Vísir - 29.09.1966, Page 2
2
VISIR . Fimmtudagur 29. september 1966.
STRELTSOV
AFTUR MEÐ
Edouard Streltsov, sem fyrir nokkrum árum var mesta stjarna Sov-
étmanna í knattspyrnu, er aftur kominn fram i dagsljósið á knattspymu-
vellinum og átti í gærkvöldi að taka þátt í sínum fyrsta leik utan Sovét-
ríkjanna síðan 1958, en það var i leik Inder og Torpedo frá Moskvu i
Evrópubikarkeppninni.
$s> Streltsov var eins og kunnugt er dæmdur í 12 ára fangelsi fyrir
nauðgun fyrir 8 árum, en síðar var dómurinn mildaður í 7 ára fangelsis-
vist, en 1963 var honum loks sleppt eftir tæp 5 ár i fangelsinu.
/ Itmdslið eftir
4. flokkur B. — Fremri röð frá vinstri: Ragnar Ragnarsson, Helgi Björgvinsson, Ólafur Guðjónsson,
Helgi Benediktsson. Aftari röð frá vinstri: Róbert Jónsson þjálfari, Gústaf Nielsson fyririiði, Þórður
Hilmarss., Róbert Eyjólfss., Reynir Vignir, Sævar G uðjónss., Hörður Áraas., Stefán Sandholt þjálfari.
VALUR VANN 5 MÓT í
4. FLOKKI í SUMAR
Hinir ungu knattspymumenn
Vals hafa sannarlega ekki legið á
liði vsínu í sumar við að færa
félagi sínu sigra. Þannig hafa strák-
amfr 1 4. flokki A unnið alls sfna
leiki f sumar og öll þrjú .mótin og
skorað samtals 76 mörk gegn að-
eins 11. í haustmótinu fékk flokk-
urinn ekkert mark á sig, sem þykir
mjög vel gert.
B-liðið hefur líka náð góðum
árangri. Það byrjaði með því að
verða númer 2 á Reykjavíkurmót-
inu, en vann miðsumarmótið pg
haustmótið.
Hér fylgja með myndir af sigur-
vegurunúm úr Val, A og B-liðum,
ásamt hinum fengsælu þjálfurum,
sem færa nú félagi sínu 5 móts-
sigra úr 4. flokki.
3 ára þjálfun!
/ Nýlega er lokiö firmakeppni Golfklúbbs Suðumesja. Alls tóku
72 firmu þátt í keppninni, sem var útsláttarkeppni með forgjöf. —
Mörg óvænt úrslit uröu f þessari keppni, og lá margur kapp-
inn flatur fyrir þeim, sem skemmra voru komnir í íþróttinni. Svo
fór þó um sfðir, að Suðurnesjameistarinn, Þorbjöm Kjærbo, stóðst
allar árásir þrátt fyrir mikinn mismun í forgjöf, og sigraði hann
fyrir hönd Skóbúðarinnar Keflavík h.f. Þóri Sæmundsson, sem
keppti fyrir Bmnabótafélag íslands, Keflavíkurumboö.
Kepptu þeir 18 holur til úrslita
og hafði Þorbjörn 6 holur yfir þeg-
ar 5 voru eftir.
Suðurnésjameistarinn Þorbjörn
Kjærbo, hefir aðeins leikið golf i
3 sumur, en á þessum skamma
tfma hefir hann náð undraverðum
árangri. Hann sigraði á Suðumesja-
mótinu með yfirburðum og svo nú
í Firmakeppninni. Fyrr í sumar
sigraði hann f Coca Colakeppn-
inni í Reykjavík, varð annar í Meist
arakeppni Flugfélags íslands á Nes-
velli og í þriðja sæti á landsmótinu
á Akureyri.
Nú hefir Golfsamband íslands
valið Þorbjörn í landslið sem kepp-
ir á Eisenhowerkeppninni í Mexico
dagana 27. til 30. okt. n. k.
Dönsk blöb við sama heygarðshornib:
4. fiokkur A. — Talið frá vinstri: Vilhjálmur Kjartansson fyrirliöi,
Þorsteinn Helgason, Árni Geirsson, Jón Geirsson, Tryggvi Tryggva-
son, Ingi B. Albertsson, Hörður Hilmarsson, Þórir Jónsson, Jón
Gfslason, Sigurður Jónsson, Bergur Benediktsson, Stefán Franklín.
Minnast ekki á tapið fyr
ir íslandi og Svíþjóð!
Dönsk blöð hafa lengst af
þótt heldur hlutdræg í lýs-
ingum á íþróttaviðburðum
og hafa íslendingar oft orð
ið fyrir bárðinu á blaða-
mönnum þessum. — Eftir
landskeppni Dana, Svía og
íslendinga um síðustu
helgi kemur sama fyrir.
1 dönskum blöðum er alls staðar
slegið upp heilsíöu greinum um
nýja tugþrautarmethafann Jens
Schmidt Jensen og afrek hans. Er
ekkert út á það að setja. En hins
vegar lítur einna helzt út fyrir að
Dani þessi hafi veriö eini maður-
inn í Olofström. Það er hægt að
leita með logandi ljósi í dönsku
pressunni að úrslitum landskeppn-
innar, — sem var þó aðalatriöið,
en ekki er neins staðar getið um
aöra keppendur. Valbirni skýtur þó
upp í 1500 metra hlaupinu, en þá
aðeins sem gjörsamlega útkeyrðs
íþróttamanns, sem Daninn sigrar
auðveidlega.
Það rétta var hins vegar að
Danir höfnuöu í síðasta sæti eftir
mjög snennandi keppni allra þriggja
landanna. Var það mál manna í
Svíþjóð að betri tugþrautarkeppni
hefði ekki farið fram þar.
Þrír Svíanna bættu árangur sinn
og sá fjórði náöi sfnum næst-
bezta árangri. Sama var um Is-
lendingana að segja. Kjartan náði
sínum næstbezta árangri, en Ólafur
sínum langbezta. Er ekki vafi á að
næsta sumar verðuf barátta um
meistaratitilinn í tugþraut milli
þessara þriggja manna. Ekki er úti
lokað að á verðlaunapallinum verði
þrír menn með yfir 7000 stig, —
sem ekki allar þjóðir geta státað
af. Keppni þessara þriggja ætti að
laða aö sér hundruð ef ekki þús-
undir manna til að horfa á frjálsar
íþróttir á íslandi.
Staða aðstoðar-
borgarlæknis
er laus til umsóknar. Launakjör samkvæmt
samningi Læknafélags Reykjavíkur við
Reyk j avíkurborg.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist fyrir 1. nóvember n.k. til
undirritaðs, sem veitir nánari upplýsingar.
Reykjavík, 28. sept. 1966
BORGARLÆKNIR