjudagskvöld og tekur Ing-
ólfur Jónsson landbúnaðarráð-
lierra á móti honum.
Meðan þýzki landbúnaðarráðherr
ann dvelst hér mun hann ganga á
fund landbúnaöarráðherra, forseta
íslands, forsætisráðherra, við-
skiptamálaráðherra og borgarstjór
ans f Reykjavík.
Landbúnaðarráðherrann mun skoöa
borgarstofnanir í Reykjavík, fara
til Vestmannaeyja og skoöa fisk-
iönaöinn, koma til Þingvalla og
halda þaðan að Sogsvirkjun og til
Hveragerðis. Verði ekki hægt að
fara til Vestmannaeyja vegna ó-
hagstæðra veðurskilyrða er áform-
að að fljúga til Akureyrar og aka
að Mývatni og Goöafossi. Þá mun
ráðherrann sitja hádegisverðarboð
forseta íslands, ' kvöldverðarboð
landbúnaðarráðherra og viðskipta-
málaráðherra og kvöldið áður en
hann fer býður hann sjálfur til
kvöldverðar aö Hótel Borg.
Héðan fer ráðherrann á hádegi
3. september og flýgur utan til Lux
emborgar.
Staða forstjóra
Innkaupastofnunar
R. borgar laus
Auglýst hefur verið laus til
umsóknar staða forstjóra Innkaupa
stofnuriar Reykjavíkurborgar. Um-
sóknarfrestur er til 25. september
n. k. Fráfarandi forstjóri Inn-
kaupastofnunar borgarinnar er
Valgarð Briem, lögfræðigur.
I
Norræn sýning á verkum ungra
myndlistarmanna
íslandi boðin þátttaka, skilafrestur verkanna stuttur,
urgur í ungum myndlistarmönnum vegna sleifarlags
Félags íslenzkra myndlistarmanna.
Næturvarzla apóteka flutt í Stórholt 1
Kv'óldvarzla / tveim apótekum eina viku i senn
Apótekin í Reykjavík, Kópa-
vogi og Hafnarfirði hafa samein
azt um að reka næturvörzlu í
húsnæði aö Stórholti 1 sam-
kvæmt nýrri reglugerð um sölu
lyfja. Verða þar aðeins afgreidd
nauðsynleg lyf samkvæmt lista,
sem saminn hefur verið í sam-
ráði við heimilislækna. Hefst
næturvarzlan að Stórholti 1 í
kvöld kl. 21 og verða lyf þá
ekki lengur afgreidd að nætur-
lagi í hinum ýmsu apótekum
Reykjavíkur. Hins vegar taka
tólf apótek í Reykjavík upp
kvöldvörzlu í staðinn, tvö apó
tek í einu, eina viku 1 senn.
Birgir Einarsson apótekari
formaður Apótekarafélags ís-
lands sagði á fundi með frétta-
mönnum í gær, aö takmarkið
með hinni breyttu tilhögun á
afgr. lyfja ætti að vera að úti-
loka óþarfa lyfjaafgreiðslu að
kvöld- og næturlagi og benti á
það að sama þróun ætti sér
staö á hinum Noröurlöndunum.
Með hinni nýju reglugerð værí
stefnt að því að hagræða af-
greiðslutíma apótekanna þann-
ig, að sem mest vinna við af-
greiðslu lyfseðla komi á dag-
vinnutfma. Samkvæmt reglur
gerðinni yrði næturvarzlan allt
af á sama stað. Væri mikil bót
að því fyrir þá, sem þyrftu aö
leita til næturvörzlunnar, að
hún skuli ætíð vera á sama
stað.
Að undanförnu hefur auka-
gjald 15 kr. söluskattur verið
lagður á þá lyfseðla, sem af-
greiddír hafa verið að nætur-
lagi og verður áframhaldandi
sama aukagjald.
Næturvarzlan veröur opin,
sem hér segir: mánudaga til
föstudaga kl. 21—9 næsta morg
un, laugárdaga kl. 16—10
1 næsta morgun, helgidaga og al
menna frídaga kl. 16—10 næsta
morgun og aðfangadag og
gamlársdag kl. 16—10 næsta
morgun. Þegar rúmhelgur dag-
ur fer á eftir helgidegi er nætur
varzlan opin til kl. 9 um morg
uninn. Kvöldvarzla verður sem
hér segir: mánudaga og til
fimmtudags kl. 18—21, föstu-
daga kl. 19—21, laugardaga kl.
12—16, helgidaga og almenna
frídaga kl. 10—16 og aðfanga-
dag og gamlársdag kl. 12—16.
Kópavogs Apótek og Hafnar-
fjaröarapótek taka ekki þátt í
kvöldvörzlunni í Reykjavík, en
hafa opið sem hér segir: mánu
daga—föstudaga kl. 18—19,
laugardaga kl. 12—14, helgi-
daga og almenna fridaga 2 klst.,
aðfangadag og gamlársdag kl.
12—14.
Hinir ýmsu og mismunandi
afgreiðslutímar apöteka utan
Reykjavíkur eru mjög í sam-
ræmi við það sem veriö hefur
undanfarið og eru ekkj miklar
brevtingar á þeim.
Norræn sýning á verkum ungra
myndlistarmanna verður haldin í
Louisianasafninu í Danmörku um
miðjan nóvember n.k. Hefur nor
ræna menningarmálanefndin falió
Félagi ísl. myndlistarmanna, að sjá
um þátttöku af íslands hálfu. Hef
ur sýningarnefnd verið skipuð og
skal verkum skilað til dómnefndar
þann 19. sept. Verða valin verk eft
ir 5 unga fslenzka listamenn á sýn-
inguna allt að 5 verk eftir hvem.
Sætir furðu hversu skilafrestur
verkanna er stuttur, en vitað er, að
strax í apríl var farið að undir-
búa sýninguna og velja verk á hana
úti. Er ungum ísi. myndlistar
mönnum mikill ávinningur í þvf
að fá verk sín kynnt á sýningu
sem þessari og er mikill urgur í
þeim vegna þess sleifarlags, sem
þeim finnast stjórnarmenn í Félagi
fsl. myndlistarmanna hafa sýnt í
þessu máli. Boðuöu þeir til fundar
fyrir skömmu með ýmsum stjórn-
armönnum f Félagi ísl. myndlistar
manna og ítrekuöu á þeim fundi
óskir sínar um að eitthvað væri
aðhafst f málinu, en þá hafði ekki
einu sinni verið boðuð þátttaka Is-
lendinga í þessari norrænu sýn-
ingu þeim aðilum sem standa að
sýningunni erlendis.
Talaði blaðið í morgun við Jó-
hannes Jóhannesson listmálara,
sem er í sýningarnefnd hér ásamt
Steinþóri Sigurðssyni og Jóhanni
Eyfells.
Framh. á bls. 6.