Vísir - 07.09.1966, Side 4
4
VÍSIR. Miövikudagur 7. september 1966.
morgun útlönd í morgun útlönd í morgun íítlönd í morgun Ú1 :lönd í morgun útlöncl '•>' . 3
DR. VERWOERD FORSÆTISRÁÐ-
HERRA SUDUR-A FRÍKU MYRTUR
Ben Schoeman samgöngumálaráðherra
líklegastur eftirmaður hans
Sendill á Suður-Afríkuþingi,
talinn vera af grískum ættum,
réöst í gær á dr. Verwoerd á
þingfundi, vopnaður rýtingi, og
stakk hann mörgum rýtings-
stungum í hnakka og brjóst,
áöur en þingmenn og aörir í
sainum fengu áttað sig á þeim
harmleik, sem var að gerast.
Dr. Verwoerd lézt í heim svif-
um, er komið var með hann í
sjúkrahús.
NTB-fréttastofan birti um þetta
ýtarlegar fréttir sámkvæmt tilkynn
ingum Suður-Afríku-fréttastofunn-
ar.
Árásin á forsætisráðherrann var
gerð, þegar bjöllu var hringt til
merkis um, að menn ættu að ganga
til sæta sinna, þar sem setja átti
árdegisfund. Þegar forsætisráðherr
ann hafði tekiö sér sæti gekk til
hans maöur klæddur einkennisbún-
ingi starfsmanna þingsins.
Forsætisráðherrann horfði á
manninn eins og hann byggist við
að hann ætlaði að segja eitthvað
við sig, en maðurinn rak þegar
hnífinn í hnakka hans svo hart,
ar blóðið lagaði úr sárinu og stakk
hann svo hverri hnífsstungunni
tf annarri. Þegar maðurinn hafði
verið yfirbugaöur brugðu læknar,
sem viðstaddir voru, við og reyndu
í0gunartilraunir á dr. Verwoerd,
■>g var hann með lífi sem að ofan
’.reinir, er komið var með hann f
vúkrahúsiö.
Það var Ben Schoeman, sam-
göngumálaráðherra, sem er einnig
málsvari stjórnarinnar í neðri mál-
stofunni, sem sagði þingheimi lát
forsætisráðherra.
Búizt er við, að Schoeman verði
eftirmaður dr. Verwoerds
Hendrik Frensch Verwoerd var
kunnastur fyrir aö byggja upp
,,apartheid-kerfið“ eða „aðskilnað-
ar-kerfið“ og í öðru lagi fyrir að
koma því í höfn, að stjórnarskrá
landsins var breytt þannig, að
Suður-Afríka, sem hafði verið sjálf-
stjómarland (dominion) innan vé-
banda Brezka samveldisins. varð
nú lýðveldi og gekk úr samveldinu.
Hann var mjög umdeildur stjórn-
málamaður í Suöur-Afríku sem í
öðrum löndum. Hann fyrirleit gagn
rýni annarra flokka og þoldi illa
gagnrýni innan eigin flokks. Hann
var víkingur til vinnu og naut þess
I álits að vera gæddur miklu hug-
rekki. Mjög lagði hann stund á
að vitna í bibh'una til þess aö rétt-
læta gerðir sínar í kynþáttamál-
um.
Hann var fæddur í Hollandi
1901, en foreldrar hans fluttu til
| Suður-Afríku, er hann var árs gam-
J all. Hann var settur til mennta og
var orðinn háskólakennari 28 ára.
Hann vakti á sér áthygfi 1936, er
hann geröist leiötogi háskólakenn-
1 ara, sem mótmæltu þvf, að flótta-
; menn frá Þýzkalandi af Gyðinga-
ættum fengju að setjast að í Suð-1
ur-Afríku. Svo hætti hann kennslu |
og gerðist ritstjóri aðalmálgagns j
þjóðernismanna, Die Transvaaler,'
og gegndi því starfi í 11 ár.
I Þátttöku í stjórnmálum hóf hann
Örlagarík atkvæða-
greiðsla í Blackpool
eftir styrjöldina. Þegar Strijdom
forsætisráðherra lézt 1958 varð
hann forsætisráðherra. Misseri eft-
ir að hann varð forsætisráðherra
lagði hann fram hin svo kölluðu
Bantustan-lög, sem áttu að tryggja
blökkufólki takmarkaða sjálfstjórn
á þess eigin kynflokkasvæðum.
Á valdatíma Verwoerds einangr
aðist Suður-Afríka æ meira alþjóð-
lega og efnahagsaögerðir gegn Suö-
ur-Afríku hafa verið stöðugt mikið
ræddar. Samtímis treysti Suður-
Afríka efnahagslegt samstarf við
Portúgal, og eins og kunnugt er,
þegar Rhodesia lýsti yfir sjálfstæði
fyrir tæpu ári, fékk dr. Verwoerd
og land hans „lykil-hlutverk í hend
ur í mesta deilumáli Afríku á vor-
um tíma“. Á yfirborðinu lét dr.
