Vísir - 24.10.1966, Blaðsíða 8

Vísir - 24.10.1966, Blaðsíða 8
8 VISIR Utgefandi: BlaOaOtgáfan VISBR Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axe) rhorsteinson Auglýsingar; Þingholtsstræti 1, simar 15610 og 15099 Afgreiösla: Túngötu 7 Ritstjórn: Laugavegi 178 Slmi 11660 í-t> nnur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands. t lausasölu kr. 7,00 eintakið Prentsmiðja Vlsis — Edda h.f Befri blabamennska jVlestar menningarþjóðir mennta blaðamenn sína sér- staklega til þess starfs. Víðast er blaðamennska kennd sem grein í heimspekideildum háskóla, en einn ig eru algengir sérskólar í blaðamennsku. Þessu námi er haldið úti á þeim forsendum, að það skipti þjóðfé- lagið miklu, að blaðamenn hafi máltilfinningu, séu fróðir um almenn málefni og hafi talsverða tungu- málakunnáttu. Hér á landi hafa málin ekki enn þróazt svo langt, að ungt fólk eigi kost á námi í blaðamennsku. Oftast gerast menn blaðamenn alveg óundirbúnir. íslenzkir blaðamenn og útvarpsmenn eru oft gagnrýndir fyrir mistök í málfari, lélegar þýðingar og þekkingarskort á þeim sviðum, sem þeir skrifa um. Þessi gagnrýni er stundum óréttmæt og stundum réttmæt. Það dylst samt ekki, að margt mætti betur fara í íslenzkri blaða- mennsku. Þetta er ekkert smámál, því útvarp, sjón- varp og dagblöðin hafa geysileg áhrif og tilsvarandi ábyrgð. Bezta leiðin til að bæta blaðamennskuna er að kenna hana á skipulegan hátt. Oft hefur verið bent á nauðsyn þess að hefja slíka kennslu við Háskólann. Þessu máli hefur verið hreyft undanfarið og hefur komið í Ijós mikill skilningur ráðamanna. Að sjálf- sögðu óttast menn alltaf kostnað, en í þessu tilfelli er ólíklegt, að kostnaður yrði mikill. Nauðsynlegt yrði að ráða sérstakan kennara til þess að fjalla um blaðamennsku á hreinum, fræðilegum grundvelli, og um hinar tæknilegu hliðar blaðamennsku, útvarps- mennsku, útgáfustarfsemi og blaðafulltrúaátarfa. Hins vegar hefur Háskólinn starfskrafta til að kenna ýmsar hliðargreinar blaðamennsku. Þar eru kennd íslenzk fræði: málfræði, setningafræði og bók- menntir. Þar eru kennd nokkur erlend tungumál. Og þar eru kennd landafræði og saga, íslenzk og alþjóð- leg. Allt eru þetta greinar, sem eru eðlilegur þáttur í blaðamennskunámi. Og í flestum tilfellum væri hægt að notast við núverandi fyrirlestraflokka. Eðlilegt er að hugsa sér, að B.A.-prófsnám í blaða- mennsku fæli í sér nám í hreinni blaðamennsku, ísl. fræðum, landafræði og sögu, og í a.m.k. einu erlendu tungumáli. Þessum greinum má raða saman á ýmsan hátt til þess að námið jafngildi hinum níu prófstigum, sem mynda B.A.-próf. Full þörf er á verklegu námi meðfram hinu bóklega og mætti leysa þá hlið máls- ins í samstarfi við dagblöðin og Ríkisútvarpið, t.d. með sumarstarfi á þessum stofnunum. Hinn aukni kostnaður, sem Háskólinn hefði af kennslu í blaða- mennsku til B.A.-prófs, yrði lítið meiri en kostnaður við kennslu í einu erlendu tungumáli. Þjóðinni er það mikið hagsmunamál, að sem minnst bið verði á afgreiðslu þessa máls. \\ \ \ : 7 V í SIR. Mánudagur 24. október 1966. Þessi böm dveljast í stærstu flóttamannabúöum veraldar I Palestínu. Þau eru enn þá ekki orðin sér meðvitandi um áhyggjur og þungbært líf fulloröna f ólksins I flóttamannanýlendunni. Flóttamanna- stofnun Sameinuðu þjóðanna stuðlaði að því að þessar búðir vom reistar. ISÍ WtiÉíM U WmMm lllll Wm 5 TIU KRÓNUR HANDA FLÓTTAFÓLKI Þegar stórhörmungar skella snögglega yfir, rótar það upp tilfinningum manna um allan heim, og fólk reynist almennt mjög örlátt og hjálpfúst. En sjö ár eru liðin síðan Tíbezku flóttamennirnir og vandamál þeirra voru forsíðuefni heims- blaðanna. 1 dag era þeir litið annað en ein af hinum hálf- gleymdu raunasögum samtíðar- innar. ★ Mánudagurinn 24. október n. k. er dagur Sameinuðu þjóð- anna. í ár er dagurinn tileink- aður vandamálum flóttafólks. Þann dag taka meira en tuttugu lönd Evrópu höndum saman og safna fé. Þessu fé verður varið til’ að veita vandamálum Tí- bezka flóttafólksins í Indlandi varanlega lausn. Með tíu króna framlagl yðar, og annarra lands- manna, geta islendingar veitt tvö hundrað flóttamönnum frá Tíbet þak yfir höfuðið, vatnsból, búpening og landbúnaðarverk- verkfæri, sem gera þeim kleift að sjá sér og bömum sínum far- boröa. ★ Með sameiginlegu átaki Evrópuhúa verður hægt að hjálpa 30.000 Tibezkum flótta- mönnum og bömum þeirra. Ef augu manna opnast fryir því nú — fyrir atbeina Evrópsku flótta mannasöfnunarinnar hvílfk oln- bogabörn þessir flóttamenn eru eftir sjö ára útlegð, fjarri heima landi sínu, væri hægt að ná saman nægilegu fé til að hjálpa þeim á fáum dögum. í dag býr flóttafólkið viö hinar hörmu- legustu aðstæður, innan skamms getur það hafið nýtt líf — MEÐ YÐAR HJÁLP. Framtíð þessa fólks og barna þeirra er í okkar höndum. Sýnum traust okkar á Sameinuðu þjóðunum og mál- efnum þeirra með framlagi til flóttamannasöfnunarinnar. Tiu krónur hrökkva skammt hér- lendis, en tiu krónur frá okkur nægja til þess að leysa vanda- mál 200 Tibezkra flóttamanna í eitt skipti fyrir öll. Ávarp formanns Flóttamannaráös Islands Dagur Sameinuöu þjóðanna er 24. október n.k. í ár er dagurinn helgaður Flóttamannastofnun samtakanna. í samvinnu við aðrar Evrópuþjóðir mun ísland taka þátt í hjálparstarfinu með því að safna fé handa flóttafólki í fjarlægum löndum. Konur, börn og gamalmenni, sem búa við hin ömurlegustu skilyrði, sult og seyru, sjúkdóma og drepsóttir, þarfnast hjálpar. íslendingar láta það ekki afskiptalaust, þegar til þeirra er leitað til hjálpar þeim, sem hjálpar eru þurfi. Hvorki skipta þá máli fjarlægðir, né stjórn- málaskoðanir. Maður bjargar manni. Minnumst þess, að með framlagi íslendinga er unnt að bjarga fjöldamörgu ógæfusömu, sjúku og þjökuðu fólki, þótt framlag hvers einstáklings sé ekki hátt. Greiðum okkar framlag fúslega af hendi á þessum degi Sameinuðu þjóðanna 24. október 1966.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.