Vísir - 21.06.1967, Side 9

Vísir - 21.06.1967, Side 9
V í S IR . Miðvikudagur 21. júní 1967 9 V'isir ræbir við Israelsmann og Egypta um skoðanir þeirra á ástandinu i löndunum fyrirt botni Miðjarðarhafs Það er f ólkið sem skapar landið ekki landið sem skanar fólkið Segir YOUSEPH RAZ frá Tel Aviv, i viðtali við blaðamann Visis yísir frétti af einum ísraelsmanni sem staddur er í Reykjavík um þessar mundir. Vegna atburða þt4rra sem hafa verið að gerast í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafsins síðustu daga fýsti okkur að ná tali af manninum og tókst það greiðlega fyrir milli- göngu Sigurgeirs Sigurjónssonar aðalræðismanns ísraels á íslandi. Sigurgeir léði okkur einnig húsnæði til viðtalsins í skrifstofum sínum að Óðinsgötu 4. Við settumst við borð í skrifstofunni og biðum eftir manninum frá ísrael litla stund. Ahmed Hafez Awad. Innan skamms birtist hann, fremur iágvaxinn ungur maður með dökkt hrokkið hár og ljóst yfirvararskegg. Hann heilsaöi hæversklega og settist andspæn is okkur við borðið, tók upp tóbakspung og sígarettubréf og vafði sér sígarettu. — Ég er frá Tel Aviv og þar búa foreldrar mínir. Ég hef ver- ið að ferðast um heiminn i tvö Það má ekki dæma þjóðirnar eftir forystumönnum þeirra segir Ahmed Hafez Awad frá Kairó i eftirfarandi viðtali við Visi Ég er fæddur í febrúar árið 1942, í litlum bæ skammt utan við Kairo. Tveim kílómetrum utan við bæinn er flugvöllurinn Almaza, sem er her- flugvöllur og var eyðilagður í loftárás í upphafi styrjaldarinnar. Fjölskylda mín fluttist frá Egypta- landi skömmu eftir að Nasser tók við völdum. Sá sem mælir þessi orð heitir Ahmed Hafez Aw- ad og hefur verið búsettur hér frá því á jólum 1965, kvæntur íslenzkri konu, Guðrúnu Ásu Brands dóttur og eiga þau hjónin eina dóttur barna, sem nú er átta mánaða gömul. stSJa Awad vinnur hjá Islenzk- Ameríska verzlunarfélaginu og starfar þar að bókhaldi og sölu- mennsku m.m. — Hvernig stóö á því að fjölskylda þín fluttist frá Egypta landi eftir valdatöku Nassers? — Faöir minn er blóösérfræð- ingur. Þegar Nasser komst til valda stjórnaöi faöir minn blóö- banka. Nasser setti „offísér" sem yfirmann við bankann „til að hafa augá með hlutunum" eins og þaö er kallað. Þetta líkaöi fööur mínum ekki og flutti fjölskyldan til Qatar sem er lítið 'furstadæmi viö Persa- flóa, og þar starfar hann nú aö sérgrein sinni. — Fluttir þú meö fjölskyldu þinni til Qatar? — Nei, ég fór til Englands, en bróðir rninn fór aftur á móti til Qatar. Reyndar hefur hann verið við nám í Englandi undanfarið og lýkur þar efna- fræöiprófi næsta ár. Frá Eng- landi fór ég til Þýzkalands, en !>ar hitti ég konu mína og flutti meö henni til íslands. I fyrra komu foreldrar mínir i heim- sókn til okkar og þótti þeim landið fagurt og fólkið gott. Faðir minn sagöist meira að segja vilja veröa jaröaður í ís- lenzkri mold. — Hvað viltu segja um at- buröi þá sem hafa verið að gerast í löndunum fyrir botni Miöjaröarhafsins? — Allir vita hvernig málin hafa skipazt í þessum löndum á undanfömum'árum. Það má segja að Súezdeila Egypta og Breta hafi gert Nasser stóran. Margir halda að Naquib sé upp- hafsmaöur byltingarinnar í Egyptalandi, en sannleikurinn er sá að þeir stóðu báðir að henni, hann og Nasser. Síðar haföi Nasser betur. Hann lofaði fólkinu miklu og þaö fékk mik- ið. Sérstaklega á þetta við um bændurna, en Nasser úthlutaöi þeim landi og nú em þeir meöal tryggustu fylgismanna hans. Nasser hefur lagt mikið upp úr hervæðingu þjóðarinnar, en margir landsmenn eru á móti honum þess vegna. Egyptar eru ekki miklir hermenn, en þeir eru góðir bændur enda hafa þeir yfir að ráða einhverri frjósöm- ustu jörð sem til er í heiminum og á ég þar við landið á bökk- um Nílar. — Telur þú að almenningur í Egyptalandi hafi verið á móti styrjöld? — ÞaÖ má vera að Egyptar hafi verið stórorðir fyrir styrj- öldina, en þau orð hafa ekki rist djúpt. í raun og veru eru Egyptar friðsamir og kæra sig ekki um að fara í styrjöld. Al- menningur gerir sér ekki grein fyrir því, til hvers hann á að fá byssur í hönd og halda til bar- daga út £ eyðimörkina þegar nóg er að starfa heima fyrir og ég býst ekki