Vísir


Vísir - 21.06.1967, Qupperneq 8

Vísir - 21.06.1967, Qupperneq 8
8 V í S I R . Miðvikudagur 21. júní 1967. VÍSIR Utgefandi: Blaðaötgáfan VlSIR Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson i Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri; Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, símar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Túngötu 7 Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands 1 lausasölu kr. 7.00 eintakið Prentsmiðje Vísis — Edda h.f. Kaldur stríðsmaður J^alda stríðið er ekki úr sögunni enn. ískuldi þess lagðist yfir allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í fyrradag, þegar Kosygin Sovétleiðtogi flutti þar æs- ingaræðu um styrjöld Araba og Gyðinga. Kosygin hefur hingað til verið talinn frekar hófsamur skipu- lagsmaður, en í ræðu sinni sýndi hann á sér nýja hlið. Hann frysti þær vonir, sem menn höfðu gert sér 1 um, að Sovétríkin mundu aðstoða við að koma á var- anlegum friði á landamærum fsraels. Hugaræsingur Sovétleiðtoganna er að ýmsu leyti skiljanlegur. Þeir hafa orðið fyrir óvæntu og hrika- legu áfalli í valdasókn sinni í hinum umdeilda heims- hluta. Þeir höfðu látið blekkjast af stóryrðum leiðtoga Arabaríkjanna og eggjað þá til fjandskaparins við ísrael, sem náði hámarki með siglingabanninu á Ak- abaflóa. Öll fór þessi ráðagerð út um þúfur, er her- veldi Arabaleiðtoganna féll saman á fjórum dögum, Sovétleiðtogunum til mikillar hrellingar. Þeir ætla greinilega með köldu samningastríði að bæta Araba- n leiðtogunum upp ósigur þeirra í heita stríðinu. Þjóðhátíð á nýja staðnum ]\okkra óánægju vakti sú ákvörðun þjóðhátíðar- nefndar að færa 17. júní-hátíðina úr miðbænum og inn í Laugardal. Reynslan af hátíðinni er hins vegar slík, að ólíklegt er, að þjóðhátíðin verði flutt úr Laug- ardal á næstu árum. í ljós kom, að staðurinn er á flestan hátt vel fallinn til þessa. Dalurinn rúmar mik- inn mannfjölda. Einnig eru þama ýmis þau mann- virki, sem þarf til hátíðahalds, svo sem sýningarhöll, skrúðgarður, íþróttavöllur, sundlaug og áhorfenda- pallar. Aðstaðan mun enn batna í framtíðinni, því Laugardalurinn byggist smám saman upp sem íþrótta og útivistarsvæði. Rigningarveðrið á laugardaginn 1 kom í veg fyrir, að þjóðhátíðin nyti sín nógu vel á V þessum stað í fyrsta sinn. En þar eru einmitt skil- 1 yrði til að færa sum dagskráratriðin inn í hús, — sýn- ingarhöllina, þegat illa viðrar. Kvölddansinn var inni í höllinni. Hann hefði áreiðanlega verið dauflegur í rigningunni á götum miðbæjarins. Og ekki er hægt að hugsa sér glæsilegri þjóðhátíð í góðviðri en einmitt í Laugardalnum. Odýr málun Stjóm Málarameistarafélagsins hefur nýlega upplýst, að samkvæmt uppmælingu kosti ekki nema rúmar 18 þúsund krónur að mála venjulega, nýja fjögurra herbergja íbúð. Greinilegt er því, að uppmælingataxti málara er hafður fyrir rangri sök, þegar kvartað er um, að dýrt sé að láta mála. Og húsbyggjendur munu áreiðanlega minnast upplýsinga félagsins, þegar þeir (( þurfa næst á þessari þjónustu að halda. (( Kuwait-ráðstefnan kann að leiða i Ijós qildi „arabiskr m ar einingar Utanríkisráöherrar Arabaland anna komu saman á fund um seinustu helgi svo sem kunnugt er af fréttum. Tilgangurinn meö þessum fundi var sagöur vera, að ræða og taka ákvarðanir um samstöðu Arabalandanna á auka fundi Allsherjarþingsins, — og ennfremur vinna að undirbún- ingi að fyrirhuguðum fimdi æðstu manna Arabalandanna, sem ákveðið er að halda í Khartoum í Sudan, uppá- stunguna að þeim fundi áttu þeir Nasser forseti og Ismail- al-Az-hari forseti Súdan. Þá mun einnig verða rætt um samræmdar nýjar aðgerðir gegn ísrael — ef til þeirra yrði að grípa, að áliti Arabaríkjanna 13, sem