Vísir - 29.09.1966, Side 8
8
V í S IR . Fimmtudagur 29. september 1C36.
VISIR
Utgefandi: BlaöaOtgáfan VISIR
Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
AðstoOarritstjórt: AxeJ Thorsteinson
Auglýsingar Þingholtsstræti 1
Afgreiðsla: Túngötu 7
Ritstjóm: Laugaveg: 178. Slmi 11660 (S Unur)
Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands. 1 (
( lausasölu kr. 7,00 eintakið
Prentsmiðja Vísis — Edda hi.
Skólamál í sviösljósi
Töluverð hreyfing og þróun hefur undanfarið verið
í skólamálum landsins. Sett hafa verið lög, sem miða
að nýskipan í iðnfræðslu og fræðslu vélstjóra og
stýrimanna, og Tækniskóli íslands hefur verið stofn-
aður. Þá hefur einnig verið skipuð nefnd til að vinna
að heildarendurskoðun íslenzka skólakerfisins og
starfa sérfræðingar að rannsóknum á vegum þessar
ar nefndar. Nú síðast var skipuð sérstök nefnd til að
gera áætlun um uppbyggingu Háskóla íslands á næstu (
árum.
Engin vanþörf er á að hreyfa myndarlega við þess-
um málum, sem legið hafa í láginni áratugum sam-
an. Skólamenn hafa rækilega bent á ýmsa vankanta
fræðslukerfisins, einkum á sviði almennrar fræðslu, ((
í barna- unglinga- og menntaskólum. Ekki vantar
áhuga kennara og skólastjóra á nýjungum. Sem dæmi
um áhugann má nefna kennaranámskeið, sem
fræðslumálastjórnin efndi til í Reykjavík í haust. *
N^lnskeiðin voru fimm og voru hin yfirgripsmestu, (
seifc haldin hafa verið til þessa hér á landi. Þátttak- (
enður í námskeiðunum voru nærri 200. Vakti þessi /
mikla þátttaka bæði undrun og ánægju skólayfir ,
valda. Þess má geta, að námskeiðin veittu engin rétt-
indi. Áhuginn einn seiddi kennarana til þeirra. '
Fræðsluyfirvöld- þurfa að notfæra sér betur hinn (
mikla áhuga skólamanna og koma á virku samstarfi (
við þá um nýbreytni í skólahaldi. Auka þarf notkun /
kennslutækja, reyna nýjar leiðir í kennsluaðferðum, ,
efla starfsfræðslu og gera námsskrána sveigjanlegri.
Það er sárgrætilegt að lesa viku eftir viku fréttir í er- >
lendum blöðum og tímaritum, þar sem fjallað er um (
nýjungar í skólamálum og ágætan árangur, sem leitt (
hefur af þeim, — og vita um leið, að þessar nýjungar ■
er flestar ókunnar hér. Margt þessara nýjunga á upp-
tök sín í Bandaríkjunum, þar sem skólamálin eru í
stöðugri deiglu og umsköpun. íslenzk skólayfirvöld
líta hins vegar fyrst og fremst til Norðurlandanna um
fyrirmyndir, en þar er minni hreyfing á þessum mál-
um. Hér þarf að víkka sjóndeildarhringinp.
Menntaskóli í nýjum stíl
{Jpphafsstarf Menntaskólans við Hamrahlíð spáir
góðu um framtíð skólans. Þar hafa verið fram-
kvæmdar ýmsar nýjungar. Sem dæmi má nefna, að
niður fellur hin gamla venja, að bekkir hafi fastar
kennslustofur, en í þess stað fær hver kennslugrein
eða flokkur kennslugreina sína kennslustofu. Auð-
veldar þetta mjög notkun tækja, áhalda og hand-
bóka við kennsluna. Undanfarin ár hafa framfara- fi
sinnaðir menntaskólakennarar við alla menntaskól-
ana verið að þreifa fyrir sér um nýja kennsluhætti,
einkum í stærðfræði, eðli§- og efnafræði og í nátt-
v úrufræðigreinum. Það liggur í loftinu, að margvís-
legar breytingar verði á menntaskólunum á næstu
árum.*
Diefenbaker
gagnrýndur
*
/ skýrslu
hæstaréttardómara
„Miinsinger-hneykslið" í Kan-
ada — nú talið hafa verið
miklu hættulegra mál en „Prof-
umo-málið“ á Bretlandi, er nú
mikið rætt, vegna þess, að harð-
ar deilur hafa risið út af því,
hvort John Diefenbaker fyrrver-
andi forsætisráðherra og leið-
togi íhaldsflokksins, geti veriö
formaður flokksins áfram, þar
sem hneykslið geröist í stjómar-
tíð hans, og hann er nú harð-
lega gagnrýndur af dómara þeim
sem fékk málið til rannsóknar,
en Diefenbaker er bardagamað-
ur og segir að hér sé um of-
sóknir að ræöa til þess að svipta
sig formennsku flokksins, og er
hinn vígreifasti.
Gerda Munsinger.
