Vísir - 27.04.1967, Blaðsíða 7
VÍSIR. Fimmtudagur 27. april 1967.
7
morgun
útlönd í morgun
útlönd í iriórgun
útlönd í morgun
útlönd
einingar / KÍNA
Aðalmálgagn kínverskra komm-
únista, „Dagblað þjóðarinnar“, birti
í gær ritstjómargrein á forsíðu, þar
Bnnbyrðis átök
Btauðra varðliða
í gær kom til innbyrðis átaka
milli Rauðra varðliða i Peking.
Vegna átakanna varð að loka
stærstu verzlun borgarinnar. Upp-
tök voru þau, að flokkur með gjall-
arhom neitaði að taka þátt í mót-
mælum gegn Liu forseta. í seinni
tíð hefur oft komiö til átaka milli
rauðra varðliða í Peking.
Handtökur á Spáni
Undangengna daga hafa nokkrir
verkalýðsleiðtogar verið handteknir
á Spáni.
Fimm manna ólögleg verkalýðs-
nefnd var fangelsuð f Madrid s.l.
mánudagskvöld.
í Bilbao voru 17 verkamenn hand
teknir. Þessar handtökur eru taldar
tengdar leynilegum fundi í Madrid
og að hér sé um varúðarráðstafan-
ir aö ræða vegna þess að 1. maí er
skammt undan.
sem menn' era „beðnir um að binda
enda á stjómleysið í landinu". 1
1 NTB-frétt um þetta segir, aö í
þegar á þetta sé litið í ljósi þeirra
atburða, sem hafi gerzt >nú í vik-
unni, og nefnir þar átökin fyrir
utan stórverzlun í Peking milli
rauöra varðliða innbyrðis, hallist
menn enn frekar að þvf en áður,
að „Maoistamir eigi enn langt í
land með að koma á einingu í land-
inu“.
Mikill mótmæla-gauragangur hef-
ur átt sér stað fyrir utan sendiráð
Indónesfu, gjallarhorn óspart not-
uð, og rúður hafa verið brotnar í
sendiráðsbyggingunni, og framrúöa
í sendiráðsbíl. Er mikil grerhja ríkj-
andi út af hnjaski því og móögun-
um, sem fólk af kínversku bergi
brotið hefur orðið fyrir f Indónesíu.
Settur ambassador Indónesíu hef
ur kvartað yfir hávaðanum, sem
hann segir svo mikinn, að varla
sé hægt að tala í síma inni í hús-
inu.
Hinn setti ambassador, Sutadis-
astra og blaðafulltrúi hans, hafa
fengið fyrirskipun um að fara úr
landi fyrir 30. þ. m., en þeir eru
sakaðir um aö hafa stundað „alls
konar starfsemi til þess að grafa
undan kínversk-indónesiskum
tengslum".
IfSÍJÍH
Hver stýrir kínversku skútunni? — Washington Post.
Kínverskir sendiráðsmenn
geröir landrækir
Tveir kínverskir sendiráðsmenn í
Indónesiu, hafa verið gerðir land-
rækir. Þeir voru þeim sökum bom-
ir að hafa veriö forsprakkar í fjand
samlegum aðgerðum gegn ríkis-
stjóminni í fyrri viku. — Malik ut-
anríkisráðherra tilkynnti þetta, en
lagði á það áherzlu, að Indónesia á-
formaöi ekki að slíta stjómmála-
sambandi við Kína.
Kommúnistaforsprakkar
á ráðstefnu
í gær var sett í Karlovy Vary
ráðstefna kommúnistaleiðtoga frá
Austur- og Vestur-Evrópulöndum,
Flokksleiðtoginn í Tékkóslóvakíu,
Antonin Novotny setti hana. AIls
eru mættir þama leiðtogar frá 24
löndum, þeirra á meðal Brezhnev.
sovézki kommúnistaleiðtoginn. —
Rætt verður um öryggismál Evr-
ópu.
Konstantin konungur sat stjórnarfund i gær
Svetlana Stalin
Byltingarstjórnin í Grikklandi hélt
fund f gær og var Konstantin kon-
ungur í forsæti á fundfnum. Lét
hann í ljós von um, að brátt yrði
komiö á aftur þingræði i landinu.
Skömmu eftir að fundinum Iauk
var aflétt útgöngubanninu í Aþenu,
en það hefur verið f gildi að næt-
urlagi frá þvf byltingin var gerö í
fyrri viku, en búið var að aflétta
því að nokkru að degi tii.
Sérlegur fréttaritari brezka út-
varpsins símaði í gær frá Aþenu,
að þar sem Konstantin konungur
heföi verið í forsæti á fundinpm og
leyft að taka mynd af sér og Kolias
forsætisráðherra yrði það ekki skil-
ið á annan veg en þann, aö hann
hefði viðurkennt stjórnina, þótt
hann kunni að hafa sett einhver
skilyrði fyrir stuðningnum.
Svetlana á fundi
með fréttamönnum
Flokkurinn samsekur fóður minum um
skelfingaratburði stjórnartima hans
Konungur sagði í gær á fundin-
um, að undangengnir tímar hefðu
verið tímar erfiðrar reynslu í Grikk
landi, reynt að grafa undan stoð-
um lýðræðisins, konungdæmið og
réttarfarið orðið fyrir árásum, en
hann kvaðst vera staöráðinn í að
gera skyldu sína við þjóðina, og
með hennar hjálp og stjórnarinnar
vonaði hann, aö unnt yrði að koma
á réttlæti, lýðræöi og þingræði á
traustan grundvöill.
Flaug yfir
Hiroshima — ný-
látinn ár bláð-
krabba
Látinn er í Dearborn, Bandaríkj-
unum, Róbert R. Shumard, sem var
einn af áhöfn flugvélarinnar, sem
6. ágúst 1945 flaug yfir Hiroshima.
