Vísir


Vísir - 17.03.1967, Qupperneq 13

Vísir - 17.03.1967, Qupperneq 13
u < 1 SIR . Föstudagur 17. marz 1967. 13 Allir sem þekkja vinnuvélar þekkja Lækka kostnaðinn Hraða framkvæmdum Utvegum aílar CATERPÍLLAR vinnuvélar með stuttum fyrirvara Upplýsingar fúslega veittar Simi 21240 H E11 B y E í Z L U M11 HtKLA hf Laugavegi 170-172 5 2 S | 2 2 5 s ca £ ^ □ V5 g 2 U <D Fösfudagsgrein — Framh. af bls. 5 meirihluta á þingi. Ein ekki hef- ur það reynzt óbrigðult. Nú deilá' margir flokkar um völd- in í Kanada og sem stendur er minnihlutastjórn þar við lýði. Síðasta dæmið höfum viö úr frönsku kosningunum. Þrátt fyr ir einmenningskjördæmi voru Gaullistar að því komnir að missa þingmeirihlutann. A f þessu má sjá, aö varasamt er að vera meö of miklar stáðhæfingar um óbrigöulan ár- angur af ööru hvoru kerfinu. Öfgar þeirra má og jafna á ýms an hátt með öryggisákvæðum. Fáum kemur nú lengur til hugar að kerfi hlutfallskosninga eigi að gilda út í æsar, það var lær- dómur, sem Weimar lýðveldiö kenndi mönnum. Þaö er einnig mjög vafasamt, sem fylgismenn hlutfallskosn- inga halda fram, að það kerfi tryggi bezt sannkallað lýðræði. Þeir geta að vísu bent á það, að ef einmenningskjördæmum væri nú komið á í Þýzkalandi yrði „Frjálsi lýðræðisflokkur- inn“ þurrkaður út Qg það myndi þýða, að 3—4 milljónir kjós- enda fengju engan fulltrúa kjör- inn á þing En svo einfalt er þetta mál ekki, því að af breyttri kjördæmaskipun myndi leiða breytta flokkaskipun og senni- legt er að um leið og „Frjálsi lýðræðisflokkurinn“ þurrkaðist út myndu fylgjendur hans ganga í Kristilega flokkinn og hafa sín áhrif gegnum raðir hans, mynda sína flokksarma í honum. Hið sanna lýðræði er alls ekki einungis fólgiö í því, að sem flest sjónarmið fái að koma fram í skiptingu atkvæðanna i at kvæðakassana meðal sem flestra flokka. Ákvörðunarvald- ið verður aldrei einungis hjá hinum almenna kjósanda, held- ur í margvíslegu samspili milli flokksfunda úti í hinum ein- stöku héruðum og ákvörðun flokksforingja í héraði, þing- flokki og í miðstjórn hvers flokks og inn á þessa maskínu spilar það bæði, hvemig ástand þjóðarinnar er hverju sinni og hvaða kjördæmafyrirkomulag er í gildi. J^jördæmaskipunin virðist við fyrstu sýn geta haft úrslita- áhrif á niðurstöður kosninga og styrkleikahlutföll flokka á þjóð- þingum, en þessi áhrif jafnast þó mjög af sjálfu sér, vegna þess að flokkamir laga sig til eftir henni og mynda nýjar sam steypur. Þess vegna virðist mér, að það sé mikilvægara að kanna það, hvaða áhrif kjördæmaskip- unin hefur hverju sinni á flokk- ana. Og þar virðist mér að meginreglan sé sú að við kerfi hlutfallskosninga skapist hætta á doða og áhugaleysi innan flokkanna. í stað þess að menn heima i hverju kjördæmi sam- einist um einn frambjóðanda í einmenningskjördæmi, sem er bundinn þeim persónulegum böndum og ábyrgð og sem velja verður með tilliti til eigin hæfi- leika, sjálfstæðis og Iíklega per- sónulegra vinsælda kemur listi sviplausra manna, sem' bera litla sjálfstæða ábyrgð eru aðeins tannhjól í stórri maskínu. Það er að vfsu eins með þetta og annað í margvíslegu samspili lífsins, að engin -algild regla verður fundin, en þetta virðist vera tilhneigingin. Það er versti fylgifiskur hlutfallskosninganna þegar á heildina er litið, aö starfsemi flokkanna doðnar upp innan frá þegar í stað persónú- legrar ábyrgðar og aðhalds kem ur nafnleysi númeranna á fram- boðslistunum. Þorsteinn Thorarensen. Glasal eru emaileraðar asbestplötur í mörgum litum Glasal er notaö í vegg og skilrúma klæðningu utan og innanhúss litirnir eru ekta og breytast ekki Glasal Helztu kostir eru: Höfum einnig fyrirliggjandi utan og innanhúss ASBEST >f- Algerlega eldtraust >f- Viðhaldsfrítt >f Údýrt * HUSPRYÐI H.F. Laugavegi 176 sími 20440

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.