Vísir - 26.08.1966, Blaðsíða 5

Vísir - 26.08.1966, Blaðsíða 5
VISÍ R. Föstudagur 26. águst 1966. morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd £ morgun útlön t HVAÐ ER Á SEYÐI 1 THAILANDI BANDARIKIN KOMA SÉR ÞAR UPP MIKLUM HERSTÖÐVUM Að undanfömu hefur vart liö ið svo dagur, að ekki væri að því vikið í ýmsum erlendum blöðum í Bandaríkjunum, Bret- landi, Norðurlöndum og víöar, að stórkostlegur hemaðarlegur viðbúnaður ætti sér stað í Thai landi, nágrannalandi Vietnam. Þar er m.a. rætt uin nýja flug- velli — nýjar herbækistöðvar, um „leynilegan hemað“ frá stöðvum í Thailandi o.s.frv. en stjóm hins hlutlausa Thaiiands hefur í engu breytt þeirri „opin- beru afstöðu" að láta sem ekk- ert hafi gerzt eða sé að gerast. í einni frétt segir, að menn vilji ekki viðurkenna, að hið — „gamla land musteranna, fyrr SÍAM nú Thailand" — sé að verða eitt mesta hernaðarvirki Bandarikjanna í Asíu — en það eru hvorki fleiri né færri en 6 stórir flugvellir. sem Bandarík- in eru að koma þar á fót. — Einn þeirra, SATTHIP, á strönd inni fyrir sunnan Bangkok hef- ur lendingarbraut, sem er 3 y2 km á lengd. Kostnaðurinn við að koma upp þessum flugvelli var hálfur milljarður dollara. Lengr=> inni I landi er hraöað að ljúka gerð fimm flugvalla allt til landamæra Laos og frá þeim er farið í helming ferðanna til sprengjuárása á Vietnam. — Þaö er líka frá þessum stöðvum sem flestar árásir eru geröar á hina svokölluðu HO-CHI-Minh-leið gegnum Laos, en hvort tveggja er sá hemaöur, sem aldrei er minnzt á í bandarískum her- stjórnartilkynningum. Á þessum viöbúnaði er ekk- ert lát og þar sem tvö merk- ustu blöðin ræða þetta nú opin- skátt — WASHINGTON POST og NEW YORK TIMES — skyldu menn ætla, að Banda- ríkjastjóm sé þess jafnvel hvetj andi, að um þennan viðbúnaö all an verði kunnugt með þessu móti og hefur slíkum aðferðum oft verið beitt. SKIPTAR SKOÐANIR Ólíkar skoðanir eru látnar í ljós um þennan viðbúnað. Sum ir segja, að tilgangurinn með honum kunni að vera sá, að sýna heiminum fram á, aö Bandaríkin séu jafn staðráðin í því og fyrr að vemda Suðaustur Asíu (SEATO), sem hún hefur skuldbundið sig til sem aöildar- ríki SEATO (aukaaðild), og vera við því búin að verja Suðaustur Asíu áfram jafnvel þótt sam- komulag næðist um aö leiða Vietnamstyrjöldina til lykta með því að gera landið hlut- iaust, en það samkomulag mun ekki nást nema að Bandaríkin verði á brott með lið sitt þaðan. ANNAÐ MARK En um annað mark gæti verið að ræða — róttækari aðgeröir innan langs tíma. Aörir benda sem sé á. að herforingjastjórnin í Thailandi hafi sínar ástæður fyrir að játa ekki hvaö sé að gerast. Forsætisráðherra hennar er Thanmom Kittakachom og hann og ráðherrar hans, sem allir eru hershöfðingjar, munu gera sér ljóst, að landsmenn, sem eru 30 milljónir, muni ekki skilja hvers vegna þörf sé á þessum viðbúnaði og öruggast að segja sem minnst um þetta innanlands. Bílokaup 15812 Willys ’66 ekinn 5 þús. km. Willys ’65. Verð kr. 155 þús. Willys ’64. Verð kr. 120 þús. Volvo 544 ’64. Verð kr. 120 þús. Renault L. 4. station ’64. Verð kr. 60 þús. Opel Rekord ’64. Verð kr. 130 þús. Hillman Imp. ’65. Opel Kadett ’66 de luxe ekinn 4 þús. km. Toyota Corona ’66. Opel Rekord ’65. Moskvitch ’66 ekinn 6 þús. km. Taunus 20 M. ’65. Taunus 17 M. ’65. Consul Cortina ’64 ekin 24 þús. km. Renault R 8. ’65. Volkswagen 1500 ’63. Skipti koma til greina. Mercedes Benz 220. ’61 Mercedes Benz 1413 ’65 og 66. Bílar við allra hæfi. Kjör við allra hæfi. Hefi opið til kl. 9 á hverju kvöldi. Komið — skoðið — hringið. Bílokaup 15812 Skúlagötu 55, við Rauðará. Bílasala til sölu Bílasala í fullum gangi er til sölu. Bílasalan er vel staðsett og með mikla framtíðarmögu- leika. Þeir sem áhuga hefðu á slíkum atvinnurekstri leggi nöfn og heimilisföng ásamt símanúmeri svo og uppl. um hugsanlegar greiðslur í lokuðu umslagi inn á af greiðslu blaðsins fyrir n.k. mánudagskvöld merkt: „BHasala“ Tollskráraukar II 1. júlí 1965 - 1. júní 1966 fást í skrifstofu ríkisféhirðis í Nýja-Arnar hvoli við Lindargötu og er skrifstofa ríkisfé hirðis opin kl. 10—12 f.h. og 1—3 e.h., nema laugardaga kl. 10—12 f.h. í Tollskrárauka II eru viðaukar, nýmæli og aðrar breytingar gerðar á tímabilinu 1. júlí 1965 til 1. júní 1966 á tollskrárlögum, tollaf greiðslugjöldum, leyfisvörum og öðrum atrið um, er varða innflutning vara og getið er í Tollskrárútgáfunni 1963 og Tollskráraukum I, sem einnig fást hjá ríkisféhirði og er þannig gengið frá tollskráraukunum, að textinn er aðeins prentaður öðrum megin á hvert blað og má þannig, með því að líma breytingarn ar á tollskráraukunum báðum inn í Tollskrár útgáfuna 1963 láta þá útgáfu bera með sér gjöldin og önnur innflutningsatriði eins og þau eru í dag. í Tollskrárauka II eru hinar nýjir reglur frá því í vor um tollfrjálsan farangur ferðamanna og farmanna frá útlöndum, með síðari breyt ingum. Þá fæst einnig í skrifstofu ríkisféhirðis þýð ing á Tollskránni 1963 á ensku og 3 viðaukar og er þýðingin frá 1963 með viðaukunum þremur í samræmi við gildandi tollskrá. í borg, þar sem 2500 manns létu lífið Myndin er frá aðalgötunni í Warto, á jarðskjálftasvæðinu í Tyrklandi. — Eftirlifandi íbúar Wartos verða allir fluttir til ann- ars landshluta, samkvæmt ákvörðun rikisstjómarinnar. FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN Hötum til sölu: 2ja nerb. íbúðir í Vesturbæ. Ibúðimar eru nýstandsettar með sérinngangi. Verð 550 til 650 þús. 1 herb. og eldhús í Vesturbæ. Nýstandsett. Mjög góð íbúð. 2 herb. íbúð í Hvassaleiti. íbúðin er innréttuð með harðvið- arveggjum og skápum, ný teppi og parkett á gólfum. Verö 650 þús. 3 herb. íbúðir í gamla bænum. íbúðirnar eru nýstandsettar, sérinngangur. Mjög góðar íbúðir. 2ja og 3ja herb. íbúðir tilbúnar undir tréverk og málningu i Vesturbænum. FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN Austurstræti 12 II. — Sími 20424 og 14120 Kvöldsími 10974.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.