Vísir - 22.07.1967, Page 8

Vísir - 22.07.1967, Page 8
8 B VÍSIR Otgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson Auglýsingan Þingholtsstræti 1, símar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Túngötu 7 Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuðl innanlands 1 lausasölu Kr. 7.00 eintakið PrentsudðjE Vísis — Edda h.f. Framsókn og skattarnir Tíminn sagði í fyrradag, að það væri mikil ósvinna að leggja skatta á fjölskyldubætur, enda hafi þing- menn Framsóknarflokksins „að undanförnu“ flutt frumvörp á Alþingi um að undanþiggja fjölskyldu- bætur og aðrar tryggingabætur alveg álagningu skatta og útsvars. Það er rétt hjá Tímanum, að Framsóknarmenn hafa að „undanförnu“ verið að leggja fram frumvörp um þetta efni. Þeim datt það m. ö. o. ekki í hug fyrr en þeir voru komnirií stjórnarandstöðu! Viðhorf þeirra eru sem sé önnur til þessa máls eins og annarra, þeg- ar þeir eru utan stjórnar. Þess verður ekki minnzt, að þeir hafi léð máls á því, að afnema nokkurn skatt þegar þeir voru í ríkisstjórn. Þvert á móti var þá talið, að núverandi formaður flokksins hefði sem fjármálaráðherra sett heimsmet í að finna sífellt upp nýja og nýja skatta. Það er því varla hægt að leggja trúnað á þessa „stefnubreytingu“, fremur en aðrar hjá Framsókn, þegar hún er í stjórnarandstöðu. Vitaskuld væri æskilegt að geta afnumið skatta af fjölskyldubótum. Þeir eru að vísu litlir sem engir hjá þeim, sem ekki hafa aðrar tekjur, en eflaust kem- ur að því, að þeir verða afnumdir. En tæplega verð- ur það fyrir forgöngu Framsóknarflokksins, ef hann á eftir að komast í ríkisstjóm. Það er broslegt að lesa skrif Tímans um skattamálin, þegar Framsókn er ut- ar> stjórnar. Menn hljóta að undrast þá tvöfeldni, sem þar kemur fram, ef þeir muna fyrri tíma, þegar flokk- urinn fór með völd. Þess virðist lítil von, að Framsókn ætli nokkurn tíma að lærast, að hegða sér eins og ábyrgur stjóm- málaflokkur í stjórnarandstöðu. Forustumönnum flokksins ætti þó að fara að skiljast að þjóðin sér í gegnum blekkingarnar. Það sýndu úrslit kosninganna í sumar. Sú „sókn“, sem Framsókn náði um tíma, með óheyrilegum blekkingum og ábyrgðarleysi, var stöðvuð og undanhaldið er hafið. Nú sér flokkurinn enn fram á langa útivist frá stjórnarráðinu og fylgi hans mun áreiðanlega fara minnkandi næstu árin, hvaða ráðum, sem*hann beitir til þess að halda í horf- inu. Em það makleg málagjöld fyrir glöp hans á und- anförnum árum. Framsókn er algerlega staðnaður stjórnmálaflokk- ur. Hún hefur engin stefnumál og hefur ekkert já- kvætt -íagt til landsmálanna s.l. átta ár. Allt hefur snúizt um að rífa niður það, sem stjórnarflokkarnir hafa verið að byggja upp. I þeirri iðju hefur Framsókn staðið dyggilega við hlið kommúnista og oft jafnvel gengið mun lengra en þeir í skemmdarstarfinu. VÍSIR. Laugardagur 22. júlí 1967. Púðurtunnan FRÁ KYNÞÁTTAÓEIRÐUNUM I NEWARK í fyrri grein var vikiö nokkr- um orðum að sumu af því, sem veldur því, að kynþáttaóeirðim- ar era sívaxandl vandamál í Bandaríkjunum, þrátt fyrir Iaga- setningu um jafnrétti að lögum og baráttu fyrir jafnrétti i reynd við . forystu þjóðarleiðtoga, slíkra manna sem Kennedy heit- ins forseta og Johnsons núver- andi forseta og ótal annarra. I einni eða tveimur greinum er ekki hægt að víkja ýtarlega að orsökum þessa vandamáls, en á þrennt mætti minna nú : Blökkumönnum er enn mismun- að í ýmsu og þeir eru misrétti beittir, þeir búa víöa við hin hörmulegustu húsnæðisskilyrði, og í þriðja lagi er — við slík skilyröi — auövelt fyrir öfga- fulla leiðtoga að ala á hatri og eggja til verknaða, sem blökku- fólkinu er talin trú um, að séu unnir í þess þágu, en í reynd- inni torvelda þá góðu sambúð og jafnrétti það í reynd, sem lö.g in eiga að tryggja. — Og það mætti bæta við: Að þegar allt fer i blossa einhvers staðar er það þó sjaldnast nema brot íbúa þess staðar, þar sem óeirðir eru, sem valda vandræðum. Blökku- fólkið