Vísir - 22.10.1966, Blaðsíða 1

Vísir - 22.10.1966, Blaðsíða 1
VISIR 56. árg. — Laugardagur 22. október 1966. - 242. tbl. Tekjur verkamanna jukust og vinnutími styttist '64—'65 — samkvæmt athugunum Kjararannsóknarnefndar Meðalársvinnutími verkamanna í Reyklavík var 2861 klukkustund árið 1965, eða 2.2% styttri en árið áður. Meðalárslaun þessara manna voru 171 þúsund krónur eða 16% hærri en drið áður. Kemur þetta fram í nýútkomnu fréttabréfi Kjararannsóknanefndar, sem hefur reiknaö þetta út samkvæmt úrtaki. Laun stjómenda véla og tækja hækkuðu mest, um 18% í 191 þús. kr., laun aðstoðarmanna við fag- vinnu hækkuðu um 16% í 168 þús. kr. og laun almennra verkamanna ttm 14% f 163 þús. kr. Vinnutími aðstoðarmanna styttist mest, um 4%, hjá almennum verkamönnum um 2% og hjá stjórnendum tækja um 1%. Samkvæmt úrtaki lengdist vinnutími iðnaöarmanna í tíma- vinnu úr 2743 stundunt á ári 1964 i 2856 stundir árið 1965, eða í svip aða tölu og hjá verkamönnum. Með altímakaup iðnaðarmanna í dag- vinnu hækkaði um 24% í 64.90 kr. Meðalárslaun hækkuðu um 28% í 234 þúsund krónur. Framh. á bls. 6. Hús Kristmanns í Hvera að veitingasal gerði Þessi mynd er af hluta alikalkúnanna hjá Jóni G uðmundssyni. Væntanlega verða þeir á einhverjum jólaborðunum. Garðshorn, hús það, sem Krist- mann Guðmundsson, rithöfundur, átti í Hveragerði verður aðalkjam inn í Hvíldarheimilinu Ásbyrgi, sem Eilihcimilið Grund er að láta byggja i Hveragerði. Verður Garös hom veitingasalur hússins. Er hvfldarheimiiiö ætlað fyrir lasburða eldra fólk, sem þarfnast hvíldar og næðis, eftir því sem Gísli Sig- ttrbjömsson forstjóri Grundar tjáði fslenzkur kalkúnn á markaðinn fyrir jól — Jón á Reykjum hefur hafið kalkúnarækt Jón Guömundsson, bóndi að Reykjum í Mosfellssveit, sem fyrir löngu er kunnur sem at- hafnamaður á sviði alifuglarækt- ar, hefur nýiega hafið ræktun ali kalkúna. Til þessa hefur alifugla starfsemi Jóns aöallega takmark azt við kjúklingarækt og hafa verið aldir kjúklingar af svo- kölluðu „Plymouth Rock“ kyni Hefur sú starfsemi gefið aligóða raun. Nú hefur Jón sem sé tek ið þá ákvörðun að færa út kvíarnar og hefja starfrækslu kalkúnræktarstöðvar. Að því er Jón sagði frétta- manni Vísis á dögunum, er hann Bæklingur um íslenzka hrað- ritun kominn út Nýlega er kominn út handritað- ur bæklingur, sem nefnist „Drög SAS-flug tíl íslunds innan fveggja ára Norræna flugfélagasamsteyp- an SAS hefur tilkynnt Fiugfé- lagi íslands, að innan tveggja ára muni félagið hefja sam- keppni við Flugfélag íslands á flugleiðum milli íslands og Norðurlanda. Kom þetta fram í sjónvarpsþættinum „I brenni- punkti,“ sem Haraldur Hamar blaðamaður stýrir. Staðfesti Örn O. Johnson, for stjóri Flugfélagsins, að bréf hefði komið þess efnis frá SAS, en Flugfélagið og SAS hafa löng um átt góða samvinnu sarnan. Kvað Öm þetta mjög eðlilega þróun stóraukinna flutninga á flugleiðum þessum. SAS hefur yfir að ráða þotum á öllum flugleiðum, en senni- legt er að SAS mundi nota i þessu skyni DC-8 þotur, sem m.a. eru í förum frá Norður- löndum til Bretlands. að íslenzkri hraðritun-hraðritunar- tákn algengustu orða“. Þaö er Jón Ögmundur Þormóðsson, stud. jur., sem hefur tekið bækling þennan saman. Með bæklingi þessum er ekki ætlað að kenna hraöritun til hlítar, þar eð slík hraðritun getur aldrei orðið almenningseign, að þvi er höfundur segir. í stað þess býr bæklingur þessi hraðritunina þeim búningi, sem á að geta hentað öll- um. Bækiingurinn gefur lesendunum kost á að læra algengustu orð ísl. tungu og gerir mönnum fært að rita hraðritunartákn algengustu orða ís lenzkra á mettíma. Em því notuö einföld og Ijós hraðritunartákn yf- ir þessi orð, í raun og vem skamm stafanir á sviði hraðritunar. Segir höfundur, að æfðir hraöritarar geti náð geysilegum skriftarhraða, allt að 250 orðum á mínútu. Bækling urinn er fyrst og fremst ætlaöur til sjálfsnáms og er hann því mjög aðgengilegur, m.a. eru mikilsverð atriði, sem koma fyrir i bæklingn- um, undirstrikuð. Þá segir höfund ur og að hreinritun hraðritunartákn