Vísir


Vísir - 12.10.1966, Qupperneq 3

Vísir - 12.10.1966, Qupperneq 3
V í SIR . Miðvikudagur 12. október 1966. Leikurinn byrjar og endar á Knarrareyri, gömlum verzlun- arstaö — með nýja höfn, sem er ekki fullger, — einhvers staðar á suöurströnd íslands. Fyrsti þáttur gerist í byrjun júlímán- aðar 1945, annar og þriðji hér um bil mánuöi síðar. Þriöja sýning fjórða þáttar gerist á uppstigningardag 1946. Tjöldin eru dregin frá i Þjóð- leikhúsinu og búningaæfing hefst á Uppstigningu fyrsta leikritinu sem frumsýnt er þar á þessu hausti. Fremst í salnum situr „Hæst- virtur Höfundur’’ Siguröur Nor- dal og fylgist með æfingunni en aftar er leikstjórinn Baldvin Halldórsson og gefur frá sér ánægjuhljóð, þegar honum finnst leikurunum takast vel upp. Uppstigning eftir Sigurð Nordal eða „H. H.“ eins og höfundur kaliaði sig þá, var fyrst frumsýnt í Iðnó þann 8 nóv. 1945. Hér er mynd af einu sviðsatriöinu. Frá vinstri frú Skagalín, leikin af Önnu Guð mundsdóttur sem nú, Dúlla, Helga Möller, frú Baldvinsson, Amdís Bjömsdóttir, frk. Johnson, Regína Þórðardóttir, frú Davíösen, Emelía Jónasdóttir og séra Helgi, Láms Pálsson, sem jafnframt var leikstj. Uppstigning Þaö er verið að æfa þriðja og fjórða þátt leikritsins, leiksvið- ið er rúmgóð stofa í gömlu timburhúsi. aÞr sitja frú Skaga- lín og Daviðsen konsúll og ræða saman i trúnaði. Brátt koma inn aðrar aðalpersónur leiksins og aðdragandi leiksloka hefst. Það er ástæöulaust að rekja gang leiksins, sem leik- húsgestir munu sjá og kynnast, og sumir þeirra endurvekja upp gömul kynni viö, heidur skal leitaö i eftirmála við Jeik- ritiö þegar það kom út á prenti 1946, þar sem Sigurður Nordal gerir grein fyrir aðdraganda þess að leikritiö var samið, en það var 1945 á sama tíma og leikurinn gerist. um tíma fyrir annarra sjónir. Áður en varði, voru persónurnar famar að spila upp á eigin spýt- ur, tala eins og þeim þókn- aðist og jafnvel verða óþægar. Það mun vera satt, að fyrir mér hafi vakað leikrit í fimm þátt- um, þótt mér væri endirinn ó- ljósari en upphafið og nú skipti engu eða sé að mestu gleymt, hvernig botninn hefði þá orðið. En uppreisn sú, sem varð efnið í fyrstu sýningu fjórða þáttar, var ekki fyrirhuguð og kom flatt upp á mig. Úr því fór ég samt að hafa meiri skemmtun af efninu ...” Helgi, Erlingur Gíslason og Hæstvirtur Höfundur, Jón Sigurbjörnsson, á kolli Amarfellsins i byrjun fjórða þáttar. „Þegar vopnahlé var samið í Norðurálfu á síðast liðnu vori, með skjótari og vægari atvik- um en við mátti búast, fannst mér slakna ókennilega á öllum taugum eftir spennu styrjaldarár anna og niðurbældan kvíða fyrir miklu voveiflegri leikslokum. Víst er, að ég lenti alveg í bobba með allt það, sem ég vildi helzt gera, og gekk hvorki né rak. Ég átti ekki heiman- gengt og varð því að leita til- breytingar og viðra mig með öðru móti. 1 þessum öngum datt mér í hug að fitja upp á einhverju, sem ég hefði aldrei borið við áður. Fyrir mér varö hugmynd, sem hafði hvarflað lauslega að fyrir löngu, jafnvel sem efni í leikrit, þótt ekkert væri þá unnið úr henni, en rifjaðist nú upp við eftirvænt- ingu fólks og skraf um komu E<;ju frá Kaupmannahöfn. Ég byrjaði að hripa upp fyrsta þáttinn tveim dögum fyrir júnílok og var þá alveg granda- laus, að þau drög kæmu nokk- ■ Á refingu í Þjóöleikhúsinu. Byrjun þriðja þáttar. Frá vinstri: séra H elgi, Erlingur Gíslason, Davíðsen konsúll, Róbert Arnfinnsson, Dúlla, Margrét Guðmundsdóttir, frú Skagalín, Anna Guðmundsdóttir, frú Baldvinsson, Kristbjörg Kjeld, frk. Johnson, Helga Valtýsdóttir, frú Davíðsen, Guðbjörg Þorbjarnardóttir.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.