Vísir - 26.08.1966, Side 16

Vísir - 26.08.1966, Side 16
Föstudagur 26. ðgúst 1966. Gísli Halldórsson. Gísli Halldórsson verkfr. lótinn Gísli Halldórsson, verkfræðingur,' iézt s.I. miðvikudag er hann var á ferðalagi á Spáni, ásamt konu ^sinni, Kolbrúnu Jónsdóttur. Var Gísli fæddur í Reykjavík 14. * febrúar 1907, sonur Halldórs Guð- j mundssonar rafmagnsverkfræðings ’ og konu hans Guðfinnu Gísladótt- , ur. Gísli varð stúdent frá M.R. i 1925 lauk prófi í vélaverkfræði í Danmörku árið 1933. Var verk- Framh. á bls. 6. LAHDICSA FYRIRAUSTAN Bræla er nú komin á miöum norðan lands og austan. Land- lega er hjá allflestum bátanna, þó að nokkrir þeirra séu á norð- urslóðum ennþá og leiti, en þar var heldur skárra veður í nótt en á því syðra. Fundu bátamir þar enga síld og í morgun var aftur tekið að hvessa. — Þar með er um garð gengin i bili ein mesta síldar- hrota sem géngið hefur yfir. Bátarnir hafa verið að tínast inn á firðina í gær og í nótt. Verður trúlega annars konar líf þar í tuskunum næsta sól- arhring, en verið hefur að und- anförnu, ef landlegan stendur svo lengi. Inni á Norðfirði liggja milli 50 og 60 skip. Þar var dansað í fé- lagsheimilinu í gærkvöldi og sá- ust þess merki á götum bæjar- ins í morgun, glerbrot og annar miður skemmtilegur fylginaut- ur síldargleðinnar. Allmikil ölvun var og á dansleiknum og tókst Iögreglumönnum þó að ná um þrem kössum af áfengi af gestum félagsheimilisins í gær. Svipaða sögu er að segja af Seyðisfirði, en á báðum þess- um stöðum verða dansleikir aftur í kvöld og sennilega víð- ar. Ekki hefur frétzt af nein- um slysum á þessum mann- fögnuðum, en róstusamt mun hafa orðið víða. Verksmiðjan á Neskaupstað var orðin full seinustu dagana fyrirbraelun^o^ga^ekk^eldð á móti meiru, lagðist söltun af þeim sökum niður á síltíarplön- unum, þar eð þau gátu ekki losnað við úrganginn. — Verk- smiðjan á Neskaupstað hefur nú tekið á móti um 33 þúsund tonnum af síld og hæstu síldar- plöunin eru búin að salta í um 6 þúsund tunnur. Sumir bátanna urðu aö ryöja dekkið á landleiðinni í brælunni í gær og í fyrradag, en Faxi slapp viö bræluna og landar fullfermi í salt á Seyðisfirði. Óhagstæður vöru- skiptajöfnuður í júlí Hagstofa íslands hefur sent frá hagstæður í mánuðinum um sam- sér yfirlit yfir vöruskiptajöfnuð- inn í júlímánuði. Kemur í ljós að meira var flutt inn en út í þeim mánuði. Út var flutt fyrir 376 millj. kr. en inn fyrir 483 millj. kr. Er vöruskiptajöfnuðurinn því 6- Samningsviðræður við Sovét um frekari söiu freðfisks tals 107 millj. kr. Á tímanum frá áramótum til júlíloka er vöru- skiptajöfnuðurinn óhagstæður um samtals 724 millj. kr. Á sama tíma í fyrra var vöruskiptajöfnuð- urinn óhagstæður- um alls 481 millj. kr. - Islendingar hafa selt 17.500 lestir af frystum fiski til Sovétrikjanna á árinu •e- Markaðsmál íslendinga verið mikið á dagskrá í sumar. Þing norrænna flugmálafélaga ó 30 óra afmæli Flugmólaifélags íslands ! Fulltrúar flugmálafélaga allra | Norðurlanda þinguðu hér í Reykja-1 vík í gær á afmælisdegi Plugmála-| félags íslands, sem er 30 ára um! þessar mundir. Það er í fyrsta j ' sklpti, að Flugmálasamband Norð-1 1 urlanda heldur fund sinn hér ij j Reykjavík, en þetta er 4. fundur v þess. Baldvin Jónsson hrl. formaö- i ur islenzka Flugmálafélagslns hef- t ur verið forseti sambandsins undan farið ár, en formaður danska fé- lagsins var á bessu þingi kjörinn forseti og jafnframt ákveðið, að næsta þing skyldi haldið í Dan- mörku. Allmörg mál voru til umræðu á binginu, svo sem reglur um keppni í svifflugi, vélflugi og