Vísir - 17.03.1967, Síða 8

Vísir - 17.03.1967, Síða 8
8 VÍSIR. Föstudagur 17. marz 1967. VISIR Útgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, símar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Túngötu 7 Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands í lausasölu kr. 7.00 eintakið Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. Tíminn 50 ára \ dag heldur dagblaðið Tíminn upp á 50 ára afmæli sitt. Blaðið hefur nú komið út óslitið síðan 17. marz 1917, fyrst vikulega, síðan nokkrum sinnum í viku og loks daglega síðustu 20 árin. Tíminn er þriðja ís- lenzka dagblaðið, sem heldur upp á 50 ára afmæli sitt. Komið er á sjöunda ár síðan Vísir átti 50 ára af- mæli og á fjórða ár síðan Morgunblaðið átti slíkt af- mæli. Og ekki eru nema rúmlega tvö ár þangað til Al- þýðublaðið á 50 ára afmæli. Öll þessi dagblöð eru á svipuðum aldri, börn hins mikla umbyltingartíma, er var hér á landi fyrstu tvo áratugi þessarar aldar, þegar ísland var að öðlast heimastjórn og sjálfstæði. Tíminn og Vísir hafa löngum eldað saman grátt silfur í stjómmálaskrifum og nú síðast í gær og fyrra- dag. Verður það vafalaust ekki í síðasta skipti. Að öðru leyti hefur samkomulag verið ágætt með blöð- unum, og eru þau prentuð í sömu prentvél. Hefði slíkt sjálfsagt þótt óhugsandi hér fyrr á árum. Þróun beggja þessara blaða hefur raunar ekki verið svo ó- lík, ef á allt er litið. Bæði hafa þau tekið þátt í hinni almennu þróun íslenzku dagblaðanna úr stjórnmála- blöðum í þjónustu- og fréttablöð fyrir almenning. Sú þróun gengur hægt en örugglega. Tíminn verður á 75 ára afmælinu sjálfsagt gjörólíkur því sem hann er í dag, eins og hann er í dag gjörólíkur því sem hann var fyrir 25 árum. Tíminn hefur átt því láni að fagna, að góðir pennar hafa valizt þar til starfa alla tíð, og er það ekki síður staðreynd í dag en í gamla daga. Blaðamenn Tímans hafa smám saman gert blaðið að öflugu dagblaði, sem nú er 16 síður að stærð virka daga, 24 á sunnudögum og með sérstöku sunnudagsblaði. Lesendur blaðs- ins eru einkum í sveitum landsins, þar sem Tíminn kemur nærri inn á hvert heimili, en einnig á hann töluverðan lesendahóp í kauptúnum og kaupstöðum landsins. Tíminn minnist í dag afmælis síns með sérstaklega vönduðu afmælisblaði. Þar er rakin saga blaðsins í 50 ár, birtar greinar úr blaðinu frá ýmsum tímum, — og ítarleg lýsing á skipulagi og rekstri blaðsins í dag. Saga blaðsins er mjög fróðleg heimild um þróun Tím- ans og merkilegt tillag til íslenzkrar útgáfusögu. Einna merkust er samt greinin um starfsemi Tímans eins og hún er nú. Er þar veitt skýr innsýn í skipulag dagblaðs og daglegan rekstur þess. Menn fá sýnis- mynd úr blaða heiminum og af þeim mönnum, sem standa að baki einu dagblaði. Það eru viðamikil og flókin fyrirtæki, dagblöðin, og ótrúlega margar hend- ur, sem þar eru að verki á hverjum degi. Er þessi grein áhugamönnum hin fróðlegasta lesning. Vísir óskar Tímanum hjartanlega til hamingju á afmælisdeginum. Grípa verður til róttækari ráð- stafana sunnanlands og vestan vegna íslenzka