Vísir - 17.03.1967, Blaðsíða 5

Vísir - 17.03.1967, Blaðsíða 5
V í SIR . Föstudagur 17. marz 1967. g jWWWVWAm^w.w.%w.w.-.%vw.-.w.w.w.-.%v.w.-.sw^.w.'.*.>.w.v%w.v.w.%w.-.w.w.w.v.-.iWAsv.wa%wv.ww^w ÆOfflfÆM • • HLUTFALLSKOSNINCAR Jþaö kom mönnum á óvart, þegar tveir stærstu flokk- arnir í Þýzkalandi, Kristilegi flokkurinn og Jafnaðarmenn, gengu í eina stjómarsæng í vet- ur. Allt frá því ný þýzk stjóm- málasamtök fóm að rísa upp úr rústum heimsstyrjaldarinnar höfðu þessir tveir flokkar verið höfuöandstæðingamir og litið var á þaö sem hálfgildings nátt- úmlögmál, að þeir mynduöu fylkingar stjórnar og stjórnar- andstöðu. Nú mnnu þeir saman í eina breiða og volduga stjórn- arfylkingu og síðan hefur hátt- að svo einkennilega til í sam- bandsþinginu í Bonn, að varla er hægt aö segja aö þar finn- ist lengur nein stjórnarandstaöa því aö menn nenna varla aö telja með dverginn, — litla flokkinn, „Frjálsa lýðræðis- sinna“. Samtímis og stjórnin nýja var mynduð fengu menn annaö undr unarefni. Stjórnin lýsti því yfir i stefnuskrá sinni, að hún heföi hug á aö gerbreyta kjördæma- skipun landsins, hún vildi inn- leiöa ströng einmenningskjör- dæmi í öllu landinu í staö þeirra hlutfallskosninga og uppbótar- þingsæta, sem hafa tiðkazt þar. Er ætlunin að koma þessum breytingum á fyrir kosningar ár ið 1973 og jafnvel er hugmyndin aó gera einhverjar minni háttar breytingar, sem miöi í þessa átt, fyrir næstu kosningar, sem fram eiga að fara haustiö 1969. Kyndugast þykir, aö það skuli vera Jafnaðarmennirnir, sem nú fitja upp á þessum breytingum, sérstaklega einn helzti foringi þeirra, Herbert Wehner, vinstri sinnaður maður. sem þó átti nú einna drýgstan þátt í að flokk- ur hans gekk til samstarfs við Kristilega flokkinn. Því aö þaö orö hefur löngum legið á, aö Jafnaðarmennirnir hafi alltaf barizt fyrir hlutfalls- og lista- kosningum. En nú virðast þeir ætla aö snúa blaðinu við. lVránustu tildrög þessarar riýj- 1 ” ungar eru auðvitað ákveðnir atburðir í Þýzku stjórnmála- lífi að undanfömu. Þar ber fyrst aö nefna óviðkunnanléga fram- komu „Frjálsu lýðræðissinn- anna“. Þeir em sem fyrr segir smáflokkur og hafa um langt skeið haft stjórnarsamvinnu við Kristilega flokkinn. En nú í vet- ur, þegar héraöskosningar fóru fram í Þýzkalandi, gripu þeir til þess ráðs í hreinu lýöskrums skyni, að skjóta sér undan allri ábyrgö á stjömarstefnunni og tóku til að fordæma skattahækk anir, þó allir hugsandi menn sæju, aö hag ríkisins var svo kom'iö, að þær vom óhjákvæmi legar. Sést það bezt á þvi, aö strax og Jafnaðarmenn komu inn í stjórnina, voru þeir reiðu- búnir að taka á sig ábyrgð á auknum álögum. „Frjálsir lýöræðissinnar" höföu þrátt fyrir smæö sína löngum oddaaöstöðu á þingi og beittu henni óspart til að hrifsa til sín óeðlilega mikil embætti og völd. Síöast beittu þeir valdi Siíia til að fella Erhard og ætl- uöu síðan bersýnilega að láta enn meira til sin taka, leituðu til JaÝnaðarmanna og buðu þeim stjómarsamstarf til að velta Kristilega flokknum alger- lega frá völdum. Þannig hugð- ust þeir beita oddaaðstöðu sinni til að framkvæma stórfellda byltingu. Allar áætlanir þeirra fóru að vísu út um þúfur, en framferði þeirra hefur vakið menn til umhugsunar um það, hve óviðkunnanlegt og óhugnan legt það sé aö slíkur dvergflokk ur geti þannig gerzt