Vísir - 11.03.1967, Side 7
V í S IR . Laugardagur 11. marz 1967.
7
Vietcong slakar tíl varSandi brott-
flutning Bandaríkjahers frá Vietnam
Ríkisstjórn Noröur-Vietnam og
Vietcong hafa til þessa ekki viljaö
koma neitt til móts viö Bandaríkja
stjóm og stjóm Suður-Vietnam,
aö bví er varðar skilyrði fyrir aö
setzt verði að samningaborði um
friö í Vitenam.
Hélt Johnson forseti því fram,
er hann ræddi við fréttamenn í
fyrradag, að þess hefði ekki sézt
vottur. Nú hefir það gerzt, að
því er hermt er í fréttum frá
Hanoi í gær, að boöað hefir verið
af hálfu Vietcong, að hægt sé
að fallast á brottflutning liös
Bandaríkjamanna frá Suöur-Viet
nam stig af stigi.
í NTB-frétt um þetta segir, að
aðalfulltrúi Vietcong þar, Nguyen
van Thien, hafi gefiö í skyn, að
Vietcong geti fallizt á brottflutn-
ing með þessu fyrirkomulagi, þeg
að friðsamleg lausn hefir fengizt
á deilunni.
Van Thien sagði í viðtali við Afp-
fréttaritarann Jacques Moalic, að
Vietcong byggist að sjálfsögðu
ekki við því, að Bandaríkin flyttu
burt herafla sinn á „einum degi
eða einum mánuði“. Hann kvaðst
kjósa að fara um þetta sömu orð-
um og de Gaulle Frakklandsfor
seti að til brottflutningsins yrði
veittur „sanngjarnlegur“ frestur.
Tók van Thien þannig til orða, er
hann svaraði fyrirspurn frétta-
■mannsins um nánari upplýsingar
varöandi þau fimm höfuðskilyrði,
sem Vietcong hefir sett fyrir, að
friður veröi saminn. Eitt þeirra
er, aö Bandaríkin og bandamenn
þeirra verði á brott úr landinu
með herafla sinn.
Bókasafnsvika
Viðræðurnar til lausnar deilunni
milli ríkisstjómar Möltu og brezku
stjórnarinnar eru farnar út um
þúfur.
Patrick Gordon Walker ráðherra
aðalsamningamaður Bretlands,
gerði grein fyrir því í neðri málstof
unni hversu komið væri. — Möltu
stjórn hafnaði tilboði brezku stjórn
arinnar, en það stæði áfram, ef
henni snerist hugur og hún vildi
á það fallast. Er Heath leiðtogi
stjórnarandstöðunnar ítrekaði
hvort þrautreynt væri og hvatti til
frekari samkomulagsumleitana end
urtók ráðherrann, að til'boðið stæði
en málið væri þrautrætt og út-
rætt.
Wilson forsætisráðherra ræddi
við Olivier forsætisráðherra Möltu
á Bretlandi
Svo kölluð „bókasafnsvika" er
haldin í Bretlandi. Tilgangurinn er
að auka áhuga manna á aö
nota frístundirnar til lesturs meira
en menn gera — og til að nota
almenningsbókasöfnin meira en
menn gera.
í fyrrakvöld og vakti það athygli,
að aðeins einn maður fór á fund
Wilsons með dr. Olivier — aðal-
verkalýðsleiðtoginn á Möltu.
Ekkert var tilkynnt annað í
fyrrakvöld en að viðræðum hefði
verið frestaö og að Patrick Gordon
Walker myndi skýra þingheimi frá
málum í gær.
Kjarni málsins er, að á Möltu
óttast menn svo mikið atvinnu-
leysi er Bretar flytja burt her-
lið sitt, að það verði óviðráðan
legt viðfangsefni. Bretar hafa boð
ið upp á að lengja brottflutnings
tímann um eitt ár, og heitið tækni
legri aðstoð, og fleira kunna Bretar
að hafa boöið.
Nú er eftir að vita hvaö gerist
á Möltu. Eftir var aðeins ein um-
Hafnir fyrir skip
nýrrar gerðar
Ákvarðanir hafa verið teknar á
Bretlandi um að koma upp sérstök
um höfnum fyrir flutningaskip af
nýrri gerð, sem spara munu feikna
vinnu við út- og uppskipun.