Munsingerhneykslið veldur á
ný stjórnmála-roki í Kanada
„Gerda Munsinger, fyrrver-
andi húsmóðir I Miinchen, fyrr-
verandi „call-girl“ (málvina m.
m., sem ekki þarf nema að síma
til og þá kemur hún), fyrrver-
andi sovézkur njósnari — kom
hinu kanadiska hneyksli af
stað“, þannig er upphaf yfirlits-
greinar um þetta mál, sem hér
er stuðzt við.
Þetta var fyrir misseri, en nú
„hriktir aftur í stoðum" í Ott-
awa vegna skýrslu dómarans,
sem falin var rannsókn málsins
og deilnanna um John Diefen-
baker.
Gerda var i Kanada 1955—
1961 — og það átti eftir að
bitna illa og óþægilega á ýmsum
stjómmálamönnum, að hafa ver-
ið kunningjar hennar, einkum
Sevigny fyrrverandl landvarpa-
ráðherra. Sjálf er Gerda nú.kom
in aftur til Miinchen og hugsar
um framtíðina — hún ætlar sem
sé að gifta sig innan tíðar —
kaupsýslumanni nokkrum. Og
hún svaraði nokkrum fyrirspum
um um sig greiðlega fyrir
nokkm (hafði áður verið fyrir
rétti í Kanada og verið opinská):
„Það er rétt, að nokkrir kana
diskir stjómmálamenn voru
mjög góðir vinir mfnir, en það
er ekki satt, að ég hafi nokkum
tíma verið sovézkur njósnari“
Og Musinger-hneykslið í Kan-
ada er aftur á Jagskrá og er á
ný mikill „fréttamatur".
Sevigny.
ÖRYGGI KANADA
Málið komst upphaflega á dag
skrá, er Lucien Cardin dóms-
málaráðherra stjómar Lesters
Pearsons, sem tók við af Dief-
enbakerstjóminni, svaraði fyrir
spumum og ásökunum um, aö
stjómin sinnti ekki sem skyldi
öryggismálum landsins. Á fundi
með frétt’' 'iönnum sagði Card-
in, að Diefenbaker og ráöherr-
ar hans ættu síðastir allra að
gefa öðmm hollráð varðandi ör-
yggismál, eftir að hafa komið
fram af ábyrgðarleysi i máli,
sem hafi verið miklu hættu-
legra en Profumo-málið brezka,
sem varð til þess að hinn brezki
landvamaráðherra varð að
segja af sér.
NAFN GERDU
Á ALLRA VÖRUM
Og eftir þennan fréttafund var
ekki um meira rætt um gervallt
Kanada en Gerdu Munsinger,
sem fæstir höföu heyrf nefnda á
nafn fyrr. Og það olli „pólitísk
um livirfilvindi", er fréttist um
hin nánu tengsl Gerdu og Sev-
igny landvamaráðherra, helgar-
ferðir þeirra til Miami suður á
Flóridaskaga, ferðir til Boston
til að vera viðstödd veðreiðar
o.s.frv. Og þáverandi verzlun-
arráðherra, George Hess, sem
var sagöur hafa átt að verða
flokksformaður á eftir Diefen-
baker, var' nefndur sem einn
af vildarvinum Gerdu, og sá
þriðji var maður þá nýlátinn,
George Nowlan, sem veið
hafði fjármálaráðherra í ráðu-
neyti Diefenbakers.
GAGNÁRÁS
íhaldsflokkurinn greip til þess
ráðs aö hefja hörkusókn á hend
ur Pearson-stjóminni, svo að
hún var í nokkurri hættu, en
til þess að bægja hættunni frá,
skipaði forsætisráðherrann rann
sóknarnefnd og formann henn-
ar Spencer hæstaréttardómara,
og það er skýrsla hans, sem nú
hefir verið lögð fram.
Skýrslan er hörð gagnrýni á
Diefenbaker og virðist staö-
festa, að ásakanir þær, sem fyrr
verandi stjórn varð fyrir hafi
haft við rök að styöjast.
í skýrslunni segir, aö Diefen-
baker hafi persónulega — þrátt
fyrir þær upplýsingar, sem h-nn
hafi fengið frá sfnum eigin
dómsmálaráöherra, — ákveðið
að láta varalandvamaráðherrann
Sevigny vera áfram í stjórninni,
— og forsætisráðherrann stöðv
aði jafnvel lögreglurannsóknir,
sem hafnar voru.
Ennfremur segir, að þaö gegni
furðu, aö forsætisráðherrann
skyldi ekki hafa gert yfirmanni
Sevignys, — Harkness land-
vamaráðherra — grein fyrir mál
inu — og ennfremur, að vart
væri hægt að hugsa sér embætti
girnilegra í augum njósnara og
fjárkúgara, en varalandvama-
ráðherrans, og erfitt að skilja
að í þessu embætti skyldi vera
hafður áfram sá maður, sem
grunur haföi falliö á vegna ör-
yggisáhættunnar.
í skýrslunni ef Gerdu Muns-
inger lýst sem fyrrverandi sovét
njósnara sem oftar en einu sinni
hafi verið gmnuö um þjófnaö,
verið dæmd fyrir þjófnað og hún
hafi verið alræmd gleðimær
(call-girl) í Montreal og þvl er
„slegiö föstu" í skýrslunni, þótt
Framh. á bls. 5.