Vísir - 26.08.1966, Side 6
V í S IR . Föstudagur 26. ágúst 1966.
6
mmmmmKmmmmmm
‘IERVLEI1G’
Kirkjustræti 10
Afgreiðslustúlka óskast
Einnig aöstoðarmaður óskast í apótek um
næstu mánaöamót. Uppl. um aldur, mennt
un og fyrri störf sendist augl.d. Vísis merkt:
„Ap?ítek“ fyrir 30. þ.m.
Tilkynning frá
Loftskeytaskólanum
Loftskeytanámskeið hefst í Reykjavík um
mánaðamótin september-október 1966.
Umsóknir ásamt prófskírteini miðskólaprófs
eða annars hliðstæðs prófs og sundskírteini
sendist póst- og símamálastjórninni fyrir 12.
sept. n.k.
Inntökupróf verða væntanlega haldin dagana
20.-22. sept. n.k.
Prófað verður í ensku og reikningi, þar á með
al bókstafareikningi
Nánari upplýsingar í síma 11000 í Reykjavík
Hús í Smáíbúðahverfi
Til sölu er sérlega skemmtilegt og vandað hús ásamt
40 ferm. bflskúr á hornlóð í Smáíbúðahverfi Á 1. hæð
eru 2 stofur, eldhús, búr, W.C. og forstofa. 1 risræð
eru 3 svefnherbergi, bað og geymsla.
2 herb- íbúð er I kjallara sem einnig er hægt að fá
keypta. Sér hitaveita með forhitara er fyrir hæðina.
Fallegur garður, teppi, tvöfalt gler. Hagstætt verð
og útborgun
Fasteignasala
Sig. Pálssonar byggingameistara
og Gunnars Jónssonar lögmanns
Kambsvegi 32. Símar 34472 og 38414
ANinning —
Framh. f bls. 8
systur hans og vandamönnum
öllum innilegar samúðarkveöjur.
Bjarni Jónsson er genginn, en
hann er ekki allur. Verka hans
sér lengi stað. Minningin lifir
um mætan mann, vandaöan og
vel gerðan.
Ármann Snævarr
t
1 dag er gerö útför Bjarna
Jónssonar forstjóra Nýja Blós,
er lézt 20. þ.m. rúmlega hálf-
níræöur að aldri, en hann var
fæddur 3. okt. 1880 á Galtafelli
í Hrunamannahreppi.
Foreldrar Bjama voru hjónin
Jón bóndi Bjamason á Galta-
felli og kona hans Gróa Einars-
dóttir í Bryðjuholti I sömu sveit
og stóöu aö honum traustar og
góöar ættir. Vandist Bjarni þeg
ar í bernsku ýmsum sveitar-
störfum, var bráðger og kapp
samur og bar snemma á því, að
hann væri vei hagur. Um skeiö
stóö Bjarni fyrir búi foreldra
sinna.
Árið 1897 fór Bjami til
Reykjavíkur til trésmíðanáms
hjá Kristni Jónssyni vagnasmiö
en jafnframt náminu naut hann
tilsagnar f tréskurði hjá Stef-
áni hinum oddhaga Eirfkssyni.
Átti áhugi hans á tréskurðar-
listinni rætur aö rekja til ríkrar
listhneigðar í ætt hans. Utan
fór Bjami 1903 og dvaldist þar
í 3 ár og stundaði smíði list-
rænna húsgagna hjá Chr. Kjær
kunnum framleiðanda fagurra
húsgagna. Bera margir gripir
smekk og hagleik Bjama fag-
urt vitni.
Þegar hann kom heim 1906
fullnuma í þessum greinum
stofnaði hann húsgagnavinnu-
stofu í félagi viö þá Jón Hall-
dórsson, Jón Ólafsson og Kol-
bein Þorsteinsson, en þeir voru
báðir miklir hagleiksmenn.
