Vísir - 22.10.1966, Blaðsíða 15

Vísir - 22.10.1966, Blaðsíða 15
V í S I R . Laugardagur 22. október 1966. 15 \ Hann hló. — Áttu við aö hún sé heppin, að eignast High Trees. Hún hristi höfuöið. — nei, ég á við að hún skuli hafa fengið þig fyrir mann. Og nú... Hún stóð upp og fór allt í einu að skjálfa, er greinarnar yfir höfðinu á henni bærðust í golunni. — Við skulum fara inn. Við eigum sjálfsagt að fara að b'orða. Það er réttast að þú seg- ir Fran, að frú Mayfield sé illa við að bíða með matinn. Það gæti orð- ið misklíð út af því. Jenny heyrði að Chris ók burt og hún leit á klukkuna. Hann ætl aði sér að koma stundvíslega á brautarstöðina. Hann hafði verið eins og ijón í búri síðasta klukku- tímann. Alltaf að líta á klukkuna, eins og hann væri að telja mínút- urnar þangað til hann fengi að sjá konuna sína aftur. Og þó var ekki nema tæpur sólarhringur síðan þau skildu. Jenny varp öndinni. Hún hafði afráðið að verða ekki þama nema einn eða tvo daga, en hún hafði ekki minnzt á það við Chris. Hún ætlaði að taka á móti Fran á nýja heimilinu hennar og síðan að fara til London. Að visu var íbúðin hennar ekki laus, en það skipti minnstu. Alls staðar var hægt að fá gistihúsherbergi. Og henni hafði jafnvel dottið í hug að fara I ferða iag um tíma. Hún mundi ekki hve- nær hún hafi tekið sér frí síðast Hver veit nema hún gæti gleymt giftingu Chris, ef hún tæki sér frí um tíma og færi — helzt til út- landa? Henni var nauösynlegt að geta gleymt honum. Hún fór upp og leit yfir herberg- ið, sem Chris og Sally höfðu sofið í forðum, og sem Fran átti nú að sofa f. Hún hafði hálfvegis bú- izt við að hann veldi þeim eitt- hvert annað svefnherbergi, en hann hafði talið sjálfsagt að nota gamla herbergið. Frú Mayfield var allt annað en hrifin af aö eiga að fá nýja hijs- freyju á heimilið. Jenny sá það á henni, að hún hafði þegar einsett sér aö hafa andúð á síðari konu Chris — hún þurfti ekki að sjá hana til þess. Jenny reyndi að láta ráðskonuna halda, að hún væri hrifin af því sem gerzt hafði. Hún hafði sagt: — Þetta var það boea fyrir herra West. Og fyrir börnin líka. Og ég veit að fyrri kona hans hefði ekki óskað þess að hann gift- ist ekki aftur. En frú Mayfield hafði bara fuss að og gagt, að hún ætlaði að sjá til hvemig þetta gengi, áður en hún afréöi hvort hún yrði áfram eða ekki. Það hefði verið ánægja að vinna fyrir frúna... — og lika meö yður, ungfrú Jenny. En ég hef einkennilega nasasjón af öllu nýju fólki Ég veit dálítið um þessar frúr, sem hafa átt heima í hitabelt- inu og hafa haft í kringum sig sæg af innfæddu vinnufólki. Ég vann einu sinni hjá einni þeirra. Hún ætlaðist til að ég stjanaði við sig allan sólarhringinn, en það ætla ég mér ekki að gera oftar. Jenny vaknaði af heilabrotuhum við að Claire og Micháel- komu hlaupandi til hennar. Hún halíaði sér fram og tók utanum þau bæði. Og ósjálfrátt datt henni í hug hvernig það mundi verða, að vera án þeirra. — Er hann þabbi farinn á stöð- ina? — Já, Michael. — Kemur hann bráðum aftur? — Það hugsa ég — eftir nokkr- ar mínútur. Hvernig mundu börnin taka á móti stjúpmóður sinni? Chris haföi sagt þeim 1 morgun að hún mundi koma í dag. Hún vissi ekki hvern- ig hann mundi hafa komið orðum að því. Hún hafði ekki verið við- stödd. Og húp vissi ekki hve mik- ið þau skildu. Michael virtist hafa skilið að hann ætti að fá nýja mömmu, en Claire var of ung til þess að géta gert sér grein fyrir hvað var að gerast. Eða var hún það ekki? — Þú ætlar ekki að fara, Jenny? sagði Claire allt í einu og tók um hálsinn á henni. — Nei, væria mín, ekki strax, sagði Jenny, hún gat ekki sagt ann að. — Á nýja mamman okkar að vera hérna alltaf? spurði Michael — Já, góði minn. Claire horfði hátíðleg á Jenny: — Af hverju kemur hún? Jenny varö fegin því, að í sömu andránni heyröu þau bílinn aka inn úr hliðinu. Michael hljóp út eins og ör væri skotið og niður í garöinn. En Claire var ófram- færnari og hélt sér í Jenny, og þær urðu samferða út. Frú May- field gægðist út um eldhúsdyra- gættina. — þarna kemur hún, sagöi hún drungalega. — Við verðum eflaust öll hrifin af. henni, sagði Jenny. — Herra West ségir að hún sé engill. — Já, vitanlega, sagði hún og hristi hausinn. Bíllinn stanzaði við dyrnar og Chris vatt sér út og opnaöi dyrn- ar hinum megin. Jenny sýndist fyrst í stað, að þessi nýja frú væri svipuðust skólatelpu. Hún virtist ótrúlega ungleg, af giftri konu að vera. En Chris hafði ekki ýkt neitt þegar hann sagði að hún væri ljómandi