Vísir - 19.01.1967, Side 1
I
VISIR
57. árg. - Fimmtudagur 19. janúar 1967. - 16. tbl.
„Ætlum að orgelið sé í lagi
— segir presturinn / Skálholti
Viögerð á rafmagnslínunni yf
ir Brúará lauk klukkan hálf eitt
í nótt og voru þá allir bæimir
sem rafmagnslausir uröu á
sunnudag búnir að fá rafmagn
frá Sogsvirkjuninni aftur. Þeir,
sem ekki fengu Ljósafossraf-
magn í fyrrakvöld fengu raf-
magn frá dieselstöð, sem sett
var upp á Flúðum, en vegna
þess hve rafmagnsálagið á stöð-
ina var mikið í gær varð að
stöðva hana stund og stund.
Viögerðin á línunni hjá Brú-
ará er þó aðeins bráðabirgða-
viðgerð og verður haldið áfram
viögerðum þar til fullnaðarvið-
gerð er lokið. Má því búast við
að taka þurfi ^f rafmagnið
nokkra tíma um miðjan daginn
í dag og á morgun.
Menn voru famir að óttast
að skemmdir kynnu að verða
á orgelinu í Skálholtskirkju, en
pipuorgel þola illa hitabreyting-
ar. Hafði Vísir samband við
sóknarprestinn, séra Guðmund
Óla Ólafsson í morgun og spurði
hann hvort álitið væri að orgelið
hefði skemmzt.
— Þag hefur nú ekki veriö
athugað enn. Við ætlum þó, aö
það hafi ekki kólnað svo mikið
f kirkjunni frá þvi rafmagnið
fór ai á sunnudag þar til þaö
komst á aftur í nótt, að nokkuð
hafi getað orðiö að orgelinu.
En órgelið er sem kunnugt er
pípuorgel og þolir því illa hita-
breytingar.
NIÐURGREIÐSLUM Á FISKI
HÆTT í REYKJAVÍK
*
. í:■:
Á fundi borgarráðs 13. þ.m. var ineytisins varðandi niöurgreiöslu á
lagt fram bréf viðskiptamálaráðu- verði fisks, sem seldur er til neyzlu
Tíu ára „tradi-
sjón44 í Nausti
□ Á morgun, þorradag, upphefjast þorrablót svo víöa sem því
verður við komið enda hefur mikiö líf færzt í þessa gömlu þjóðar-
tradisjón á seinni árum. Veitingahúsiö Naust hefur nú haldiö
þessari tradisjón í tiu ár og boðið gestum sínum þorratrog.
□ Sagðí Geir Zoega, forstjóri Nausts viö fréttamenn, að nú
væri orðið mun auðveldara en fyrir tíu árum, að ná í hina gömlu
íslenzku rétti og væri nú allt komið í þorratrogið sem þar ætti
heima, svo sem svið, hákarl, selshreifar, lundabaggíar, bringukoll-
ar, hrútspungar og fleira, en sumt af þessu höfðu menn ekki uppi
við nema með mestu leynd fyrír nokkrum árum.
í Reykjavík og nágrenni. Var efni
þessa bréfs, tilkynning þess eðlls,
að frá og með 10. þ.m. yrði þess-
um niðurgreiðslum hætt þar sem
nýtt fiskverð hefði verið ákveðið
9. jan. En eins og kunnugt er, komu
niðurgreiðslur þessar til fram-
kvæmda í haust og skyldu gilda
bar til nýja fiskverðið yrðl ákveð
ið um áramótin. Annast Bæjarút-
gerð Reykjavíkur framkvæmd nið-
urgreiðslnanna samkvæmt sam-
komulagi borgarstjóra og viðskipta
máiaráðuneytisins.
„Skortar árahrku fyrirsjáaniegur"
— segir Hjálmar Finnsson, framkvæmdastjóri
Aburðarverksmiðjunnar — Flytja verður inn
ammoniak
Eins og gefur að skilja
hefur aukin iðnvæðing í
för með sér aukna rafnotk-
un og nú er svo komið
að Áburðarverksmiðja rík-
isins í Gufunesi hefur ekki
nægilegt rafmagn til fullra
afkasta, en verksmiðjan
hefur sem kunnugt er, feng
ið afgangsrafmagn frá
-<S>
18 yfírheyrðir í
ntáli B’orvaldar
Ára Arasonar
Nú hafa 18 manns verið yfir-
heyrðir í máli Þon'aldar Ara Ara-
sonar, lögfræðings, sumir oftar en
einu sinni. Verða enn nokkrar yfir
heyrslur út af ýmsum smáatriöum
sem ekki lisgja enn ljós fyrir. Hins
vegar munu öll aðalatriði málsins
þegar vera könnuð. Þorvaldur hef-
ur ekki óskað eftir verjanda og hon
um hefur ekki verið skipaður verj-
andi. Hann var úrskurðaður í geö-
rannsókn eins og algengt er, en
Sakadómur vissi ekki í morgun á
hvaða stigi sú rannsókn væri. Sverr
ir F.inarsson fulltrúl sakadómara
liefur rannsókn málsins með hönd-
um.
