Vísir - 19.01.1967, Blaðsíða 15

Vísir - 19.01.1967, Blaðsíða 15
V í SIR. Fimmtudagur 19. janúar 1967. TÓLFTI KAFLI. Skuggamynd af manni með slút- hatt á höföi og kvenmann á herö- um sér mjakaðist upp á þakið á húsi herra Fords. Nokkurt andar- tak nam maðurinn staöar, virti fyr ir sér himinháa stálgrindina, sem risin var úr grunninum, horfði siö an niöur í grunninn sjálfan ... Það heföi verið ógerlegt að greina, hvort þaö var í rauninni Stanley Ford, sem þama var á ferð inni I hlutverki Bash Brannigan — eða Bash Brannigan sjálfur, sem tekið hefði sér bólfestu í sál og líkama herra Ford. Vasaljósi var brugðiö upp nokkr um sinnum á myrkri götunni fyrir neðan. Herra Ford gaf merki á móti, eins og hann hefði búizt við þessu. Niðri á götunni dró Charles enn einu sinni upp riffilskefta mynda- vél sína og tók nokkrar myndir í striklotu. Stanley Ford lagði byrði sfna á þakiö og fór að fást við fjarstýri- taekið. Hann beindi því aö lyfti- krana miklum, sem stóð í grunnin- um. Andartak geröist ekki neitt. En smám saman tók armur kranans að lyftast, unz enda hans bar beint yfir, þar sem Stanley Ford stóð. Stanley Ford þrýsti á rofa á tæk- inu. Stór karfa á löngum stálþræði seig hægt og hægt niður fremst úr armi kranans. Þegar hún vár ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR úr harSpIosti: Format innréttingar bjóða upp á annaS hundrað tegundir skópa og litaúr- val. Ailir skópar með baki og borðplata sór- smíðuð. Eldhúsið fæst með hljóðeinangruð- um stólvaski og raftækjum af vönduðustu gcrð. - Sendið eða komið með mól af eldhús- inu og við skipuleggjum eldhúsið samstundis og gcrum yður fast verðtilboð. Ótrúlega hag- stætt verð. Munið að söluskattur er innifalinn í tilboðum fró Hús & Skip hf. Njótið hag- stæðra greiðsluskilmóla og /C\— — —, lækkið byggingakostnaðinn. Kl HÚS & SKIP hf. LAUQAVKGl II ■ KIMI 11(11 komin á móts við, þar sem Stanley •Ford stóð fremst á þakbrúninni, þrýsti hann á annan rofa. Karfan nam staöar. Stanley Ford tók sýningarbrúð- una í svörtu regnkápunni enn á herðar sér og kleif með hana um borð í körfuna. Því næst spennti hann stálhringina á öryggisbeltinu utan um vírstrenginn sjálfan. Enn þrýsti hann á rofa á fjarstýri tækinu. Karfan sveif hægt og hægt cpp á við, armur kranans lyftist. „Upp“, öskraði Charles á hálf- sofandi drenginn í lyftunni á hótel inu handan við götuna. Á leiðinni upp dró Charles herbergislykil upp úr vestisvasa sínum. Þegar karfan var komin alla leiö upp að kranaarminum, losaöi Stanley Ford hringina á öryggisbelt inu af stálvírnum og kleif með byrði sína upp á arminn sjálfan. Þar spennti hann öryggisbeltið við stálgrind armsins og leit.yfir göt- una að hótelinu. Charles stóð þar út í herbergis- glugga með þá riffilsekftu og „hleypti ar.“ Því næst þrýsti Stanley Ford enn á rofa á fjarstýritæki sínu og nú tók armur kranans að síga niður á við um leið og hann snerist lítið eitt til hliðar. Loks nam hann stað ar hjá ófreskjunni miklu, þar sem hún beið þess meö lokaðan gúlinn fylltan steinsteypubiöndu, að opna hann í bíti að morgni og gubbar úr sér blöndunni ofan í hátt og djúpt veggmót úr viðarflekum. Hamingj- an má vita hvað þaö voru margar smálestir af steypu, sem hún lum- aði á í kjafti og koki Stanley Ford varpaði byrðinni ofan í mótið. Einnig stauknum með töflunum frá dr. Bentley lækni, svörtu hönzk unum og — síðast — öryggisbelt- inu. Hann veifaði hendinpi. Charles tók enn myndir í gríð og erg með þeirri riffilskeftu. Ford beindi fjarstýritækinu