Vísir - 27.04.1967, Blaðsíða 2

Vísir - 27.04.1967, Blaðsíða 2
2 VÍSIR. Fimmtudagur 27. apríl 1967. Stjórn Meistarafélags húsasmiða skrifar um ibúðaverðið: Villandi upplýsingar um Reynimelsbiokkina Stjórn Meistarafélags húsasmiöa hefui sent Vísi greinargerö um íbúðaverö og Byggingasamvinnufélag sjómanna og verkamanna. Vegna nöldurs greinarinnar í garð Vísis þykir rétt aö taka eftir- farandi fram: 1. Fréttir blaðsins af þessum málum voru einkum fólgnar í upptalningu á dæmum um byggingakostnaö í ýmsum bæj- um og kauptúnum landsins. Niðurstaða blaösins um eöli- legan byggingakostnað er byggö á fjölda slíkra dæma, en ekki Reynimelsblokkinni einni. Stjórnin skrifar rangar tölúr um, hvað Vísir álíti raunveru- legan byggingakostnað. Réttu tölurnar getur hún lesið á bæjarsíðu blaðsins, bls. 11. Þær hafa birzt þar daglega und- anfarið og munu gera það áfram um sinn. Vísir hefur bent á margar mögulegar orsakir fyrir hinu háa íbúðaverði i Reykjavík. Veigamesta hækkunin var sögð koma fram í endursölu íbúða. Er fráleitt, að blaöiö hafi einkum ráðizt að byggingameisturum í því sambandj. Hefst svo grein stjómar Meistarafélags húsasmiða: 2. 3. Um síðustu mánaðamót hófust í blöðum Reykjavíkur mikil skrif um íbúðaverð hér í borg, og hafa þessi mál verið íalsvert á dag- skrá siðan og jafnvel spunnist í blaðaskrifin frásagnir af íbúðaverði á ýmsum stöðum á landinu. Ber að harma, að skrif þessi hafa verið í nokkrum æsifregna- stíl og mikið um fullyrðingar, sem ekki eru rökstuddar að neinu leyti. Verður hér vikiö nokkuð aö skrif- um þessum, þótt ekki verði um taemandi svör aö ræða að sinni, enda er það skoðun Meistarafélags húsasmiða, aö all-langur tími geti liðið, þar til öll kurl verði komin til grafar í máli þessu. Er engum til farraðar að halciiö veröi áfram að skrifa um þessi mál af sömu ilasgirni og að ur.danförnu, en sjálfsagt er að gera hér nokkrar athugasemdir til að skýra þessi mál, þótt ekki sé víst, að slíku verði fagnað af þeim, sem hafa byrjað þessi skrif eða átt upptök að þeim af lítilli fyrirhyggju. Það er upphaf þessa máls, að Visir tilkvnnti það með stórri fyr- irsögn á forsíðu föstudaginn 31. marz, að „byggingakostnaður væri 50% af gangverði íbúða“, Var síð- an sagt, aö komið hefði fram á -•V'.lfur>di Byggi ngarsani vinnuf é- !-r!' verkamanna og sjómanna, sem reist hefði fjölbýlishúsið Revnimel 88—92 fyrir félagsmenn sina, að „kostnaðarverð, reyndist a. m. k. helmingi lægra en gang- verð er nú á almennum markáði". 1 grein þessari í VIsi eru birt- ar ýmsar tölur, sem fengnar munu vera frá stjórn félagsins eða for- manni þess, Guðmundi Guðmunds- syni, því að blaðið kveðst ein- mitt hafa haft tal af honum. Verð- ur að ætla, að eftirfarandi séu orð Guðmundar, þótt Vísir birti þau ekki innan'tilvitnunarmerkja: ..Samkvæmt þessu virðist svo vera, sem raunverulegur bygging- arkostnaður sé þessi, sem að ofan "reinir en gagnverð íbúða fjarri lagi og sé um óhóflegan gróða að ræða hjá þeim, sem hafa byggt íbúðir til að selja þær“. Hinn „raunverulegi byggingar- kostnaður", sem þarna er átt við, er þessi samkvæmt sömu frásögn í Vísi: 2ja herbergja íbúð kr 480 þús., 3ja herbergja 550 þús. og 595 þús. og 4ra herbergja 680 þús. krónui Stjóm BSV eða formaður þess sveigir að