Sogsvirkjuninni. Þetta hef
ur orðið til þess að verk-
smiðjan hefur orðið að
flytja inn ammoníak.
Til þess að fá nánari upplýs-
ingar um þetta, hafði blaðið
samband við Hjálmar Finnsson
framkvæmdastjóra Áburðar-
verksmiðjunnar í morgun.
Hjálmar sagði m. a.:
— Orkan sem við fengum var
ekki mikil, en þó ekki minni en
Sogsvjrkjunin hafði gert ráð fyr
ir. Skortur á raforku til verk-
smiðjunnar var fyrirsjáanlegur
og verður það þar til Búrfells-
virkjunin tekur til starfa. Vegna
þessa fyrirsjáanlega skorts var
í það ráðizt árið 1954 að byggja
eitt þúsund tonna ammoníaks-
geymi og var hann tilbúinn i
árslok það ár. Meginhluti amm-
oníaksins fer til framleiðslu á
vetni, sem er nauðsynlegt til á-
burðarframleiöslunnar. Við höf-
um flutt inn fljótandi ammon-
íak s.l. tvö ár til þess að bæta
upp skortinn, en með því hefur
verksmiðjunni lánazt að halda
fullum afköstum hvað varðar á-
burðarframleiðsluna. Að öðru
leyti hefur verksmiðjan ekki átt
í sérstökum framleiðsluörðug-
leikum, Því er ekki að neita að
þetta hefur í för með sér auk-
inn framleiðslukostnað, en ég
vil taka fram, að verð á Kjarna
var ekki meira vegna þess. Með
fullum afköstum j getur verk-
Framhald á bls 6.
V/ðgerð d
stendur enn
Viðgerð á brúnni á Jökulsá á
Sólheimasandi stendur ennþá og
mun hún standa í nokkra daga
enn áður en hægt veröur aö aka
um brúna að nýju. Stærstu bílar
geta enn ekið yfir án'a bar sem
botninn var ruddur.
Vegurinn um Langadal er ennþá
lokaður vegna flóða í Blöndú, en
vatnið hefur nú sigið í Skjálfanda-
fljóti þannig að hægt hefur verið að
Jökulsárbrú
nokkra daga
gera við skémmdir sem urðu á veg-
um þar um slóðir.
Vegir á Vestfjörðum innan fjarða
mega teljast allgóðir miðað við árs-
tíma og er t.d. fært frá Patreksfirði
til Bildudals og Rauðasands og frá
Þingeyri að Núpi Á Austfjörð-
um telst það til tiðinda að hægt er
aö aka á jeppum yfir Fjarðarheiði
þótt vegurinn hafi ekki verið rudd
ur og er þá ekið á harðfenni.
Ólafur Thors.
irindi um Ólaf
Thors í Ríkisút-
vorpinu í kvöld
1 tilefni af fæðingardegi Ólafs
Thors, sem er i dag, flytur Jó- [
hann Hafstein dómsmálaráð-
herra erindi í Ríkisútvarpið í
kvöld. Nefnist það „Minningar
um Ólaf Thors“ og segir ráð-
herrann þar frá persónulegum
kynnum sínum af hinum mikla
stjómmálaleiðtoga. Ólafur Thors
hefði orðið 75 ára í dag ef hann
hefði verið á lifi. Erindi dóms-
málaráðherra hefst kl. 21.30 í
kvöld.
Tveir á bát
Tvö tonn af ýsu á fimm bjóð
kr. næt
Krlstján, lítill trillubátur frá
Keflavík reri í gær með 15 bjóð
af línu en lagöi ekki nema fimm
þeirra í Leirusjóinn innan við
Skagann. Á þessi fimm bjóö
fengust nær tvö tonn af fall-
egri ýsu, sem er eindæma góð-
ur afli, enda hefur fiskur verið
svo til á hverjum krók. Á Krist
jáni róa tveir menn og komu
þeir inn í morgun með aflann,
sem þykir aldcilis búbót í afla-
leysinu.
Stærri bátarnir, sem róa með
allt upp í 50 bjóð hafa ekki
fengið öllu meira en 3-5 tonn
á heimamiðum að undanfömu,
en á þeim eru 5-6 menn og auk
þess 5 í landi.
Frystihúsin borga 5.18 kr. fyr
ir fyrsta flokks ýsu, samkvæmt
loforði ríkisstjórnarinnar veröa
greiddar 11% uppbætur á ýsuna
tvo fyrstu mánuöi ársins, þann
ig ætti þessi einnar nætur afli
þeirra félaga að fara upp und
5r 11 þús. kr.
f