síldarstofnsins Fiskifræðingamir Jakob Jak- obsson og Hjálmar Vilhjálms- son sem veittu síIdarleUinni for stöðu á seinasta ári hafa ritað grein um síldarleit og síldargöng ur á seinasta ári í Ægi, rit Fiskifélags íslands og greinir þar frá ýmsum athyglisverðum niöurstöðum af síldarrannsókn- um íslendinga. — Þar segir m. a. hver þróun íslenzku sildar- stofnanna virðist vera. Helmingi minna veiddist af vorgotssíld sunnanlands og vest an árið 1966 heldur en árið á undan, en þá var hlutur hennar tæp 20% I aflanum en var á seinasta ári tæp 10%. En veiöi á ókynþroska síld (2-3 ára) hefur farið vaxandi á seinustu árum Göngur íslenzku síldarinnar norður fyrir land virðast hverf- andi. Hrygning norsku vorgotssild- arinnar hefur mislukkazt undan farin ár og telja þeir fiskifræö- ingamir að svipuð veiðí og ver ið hefur hér við land geti ekki haldizt miklu lengur en fram undir 1969-1970, en norski síld- .jrstofninn er meginuppistaðan í síldvelðunum norðanlands og austan. Eitt skip, Hafþór, leitaði síld ar fyrstu mánuði ársins sunn- anlands, en þrjú skip vom við sildarleit í sumar mesv út af Austurlandi. Hér fer á eftir útdráttut fr grein fiskifræðinganna (míh'- fyrirsagnimar em blaösins). Hreyfing norska síldarstofnsins pMns og undanfarin tvö ár var allt svæöiö frá Stranda- grunni austur fyrir Melrakka- sléttu algerlega síldarlaust og vestangöngu íslenzku vorgots- síldarinnar varð ekki vart fyrri- part sumars nú fremur en und- anfarin ár. Um miðjan júlí varö raunar vart við torfur á utan- verðu Strandagrunni djúpt NV af Kolbeinsey, en athuganir Æg is og veiðiskipa leiddu í ljós aö þar var um loönu og síli að ræöa. Algerlega átulaust var fyr ir Noröurlandi í sumar sem og sl. 2 ár og sama máli gegnir um grunnslóðina austanlands fyrrihluta sumars. Á sama tíma sýndu athuganir Rússa, NorÖ- manna og okkar sjálfra, að mikil rauðáta var fyrir hendi djúpt austur af landinu, allt milli Fær- eyja og Jan Mayen. Bendir þetta til þess, að aðalástæðan fyrir hinni tregu göngu norsku sildar innar vestur á bóginn sé sú, aö rauöáta náöi ekki að þróast svo nærri landi sem venja er á þess um árstíma. Mun þetta ástand hafa orsakazt af óvenjulegum kulda í hafinu norður, og að nokkm austur af landinu fyrri- hluta sumars. Einnig má benda á, að er líða tók á sumarið bötnuöu átuskil- yröin mjög mikið vestan til á Austfjaröamiöum og fer síldin þá aö færa sig nær landi. í júlíbyrjun var, sem fyrr er sagt, mikill hluti mafgöngunnar komin á miðin sunnanvert viö Jan Mayen. Veiðar gengu þó. fremur stirt, því síldin var dreifð yfir stórt svæði og torf- umar óstööugar. Einnig fékkst af.og til afli á Austfjarðamiðum um 100 sjóm, frá landi. Um miöjan ágúst fer sá hluti stofnsins er veriö haföi við Jan Mayen að ganga suöur á bóg- inn og við lok þessa mánaðar má segja aö mestur hlutinn sé kominn á Austfjaröamiö. Gekk síldin nú nær landi enda átu- skilyrðin ágæt þar eins og fyrr er sagt. Þess má líka geta hér til gamans að þyngdaraukning síldarinnar varð í sumar allt að 30%, en það er um helm- ingi meira en í