mörgum aðilum með ummælum sínum í Vísi, meðal ann ars byggingameisturum, sem sum- ir hafa gert nokkuö að því að smíða fbúðir og selja. Og Vísir fær fljótlega Þjóðviljann til liðs við I . sig, því að hann tekur máliö upp 2. apríl, og hefur þá meðal annars þessi ummæli eftir Guðmundi Guð- mundssyni: „Einn félagi okkar dró sig út úr þessu á sínum tíma og sagðist heldur vilja byggja 2ja herbergja ibúð sína hjá Byggingarfélagi verkamanna og kostar slík íbúð á þeirra vegum kr. 787 þúsund að hans sögn. Þó nýtur það byggingarfélag op- inbers stuðnings með fjármagn, en okkar íélag nýtur. engra for- réttinda — heitir Byggingarfélag verkamanna og sjómanna". Vísir hefir síðan haldiö áfram að skrifa um þessi mál og einkum beint skeytum sínum að bygginga- meisturum, sem vændir eru um að okra á íbúðum. Rétt er þó að geta þess, að byggingarfélag verka- manna fær sinn skerf af þessum aödróttunum, svo sem sagt er hér að framan, þar sem getið er þeirra kjara, sem einn af félögum í BVS varð að sæta, þegar hann hvarf úr því félagi og íil Byggingar- félags verkamanna. .Þetta félag hefir nú starfað ára- tugum saman, og mun þetta vera í fyrsta sinn, sem því er brígzl- að um að okra á þvi láglauna- fólki, sem keypt hefir íbúöir fyrir tilstilli þess. Hitt mun sönnu nær, að þáð félag hafi verið talið halda íbúðaverði niðri, en nú eru komn- ir fram nýir spámenn og er þá Öllum. og öllú öðrú yarpað. fyrir. borð , ■■■• ■ • Þess er aö váentá, að forvigis- menn þess félags; sem reist hefir fleiri íbúðir en nokkurt annaö hér á landi, geri það fyrir Vísi og heimildarmenn hans að upplýsa, í hverju okur félagsins er fólgið. I þessu sambandi. er rétt að benda á, að áætlunarverð íbúða hjá Byggingarsamvinnufélagi Reykjavíkur er nú sem hér segir: Fyrir 2ja herbergja íbúðir 480 þús. kr., 3ja herbergja 670 þús. og 4ra herbergja 813 þús. kr. Þessi á- ætlun er við það miðuð, að íbúðir séu afhentar tilbúnar undir tré- verk og gengið frá allri sameign. Enginn mun halda því fram, að þetta félag skorti reynslu í að byggja, enda þótt það hafi ekki verið eins mikilvirkt og Byggingar félag verkamanna, og enn hefir því ekki verið haldið fram, að það hafi iagt stund á okur í starf- semi sinni. Eins og sagt hefir verið hér að framan, er það ekki ætlun Meist- arafélags húsasmiöa að biðia blöð- in að birta fyrir sig langt mál að þessu sinni. Sjálfsagt er hins vegar að benda á ýmis atriði 1 sambandi við þetta mál, sem kunna að fara framhiá öllum al- menningi, og verður þá ekki hjá því omizt að krefia stjórn BVS svara við ýmsum spurningum. Stendur væntanlega ekki á svörum hjá mönnum með svo hreinan skjöld sem þeim. Vera kann þó, að svör- in gefi tilefni til frekari skrifa, og mun Meistarafélagið þá ekki telja eftir sér að taka þátt í rökræðum um þetta mál. En'félagið vill end- urtaka það, sem áður var sagt, að vart verður þetta mál útrætt, fyrr en bvggingu bússins að Reyni- mel 88—92 er að fuliu lokið og j gnngið hrfi- venð M ö’ium reikn- ! ingum. Þá fyrst verður málið ljóst, þá sést 'hver verður endanlegur kostnaður, og væntanlega verða forvígismenn félagsins eins gunn- reifir þá og þeir hafa verið að undanförnu. Það er þegar vitað, að .byggingu Reynimels 88—92 er ekki lokið enn. Óvíst er hvenær byggingunni