Vísir - 29.09.1966, Page 1
VISIR
56. árg. — Fimmtudagur 29. september 1966. - 222. tbl.
Steyptur vegur yfírHsllis-
heiBien ekki um Þrengsli?
Nú er verið að undirbyggja kafla milli
Sandskeiðs og Svinahrauns
Er núna í athugun hvort
Suðurlandsvegurinn á aS
liggja yfir Hellisheiði eða
JþrengJm^JJlelIisheiðarveg-^
Fyrsti samningu-
fundur huldinn
Stettarfélög flest með lausa samninga
Samningar stéttarfélaga renna
yfirleitt út nú um mánaöamótin
og hafa félögin því lausa samn
inga frá 1. október, aö undantekn
um stéttarfélögum skrifstofu- og
verzlunarfólks, sem hefur samn-
inga til 1. apríl n.k.
Tíöindamaður frá Vísi spurðist
fyrir um það hjá Vinnuveitenda-
sambandi I’slands hvort kröfur
væru farnar að berast frá félögum
og hvort nokkrir fundir væru byrj
aðir, og fékk þau svör. að Samband
jám- og skipasmiða hefði sett fram
kröfur sínar fyrir skemmstu, og
verið haldinn einn fundur með
samninganefnd þess, og hefði á
þeim fundi verið ákveðinn fram-
haldsfundur.
Verkamannafélagiö Dagsbrún
Claudio Arrau við píanóið. Myndina tók B. G. í morgun.
„Þið hufíð stórkostleg-
un hljómsveiturstjóru
— og hljómsveitin gerir sitt bezta
sagði hinn heimsfrægi pianóleikari
Claudio Arrau i viðtali i morgun
— Þið hafið stórkostleg-
an hljómsveitarstjóra og
eruð heppin meðan þið
getið haft hann. Hann er
einn af beztu tónlistar
mönnum, sem uppi eru.
Þannig mælti píanóleikarinn
Claudio Ar,rau jiegar Vísir hitti
hann snöggvast að máli í morg-
un, rétt áður en hann fór á æf-
ingu. Arráu leikur sem kunnugt
er með Sinfóníuhljómsveit Is-
lands á fyrstu tónleikum hennar
i kvöld í Háskólabíói, og leikur
þá 1. píanókonsert eftir Brahms.
— En hvernig finnst yður
hljómsveitin?
— Hljómsveitin — hún gerir
sitt bezta.
Arrau kom hingað í fyrra-
kvöld frá Stokkhólmi, en hann
hefur verið í hljómleikaferð á
Norðurlöndum, nú síðast á tón-
Iistarhátíðinni í Stokkhólmi. Héð
an fer hann í fyrramálið til
Þýzkalands.
Claudio Arrau er frá Chile,
en hefur verið búsettur í New
York síðastliðin 25 ár.
— Ég er hálft árið í Banda-
ríkjunum, og hálft árið í hljóm-
leikaferðum í Evrópu, Suður-
ii
Ameríku, Ástralíu, Asfu — um
allan heim.
— Leikið þér oft í Chlle?
— Þriöja til fjórða hvert ár.
— Hvaða höfundar eru yður
kærastir?
— Svo margir. Beethoven,
Brahms, Mozart, Schubert...
— Leikið þér einnig nútíma-
tónlist ungu höfundanna?
— Mig langar til þess að leika
verk ungu höfundanna, en því
miður hef ég allt of lítinn tíma
til þess að kynna mér þessi nýju
erfiðu verk. En ég æfi eins mik-
ið af þeim og ég kemst yfir.
Á tónleikaskrá Sinfóníuhljóm-?
sveitarinnar í kvöld er auk®
píanókonserts Brahms 7. sinfón-,
ía Beethovens. Tónleikarnir
hefjast kl. 8.30.
hefur ekki lagt fram neinar kröfur
enn sem komið er.
urinn 12 km styttri en leiðin
um'Þrengslaveg. Hefur reynsl
an sýnt, að vegurinn um Hell-
isheiði er fær 50 vikur á ári.
Verði vegurinn endurbyggður
og hækkaður nokkuð frá bví
sem nú er, eru enn minni
líkur til að Hellisheiði verði
ófær vegna snjóa.
Fyrir um mánuði var byrjað
að undirbúa kafla væntanlegs
Suöurlandsvegar, hraðbrautar,
sem á aö liggja frá Reykjavík
austur fyrir fjall að Skeiöavega-
mótum. Er gert ráö fyrir aö
hægt verði að undirbyggja 2—3
km vegarspotta úr Svínahrauni
i áttina að Sandskeiði. Veröur
undirbyggingin þannig, aö hægt
er að leggja malbik beint ofan
á hana.
Framh. á bls. 6.
J. W. Adair með likan af islenzku Boeing-þotunni eins og hún mun lita út.
„Mikil viðbrigði
að fá nýju þotuna"
— segir J. W. Adair, fulltrúi Boeing-verksmiðjanna
í viðtali í morgun eftir að hafa flogið með
gömlu DC-6B frá Kaupmannahöfn
„Við hlökkum til þess að geta hingað að ræða við framámenn F.l.
selt Flugfélaginu enn fleiri af vél-
unum okkar“, sagði J. W. Adkins,
fulltrúi'Boeing-verksmiðjanna í Se-
attle í Washington, en hann er hér
staddur ásamt 4 öðrum Boeing-
mönnum og er aðalerindi þeirra
Þrær hvarvetna fullar á Austfjörðum
70 skip með afla í nótt
Þróarrými er nú hvarvetna
orðið fullt á Austfjörðum, allt
norður á Vopnafjörð, en.þar var
örlítið piáss eftir í morgun.
Það er hver tankur fylitur jafn
óðum og hann tæmist því að
skipin bíða eftir löndun__Skip
in eru farin að sigla allt norður
til Raufarhafnar, en þangaö hef
ur ekki borizt síld svo að neinu
nerni í hálfan mánuö eða svo. —
4 skip komu þangað í nótt.
í nótt fengu 70 skip 8720 lest
ir þrátt fyrir norð-austan kald
ann, sem gerði þar seinni part
nætur.
Söltun er engin eins og er.
En sennilega verður hafizt
handa við söltun Póllandssíldar,
en hún má vera hvort heldur er
af Suöurlands eða Austurlands
miðum.
um hina miklu þjálfun á áhöfnum
félagsins áður en íslendingar taka
hið mikla skref inn í þotuöld, —
en það verður í maí n.k., þegar
nýja Boeing 727 þotan lendrr á
Keflavikurflugvelli.
„Við leggjum ekki bara áherzlu
á aö selja vélamar okkar“, sagði
Adair í morgun. „Við leggjum
engu minni áherzlu á að
vélamar séu reknar á hag-
kvæman hátt og öll öryggisatriði
séu eins og bezt verður á kosið.
Þetta gerum við með því að þjálfa
alla starfsmenn vélanna eins vel
og bezt verður á kosiö og skólinn
okkar í Seattle er talinn mjög góð-
ur“.
Boeing-þotur eru mjög vinsælar
á markaðinum og meirihluti þota í
farþegaflugi er frá þessum verk-
Framh. á bis. 6.