meðalári. Um miðjan október má segja að síldin hafi komiö sér fyrir á vetursetustöðvum sínum 60-100 sjómflur út af Austfjörðum. Nokkur hluti norska síldar- stofnsins gekk ekki vesturum í maf og júnf, heldur norður með vesturströnd Noregs og hélt sig fyrrihluta sumars á svæðinu SV af Bjamarey um 200 sjóm. NV af Andanesi í Norður-Noregi. Utdráttur úr grein Jakobs Jakobssonar og Hjálmars Vilhjálms sonar um sildarleit og sildargöngur Síldin hélzt þarna staöbund- in að mestu fram yfir áramót ' og tók ekki að færa sig frá landi fyrr en í janúar. Flest skipin stunduöu veiöar á svæðinu til jóla þrátt fyrir afar umhleyp- ingasama veðráttu og nokkrir bátar hófu aftur veiði eftir ára mótin. Líkur á að veíði dragist saman fyrir 1970 Hlutur íslenzku vorgibtssíldar innar fer stöðugt minnkandi i aflanum noröanlands og austan og er sem hér segir Ár fsl. sfld norsk sild 1962 53% 47% 1963 29% 71% 1964 13% 87% 1965 6% 94% 1966 Minna en 6% Meir en 94% Norska síldin hefur því ver- ið ríkjandi f aflanum síðan 1963 og mun veröa meðan íslenzki vorgotsstofninn er jafn veikur og raun ber vitni. Meginuppistaða veiðanna i sumar var sex og sjö ára göm- ul síld. Þ.e.a.s. árgangamir frá 1959 og 1960. Lítillega gætti enn árgangsins frá 1950, einkum í Myndin sýnir svæðaskiptinguna ásamt skiptingu aflans s!. 6 :\r. Öll árin hefur um og yfir helmingur aflans fengizt á svæði 59 eöa út af Austfjörðum. Engin veiði hefur veriö á vestur- og miðsvæölnu norðanlands (54 og 55) sfðan 1963 og 1964 og ekkert undanfarin 2 ár á svæði 56. — Afll hefur farið vaxandi á úthafssvæðunum, svo sem Jan Mayen (vantar á kortið), en þar velddist 15% heildar- veiöarinnar 1965 og 14% 1966, en ekkl nema 2.2% fyrir fjórum áram. Þarna koma hin fullkomnu skip til skjalanna, en þau hafa einmitt verið að bætast í flotann á þessum áram. Um miðjan september hóf þessi sfld göngu vestur á bóginn og um miðjan október er hún kom in á svæðið um 120 sjóm. S af Jan Mayen. Rækilega var fylgzt með síldargöngu þesari á v.s. Ægi er var á svæðinu í október. Einnig var fylgzt með hreyfingu hins mikla fjölda rússneskra reknetaskipa, sem voru að veið um á þessu svæði og fylgdu göngunni eftir. Þessi sfld var að mestu leyti af árgöngunum frá 1959 og 1960 um 40% af hvor um, en einnig var um að ræða nokkuð af fimm ára gömlum fiski (árg. 1961) eða um 10%. Þessi ganga blandaðist síðan hin um hluta stofnsins út af Aust- urlandi. upphafi vertíöarinnar, svo og nokkuð 5 ára síldar frá 1961. Enda þótt þeir árgangar, sem nú hafa verið taldir, þ. e. 1959, 1960 og 1961 verði að teljast allsæmilegir, hefur hrygning norsku vorgotssíldarinnar mis- lukkazt að meira eða minna leyti síðan. Veröur því að á- lykta aö svipuð veiði og verið hefur geti vart haldizt miklu lengur en fram undir 1969-70. nema verulega sterkur árgangur bætist í stofninn á næstunni. V.s. Otur leifaði sfldar suð- vestanlands frá septemberbyrj- un til 5, desember. Ekki varð síidar vart svo neinu næmi i Faxaflóa og má heita að ekkert Framh. á b)s 10

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.