Hlaut fyrirtækiö nafnið Jón Hall
dórsson & Co. og varö fljótt
landskunnugt. Eftir nokkurra
ára starf kenndi Bjami nokkurs
lasleika og breytti um starf aö
læknisráði og gerðist sýningar-
stjóri í h.f. Nýja Bíói árið 1914
og hafði þá fariö utan til þess
aö kynna sér rekstur kvikmynda
húsa. Kvikmyndahúsiö keypti
hann svo af hlutafélaginu 1916
og rak þaö einn til ársins 1920.
Seldi hann þá vini sínum og
frænda Guðmundi Jenssyni
helming hlutabréfanna og ráku
þeir þaö sfðan saman í félagi.
Forstjóri kvikmyndahússins var
Bjami til dauðadags.
Nýja Bíó var upphaflega rek-
ið í leiguhúsnæði f Hótel ís-
landi, sem stóð við Aðalstræti
og Austurstræti. Var kvikmynda
húsið eins konar viðbvgging viö
gistihúsið austan megin og al-
gerlega ófullnægjandi, er frá
leið. Reistu þeir félagar þá af
miklum stórhug sitt eigið hús
við Lækjargötu 2, þótt efni væru
eigi mikil. Hús þetta kostaði
stórfé á þeirra tíma vísu, en
á öllum erfiðleikum var sigr-
azt, en báðir nutu þeir hins
mesta trausts, og tókst því að
afla sér þess lánsfjár er þeir
þurftu. Sfðar var þetta hús
stækkað og endurbætt eins og
það er í dag, og jafnframt reist
skrifstofubygging sem er áföst
því. Kvikmyndahúsið var lengi
stærsta og fullkomnasta kvik-
myndahúsið í bænum. Á tíma
þöglu kvikmyndanna var þess
frá upphafi gætt að sjá fyrir
góðri hljómlist og að hafa hin-
ar fullkomnustu sýningarvélar
og einnig vom útvegaðar beztu
kvikmyndir, sem unnt var að
fá. Margar helztu myndir frá
þessum tíma voru sýndar f Nýja
Bíói. Og þar heyrðu Reykvíking
ar og sáu fvrstu talmyndimar.
Framsýni og dugnaður ein-
kenndi Bjarna allt hans líf, en
það einkenndist eigi síður af
stórhug, sem kom fram í ýmsu,
og miklum hlýleik og velvild
og hjálpsemi í garð annarra.
Bjarn' var til dauðadags eig-
andi . jarðarinnar Galtafells í
Hrunamannahreppi, þar sem
hann fæddist, sleit bamsskón-
um og lifði sín fyrstu mann-
dómsár. Lagöi hann mikið fé
í að hýsa jörðina og rækta og
bar það mikilli og lofsverðri
ræktarsemi vitni. Gifta fylgdi
öllu hans starfi og hann var
mikill gæfumaður, en hann varð
sorgir og mótlæti að bera sem
margir aðrir, en bar þær byrð-
ar sem hetja.
Bjami var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Stefanía Stefáns-
dóttir, bónda á Ásólfsstöðum,
Eiríkssonar. Gekk hann að eiga
hana 1907, en missti hana undir
áramótin 1908. Sonur þeirra var
Stefán, látinn fyrir mörgum ár-
um, mikið ljúfmenni og dreng-
skaparmaður.
Árið 1910 gekk Bjarni að eiga
Sesselju Guðmundsdóttur, frá
Deild, Akranesi, mikla ágætis-
konu. Bar heimili þeirra að Galta
felli við Laufásveg, vitni smekk
vísi þeirra og á§t á því sem fag
urt er, og samhent voru þau
jafnan og samhuga í frábærri,
ástúðlegri gestrisni.
Af börnum þeirra 5 em á lífi
Hörður, húsameistari, kvæntur
Kötlu Pálsdóttur, Steingríms-
sonar ritstjóra, Laufey, gift
Árna Snævarr, yfirverkfræðingi
og Stefania gift Thor Ó. Thors
framkvæmdastjóra.