er yfirleitt gott fólk og vandað, og heldur oftast glað- lyndi sínu og það við hin erfið- ustu skilyröi. Um það má svo vafalaust deila endalaust hvort það bil, sem er milli blakkra og hvítra verði brúað. Það verður að við- urkenna, að blökkufólkið mundi eiga margfalt fleira fólk í á- byrgðarstöðum, ef því hefði ekki yfirleitt verið haldið niðri. — Margir blökkumenn hafa getið sér orð sem vísinda- og mennta- menn. Gleymum því ekki að varamaður sjálfs framkvæmda- stjóra Sameinuöu þjóðanna er blökkumaður, svo að dæmi sé nefnt, en hann er dr. R. Bunche, og minnisstætt ætti þaö að vera, að Johnson forseti skipaði ný- lega mikils metinn blökkumann í dómarasæti í Hæstarétti lands ins, en þar hefur blakkur mað- ur aldrei átt sæti fyrr. En staðreynd er þaö, að bilið er breiðara milli hvítra og þel- dökkra í Bandaríkjunum en á Bretlandi, þar sem menn hafa beyg af tilhugsuninni um kyn- þáttaóeirðir, og þar er það breið- ara en í Frakklandi, en f Frakk- landi er það enn breiðara þó en í Suður-Ameríku, þar sem það að sögn er varía tlL Þar hefir átt sér stað eðlilegur sam- runi ólíkra kynja. Hvað gerist í framtíðinni í Bandaríkjunum verður ekki um sagt, en því hei ir verið haldiö fram, að þaé verði aldrei hægt að stöðva san runa hvítra og dökkra manna þar til eilífðamóns. Lesið hef ég þær skoðanir, að á komand tímum verði þessi samruni þesi- valdandi, að blendingsþjóð bygg Bandaríkin, er hafi hörundslii með egypzkum blæ. Þessi þróun hefur átt sér staó allt frá því blökkufólkið var flutt sem þrælar til Bandaríkj- anna. Og enn í dag gera hvítir menn blökkum konum börn, þótt þeir fyrirverði sig fyrir að láta sjá sig með þeim á aimanna færi. Ég ræddi þessi mál eitt sinn við menntaða bandariska konu, sem sagði — og lækkaði rödd- ina um leið: Þér megið vita, aö það er blandað blóð í allt að 40% bandarísku þjóðarinnar. Ef vikið er nokkru nánar að þvf, sem gerðist f Newark. er þess að geta sem lítils hátt&i var að vikið áður: húsnæðis- vandamálinu, þrengslunum, af- brotunum, kynsjúkdómunum, sem erji meiri í Newark en nær alls staðar annars staðar, — slík eru skilyrðin, sem þetta fólk býr við, í húsahjöllum, sem eru arfleifð frá þeim tfmum er hvítir, fátækir innflytjendur bjuggu í þeim, þvi að lengi vei komu ávallt fátækir innflytjend- ur í stað þeirra, sem komust úr tölu fátækra. Vikuritið Newsweek segir: Innflytjendumir í dag eru blökkumenn. í svarta hverfinu (ghetto), sem hefur teygzt út frá Central Ward, býr helming- ur 400.000 íbúa borgarinnar... í Newark þrífst nær allt hiö versta, sem um getur f borgum Bandarfkjanna. Þar eru verstu húsnæðisskil- yrðin, þar er afbrotafjöldinn mestur, segir ritið, þar er mest um kynsjúkdóma og þar eru flest ný berklatilfelli, og at- vinnuleysingjafjöldinn svo lítt hagganlega hár, að Ne;ark er ein af aðeins fimm bandarfsk- um borgum, sem þarf á sér- stakri aðstoð sambandsstjómar að halda. Ritið bendir á áður, að vik- urnar á undan hafi verið mikill ágreiningur milli talsmanna blökkufólks og borgarstjórnar og leitt til syo mikillar gremju \ blökkufólks að lá við að syði upp úr. Og svo kviknar neistinn Lögreglan handtekur blakkan leigubílstjóra fyrir umferðar- brot og blökkufólk, sem nem- ur staðar handan götunnar, hort ir á, og fleiri bætast við og svo eru hrópuð vígorð um hrotta- skap lögreglunnar (police hru- tality) og orðrómur kemst á kreik um að leigubflstjórinn hafi drepizt í höndum lögreglunnar. og byrjað er að kasta grjóti, varpa Molotovsprengjum (heima tilbúnum olfusprengjum), velta um bílum, ryðjast inn í búðir og brjóta þar allt og bramla eða ræna öllu, sem hönd á festi. Lögreglan ræður ekki við neitt. Ríkisstjórinn sendir þjóðvamar- lið á vettvang. Það er skotið á lögreglu og þjóövamarliðsmenn af húsaþökum, og svo kemur að fyrirskipuninni til þjóðvamar- liösmanna: — Notið byssumar, til þess eru þær. A. Th. Æ I I

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.