kaupahéð- inn um alla stjórnarhætti og ör- lög þjóöarinnar. Og því svæsn- ara þykir það, sem engin hug- sjónabönd gátu tengt „Frjálsa þurrka út „Frjálsa lýðræðis- flokkinn" með því að koma á skipulagi einmenningskjördæma. ^nnað atvik, sem ljær hug- myndum um einmennings- kjördæmi byr undir vængi í Þýzkalandi ,er uppkoma nýnaz- istaflokks, sem hefur fengið tals vert fylgi í héraðsþingkosning- um í Bæjarlandi og Hessen. Að óbreyttum aöstæðum er allt út- lit fyrir að hann verði fjórði stjómmálaflokkurinn á sam- Sem stendur er fylgi kommún- ista í Þýzkalandi sáralítið, svo ólíklegt er, að þeir kæmu nokkr um manni að í byrjun. En mjór er mikils vísir og Jafnaðar- menn langar ekkert til að fá kommúnista upp við hliðina á sér á Sambandsþinginu. Því vilja þeir hafa allan vara á, og breyta kjördæmaskipun svo að hún hjálpi kommúnískum smá- flokki ekki til að eignast fyrstu fulltrúa á þingi. Skopmynd úr þýzku blaði, sem túlkar umræðurnar um stofnun einmenningskjördæma. — Meðan Willy Brandt foringi jafnaðarmanna og Kiesinger f oringi Kristílega flokksins sitja rólegir í sætum sínum e. Mende foringi Frjálsra lýðræðissinna látinn hverfa niður um gólfið. — Grundvelli hans flokks verður svipt burtu. lýöræöissinna” við Jafnaðar- menn, aörir þeirra eru fulltrúar einkaframtaks og auðmagns, hitt sósíalískur flokkur. Hér var því aðeins boöiö til hrossakaupa um völd. Jjetta fyrirbæri er notaö mikið í umræðunum, sem dæmi um það, hvernig flokksforingj- bandsþinginu i Bonn eftir næstu kosningar. Er skiljanlegt, aö menn vilji gripa í taumana áður en svo er komið og gera honum erfiðara að koma fulltrúum á þing. Hefur það til dæmis verið rifjað upp, að nazistaflokkur Hitlers hagnaðist á hinum al- geru hlutfallskosningum Weim- ar-lýöveldisins. 1 Ríkisþings- Tjjóðverjar hafa nú farið að hugleiða vítt og breitt áhrif ólíkra kjördæmaskipana og birt- ast márgar greinar um það í þýzku blöðunum, þar sem ýmsir nafnkunnir menn láta álit sitt i ljósi. Eins og viö höfum reynslu af uppi á íslandi, er þetta viðfangsefni, sem hægt er að þjarka endalaust um og ar geti misnotað sér traust kjós- endanna, það sé harla ólíklegt að kjósendur „Frjálsa lýðræðis- flokksins" hafi getað ímyndað sér, að atkvæöi þeirra myndu stuðla að valdatöku Jafnaðar- manna i landinu. En svona fer það, segja menn, i skipulagi hlut fallskosninga, aö kjósendurnir hafa sjaldan hugmynd um, hvað þeir eru að leiða yfir sig, völd- in eru færð frá atkvæðakössun- um upp í hrossakaupafylkingar stjórnmálaforingjanna. Vegna þessara atburða virð- ast stóru flokkamir tveir vera orðnir sammála um þaö, að kosningum 1924 kom hann sem örlítill flokkur 14 mönnum á þing og árið 1928 kom hann 12 mönnum að. Margir líta svo á, að ef hann hefði ekki komið mönnum á þing á þessu tíma- bili, þá hefði hann leystst upp af sjálfu sér og enginn Hitlers þáttur orðið í sögu Þýzkalands. Enn má bæta því viö, aö nú er líklegt á næstunni að starf- semi kommúnistaflokks verði leyfð i Þýzkalandi, því að menn eru þeirrar skoðunar, að í lýð- ræöislandi sé þaö ekki rétta leið in til að hindra öfgaflokka að banna þá meö lagafyrirmælum. fylgja umræðurnar í Þýzkalandi viðtekinni venju að þær em haldnar öfgum, sumir sjá aðeins svörtu hliðina, aðrir aðeins þá björtu. Svo er þingræðinu spáð hruni, hvort fyrirkomulagið