Vísir - 12.10.1966, Blaðsíða 16
STARFSFÓLKIBÆJARÚKERÐAR
HAFNARFJARBAR SAGT UPP
VISIR
Miðvikudagur 12. október 1966.
Eggert Gíslason.
Á fundi bæjarstjómar Hafnar
fjarðar í gær var sambykkt til-
laga um að segja upp öllu starfs
fólki Bæjarútgerðar Hafnarfjarö
ar, nema því, er gætti véla og
fiskbirgða fyrirtækisins. Var fil
lagan sambykkt með fr,atkvæö-
um gegn 3. Forsaga þessarar til
lögu eru miklar skuldir Bæjar-
útgerðarinnar og tap á rekstri
hennar undanfarin ár. Samtals
nema skuldir Bæjarútgerðarinn-
ar í Hafnarfirði í dag um 110
millj. króna, en að auki hefur
bæjarsjóður Hafnarfjarðar tekið
á sig skuldir útgerðarinnar, sem
nema 39 milljónum króna. Tap
Bæjarútgeröarinnar á sl. ári
nam 17,7 millj. króna, þar af
var beint rekstrartap fyrirtæk-
isins 11,5 millj. króna.
Með þessar óhugnanlegu stað
reyndir fyrir sér, báru bæjarfull
trúar Sjálfstæðisflokksins og
félags óháðra fram tillögu á
fundinum í gær, þar sem út-
gerðarráði bæjarfélagsins er fal
ið aö segja upp öllu starfsfólki
Bæjarútgerðarinnar í landi,
nema því, sem starfar við gæzlu
véla og annarra verðmæta. Þá
er útgerðarráði einnig í sömu
tillögu falið að gera ítarlegar at
huganir á því, hvort og á hvern
hátt unnt kynni að vera að
tryggja áframhaldandi starf-
rækslu fiskiðjuversins, svo og
annarra þátta fyrirtækisins, án
fjárhagsáhættu fyrir bæjarfélag
ið. Var tillaga þessi samþykkt
með atkvæðum Sjálfstæðis-
manna og félags óháðra, en á
móti greiddu atkv. bæjarfulltrú
ar Alþýðuflokksins og kommún
ista.
Á fundinum í gær kom m.a.
fram, að mesti aflatogari útgerð
arinnar og sá, sem yfirleitt hef
ur fengið bezt verð fyrir fisk
sinn erlendis Maí var rekinn
með 2,4 millj. króna tapi á sl.
ári, og x þessari tölu er ekki
innifalinn kostnaður vegna vaxt
argjalda og framkvæmdastjóm-
ar.
Bræðurnir með
afíahæstu skipin
Aflahæstu skipin samkvæmt
skýrslu Fiskifélags íslands, eru
Gísli Ámi RE sem kominn er
með nærri hálft 9. þúsund lesta.
Jón Kjartansson, Eskifirði, hefur
fengið 7.636 og eru það einu
bátarnir með yfir 7 þúsund lest-
ir. 20 skip hafa fengið yfir 5
þúsund lestir og fer skrá yfir
þau hér á eftir. Aflinn, sem
barst á land í síðustu viku nam
19.998 lestum og veiddist aðal-
lega í Reyðarfjarðardýpi. Söltun
nam 998 tunnum og 83 lestir
vikuaflans fóru í frystingu en
19770 lestir í bræöslu.
Heildarafli síldarvertíðarinnar
i sumar er þá oröinn 483.085
lestir og skiptist þannig eftir
verkunaraðferðum:
1 salt 55.617 lestir (380.936
upps. tn.). — í frystingu 2.067
lestir. — í bræöslu 425.401 Iest.
Landanir erlendra skipa voru
engar í vikunni. Á sama tíma i
fyrra var heildaraflinn 365.487
lestir og hafði verig hagnýttur
þannig: í salt 377.805 upps. tn.
(55.160 1.). — í frystingu 20.136
uppm. tn. (2.175 1.). — í bræðslu
2.282.604 mál (308.152 1.).
Reykjavík 32.078, Bolungar-
Frainh á bls 6
Nauðgaði 5 árastúlku
Þorsteinn Gíslason.
Rúmlega tvítugur maöur - úr
Reykjavík geröist sekur um það á
mánudag að nauðga 5 ára telpu í
Hafnarfirði. Var hann handtekinn
í gær og dæmdur í gæzluvarðhald
eftir frumrannsókn.
Maðurinn kom inn í Mánabúð í
Hafnarfirði á mánudaginn. Hitti
hann þar litlu stúlkuna og gat tælt
hana með sér út á Hvaleyrarholt
með sælgæti, sem hann hafði keypt
í Mánabúð fyrir 10 kr. — Rétt fyr
ir kl. 6 um kvöldið kom litla stúlk
Tveir ottu smyglið
Eins og skýrt var frá i Vísi í
I gær, fannst smygl í Vatnajökli á
| laugardaginn, þegar skipið kom til
í landsins frá Rotterdam og Ham-
I borg. Var það falið undir gólfum
við síður skipsins.