fallhlífar- stöikki. Einnig var é þinginu ákveð iö að hefja nemendaskipti milli Norðurlandanna í hinum ýmsu greinum flugsins og skiptast lönd in þá á svifflugsnemum. Á þinginu var Flugmálasam- bandi Norðurlanda gefið enskt nafn til notkunar á alþjóða- vettvangi, Association of Nordic Airoclubs. Á þinginu var mikið rætt um nauðsyn norrænnar samvinnu á sviði flugmála eins og að líkum lætur, en norrænu félagaformenn- irnir tóku allir til máls og ámuöu því íslenzka allra heilla á 30 ára Framh. á bls. 6 hafa Veldur því m. a. að markaðsverð á allmörgum útflutningsafurðum Íslendinga hefur farið lækkandi undanfarið, en aðrar háfa staðið í stað. Vísir átti í rborgun tal af Guömundi H. Garðarssyni, viö- skiptafræðingi, fulltrúa hjá Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna og spuröi hann um, hvernig viðskipti okkar við Sovétríkin stæðu nú og horfur í þeim málum. Eins og kunnugt er, eru Sovétrík in eitt af aðalviðskiptalöndum okk ar varðandi sölu á freðfiski. Guömundur sagði, að skv. við- skiptasamningi milli íslands og Sovétríkjanna, sem nú væri í gildi, væri áætluð sala á 12—15 þús. lest um árlega af fiskiflökum frá ís- landi til Sovétríkjanna. Þegar væri búið að selja 8. þús. lestir af fisk Framh á bls. 6 VATNSSTRfÐ A SEYÐISFIRÐI Bæjarstjórinn brýtur lögbann og lokar fyrir vatn til síldarbræðslnanna ó staðnum í gær gerðist það á Seyðis- firði, að bæjarstjórinn, Hrólfur Ingólfsson, lét loka fyrir vatniö til beggja síldarverksmiðja stað arins, en hafði í hótunum aö láta loka fyrir vatn til allra sölt unarplana á staðnum. Lokaði bæjarstjórinn með eigin hendi fyrir vatnið til Síldarverksmiöju ríkisins, en hann komst ekki til að loka fyrir vatnsinntakiö hjá síldarverksmiöjunni Hafsíld. Haföj bæjarfógetinn látið leggja vörubifreið yfir kranann og varð því bæjarstjórinn að loka fyrir aðalæð til að koma sinu máli fram. Bæjarstjórinn gerði þetta vegna þess að síldarverkunar- stöðvar á Seyöisfirði hafa neit- að að greiða tengigjald vegna nýrrar vatnsveitu á staðnum, en bæjarstjórinn hefur krafizt að þær greiddu gjaldið auk venju- legs vatnsskatts.' Samkvæmt þvf, sem lögfræöingur sildar- verkunarstöðvanna, Benedikt Sveinr >n, tjáði blaðinu í morg un, hefur vatnsveitan nýja farið 10 milljón krónur fram úr fyrstu kostnaðaráætlun, en það réttlætti ekki að leggja þetta tengigjald á stöðvarnar, sem greiddu þegar hærri vatnsskatt, en tlökaöist annars staðar á landinu. — Krafðist bæjarstjór inn að Síldarverksmiðjur ríkis- ins greiddu 6 millj. kr. í tengi gjald, Hafsíld 2 millj. og hvert söltunarplan hálfa milljón. Lögfræðingur verkunarstöðv- anna kæröi þetta tengigjald, en þegar bæjarstjórinn hótaði að láta loka fyrir vatn til stööv- anna, lagði lögfræðingurinn fram ósk um lögbann gegn lok un. Hafði bæjarstjórinn það að Framh. á bls. 6. Lúðvig Guðmundsson Lúðvík Guðmunds- son fyrrv. skóla- stjóri lótinn Lúðvig Guðmundsson, fyrrver- andi skólastjóri Handíða- og mynd- listarskólans lézt í gærmorgun í Landspítalanum, 69 ára að aldri. Ilann var fæddur í Reykjavík 23. júní árið 1897. Hann varö stúd- ent árið 1917 og stundaði að stúd- entsprófi loknu nám bæði heima og erlendis. Lúðvig var skólastjóri á Hvítárbakka frá 1927—1931 og skólastjóri Gagnfræðaskólans á Isafirði 1931—1938. Fluttist hann til Reykjavíkur árið 1938 og stofn- aði Handíða- og myndlistarskólann árið 1939. Var hann skólastjóri þar til hann lét af skólastjórn fyrir nokkrum áhum vegna heilsubrests. Eftirlifandi kona Lúðvigs Guð- mundssonar er Sigríður Hallgríms- dóttir.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.