Nefnast þau á ensku „container"
skip, en vöfurnar, sem þau flytja
er búið um í stórum „hylkjum“
af samræmdrj. ..gtærjL._er hentar
til flutnings á vörubifreiðum og
til þess að koma þeim fyrir í skip
unum. Að margra áliti eru þetta
vörufiutningaskip framtíðarinnar.
Gordon Walker
ræða frumvarps, sem sviptir
brezku hersveitirnar þar öllum
fríðindum.
Opinberlega staðfest, að dóttir Stalíns
baðst landvistarleyfis í Bandaríkjunum
Það var opinberlega staðfest í
gær, að Svetiana dóttir Josefs
Staiin hefði beðið um landvistar-
leyfi í Bandaríkjunum sem póli-
tiskur flóttamaður.
Það var bandaríska utanríkis-
ráðuneytiö, sem staðfesti þetta, en
eins og getið var í frétt í Vísi í
Stórbrunar —
Framh. af bls. 9
styrjaldarinnar síðari, en þá tók
Kópavogshæli viö þeirri starf-j
semi. Bandaríski herinn hafðij
spítalann til umráða þegar j
kviknaði í honum.
Einn frægasti bruni aldarinnar j
er Hótel íslands bruninn. — Hót |
el ísland var stærsta timburhús j
borgarinnar, þegar það brann 2.j
febrúar 1944 og annað stærstal
gistihús borgarinnar. Grimmdar-:
frost var og allmikill norðan j
Alexandra prinsessa
til Svíþjóðar í sumar
Tilkynnt er í London, aö Alex-
andra prinsessa fari til Svíþjóöar
í sumar ásamt Ogilvie manni sín
um. Þau koma bæði til Gautaborg
ar og Stokkhólms.
Alexandra prinsessa hefur oft
sinnis komið fram í ýmsum lönd-
um fyrir hönd Elisabetar drottning
ar. Alexandra er dóttir hertogans
af Kent, en hann fórst í flugslysi
í síðari heimsstyrjöld. Hann var
bróðir Georgs VI konungs, föður
drottningar.
Alexandra prinsessa mun fara
tvívegis til Kanada á þessu ári.
gær, voru komnar á kreik óstað-
festar fréttir um, að hún heföi
snúið sér til bandaríska sendiráðs
ins í Dehli, Indlandi, og óskað eftir
landvistarleyfinu. Hún er 41 árs að
aldri og var gift indverskum
kommúnista, sem var starfsmaður
í Moskvu, en hann lézt fyrir
stormur og var því erfitt um
allt slökkvistarf. Húsið fuðraði
upp á skömmum tíma og sluppu
48 manns naumlega út úr hús-
inu og var margt af því fá-
klætt. — Einn ungur maður
brann inni, Sveinn Steindórs-
son.
Vegna stormsins var útlit fyr-
ir það um tíma, aö kvikna
myndi einnig f Hótel Vík og
öðrum nærliggjandi húsum, en
því tókst að afstýra.
Á ísafirði varð mikill bruni
áriö 1946 þegar stærsta timb-
urhús bæjarins brann og 5
manns brunnu inni, en 33
skömmu og var lík hans brennt.
Sótti hún um leyfi stjórnarvald-
anna til þess að fara sjálf með
öskuna til Indlands og var það
veitt. Gafst henni þá tækifæri til
aö snúa baki við föðurlandinu.
Hún mun nú komin til Rómaborgar
á Ieiö sinni vestur.
sluppu naumlega út. — Þau sem
brunnu innj voru ung hjón, 18
ára piltur og tvær stúlkur 9 og
4 ára.
Hér lýkur að segja frá stór-
brunum, enda eru allir brunar
sem hafa verið síðan 1950 enn
í fersku minni. — Það má þó
geta um brunann í Faxaverk-
smiðjunni í Örfirisey 1964. —
Það er eina húsið í Reykjavík
sem sett hefur verið í sjálf-
virkt slökkvikerfi. — Þegar eld
urinn kom upp í því var þó bú
ið að taka dælurnar í kerfinu
burtu, svo að kerfið kom ekki
að notum þegar á reyndi. — V.J.