anna sé algerlega ónauösynleg, ef skrifað er til eigin notá, því að auð velt og fljótlegt sé fyrir þann, sem kunnáttu hafi til, að lesa táknin. Má þvf halda að margir, svo sem ræðu menn, fyrirlesarar, blaðamenn, lær dómsmenn (einkum háskólastúdent ar) og enn fleiri geti haft mikið gagn af bækiingi þessum. Höfundurinn, Jón Ögmundur Þormóðsson, er ungur Reykvíking ur, stúdent frá máladeild Mennta- skólans f Reykjavfk, en stundar nú iögfræðinám við Háskóla íslands. Verð bækiings þessa er kr. 135 með söluskatti. bjartsýnn á kalkúnræktina. Hann býst við að geta sent á markaðinn fyrir jólin um 75 kalk úna, en hver þeirra vegur um 5 kg. Ekki kvaðst Jón kvíða því að geta ekki selt kalkúninn, enda er hann talinn herramanns matur. Jón kvað byrjunina að þessari ræktun vera þá, að hann keypti egg frá Noregi, og hefur hann síðan alið ungana í sum- ar. Kalkúnamir eru af svoköll uðu „Beltsville White“ kyni, en það er nefnt eftir borginni Belts ville í rfkinu Maryland á vest- urströnd Bandaríkjanna. 1 þeirri borg var fyrrgreint kyn ræktað upp, eftir allvíðtækar kynbætur Er það samdóma álit sérfræð- inga, að kynbætur þessar hafi tekizt afburðavel, enda eru Bandarfkjamenn framarlega á bessum sviðum. blaöinu i gær. Eru l'ramkvæmdir viö húsbygginguna hafnar. Sem kunnugt er hefur Eiliheim ilið rekið um 14 ára skeið nokkur dvalarhús í Hveragerði fyrir eldra fótk, hjón, sem vilja vera út af fyrir sig og sjá um sig sjálf, en geta notið aðstoöar frá aðalbygg- ingu Eliiheimilisins á staðnum þar sem þjónustufólkið er til húsa. Tvö ný hús verða væntanlega telrin í notkun fyrir áramót til viðbótar irin um 16 sem Elliheimilið á þar fyr- ir. í hverju húsi eru tvær íbúðír, 50 fermetrar hvor. Heimsókn Clevelands Um þessa helgi er fastafulltrúi Bandaríkjanna hjá NATO, Harlan Cleveland og kona hans væntan- leg hingað til lands í kynnisferð í boði íslenzku ríkisstjómarinnar. Á sunnudagskvöldið munu am- bassadorshjónin sitja kvðidverðar- boð utanríkisráöherra, en á mánu dag flytur ambassadorinn erindi á hádegisverðarfundi Varðbergs og samtaka um vestræna samvinnu. Sama dag ræðir ambassadorinn við íslenzka ráðamenn. Þá mun hann og á mánudag aka til Þingvalla, en um kvöidið sitja kvöldverðarboö James K. Penfield, ambassadors Bandaríkjanna á íslandi. Á þriðju- dag kynnir ambassadorinn sér stöð vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli en sfðan halda hjónin heimleiðis. Ánægðir með landið sem þeim var úthlutað — Rifin girðing við Breiðholt hafði i fór með sér meiri ágang sauðfjár i borginni i sumar — Talað við Ágúst Kristjánsson, formann Fjáreigendafélags Reykjavikur Fjáreigendur í Reykiavík eru inótfallnir fjárbanni í borginni og hafa að undanförnu staðið i samningaviðræðum við Reykja víkurborg um að fá land við Ilólmstungu. Verður gengið frá samningunum bráðiega en fjár- cigendur fá iandið til 18 ára. Sem kunnugt er af fréttum í Vísi eiga sauðfjáreigendur að vera búnir að rýma Fjárborg, aðsetursstað sinn við Breiöholt, þann 1. júlí 1967. Talaði blaðið við Ágúst Kristjánsson formann Fjáreig- endafélags Reykjavíkur, sem sagði eftirfarandi: „Við höfum staðið í samningum við Reykja- vikurborg um að fá iand uppi hjá Geithálsi, Hólmseyri, en borgaryfirvöldin hafa farið fram á það að við flvttum þangað næsta sumar.Ekki er endanlega gengið frá þeim samningum ennþá en mun verða gert núna bráðlega. Nokkrir fjáreigendur fengu bréf frá lögreglustjóra um að hverfa úr bæjarlandinu fyrir 1. nóvember ella yrði féð tekið af þeim. Stjórn Fjáreig- endafélagsins hefur farið fram á að þessir menn fái að vera á sínum stöðum, sem eru utan Fjárborgar, þangað til allir fara upp í Hólmstungu og var það samþykkt á fundi borgarráðs. Erfitt hefði verið fyrir þá að standa í flutningum þar sem þeir voru búnir að afla sér heyja og annars sem þarf fyrir vetur- inn. Það hefur verið talað um fjárbann í borginni, sem er mis- skilningur þar sem þessi biett- ur, sem við fáum til umráða er Framh. á bls. 6.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.