Kuwaitfundinn sitja. Og svo eru samræmdar að- geröir á dagskrá gagnvart Bret- landi og Bandaríkjunum, en Breta og Bandaríkjamenn er enn reynt að saka um að hafa sent. flugvélar ísrael til stuðnings dag inn sem flugher Egypta lamaöist svo, að á þeim degi unnu ísraels menn raunverulega stríðið. Miklar viöræöur eiga sér lika stað milli leiðtoga, Nassers for- seta, sem gegnir nú embætti forsætisráðherra — jafnframt forsetaembættinu — og flokks- leiðtogastörfum, og Noureddins Al-Etassi forseta Sýrlands, og fleiri. Meðfylgjandi mynd af þeim tveim herrum var tekin er Noureddin El-Atassi var að koma frá Alsír, þar sem hann ræddi viö Boumedienne forsæt- isráöherra. Að Austurlandasið heilsuðust þeir Nasser og El- Atassi með því að núa saman nefjum. Ekki er látið neitt uppi um viðræöur El-Atassi og Boumedi- enne en gert er ráö fyrir að Boumedienne hafi gert El-Atassi grein fyrir viðræðum við Tító forseta og Kosygin forsætisráöh. Sovétríkjanna í ferð sinni til Moskvu fyrir skemmstu, en hann hafði viðkomu í Belgrad í báðum leiöum. „Einingin" í Arabalöndunum. Hún er að margra áliti meiri í orði en á boröi, og þótt Bo- umedienne hafi stungið upp á, aö Arabalöndin öll ákveði olíu- bann á Bretland og Bandaríkin, er meira en vafasamt að sam- komulag náist þar um, þar sem vitað er aö sum olíulandanna eru banni mótfallin þótt þau hafi dansað með þegar Nasser blés í flautuna, fyrir innrásina i Egyptaland. Þar að auki er fullyrt, að Bandaríkin geti hæg- lega framleitt eöa fengið nóga olíu handa sér og einnig séö Bretum fyrir birgöum. Aö áliti margra sérfræðinga mundi olíu- bann skaða Arabaríkin margfalt meira en Bretland og Banda- ríkin. Athyglisverðast, sem ekki var minnzt á. Það var i ræðu sem Boumedienne flutti í fyrradag, sem hann stakk upp á árs olíubanni. Fréttarit- arar segja, að yfirleitt hafi þess lítiö orðiö vart hjá fólki sem á ræðuna hlýddi, hvort þvi líkaði betur eða verr. En fréttaritarar segja, að ræðan hafi veriö lang athyglisverðust fyrir það, að Boumedienne minntist ekkert á ferðina til Belgrad og Moskvu, ekkert á stuöning Sovétríkjanna við Arabalöndin, og ekkert á Nasser, en hann endurtók, aö „orrusta væri töpuð, en ekki styrjöld" og halda yrði áfram baráttunni, — því að „annars kæmi röðin að Alsír“. Stjórnmálafréttaritarar segja, að ræðan verði helzt skilin á þann veg, að Boumedienne hafi verið að búa menn undir að hyggilegast sé fyrir Alsírbúa aö treysta á sjálfa sig en ekki aðra. Hussein: Engar sannanir. Og meöal þeirrá þjóðaleiðtoga sem látiö hafa til sín heyra nú, þegar Allsherjarþingið er komiö saman til .fundar, er Hussein Jórdaníukonungur, sem vegna hinnar margumtöluðu arabísku einingar gekk í fóstbræðralag við Nasser forseta, en þeir voru áöur hatursmenn. Var það rétt fyrir leifturstyrjöldina. í fyrradag ræddi Hussein viö fréttamenn, og meðan Kosygin og aörir kyrjuðu sama sönginn um flugvélastuðning Breta og Bandaríkjamanna við ísrael dag inn, sem flugher Egyptalands var sigraður, tók hann skýrt fram, að hann hefði engar sann- anir fyrir slíkum stuðningi viö ísrael, hvorki frá fyrmefndum þjóöum eöa öðrum. Nýtt ríki. Ben Gurion fyrrum forsætis- ráðherra ísraels hefir stungiö upp á stofnun nýs ríkis á vestur bökkum Jórdan, sem yrði í efna- hagslegum tengslum við ísrael- el. Ef til vill er þessi hugmynd fram komin vegna þess, aö hann telji frekar hægt aö koma henni í höfn heldur en að fá viður- kenningu á yfirráðum Israels- manna á hinu hertekna landi vestan Jórdan. Annars er þessi hugmynd svo nýlega fram kom- in að menn hafa lítið um hana sagt í útvarpi og blöðum enn sem komiö er, og verður fróö- legt að heyra álit sérfróöra manna um hana. A. Th.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.