Vísir - 07.09.1966, Page 11

Vísir - 07.09.1966, Page 11
Brigitte við komuna til London. Brigitte styttir sig Brigitte Bardot brosti blítfc, þegar hún kom á flugvöllinn í London fyrir skömmu. Til Eng- lands var hún komin til þess að leika í nýrri kvikmynd. Það sem vakti athygli jafnvel umfram Brigittu sjálfa var, að hún'var ein á ferð. Eiginmann- inn hafði hún skilið eftir en hvers vegna neitaði hún algjör- lega að segja frá. Hins vegar var hún viðmóts- þýðari, þegar að ljósmyndatök unum kom. Hún var í stuttpilsi fimmtán cm. fyrir ofan hné, en fannst það ekki nógu stutt, og stytti það enn meir, þegar hún steig fæti á enska grund. Sendifulltrúar hennar hátignar — ung stúlka og ungur herramaður Þegar Englendingar sáu fyrstu myndimar frá ferðalagi Philip- usar prins.'Karls erfðaprins og önnu prinsessu til Jamaica ný- lega uppgötvuðu þeir allt í einu að litla prinsessan — sem varð 16 ára í ferðalaginu — var orð- in ung stúlka. Og Karl prins, — sem hafði hlotið auknefnið „Plum Pudding" eða Plómubúð ingur“ — var orðinn ungur herramaöur eftir dvöiina í Ástralíu. Philip prins lagði mesta stund á póló I ferðalag- inu og var ánægður með bömin sín, sem stóðust með ágætum prófraun sína í ferðalaginu, sem verðugir sendifulltrúar hennar hátignar. Ennþá kýs hún gömlu síöbuxumar, en þegar hún er í kjól, er hún falleg, sögðu Englendingar, þegar myndin birtist af Önnu þar sem hún er á leiöinni inn f hóteliö sitt f Kingston. Leki... Haust er gengið í garö, eftir heidur kalt en þó allsólríkt sum ar hér sunnanlands, en öndveg- is sumar nyrðra ... eitt af þess um sumrum, sem Norölending- ar telja sig eiga heimtin'gu á, vegna þess að þeir séu Norö- lendingar, en eins og vitað er, byggja þeir hinar ýmsu sérrétt indakröfur annað hvort á því, eða þá hinu — að þeir séu ekki Sunnlendingar... í sveitum eru réttir skammt undan, í höf uðstaðnum eru þær þegar hafn ar, og fyrr en venjulega... skólahjörðin dregin í dilka og rekin að námsjötunni, og þar eru nú ekki hrekjurnar gefnar á garða! Annars kom dálítið undarlegt á daginn hérna um daginn í sambandi við hinar miklu og nýtízkulegu — og ekki sérlega ódýru skólabyggingar, sem hér hafa risiö að undan- fömu, og fullyrt er að vart eigi sínar hliðstæöur í öðrum hámenningarlöndum ... Þær leka allar meira eða minna. Með öðrum orðum, okkar hálærðu margsigldu og marglofuðu arki tektar eru ekki enn komnir þaö langt f kunnáttu sinni að þeir geti byggt regnheld hús, þó að þeir hafi ótakmarkað fé handa á milli til þeirra hluta... kannski er það einmitt aö þessu leyti, sem íslenzkar skólabygg- ingar eiga sér óvíða hliðstæður f öðrum menningarlöndum, kannski stendur vatnið þar ekki í pollum á gólfum og göngum hvenær sem dropi kemur úr lofti. Og enda þótt þessi leki hafi einungis komizt í hámæli í sambandi við nýjustu og „full komnustu" skólabyggingar okk ar, virðist nokkur ástæöa til að ætla að víöar leki, þar sem arki tektar vorir hafa verið að verki, því að varla er erfiðara að gera regnheld þök á skólahús en aðr ar stórbyggingar ... það væri annars ekki ófróðlegt, að hafizt yrði handa um hlutlausa gagna söfnun varðandj lekaþök á nýj-' ustu milljónahöllunum héma í höfuðstaönum meö tilliti til þess að nefnd lekasérfróðra manna yrði sett á laggimar, og meðlimir hénnar síðan sendir á kostnað hins opinbera um víöa veröld til þess að kynna sér hvar lekur og hvar lekur ekki.. og þá einkum hvers vegna aö lekur ekki þar, sem ekki lekur. En kannski eru það einungis skólahús okkar sem leka, og kannski er sá leki táknrænnar merkingar fyrst og fremst, og arkitekta okkar þar ekki um að saka? Hvað um það, nú er kom ið haust, og það má gera ráö fyrir miklum rigningum og þar af leiöandi miklum leka, einkum í þeim milljónahöllum höfuö- . staðarins sem hvergi eiga sér neinar hliðstæður í hámenning arlöndum... Meðan pabbinn var í polo sá Karl prins um allan aödáenda- hópinn. Kári skrifar: Hógværð í vegamálum J. J. sendir eftirfarandi pistii: Viö látum gjama skammir og vammir dynja á Vegamála „sjeffum" þessa lands, þegar við hristumst eftir malbomu ruðningunum, sem viö köllum akvegi. Þeir háu herrar eru raunar ekki öfundsverðir af þeirri hlið embættanna, sem að almenningi snýr, og hljóta þeir raunar aö hafa sæmileg laun fyrir. Til þess nú aö öðlast lýðhylli að minnsta kosti svona stund og stund, mætti ætla aö þeir sæju svo um að þar til gerð tól vega geröarinnar skæfu mestu malar hryggina ofan í stærstu holum ar á leiöum sem liggja á fjöl- sótt mannamót, svo sem helgar gaman í héruðum og landsmót meiriháttar félaga, sem víða eru haldin um land á sumrum. — En svo virðast þeir gjörsamlega lausir við alla löngun tll lýð- hylli, að þeir láta þennan mögu leika algjörlega lönd og leið, vitandi þó, aö menn reiðast miklu verr á tyllidögum (hátíð- leg reiði) en svona hvundags (hversdagsleg reiöi). Stórhátiöir kirkjunnar raska ekki heldur þessari hógværö. Það sannaöist síðastliðinn sunnulag, þegar biskupsvígslan fór fram í Skálholti og hefði þar þó gefizt gott tækifæri til þess að öðlast þakklæti fjöld- ans, því aö i Skálholt komu læröir og leikir víða af landinu. Léleg tfmaskynjun Forstööumönnum íslenzkra póstmála hefur oft verið núiö því um nasir, að þeir heföu ekki stórmerki sögunnar á tak- teinum. Það er að segja: þeir trössuðu aö gera merkum at- burðum sögunnar frímerki á viö eigandi tímum. Vegagerðini er að því leyti ööru vísi varið að aðgeröir hennar í virðingar- skyni við meika atburði eru bundnir nútlðin*ii og þvi sem er að gerast í dag, en vesalings Póst-“sjeffamir" verða að burð ast með söguna f kollinum. Það má vel vera að vegagerð og umhirðu vega séu settar þær skorður, að þetta skuli gerast í dag, og hitt á morgun og Vega- mála-„sjeffamir“ verði þess vegna að vita fram f tfmann tfl þess að samræma aðgerðir siu ar atburðum timanna og það er að vísu þrautin þvngri, enda hefur lítt tekizt að ieysa hana. J. J.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.