Persónulega á ég margs að
minnast frá löngum kynnum við
Bjarna heitinn, en leiðir okk-
ar til nokkurs samstarfs lágu
saman eftir heimkomu mína ‘23,
og hélzt það um mörg áf, og
minnist ég margra góðra sam-
veru-.unda með honum, konu
hans og ungum börnum frá
þeim tíma. Síðar hitti ég aldrei
Bjama heitinn svo, að ég fyndi
ekki glöggt, að trvggð hans var
jafnbjargföst og fyrr, og vin-
arhugurinn jafnhlýr.
Axel Thorsteinson.
Vufnsstríð —
Framhald af bls. 16
engu,- Þegar hann hafði lokað
fyrir vatniö í nótt, var hann
kallaður fyrir sakadóm Seyðis-
fjarðar og yfirheýröur. Sam-
kvæmt því sem Benedikt Sveins
son tjáði blaöinu, er athæfi
hans ólöglegt, og sama eðlis
og aö óhlýðnast lögregluyfir-
völdum, sem 1 þessu tilvikj er
bæjarfógeti.
í dag veröur væntanlega opn
aö fyrir vatnið að nýju til síldar
verksmiðjanna, en þaö mun
líða nokkur tími áður en
hægt veröur að setja á fullan
þrýsting
Flugráð —
Framhald af bls. 16.
afmælinu. Dönsku og sænsku full-
trúarnir færöu því æðstu heiöurs-
merki félaga sinna aö gjöf, gull-
skildi, greypta táknmyndum flugs
ins.
Viðræður —
Framhaid af bls. 16
flökum þangað. Þá væri einnig
búiö að selja þangaö 5000 lestir af
frvstri síld og 2200 lestir af heil-
frystum fiski upp í 5000 lesta
kvóta, en auk þess hefði togarinn
Narfi gert sérsölu á 2500 lestum af
heilfrystum fiski. Að lokum sagði
Guömundur, að framundan væru
viðræður milli íslendinga og Sovét
manna á viöbótarsölum á fiski til
Sovétríkjanna.
Gísli H. —
Framhald af blr. 16
fræðingur í Reykjavík 1933—35.
Forstjóri Síldarverksmiðja ríkisins
1935—37. Framkvæmdastjóri Es-
bjerg Hermetikfabrik A.S. í Es-
bjerg 1937—39. Rak verkfræði-
skrifstofu í Reykjavík 1939—1951.
Stofnaði og rak jafnframt verzlun-
arfyrirtækiðð Gísli Halldórsson h.f.
1941—52. Stofnaði Vélsmiðjuna
Jötun h.f. 1942, aðaleigandi og
framkvæmastjóri hennar til árs-
ins 1947. Yfirverkfræðingur og
rannsóknarstjóri hjá vélsmíðafyr-
irtækinu Edw. Renneburg & Sons
Co., Baltimore, Bandaríkjunum
1952—1956. Sjálfstæður verkfræð-
ingur í Reykjavík frá 1956 og rak
jafnframt innflutningsverzlun.
Beitti Gísli sér fyrir ýmsum
framkvæmdum hér á landi, sem
töldust til nýjunga, þegar þær voru
gerðar. Beitti hann sér m. a. fyrst-
ur manna hér fyrir að borað yrði
eftir jarðgufu og hún virkjuð til
raforku og upphitunar: Innleiddi
. hann hér á landi ýmis tæki til at-
vinnubóta og fann önnur upp,
Var Gísli fjórkvæntur og var
síðasta kona hans Kolbrún Jóns-
dóttir listmálara Þorleifssonar.
Syndið 2C0
metrana
Leiguíbúð
Trésmiður óskar eftir 3—4 herb. íbúð. Stand
setning kemur til greina. Uppl. í síma 18164.
jr r
SKOUTSALA
Kvenskér
Ifeirlsiiffliiraskér
mikill afsláttur.
Bnrnaskór
Skóverzlun Péturs Andréssonar, Laugavegi 17.
Skóverzlunin Framnesvegi 2.