að ó- freskjunni miklu, sem opriaði kjaft inn hægt og rólega og gubbaði gúl- fyllinni ofan í mótið, þar sem Sem betur fór voru eiginmaðurinn og Stanley Ford við slíku búnir. sýningarbrúðan, svörtu hanzkarnir og töfluglasið grófust að eilífu. Þegar Stanley Ford kom aftur inn í vinnustofu sína, lá kona hans steinsofandi á legubekknum. Fullkomið . . Gegnum lokaðar dyrnar barst annarlegt hljóð að eyrum hans. Þegar hann dró hurð frá stöfum heyröi hann hvers kyns var. Það var öskurrám rödd kvenmanns, sem ímyndaði sér sennilega að hún væri að syngja. Þegar Stanley Ford kom niður stigann, sá hann, að flestir af gest/ unum voru farnir. Hvarvetna gat að líta öskubakka á hvolfi, brotin glös, .áfengispolla, löskuð húsgögn og önnur óvefengjanleg merki þess að samkvæmið hefði tekizt eins vel og frekast varð á kosið. Flestir af gestunum voru farnir. 1 rauninni voru einungis þrír eftir — Blackstone dómari, Harold Lampson og frú hans Og það var Edna Lampson, sem ítnyndaði sér aö hún væri að syngja — svo var töfratöflum dr. Bentleys fyrir að þakka. En Edna, sem aldrei var gefin fyrir neitt hálfkák, lét sér ekki sönginn nægja, þó að flestum hefði fundizt þaö eitt meira en nóg. Hún steig trylltan dans uppi á Og þaö var Edna Lampson, sem ímyndaöi sér aö hún væri að syngja, .. SOON THE STORAA ENDS... THEN,AFTER SATISFVING THEIR HUN6ER, THE PARTY CONTINUES ITS JOURNEY s? % íl AFTER MANY GRUELLING MILES, TARZAN GIVES THE SIGNAL Tö HALT... slaghörpunni, hoppaði, sló fótum út í loftiö og upp í loft, sitt á hvað milli þess sem hún rak upp rok- umar ,eða samtímis. Stanley Ford setti upp hneyksl- unar- og vandlætingarsvip. „Edna . .. fyrir alla muni...“ sagði hann. „Ég var loksins að koma konunni minni i svefn — fyr- ir aiia muni, vektu hana ekki!“ „Einn gráan yfir línuna,“ æpti Edna á ímyndaðan barþjón, sem virtist vera aö starfi einhvers stað- ar uppi i háloftinu, bæði eftir augna tiilitinu óg raddbeitingunni að dæma. „Edna, gerðu það fyrir mig að koma niöur og hætta þessu," bað Harold, „Hvað mundu blessuð börn in segja, ef þau sæju móður sína svona á sig komna?“ „Hún er pöddufull, manneskjan" sagði Blackstone dómari. „Er það ékki sem ég alltaf segi — ekki eru þær betri.“ Hvað var hraustlega mæit af þeim æruverðuga dómara, eftir að- stæðum. „Gerðu það fyrir mig, að koma niður, Edna“ baö Harold Lampson. „Pöddufull,“ úrskurðaði dómar- inn og sveiflaði glasinu svo að visk ýið gusaðist framan í Harold. „Þér eruð fullur iíka, yðar há- göfgi,“ sagði Harold Lampson. „Yð ur ferst varla um aö tala.“ „Vitieysa. Ég er allsgáður eins og dómari — af því er það máltæki líka dregið drengur minn,“ svar- aöi hans hágöfgi, Blackstone dóm- ari. „Já, en Edna mín,“ sagði Harold Lampson og brá kjökurhreim i röddina, „þú ert gift kona — við eigum áttatíu og fimm þúsund doll ara hús úti f Scardale, lúxusbíl og hund af göfugu Stórdanakyni — hættu þessum stöikkum upp í ljósa krónuna, þú slítur hana niður, ef þú nærð taki á henni.“ „Hopp og hi“ háveinaði frúin, sem átti stórt setur í Scardale, tvö elskuleg böm, lúxusbll, hund af Stórdanakyni og allt það. Hún tók enn eitt stökk upp i ljósakrón- una. Fullir hrifningar af hetjudáö foringja sins Brátt hefur veðrinu slotaö og eftir að hafa Eftir margra mílna ferðaiag gefur Tarz- dansa Wazirihermenn í kringum nautið satt hungur sitt heldur hópurinn áfram. an merki um að stanza. „Opar framundan," | dautt. hrópar hann. RAUÐARARSTlC 31 SlMI 22022

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.