Verwoerd Suður-Afríku vera hlut-
lausa í þessu máli, en hann gerði
enga tilraun til aö leyna að hann
studdi þvíta þjóðarminnihlutann í
Rhodesiu, Iain Smith og þá, sem
honum fylgja, en viðurkenndi ekki
stjórn hans opinberlega. Þannig
reyndi hann að afstýra efnahags-
legum refsiaögeröum gegn sínu eig
in landi. (Úr æviágripi NTB).
í framhaldsfréttum var sagt, að
Ebeom Donges fjármálaráðherra
hefði tekið við störfum hins látna
forsætisráðherra um stundarsakir.
Lögreglurannsókn.
f Víðtæk lögreglurannsókn hófst
þegar í gær út af morðinu. Ekkert
hefir verið látið uppi hvað hvatti
morðingjann til verknaðarins, en
vitað er að hann hafði oft látið
orð falla um það, að stjórnin gerði
of mikið fyrir blökkufólkiö, en of
lítið fyrir fátæka, hvíta menn,
Maðurinn er af grísku og portú-
gölsku foreldri og fæddur í Moz-
ambique, sem er portúgalskt land
í Austur-Afríku.
Þjóðaleiðtogar
hafa minnzt Verwoerds.
Þjóðaleiðtogar ýmsir hafa
minnzt dr. Verwoerds, þeirra á
meðal Johnson Bandaríkjaforseti,
U Thant frkvstj. Sameinuðu þjóð-
anna, Harold Wilson forsætisráð-
herra Bretlands og margir fleiri.
Hjá öllum kemur fram, að þeir
viðurkenna hæfileika og dugnað
hins myrta, og allir fordæma morð-
ið — taka fram, að það sé ekki
f þjónustu réttíætisins, að myrða
þjóðaleiðtoga, og geti haft hættu-
legar afleiðingar. Hjá sumum kem-
ur fram, að sú hætta sé fyrir
hendi, þar sem stjómað sé með
sama hætti og í Suður-Afríku að
svona atburðir gerist, en þannig
tók Lee forsætisráðherra Singa-
pore til orða. Á hitt er svo minnzt,
að frjálslyndir þjóðaleiðtogar
hafa einnig oft fallið fyrir morð-
ingja hendi.
Dr. Verwoerd.
Harold Wilson sendi samúðar-
skeyti til Suður-Afríku, er fréttin
hafði borizt til London, einmitt í
það mund, er hann var að setja
samveldisráðstefnuna.
Atkvæðagreiðsla, sem kann að
reynast örlagarík fer fram i dag
á verkalýðsráðstefnunni í Black-
nool.
Frank Cousins fyrrverandi ráð-
herra, sem gekk úr stjórn Wilsons
vegna ágreiningsins um efnahags-
stefnu hans, verður aðalræðu-
naðurinn á Blackpool-ráðstefnunni
dag, og aðalhvatamaður þess, að
neitað verði um stuðning við hana,
en brezka útvarpið í morgun virðist
ætla, að Wilson sigri við atkvæða-
greiðsluna í dag, en þó með naum-
ari meirihluta en búizt var við um
seinustu helgi.
Mikið er undir því komið hver
verður úrskurður yfirréttar um
það, að fulltrúum sé lagalega skvlt
að greiða atkvæði á þingum í sam-
ræmi viö samþykktir félagsfunda,
en það eru tvö félagasambönd sem
hafa að baki sér milljón verka-
manna, sem hafa beðið um úr-
skurðinn.
Tízkusýning
í kvöld kl. 8,30
Moskwifch bifreiða-
eigendur athugið
Geri við Moskvitch-bifreiðir. — Fljót og góð
afgreiðsla. — Uppl. í sím'a 14113.
_
Ráðskona óskast
til að annasi lítið heimili í Holtunum, virka daga kl.
8—14 cg annan hvern sunnudag. — Aðeins þrennt í
heimili. Allar heimilisvélar. Áhugasamar sendi bréf í
pósthólf 491, Reykjavík, fyrir fimmtudagskvöld merkt
„Ráðskona"
FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN
Höfum til sölu:
2ja nerb. íbúöir í Vesturbæ. Ibúðirnar eru nýstandsettar
með sérinngangi. Verð 550 til 650 þús.
1 herb. og eklhús í Vesturbæ. Nýstandsett. Mjög góð íbúð.
2 herb. ibúð í Hvassaleiti. Ibúðin er innréttuð með harðvið-
arveggjum og skápum, ný teppi og parkett á gólfum.
Verð 650 þús.
3 herb. íbúðir f gamla bænum. íbúöirnar eru nýstandsettar,
sérinngangur. Mjög góðar íbúðir.
2ja og 3ja herb. íbúöir tilbúnar undir tréverk og málningu
í Vesturbænum. .
Fasteígnamiðstöðin, Austurstræti 12 2. hæð
Símar 20424, 14120. Kvöldsími 10974.
1866
Laugardalsvöllurina í kvöld kl. 7
1966
K.R.
NÁNTES
I Evrópukeppni meisturaiíða
VERÐ aðgöngumiða: STÚKA 125.00 — STÆÐI 90.00 —
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA VIÐ ÚTVEGSBANKANN.
BÖRN 25.00.