Vísir


Vísir - 06.12.1966, Qupperneq 2

Vísir - 06.12.1966, Qupperneq 2
V í S I R . Þriðjudagur 6. desember 1966. lenzklr frjálsíþróttamenn verða meðal þátttakenda í Evrópubikafkeppninni næsta ár. Island með í bikarkeppni í frjúlsum iþróttum 1967 Þing frjálsíþróttasam- banda Evrópu var hald- ið í Istanbul, Tyrklandi, 18.—20. nóvember s.l. Fundinn sótti formaður Frjálsíþróttasambands íslands, Björn Vilmund- arson. Mættir voru full- trúar frá 26 þjóðum og var fundarstaður Hotel Hilton í Istanbul. Jafn- framt þihginu var fund- ur haldinn í Evrópu- nefnd IAAF. Helztu mál þingsins voru viðræður fulltrúa um landskeppn- ir sín í milli á næsta ári svo og skrásetning og niðurröðun alþjóðamóta í Evrópu árið 1967 og næstu Evrópumeistara- mót. Þá voru samþykkt 10 ný Evrópumet. ísland mun taka þátt í Bikar- keppni Evrópu á næsta ári og keppir í undanriðli með Belgfu, Irlandi og Luxemburg. Mun sú keppni fara fram í Dublin 24. júní n. k. og keppir þar einn maður í hverri íþróttagrein frá hverri þjóð. Hafnar eru viðræð- ur við Skota um landskeppni í sömu ferð. Ennfremur fóru fram viðræður um landskeppni við Luxemburg 1968 eða 1969. íslendingum er boðin þátt- taka í minningamóti Kusocins- kiegs í Póllandi 24. og 25. júní en ekki eru líkur á, að hægt sé að þiggja það boð vegna keppn- innar í Dublin. Landskeppni við A.-Þjóðverja í tugþraut mun fara fram í Scheverin 27. og 28. september. Munu Danir ennfremur taka þátt í þeirri keppni. Tyrkir hafa boðið íslenzkum íþróttamönnum til alþjóðlegs meistaramóts 20.—22. október n. k. í Antolva í Suður-Tyrk- landi. Danir hafa boðið Islending- um til landskeppni í Danmörku árið 1968. Að vfsú er þetta munnlegt boð formanns danska Frjálsíþróttasambandsins Egils Kragh. Ákveðið hefur verið að Inn- anhússmeistaramót Evrópu fari fram f marzmánuði n. k. f Prag, Tékkóslóvakíu, og í Madrid 1968. Mun mót þetta fara fram árlega. Næstu Evrópumeistara- mót utanhúss verða í Aþenu 1969 og Helsingfors 1971 og síð- an á tveggja ára fresti. 9. og 10. apríl n. k. fer fram keppni f Montreal í Kanada milli Evrópu og Ameriku í sam- bandi við heimssýninguna. Lið Evrópu verður endanlega valið í júní n. k. af sérstakri nefnd en því var lýst yfir af rússneska fulltrúanum, að Rússar mundu ekki geta sent sína íþróttamenn til keppni í Kanada, vegna íþróttamóts í Rússlandi í sam- bandi við 50 ára byltingaraf- mælið á næsta ári, en það mót fer fram í Moskvu sömu daga. Næsta Evrópuþing veröur i Prag haustiö 1967. BALLETT LEIKFIMI JAZZBALLETT FRÚ ARLEIKFIMI Búningar og skór í úrvali. ALLAR STÆRÐIR ERZlUNIN Sfmi 13076. LEIKFANGASALAN LAUGAVEGI 42 Frakkastígsmegin. Glæsilegt úrval af fallegum leikföngum. Verð við allra hæfi. Mjög glæsilegir dúkkuvagnar model, upptrekkt leikföng, dúkkur, rafmagnsbílar og match box bíl ar. Lukkutröll og gúmdýr o. m. fl. i Leikfangasalan Laugavegi 42. Frakkastígsmegin. KARLAR EINS 0GÉG ÆVIMINNINGAR BRYNJÓLFS JÓHANNESSONAR LEIKAfíA ÓLAFUR JÓNSSON FÆRÐIÍLETUR Hver man ekki einhvern hinna sérkennilegu karla, sem Brynjólfur hefur skapað ó leik- sviðinu. En færri þekkja' leikarann og mann- inn sjólfan, sögu hans og skoðanir. Brynj- ólfur segir fró uppvaxtarórum sínum í Reykjavík .og ó ísafirði, en þar lék hann sitt fyrsta hlutverk. Hann rekur síðan ýmsa merka atburði í sögu leiklistarinnar og sína eigin persónulegu sögu, allt fram ó þennan dag. Og auk þess prýða þókina 60 myndir. m

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.