Vísir - 11.03.1967, Síða 1

Vísir - 11.03.1967, Síða 1
Maður úr vinnuflokki hamast VÍSIR 57. árg. - Laugardagur 11. marz 1967. - 60. tbl. Ekkert vitað um upptökin Ekkert er vitað um eldsupptök að Lækjargötu 12a í gærmorgun, þegar þrjú hús í miðborginni urðu eldinum að bráö og Iðnaðarbankinn stórskemmdist. Magnús Eggertsson varðstjóri hjá rannsóknarlögregl- unni, hefur rannsókn máls þessa með höndum. Aðeins einn vitnisburður hefur komið fram í málinu, en það er vitnisburður Sigþrúðar Sigurðar- dóttur, sem fyrst varð vör við eld- inn, sem kom upp í íbúð hennar. Sigþrúður ber að hún hafi geng ið til náða um klukkan hálf-tvö um nóttina, en hún hafði setið að saum um. Svaf hún í herbergi I vestur- hluta hússins. Um nóttina um kl. 5.20, að því hún telur, vaknaði hún og fór fram á snyrtiherbergið. — Aðeins rúmri mínútu síðar, þeg- ar hún kemur fram á ganginn sér hún að eldur er laus í vegg milli herbergis hennar og sonar hennar og var eldurinn farinn að komast í gólfið. Tókst Sigþrúði að komast fram hjá eldinum í átt að herbergi sonarins, en hár hennar sviðnaði um leið. Komst Sigþrúður meS drenginn fram, og fór þegar upp á efri hæð- ina til að vekja þar. Var þar að- eins einn drengur heima, 10 ára gamall, og vakti hún hann, en það vildi til happs að dymar voru ó- læstar. Þegar hún kom út með drengina bar lögregluna að, en Sig- þrúður hafði hringt í löregluna eftir að hún vakti son sinn. Sigþrúður fullyrðir að hún hafi ekki farið með eld þá um nóttina. Á fundi í Iönaöarbanka íslands í gær. Talið frá vinstri: Jóhannes Nordal, bankastjóri Seðlabankans, Bragi Hannesson, bankastjóri Iðnaðarbankans, Sveinn Valfells, bankaráðsformaður, Sveinn Guð- mundsson, forstjóri. ViBskiptamenn hafa ekki orðið •// fyrir tjóni ~ sagöi Sveinn Valfells, formaöur bankaráös Iðnaðarbankans á fundi með fréttamönnum i gær þvf yflr að Seðlabankirm hefði enga ástæðu til að ætla að Iðn- aðarbankinn hefði orðið fyrir tjóni, sem veikti stöðu hans og traust. Sagði hann að Iðnaðar- banki Islands hefði ætíð verið álitin traust og vel rekin pen- ingastofnun að áliti Seðlabanka Islands og sæi hann ekki betur en að bankinn stæði jafnréttur eftir brunann sem peningastofn un. Stjórn Iðnaðarbank- ans kvaddi fréttamenn á sinn fund í gær eftir að allur eldur í bankahús- inu hafði verið slökktur, og var safnazt sam- an í afgreiðslusal bank- ans á 1. hæð, en hann slapp lítt skemmdur úr brunanum. Þar lýsti formaður banka- ráðs Iðnaðarbankans, Sveinn Valfells, því yfir, að almenn starfsemi bankans myndi ekki og hefði ekki stöðvazt vegna brunans. Viðskiptavinir gátu þegar eftir hádegi í gær fengið afgreiðslu í útibúi Iönaðarbank ans við Háaleitisbraut og banka- stjórnin gerði sér vonir um að afgreiðslusalurinn við Lækjar- götu yrði tekinn í notkun á mánudag. Verðmæt skjöl sem snerta viðskiptavini bankans týndust engin. Viðskiptamenn sjálfir hafa fyr ir engu tjóni orðið, sagði Sveinn Valfells ennfremur, og þurfa ekki að óttast áföll. Þetta undir strikaði Jóhannes Nordal banka stjóri Seðlabankans, sem var mættur á fundinum. Lýsti hann leifum á 2. hæð hússins. fðnaðarbankabyggingar taka um 6-9 mánuði r • mnar mun Litazt um í byggingumii í gær efftir brunann Eldtraustur skápur er látinn síga ofan af 4. hæð í krana nið Ur á stóran flutningabfl. Það mun taka 6-9 mán uði að endumýja bygg- ingu Iðnaðarbanka ís- lands sem brann eins og Vísir skýrði frá í gær. Fullkomin óvissa ríkir um kostnaðinn þar sem ekki er að fullu kunnugt um það hvort stein- steypa er skemmd eða hvað mikið, en víst er að kostnaðurinn nemur mörgum millj. kr. Öll byggingin er metin á 28 millj. kr. samkvæmt brunabótamati, sem er sennilega of lágt mat. Innanstokksmunir á ein- stökum hæðum þar með innréttingar em tryggð- ir fyrir um 4 millj. kr. Bráðabirgðarannsókn á stein- steypu í gólfum bvggingarinnar fór fram í gær. Var hún fram- kvæmd af verkfræðingum hjá Almenna byggingafélaginu. Var skotið með múrbyssu ofan i gólfin og virtust þau öll vera í eðlilegu ásigkomulagi. Mun þó einhver galli hafa komið fram efst í stiga. Liklegt er að fram fari nákvæm burðarþolsrann- sókn, sem Almenna bygginga félagið mun framkvæma. Endurnýjun bankabyggingar- innar hófst i rauninni þegar um miðjan dag í gær eftir að eldur hafði verið slökktur. Vinnuflokk ar frá Vélsmiðjunni Héðni hófu þegar hreinsun á 2. hæð hússins en þar voru bók'haldsskrifstof- ur og skrifst. bankastj, og banka ráðs o. fl. Höfðu öll gólf verið hreinsuð á þessari hæð þegar í gærkv. Jafnframt var unnig á öllum hæðum við hreinsun og voru stórir kranar notaðir til að flytja innanstokksmuni svo sem peningaskápa ofan af hæð unum niður á vörubíla. Af sum um hæðum var hreinlega hent út öllu sem hægt var að henda niður á stórar flutningabifreið- ir. Framh. á bls. 10 Bankaráðsherbergið á 2. hæð í Iönaöarbankanum slapp bærilega vel. Hér sést þar að vinnu Pétur Sæ- mundsen bankastjóri við skrifborðið og kannarsviðnar skjalahrúgur. Ævar ísberg lögfræðingur bankans er lengst til vinstri og í miðjunni eru tvær starfsstúlkur bankans aö hreinsa til. (Ljósm. Vis is B.G.)

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.