í gær höfðu tveir skipverjanna
viðurkennt að eiga áfengið, sem
var 55 lítrar af Genever og 60
lítrar af 75% Vodka samsvarar að
áfengismagni tveimur venjulegum
flöskum af sterku áfengi.
Rannsókn málsins er enn ekki
hafin, en þaö fer frá tollgæzlu-
stjóra til sakadóms í dag.
Vélskólanemi 160% „dýr-
mi" en Menntaskólanemi
Hver nemandi í Tækniskólanum og samanburðar aö hafa í huga hve | nemenda- og kennarafjöldi breyti-
Vélskólanum er um 160% dýrari „í búnaður skólanna er mismunandi, 1 legur o.s.frv.
an heim til sín og var þá illa út
leikin eftir átök við manninn.
Hringdi móðirin þegar til lögregl-
unnar í Hafnarfirði, sem sá svo til
að farið var með stúlkuna til lækn
is. Úrskurðaði læknirinn að um
nauðgun hefði verið aö ræða.
Afgreiðslustúlkur í Mánabúð gátu
gefið lýsingar á manninum, enda
fannst þeim hann hafa komið und
arlega fyrir. Einnig gat vagnstjóri
Landleiða gefið lýsingu á mannin-
um, sem vagnstjórinn þekkti.
í gær handsamaöi Hafnarfjarðar
lögreglan manninn í Reykjavík. Við
urkenndi hann brot sitt og seinna
í gær, eftir að málið var komiö
til sakadóms viðurkenndi hann að
hafa áður gerzt sekur um kynferð
isbrot gegn ungri stúlku.
rekstri“ en hver nemandi í Mennta
skólanum í Reykjavik og Mennta-
skólanum á Akureyri. Kemur þetta
fram I útreikningum sem gerðir
hafa verið í áætluðum kostnaöi við
þessa skóla 1967.
Reiknað er með að árskostnaður
á nemanda í Menntaskólanum í
Reykjavík (miðaö við nemenda-
fjölda síðaeta árs) veröi 18.250 kr.,
18.700 kr. við Menntaskólann á
Akureyri og 29.060 kr. við Mennta
skólann að Laugarvatni. Árskostn-
aður á nemenda í Tækniskólanum
er áætlaöur muni veröa 47.000 kr.
og 47.500 f Vélskólanum.
Meðalkostnaður á nemanda f
héraðsskólum gagnfræðastigs, sem
reknir eru af ríkinu er áætlaður
19.300 kr., en kostnaður viö þá
skóla er annars mjög misjafn, allt
frá 14.100 kr. í 23.300 krónur.
Þessar tölur segja ekki alla sög
una og veröar því vfð lestur þessa
Þorsteinn Viggósson — opnar dansstaö í Kaupmannahöfn.
ÍSLENDINGUR 0PNAR DANSSTAÐ
í KAUPMANNAHÖFN í DAG
Ungur íslendingur, Þorsteinn
Viggósson opnar í dag dansstaö
í húsakynnum kaffistofu sem
hann hefur rekið s.l. hálft ann-
að ár að Gothersgade 15 í Kaup-
mannahöfn. Er þama um að
ræða það sem erlendir nefna
diskotek, þar sem dansað er
eftir hljómplötum.
Þessi kaffistofa er ein af elztu
kaffistofum Kaupmannahafnar
og er sagður hafa verið mikill
menningarblær yfir henni á fyrri
öld. Á árunum nýlli 1930 og 40
hafði Alþjóöa sjómannasamband
ið samastað í þessum húsakynn
um og á stríðsárunum var kaffi-
stofan þekktur svartamarkaðs-
staður og á seinni árum hefur
hún verið undir eftirliti vegna
eiturlyfjasölu, að því er danskt
blað upplýsir í sambandi við
viðtal við Þorstein.
Þorsteinn hefur sjálfur unnið
að því aö innrétta dansstaðinn
sem er einhvers konar sambland
af veitingahúsi í „villta vestr-
inu“ og helli. Til skreytinga
innréttinga hefur hann notað
net, gifs, léreft og gömul dag
blöð. Fékk hann hugmyndina að
,,diskotekinu“ á ferðalögum
þeim sem hann hefur farið með
Tjæreborgarprestinum fræga.
Þorsteinn sagði fyrir skömmu
í fyrrnefndu viðtali við danskt
blaö að hann hefði tryggt sér
forkaupsrétt aö kaffistofunni og
myndu kaupin ganga í gildi í
vor og hann verða eigandi henn-
ar.
Þorsteinn kom fyrst til Kaup
mannahafnar þegar hann vat\18
ára, lærði matreiðslu og hélt að
námi loknu til íslands þar sem
hann var m. a. viö rekstur
Glaumbæjar, en hélt síðan utan
aftur og er nú túsettur í Kaup-
mannahöfn og kvæntur danskri
konu.