sem tekið er upp. Ég tek hér aðeins sem dæmi bollaleggingar kunns þýzks stjórnmálaritara, Sebastian Haffners í þýzka vikuhlaðinu Der Stern. Fyrst kemst hann að þeirri niðurstöðu ,aö einmenn- mgskjördæmi muni hafa I för með sér algert hrun fyrir Jafn- aðarmannaflokkinn, þar sem Kristilegi flokkurinn muni safna um sig öllu borgaralega fylginu og vera innan skamms kominn með 100% allra þingsæta i Bonn. En nokkru síðar í sömu grein kemst hann líka að þeirri niðurstööu, að einmenningskjör- dæmi muni valda hruni Kristi- lega flokksins því að þegar hann sé búinn aö ná öllum þingsæt- unum muni hann klofna niður i margar fjandsamlegar fylkingar. En hann dregur ályktun sína ekki nógu langt til að sjá að við þann klofning ættu Jafnað- armenn að eignast tækifæri upp á nýtt og er því greinileg mót- sögn í rökum hans. En hvenær eru rökræður um kjördæmaskip un ekki mótsagnakenndar? TVTeginreglan er sú, að einmenn Aingskjördæmi eru talin stuðla aö stórum flokkum og sterkri stjórn, en hlutfallskosn- ingar mörgum flokkum og veikri ósamhentri ríkisstjóm. Hlutfallskosningar eru af mörg- um taldar lýðræðislegri í and- anum, þar sem allar skoðanir fái að blómgast og dafna. En reynslan sýnir ,að hér er ekki hægt að koma við neinum algildum reglum. Að vísu var þaö mjög áberandi í Evrópu fyr ir stríð, að hlutfallskosningar reyndust ekki vel. Sígilt dæmi um þetta var þýzka Weimar- lýðveldið, þar sem 17 flokkar áttu fulltrúa á ríkisþingi og þeg ar vandræðatímar komu varð landið svo aö segja stjómlaust. Kerfi hlutfallskosninga á Italíu, Frakklandi og Austurríki leiddu líka til stjómleysis og hmns. Hins vegar varð árangur af hlut fallskosningum þá miklu betri á Norðurlöndum, þar sem einn flokkur, Jafnaðarmenn, bar slík an ægishjálm yfir hina flokkana, að hann gat veitt þjóöinni styrka stjórn. Tj'ftir stríð hafa einnig oröiö ýmis tilbrigöi á þessu. Á Norðurlöndum hafa smáflokk- arnir á síöustu ámm, þrátt fyr- ir hlutfallskosningamar, byrjað aö þjappa sér saman og orðið nokkuð ágengt til að vinna bug á veldi Jafnaðarmanna. Og i Þýzkalandi hefur þrátt fyrir hlutfallskosningar oröið ein- kennileg þróun, litlu flokkamir hafa smám saman verið að þurrkast út og eftir standa að- eins þrír flokkar á þingi, en þar hafa hjálpað til reglur um lág- marksfylgi til þess að koma mönnum á þing. T7" erfi einmenningskjördæma ^hefur heldur ekki alltaf gef- ið svo góða raun, sem menn vilja vera láta. Frægasta land ein- menningskjördæmanna er auð- vitað Bretland. Kosningar þar hafa ekki alltaf tekið af skarið. Meirihlutinn á þingi hefur stund um verið svo naumur, að orðið hefur að efna hið bráðasta til nýrra kosninga. lítill flokkur, Frjálslyndi flokkurinn, hefur stundum komizt í oddastöðu. Þrátt fyrir skipulag einmenn- ingskjördæma i Englandi tókst ekki að koma í veg fyrir það, að Verkamannaflokkurinn kæmi stöðugt upp og yki fylgi sitt en hann var eitt sinn aðeins litill minnihlutaflokkur. Annað ríki einmenningskiör- dæma hefur verið Kanada. Þaö gaf landinu um nokkurt skeið mjög öfluga stjóm. Frjálslyndi flokkurinr ^ir þá ægishjálm yf- ir aðra flokka og hafði sterkan Framh. ð bls. 13 I I j í í í ■AVAW.V.V.V.VVV.V.V.W.V.VVVWAV.'.V.V.'.V.V.WAW.V.V.W.VAV.V.V.V.V.'M.V/.V.V.V.W.V.V.VA'VAV.V/UW.V.WiVVVWVAW

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.