falleg. Hárið var greitt í hnút í hnakkagrófinni. Hún var grönn eins og sefstrá, með fall- egar hendur og fætur. Jenny fannst dálítið austrænn svipur á henni. — Jenny! Gaman að kynnast þér! Chris hefur sagt mér svo i margt um þig .. . Svo þagnaði hún | og rétti fram hendurnar til barn- anna. — Og þarna eru Michael og Claire! Ó, Chris, mikið eru þau yndisleg! En börnin hörfuðu undan jafn- vel Michael var feiminn, aldrei þessu vant. — Viltu ekki kyssa mig? ; — Nei, svaraði Michael stuttara- lega. Chris tók í hárið á honum.i— Ég þbri að veðja um, að þetta er í fyrsta skiptið, sem þér hefur verið neitað um koss Fran, sagði hann og hló. Fran lokaði augunum sem snöggvast, en svo brosti hún. — Það er mér nær að halda, sagði hún. Jenny fannst hún aldrei hafa séö girnilegri stúlku. Engin furða þó Chris hefði orðið ástfanginn af henni. Fran rétti úr sér og leit í kring- um sig. — Þetta er yndislegt hús, sagði hún. — Og hvílíkur garður! Hún tók undir handlegginn á Chris og þrýsti hann. — Ekki datt mér í hug að þaö væri svona yndis- legt héma. Chris var glaður og ánægður. Hann leit með tilbeiðslu á Fran. — Ég reyndi að lýsa staðnum, eins vel og ég gat, elskan mín. — Ég veit það, en þú hefur ekki lýst honum nógu vel. — Nú skulum við koma inn, sagði hann. — Ég ætla að sýna þér húsakynnin. Og þá verður þú að sjá frú Mayfield og Lily. Þær biðu báðar í fordyrinu og Chris kynnti þær. — Ég vona að þið verðið góðir kunningjar og komi vel saman, sagði hann. — Ég veit að við verðum það, sagði Fran. Hún brosti til frú May- field og hélt áfram. — West hefur sagt mér hve ágætlega þér hafið hugsað um heimiliö fyrir hann. — Mér hefur alltaf veriö ljúft að reyna að gera honum til hæfis. Og fyrri konunni hans líka. Fran roðnaði ofurlítið. — Ég vona að þér hafið gaman af að vinna fyrir mig líka, frú Mayfield., Frú Mayfield og Lily hurfu inn í eldhúsiö og Chris fór með Fran upp á loft. Hann kyssti hana á kinnina og Jenny fannst að hann mundi hafa gleymt aö hún og böm Passamyndir Teknar í dag — Tilbúnar á morgun. Sér tímar eftir samkomulagi. Ljósmyndastofa Péturs Thomsens Ingólfsstræti 4. Sími 10297, eftir kl. 7 sími 24410. ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR úr harSpIasti: Format innréttingar bjóffa upp á annað hundraff tegundir skópa og litaúr- val. Allir skdpar meS baki og borffplata sér- smíffuff. Eldhúsiff fæst moff hljéffcinangruff- um stélvaski og raftækjum af vönduffustu gerff. - Sendiff effa komiff meff mél af cldhús- inu og viff skjpuleggjum eldhúsið samstundis og gerum yffur fast verðtilboff. Ótrúlega hag- stætt Yerff. Muniff aff söluskattur er innifalinn í tilboffum fró Hús & Skip hf. Njótiff hag- stæffra grciðsluskilmóla og iækkiff byggingakostnaffinn. IIIEFF RAFTÆ Kl HÚS &SKIP.hf. LAUGAVEGI II • SIMI 21515 "l SUPPED BACK 7D THE CAB/N-ITHAD BEEN PANSAŒED... MYANGEK KNEW NO BOUNDS/... ' It was d/shearten/ng 70 SEE TNAT TNOSE OF MY PACE WEPE NO MOPE C/WUZED TNAN THEAPES...THEY LEFT THE DEAD MAN AND ROWED AWAY... Það var ekki uppörvandi, að sjá það, að meðlimir kynþáttar mins voru ekki siðmennt aðri en apamir ,... þeir skildu dauða mann inn eftir og rera í burt. "THEN IHEAPD A STPANGE NO/SE- WEKE THEY COM/NG BACK ? * Ég fór aftur til kofans — hann hafði verið rannsakaður og reiði mín átti sér engin takmörk... Þá heyrði ég einkennilegan hávaöa voru þeir að koma aftur? in væru til. Hún heyrði hann segja: — Elsku Fran, það er dásamlegt að þú skulir vera komin hingað. Þú veizt að mig langar til að evða ævi minni til þess að gera þig hamingjusama. Nú leið mánuður og annar til, og Jenny hafði enn ekki ráðiö við sig að fara til London. Chris og Fran stóðu ekki viö heima nema tvo daga, svo fóru þau í brúökaups- ferö til Parísar og P.óm. Orðsending Nú geta þeir bíleigendur, sem aka á hálfslitnum eða slitnum sumar- dekkjum látið breyta þeim í snjó- munstruð-dekk á aðeins 20 mín. og kostar aðeins frá kr. 100 (pr. dekk) Verið hagsýn og verið á undan snjónum. Við skoðum ykkar dekk að kostnaðarlausu. Opið virka daga kl. 8-12.G0 og 14 - 20, laugardaga frá kl. 8 - 12.30 og 14 -18, og sunnudaga eftir pöntun 1 síma 14760. MUNSTUR OG HJÓLBARÐAR Bergstaðastræti 15 (gengið inn frá Spítalastfg) METZELER hjólbarðamir eru sterkir og mjúkir, enda vestur-þýzk gæða- vara. Hjólbarða- og benzinsalan við Vitatorg. Sími 23900 Barðinn h.f. Ármúla 7. Sími 30501 Ai.eenna Verzlunarfélagið h.f. Skipholti 15. Slmi 10199

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.