verður lokið til fullnustu, en fyrir nokkru var þetta ógert, sem nú skal upp talið: Eftir er að pússa þriðjung bygg- íngarinnar óg kálfinn. Síðan er einnig ætlunin að mála húsið aö utan, og er því að sjálfsögðu held- ur ekki lokið. Eftir er að setja öll handrið úti. Hitaveitutenging er ógreidd, en hún kostar á annað hundrað þúsund krónur.. Þetta eru aðeins fáein atriði, hin stærstu sem eftir eru, en stjórn félagsins er vonandi fáan- leg til aö birta nákvæma sundur- liðun á kostnaði við frágang á sam eign, sem framkvæma á, og ekki á að fara fram úr kr. 880.000 að þvi er sagt hefir verið. Þá er ekki ósennilegt að ýmis- legt fleira, sé enn ógreitt í sam- bandi við bygginguna, bæði sitt- hvað, sem talið hefir verið, og ýmislegt, sem ekki hefir verið tí- undað. Er rétt, aö stjóm BVS gefi upplýsingar um þetta atriði og væntanlega stendur ekki á því aö hún geri þaö. Enn er að geta ýmissa atriða, sem fram hafa . komiö, og hafa sitt að segja þegar litið er á fjár- mál BVS, sem „nýtur engra for- réttinda", eins og haft hefir verið eftir Guðmundi Guðmundssyni. í því sambandi langar marga til að vita, hverju nafni ætti að nefna nokkur þau atriði, sem upp verða talin hér á eftir. BSV er stofnað 1. marz 1965. Því er samstundis fengin til af- nota ein bezta og eftirsóttasta fjölbýlishúsalóð borgarinnar og getur þegar hafið byggingafram- kvæmdir um mánaðamótin ágúst- september. Félagið er m. ö. o. ekki hálfs árs gamalt, þegar svo er komið að það er byrjað að byggja. Hvað skyldu þeir menn, sem berj- ast árangurslaust vikum og mán- uðum saman við að fá lóð, kalla slíka fyrirgreiðslu af borgarinnar hendi? Skyldi engum koma til hug- ar þetta, sem G. G. afneitaði — forréttindi! Flestir húsbyggjendur veröa að byrja á að greiða gatnagerðargjald, þegar þeir fá loks lóð hjá borgar- yfirvöldunum. Svo geta liðið 12 — 18 mánuðir, þar til sömu aðilar mega hefja byggingaframkvæmdir. En þurfti BVS að sæta þeim kjör- um? Nei, BVS var ekki krafið nema um hluta gatnagerðargjalds- ins mánuði áður en framkvæmdir hófust og lokagreiðslan á þessu gjaldi fór ekki fram fyrr en átta mánuðum síðar. Rétt er að geta þess, að gatnagerðargjaldið nam alls 302,550 krónum, að því er Vísir segir, og er erfitt að sjá, hvernig sú tala er til komin. Við sömu götu reistu aðrir aðilar hlið- stætt fjölbýlishús, og þar var gatnagerðargjaldið ákveðið 413,000 krónur. Skyldi nokkrum detta í hug for réttindi, þegar þessar staðreyndir eru hafðar í huga í sambandi við tilhliðrunarsemi Reykjavíkurborg- ar viö BVS? Þann 26. apríl 1966 fékk BVS 2,6 milljóna króna lán hjá Bygg- ingarsjóði ríkisins til að fleyta sér yfir erfiðan hjalla, meðan beðið var eftir fé frá Húsnæðismála- stjórn. Sami sióður lánaði félag- inu aftur eina millión króna 13. febrúar s.l. Slíka fyrirgreiöslu fá aðeins þeir, sem.eru í náðinni hjá vissum mönnum og njóta forrétt- inda. Eða hvað finnst þeim mörgu, sem hafa staðið í ströngu mánuö- um og jafnvel árum saman við að byggja yfir sig íbúð, sem hefir stöövazt hvað eftir annaö vegna fjárskorts? Hvað finnst þeim, sem hafa ekki getaö fengið fé hjá Hús- næðismálastjórn, þótt þeir hafi haft lánshæfar íbúðir? Það er svo sem ekki að furða, þótt formaður BVS hafi talið rétt að guma af því, að hann og fé- lager