Leigubílstjórar
Sl. Iaugardagskvöld milli kl. 8 og 8.30 flutti leigubíl
stjóri 2 menn og eina konu frá Þórsgötu að Hótel Sögu
og síðan annan manninn að Ægisíðu 127. 1 bílnum
gleymdist innrömmuð vatnslitamynd, stærð ca. 20x40
cm. Viðkomandi leigubílstjóri, eða sá sem kann að,
hafa tekið myndina úr bílnum er beðinn að hringja í
sima 23391.
fþróttir —
Framh. af bls. 2
á yfirstandandi íslandsmót lið
úr 4., 3., 2. og meistaraflokki
karla, og skjóta má því hér inn
að 2. flokkur hefur vakið mikla
athýgli fyrir góðan leik sinn og
m.a. sigrað 1. R. með 20 stiga
mun.
Hafa farið fram viðræður i
þá átt, að skipta um nafn á fé-
laginu, þar sem flest allir leik-
menn félagsins eru búsettir ut-
an vallarins ?
— Já, þaö.hefur verið rætt um
þetta mál, og sýnist sitt hverj-
um. Vissulega væri hagkvæm-
ara aö mörgu leyti að flvtja
starfsemi félagsins niður i Kefla
vík eða Njarðvík, en sá galli er
á gjöf Njarðar, aö með því mynd
um við glata rétti okkar til æf-
inga og keppni innan flugvallar-
ins. Hver endanleg úrslit þessa
máls verða, er ekki gott að
segja, það mun tíminn einn geta
skorið úr um.
Hvað viltu segja mér um hin
liðin í 1. deild, Kristbjörn ?
— í. S.-piltunum hefur farið
fram og eru þeir án efa ekki bún
ir að segja sitt síðasta orð i
þessu móti. K. F. R. hefur svo
til staöið í stað, en eru þó senni
Iega úr allri fallhættu. Á. hefur
gengið mjög erfiðlega og liggja
eflaust margar ástæður þar til.
Sennilega munu þeir halda sæti
sínu í deildinni, þó ómögulegt
sé að spá um, hvernig viðureign
þeirra og 1. S. lyktar. í. R. setur
of mikið traust sitt á skotfimi
tveggja mann, þeirra Agnars og
Birgis, sem að vísu hefur ekki
brugðizt ennþá í þessu móti en
hættulegt er það ávallt er lið
byggir of mikiö á 1 eða 2 mönn-
um og nægir að benda á í því
sambandi viðureign þeirra við
K. R. fyrir 2 árum, en þá setti
í. R. allt sitt traust á Þorstein
Hallgrímsson, sem vissulega er
stórkostlegur leikmaður, en tak-
mörk eru alltaf fyrir því, hvað
einn maöur getur miklu orkað.
íslandsmeisturunum hefur farið
fram, og breidd innan liðsins
aukizt. Þeir þurfa sannarlega
ekki að kvíða framtíðinni með
menn eins og Ágúst Svavarsson
og Brynjólf Markússon, 17 ára
gamla pilta, sem vakið hafa verð
skuldaða athygli fyrir leik sinn.
Annars finnst mér sterkasta hlið
K. R. vera vörnin, einskonar
sambland af maður-á-mann vörn
og svæðisvörn, og einnig er
pressa þeirra K. R.-inga alltaf
hættuleg.
Tekst í. R. að sigra K. R. í
þessu móti ?
— Ég álít K. R. sigurstrang-
legra, en þó er enginn vafi á því,
að I. R. piltarnir munu berjast
til þrautar og ef þeir ná upp því
spili, sem öðru hverju hefur
komiö fram í leikjum þeirra, er
ómögulegt að segja fyrir um úr-
slit leiksins, þar verður sjón
sögu ríkari.
Hvað viltu svo segja mér að
lokum, Kristbjörn?
— Ég vildi lýsa yfir ánægju
minni með velgengni í. K. F. f
þessu móti, piltarnir hafa allir
lagt mjög mikið á sig við æfing-
ar og keppni og leikur liðsins í
heild hefur tekið stórt stökk
fram á við. Við lítum því björt-
um augum til framtiðarinnar og
þó við látum okkur nægja að
halda sæti okkar í 1. deild núna,
þá erum við staðráðnir í því að
blanda okkur í baráttuna um
titilinn næsta ár.
Meö þessum orðum Krist-
bjöms kveðjum við hann og þá
í. K. F.-menn, og ósjálfrátt dett-
ur okkur í hug, er við kveðjum
þessa ákveönu og leikglöðu pilta
að meiri alvara liggi á bak við
þessi lokaorð þjálfarans en
marga grunar.