Vísir - 07.09.1966, Page 2
nu
wmmm
WMmmm
■ ■■■■■■■
NmteskL 19íkvöld
íslenzkir meistarar og franskir
© KR og Nantes leika sinn fyrsta ieik í Evrópu-
bikarkeppni deildameistara að þessu sinni í kvöld.
— KR hefur heldur en ekki fengið sterkan ^ %
mótherja þar sem frönsku meistaramir frá Bret-
agne-skaga eru. Þetta lið er örugglega eitt af al-
sterkustu liðum, sem hingað hafa komið, og verð-R?
ur gaman að sjá listir þeirra á Laugardalsveilin-
í kvöld.
um
Eftir hina góðu frammistöðu
Vals gegn öðru atvinnuliði á
heimavelli sínum, Standard
Liege, verður að reikna heima-
völlinn mjög til tekna hjá KR
og með sama baráttuhug og
Valsmenn sýndu, ættu KR-ing-
ar ekki að þurfa að fara illa frá
þessum leik. Bjarni Felixson,
sem að þessu sinni verður að
láta sér nægja að horfa á fé-
laga sína í leik, vegna meiðsla,
sem hann hlaut fyrir nokkru,
sagði í gærkvöld: „Þeir munu
áreiðanlega spjara sig, strák-
amir“.
í gærdag kl. 4 komu Frakk-
arnir akandi frá Hótcl Loftleið-
um vestur á KR-völl í Kapla-
skjóli og æfðu þar þrjá stund-
arfjórðunga, mýktu upp og
léku á handknattleiksmörkin.
Margir stönzuðu og horfðu á
þá og dáðust mjög að leikni
þeirra.
Liðin í kvöld eru þannig skip-
uð:
JKR:
Guðmundur Pétursson,
Kristinn Jónsson,
Óskar Sigurðsson,
Þórður Jónsson,
Ársæll Kjartansson,
Ellert Schram,
Baidvin Baldvinsson,
Eyleifur Hafsteinsson,
Gunnar Felixson,
Jón Sigurðsson,
Hörður Markan.
NANTES:
Castel,
Le Cheuadec,
De Nichele,
Robin,
Budchinsky,
Suaudeau,
Simon — einn snjallasti leik-
maöur Frakka 1 dag.
Blanchet,
Gondet,
Simon,
Prcu
Aðgöngumiðasalan er í full-
um gangi við Útvegsbankann
f dag og er ráðlegt sem fyrr að
tryggja sér miða áður en að
vellinum er komið.
CSay hræddur um að
tapa á laugardaginn
Cassius Clay mætlr n.k. laugar-
dag til erfiðustu keppninnar á ferli
sínum. Það er Þjóðverjinn Karl
Mildenberger, sem hann keppir við
um heimsmeistaratignina í hnefa-
leik. Keppnin fer fram í Frank-
furt.
„Ég er áhyggjufullur vegna þess- j
arar keppni“, sagði Angelo Dundee, I
framkvæmdastjóri heimsmeistar-1
ans í gær, „hann hefur tvívegis
mætt hnefaleikurum líkum Milden-
berger, þessum „south paw“-
hnefaleikurum og hef, i bæði
skiptin tapað, þá sem áhugamaður.
Þetta kann að hafa áhrif á Clay
andlega á laugardagskvöldið“.
Keppnin í Frankfurt á að standa
15 lotur.
V I S I R Miðvikudagur 7. september 1966.
%
2—1
2—1
4— 0
5— 2
4—3
1—2
JÓN Þ. VANN í
MALMÖ í GÆR
• Enska deildakeppnin
... einn frönsku leikmann-
anna á æfingunni.
— Sigraði hinn góða hásfókkvara Jan
Dahlgren og stökk 2.03 metra
Jón Þ. Ólafsson vann há-
stökkið á miklu alþjóðlegu móti
i Málmey í Svíþjóð í gærkvöldi.
Hann vann þarna m. a. hinn
fræga sænska hástökkvara Jan
Dahlgren. Jón stökk 2.03 metra,
en Dahlgren stökk sömu hæð,
en átti fleiri tilraunir.
Mörg góð afrek voru unnin
á þessu móti og má nefna sem
dæmi að Neal Steinhauser frá
Bandarikjunum kastaði kúlu
19.61 metra, og Bjöm Bang
Andersen 18.30, sem er norskt
met. Bobo Tummler, V.-Þýzka-
landi, vann 800 metrana á
1.50.3 mín., Harald Nordpoth,
V.-Þýzkalandi, vann 1500 metr-
ana á heldur slökum tíma af
svo góðum hlaupara, 3.56.6,
Ron Morris vann stangarstökk
með 4.985 metrum, Lars Hag-
lund kringlukast á 57.66.
Nokkrir leikir í ensku deilda-
keppninni voru leiknir f gærkvöldi
og urðu úrslit þeirra þessi:
1. deild:
Arsenal—Sheffield W. i—1
Everton—Bumiey 1—1
Notthingham F.—Fulham
Sheffield U.—Tottenham
2. deild:
Bristol—Charlton
Bury—Rotherham
Ipswich—Derby
Northampton—Norwich
Sparið peningana
Markaðurinn aðeins opinn fáa daga ennþá
ÓDÝRT í PILS:
Rayonefni kr. 52,00 í pilsið
Teryleneefni kr. 105,00 í pilsið
Ulíarflannel kr. 100,00 í pilsið
ÓDÝRT í KJÓLA:
Margs konar efni frá kr. 55,00 í kjól-
inn, áður allt að kr. 240,00, eða yfir
75% afsláttur.
GARDÍNUEFNI
fyrir hálfvirði eða minna.
BUXNATERYLENE
frá kr. 150,00 metrinn.
ÓDÝR SÆNGURFATNAÐUR:
Léreft og damask.
Alnavörumarkaðurinn
Góðtempiaruhúsinu
GARDINUBÚÐIN