við að það séu margir bændur sem vilja yfir- gefa jörðina sína, konu og böm til þess að berjast i eyðimörk- inni. Það má ekki dæma þjóð- ina alla eftir stjómendunum. — Hvað um þátt ísraelsmanna í styrjöldinni? — ísraelsmenn sigruöu í þessari styrjöld með leiftursókn sinni. ísraelski herinn er mjög vel skipulagður og hermennim- ir í góöri þjálfun. Þar sefur hver einasti maður með byssu undir koddanum. Israelska þjóðin hefur oröið að þola mikið gegnum aldirnar og nægir að minna á meðferö nazistanna á þeim. ísraelsmenn segjast hafa rétt á að vera ein- hvers staðar og einhvers staðar verða þeir að vera, hjá því verð- ur ekki komizt. En ef þjóðin ætlar að búa í Israel, verður hún að sitja við sama borð og Arabar vegna stöðu landsins. Þessar þjóðir ættu að geta etið brauð sitt saman undir sömu sól. Að mínu áliti hefðu þjóö- irnar í viðkomandi löndum fyr- ir löngu átt að setjast við samn- ingaborðið og ræöa hlutina, f stað þess að hervæöast af kappi hvor fyrir sig. — Telur þú að trúmálin hafi Framhald á bls. 10 og hálft ár og ætla að halda því áfram enn um sinn. Ég hef veriö hér á íslandi í einn mánuð og fékk vinnu á mánudaginn var, við byggingar. Meiningin er að vinna í um þaö bil tvo mánuði og ferðast svo gangandi um landið. — Hvað viltu segja um styrj- öldina milli Araba og Gyðinga? — Styrjaldir eru yfirleitt ástæðulausar. Þjóöirnar eiga að lifa í friði. Mín þjóð vill ekkert frekar en lifa í friði, og bezt mundi það vera fyrir alla aðila. ísrael er mjög lítiö land með mnan viö tvær milljónir íbúa. Fyrir tuttugu árum var megnið af landinu eyðimörk, en nú héfur stór hluti þess veriö ræktaður upp. Samt höfum við nóg af eyðimörk ennþá. Ef þú lítur á landakort get- urðu séð að landið er umkringt af Arabaríkjum á alla vegu nema einn, þar liggur það aö hafinu, Arabalöndin í kring eru víöáttumikil og byggðin safn- ast saman á vissum stöðum. Aröbum hefur gengið hægt aö rækta upp eyðimerkurnar og sækjast máske þess vegna eftir landi okkar. Þessar þjóðir um- hverfis okkur hafa allar her- væðzt af kappi undanfarið. Þeg- ar Egyptar lokuöu Akabaflóan- um var um mjög alvarlega aö- gerð að ræða frá þeirra hendi, þar sem þeir lokuðu siglinga- leiðinni að landi okkar. Sú ráð- stöfun er sambærileg við það, að sett væri siglingabann á Faxaflóa. Slíkt mundi fljótlega segja tii sin fyrir isienzku þjóðina. — Hefur þú gegnt herþjon- ustu? — Já, ég hef lokiö herskyld- unni. Hjá okkur er hún tvö og hálft ár og er mé • óhætt aó segja aö hún sé mjög ströng Það má segja aö heræfingar hafi veriö stöðugar og án hvíldat þennan tíma, enda er israeis- herinn í mjög góðri þjálfun. Þaö er nauðsvnlegt fyrir okkur aö hafa styrkan og vel þjálfaðan her, þar sem viö erum svo fá- menn. Ef varnarveggur okkai brestur á einum stað, er ekki í annað hús að venda en sjó- inn, og þá er ekki um annaó að ræöa en grípa sundtökin. — Hvemig líkaöi þér í her- þjónustunni? Það líkar engurn vel aö vera í hernum. Flestir gegna her- skyldunni á árunum 18—21 árs, en það er bezti tími ævinnar, sá tími sem fólk notar yfirleitt til að mennta sig eða skoða sig um í heiminum. — Samkomulag ykkar við ná grannana hefur ekki veriö upp á það bezta? — Viö hötum engan. I Bombay hitti ég Egypta og biðum viö báöir eftir sama skipinu og spiluðum billiard í tvær vikur. Við ræddum vandamál þjóöa okkar eins og maöur við mann og vorum góðir félagar. — Hverjar telur þú orsakir striðsins? — Þaö getur verið erfitt aó vera málsvari einnar stefnu í svo flóknu máli sem þessu, enda eru alltaf fleiri en ein hlið á hverju máli. Auðvitað held ég fram þeim málstað sem mér finnst réttur, en mér getur skjátlazt eins og öðrum. Það mætti segja mér að Nass er ætti töluveröa sök á því hvemig fór. Um margra ára skeið hefur Nasser verið aö reyna að sameina Arabaríkin í eitt, með þaö fyrir augum að verða æðsti maður yfir slíku stórveldi. Þetta hefur gengiö erfiðlega og deilur hafa risiö milli einstakra Arabaríkja. Með því að hefja stríð viö ísraels- menn, taldi Nasser að takast mætti að sameina Araba í því máli a. m. k. og finna með því Framh. á bls 10 Youseph Raz. as

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.