Hann lézt af völdum blóðkrabba,
46 ára. Hann var Iagður í sjúkrahús
fyrir 3 dögum. Geislavirk áhrif
kjarnorkusprengingarinnar kunna
áð hafa verið orsök sjúkdómsins.
„Deutschland,
Deufschlund
iiber ulles"
Svetlana, • dóttir Stalins, hélt
fyrsta fund sinn í gær með frétta-
mönnum i New York.
Hún kvað Kommúnistaflokkinn
meðábyrgan Stalin fyrir skelfingar-
atburði stjórnartíma hans, og á-
byrgðin hvíldi einnig á herðum
manna, sem gegna enn í dag hin-
um mikilvægustu ábyrgðarstöðum
í Sovétríkjunum.
Svetlana kvað ofsóknirnar á
hendur rithöfundunum tveimur,
Daniel og Siniavski, sem í fyrra
voru sendir í fangabúöir, hafa haft
„hræðileg áhrif“ á aila mennta-
menn Sovétrikjanna.
Trú og kommúnismi geta aldrei
átt samleið, sagði hún, og hún
kvaðst hafa orðið fyrir æ meiri
trúaráhrifum og það breytt lífsskoð
unum hennar. Fyrir 5 árum hefði
hún látið skíra sig í Rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunni, en „þegar ég
tala um guö, á ég við hið góða á
jörðu, lífshamingjuna, lífskraftinn,
réttlæti. Menn ættu að starfa sam-
an í þágu hins góða“. Það væri
þetta, sem hún ætti við, er hún tal-
aði um guð.
í viðtalinu kom fram, að hún
hafði ekki náð síma- eða bréfasam-
bandi við böm sín í Moskvu.
Þegar Kiesinger kanslari hafði
lokið minningarræðu sinni í
Bonn um dr. Adenauer lék hljóm-
sveit þýzka þjóðsönginn „Deutsch-
land, Deutschland iiber alles“.
Undir fyrstu tónunum sátu allir,
svo var sem Lubke forseti ætlaði
að rísa úr sæti, en hikaði, og settist
aftur, en þá fóru menn að rísa á
fætur, og að lokum stóðu allir.
Lubke fylgdi hinum tveimur for-
setum, de Gaulle og Johnson —
úr salnum. Johnson kinkaði kolli
til ástvina Adenauers, en de Gaulle
gekk til þeirra og vottaöi þeim
samúð meö handabandi.
I
Andreas Pappandreu, sem hand-
tekinn var í upphafi byltingarinnar,
verður nú leiddur fyrir dómara
vegna þátttö'ku í samsærj liðsfor-
ingja s.l. haust (Aspida-samtökun-
um, en frá þeim málum var nýlega
sagt hér í blaöinu).
Athygli vekur, að tekið er þann-
ig til orða, að hann verði leiddur
fyrir dómara, og mun því mál hans
verða tekið fyrir í borgaralegum
rétti að líkindum, en nýlega hefur
verið sagt frá stofnun herdómstóla
í landinu, og mun þar verða farið
með mál þeirra, sem brotlegir reyn
ast gegn nýju stjórninni.
Konstantin.
Fyrsta Ioftárásln á MIG-
flugvelli í Norður-Vietnam
var gerð í gær. Flugvellir þessir
eru í grennd við Hanoi, annar við
Hoa Lac, um 30 km vestari Hanoi,
hinn 60 km norðaustan borgarinn-
ar. Bandarískur talsmaður kvað á-
rásirnar hafa verið vel heppnaðar.
Utvarpið í Hanoi segir, að 6 banda-
rískar flugvélar hafi verið skotnar
niður.
Vopnaðir menn
ná valdi á flugvél
Menn vopnaðir skammbyssum
náðu nýlega á sitt vald flugvél,
sem var í innaniandsflugi í Nigeriu,
á leið frá Benin í miðvesturhluta
landsins til Lagos, sem er höfuð-
borg sambandsríkisins. í flugvél-
inni voru 20 farþegar, Nigeriumenn,
Bretar, Irar og ítalir. Flugmaður-
inn var neyddur til að fljúga til
Enugu, höfuðstaðar Austur-Nigeriu.
Ofbeldismennirnir, sem ekki voru
klæddir einkennisbúningum, eru
trúlega hermenn frá A-Nigeriu.
Þeir komu kurteislega fram við far-
þegana, sem vom fluttir í „luxus-
hótel“ við komuna til Enugu. —
Sarrvbandsstjómin bannaði nýlega
allt flug til Austur-Nigeriu. Deilan
mil'li Austur-Nigeriu og sambands-
stjórnarinnar á rætur að rekja allt
til hemaðariegu byltingarinnar i
fyrra.
Reynt að leika á Tsjombe.
Frétt frá Madrid hermir, að ný-
lega hafi verið gerð enn ein tilraun
til þess að Iokka Tsjombe fyrrum
forsætisráðherra heim til Kongó, en
hann var nýlega dæmdur þar til
lffláts.
Ólafur V. á fund páfa.
Ólafur Norðmannakonungur hóf
opinbera heimsókn í gær, miðviku*
dag, á Ítalíu, og áður en henni lýk-
ur gengur hann fyrir Pál páfa.
Réttarhöld Russels.
Stokkhólmsfréttir herma, að Bert
rand Russeíl muni kveðja saman
stríðsglæparétt sinn, eftir að neit-
aö var um að slík réttarhöld færa
fram í Frakklandi, en sænska stjóm
in hefur í skeytum og bréfum lagt
áherzlu á, að hún telji ekki, að
slik réttarhöld stuðli að friðsam-
legri lausn 'deilumrar.