hans hafi „gert þaö sem allir geta gert“ — án forréttinda! Þetta er nú orðiö alllangt mál og skal litlu einu við bætt, Er líka frekar von til þess að greið svör fáist, ef ekki er spurt of margs 1 senn. Þó verður ekki hjá því komizt að bæta við nokkrum spumingum að endingu. Er þá fyrst sú, hvert hafi verð- ið verið á íbúðum í ágúst 1965, þegar BVS lét félagsmenn greiða sína fyrstu greiðslu, svo nokkur samanburður fáist við það verð, sem félagið talar nú um á íbúðum sínum. Það er vitað, að hjá bygginga- meisturum er’ ákveðið, fast verð á íbúðum, um leið og þeir taka við fyrstu greiðslu hjá viðskipta- vinum sínum. Fari hins vegar svo, að hinn almenni borgari selji sína íbúð, keypta af byggingameistara, eftir hálft annað ár eða þar um bil, er það verð, sem hann fær umfram hið upprunalega kaup- verð vitanlega ekki hagnaður, sem rennur £ vasa byggingameistarans. Það er ósennilegt, að hægt sé að finna nokkurn mann, sem keypt hefir íbúð af byggingameistara og selt.aftur eftir l1/?—2 ár, að hann hafi ekki hagnazt á þeim viðskipt um, þó að verð slíkra íbúða hafi ekki verið hóti hærri en íbúoá, seni voru orónar 5 — 10 ára. Loks má spyrja um eftirfarandi, Hve mikil eru opinber gjöld hjá BVS? Veit félagið og ajmenningur — hvað þeir byggingameistarar eða félög, sem byggja íbúðir og selja, verða að greiða í opinber gjöld af hverri íbúð? Hve mikið hefir BVS greitt í sölulaun til samræmis viö það, sem byggingameigtarar greiða? Hægt væri'að spyrja fleiri spurn inga á þessu stigi málsins, en skal ekki gert; svo að síður vefj- ist fyrir stjóm BVS að gefa skjót og afdráttarlaus svör. Veröur fróð- legt að lesa þau, þegar þar aö kem- ur. En til þess að þetta ljóta að- dróttunarmál verði leitt svo til lykta, að allir geti vel við unað, þyrfti nauðsynlega að efna til opin berrar ransóknar og gera þá sam- anburð á verðlagi íbúða hjá bygg- ingarsamvinnufélögum, Byggingar- samvinnufélagi verkamanna og sjómanna. Byggingarfélagi verka- manna og byggingarmeisturum. Verður þá að sjálfsögðu að taka til greina þann tíma, þegar sala fer raunverulega fram, eða þegar fyrsta greiðsla er innt af hendi og verð ákveðið. Annars er það furðulegt, að stjórn Byggingarfélags verka- manna skuli ekki hafa látið til sín heyra í þessu máli, því aö það fé- lag er eini aðilinn, sem nafngreind ur hefir verið af stjóm eða for- manni BVS sem sá aðili, er hér stundar okur á byggingamarkaðin- um. Má þaö undur kallast, ef stjórn félagsins vill liggja lengur undir. þeirri ákæru. Skal nú láta staðar numið og þess beðið, að stjóm BVS og aðrir aðilar, sem hafa eitthvað til mál- anna að leggja, láti til sín heyra. Reykjavík 25. 4. 1967. Stjórn. Meistarafélags húsasmiða. Múrvinna Múrarar geta bætt viö sig verkefnum strax. Uppl. í símum 37225 og 82915 eftir kl. 7 á kvöldin. Nauðungaruppboð annað og síðasta á hl. í Hjallavegi 15, þingl. eign Sæmundar Guðlaugssonar, fer fram á eigninni sjálfri laugardaginn 29. apríl 1967 kl. 3. síðdegis. Borgarfógetaembættið. Uppboð annað og síðasta á hl. í Grettisgötu 71, þingl. eigandi Margrét Berndsen o.fl., fer fram á eigninni sjálfri til slita á sameign, laugardag- inn 29. apríl 1967 kl. 2.30 síðdegis. Borgarfógetaembættið.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.